Dagur - 22.08.1962, Qupperneq 4
4
5
r.................................................. 1
AÐRIR NJÓTA
ÁVAXTANNA
ÞEGAR litið er yfir héruð landsins og
glæsilegar framfarir síðustu áratuga,
verður þess þó vart, að einstaka bóndi
hefur „dagað uppi“ eða ekki fylgt fjöld-
anum á hinu öra framfaraskeiði. Hjá
þeim bændum eru lítil tún, lélegar bygg-
ingar og afrakstur búanna lítill. Ef heild-
arsvipurinn í búskap íslenzkrar bænda-
stéttar bæri þessi kyrrstöðumerki, væri
bæði kjötskortur og mjólkurskortur í
landinu i stórum stíl, en inn þyrfti að
flytja landbúnaðarvörur fyrir hundruð
milljóna króna frá öðrum löndum.
Síðan núverandi ríkisstjóm tók við
völdum, hefur stefna hins opinbera í
landbúnaðarmálum verið sveigð inn á
stefnu kyrrstöðunnar og ört minnkandi
framfara. Svo er að sjá, sem ríkisstjóm-
in ætli bændastéttinni að „daga uppi“.
Kenning íhaldsins um nauðsyn þess að
fækka bændum landsins um helming,
var ekki út í bláinn, þótt fáir tækju hana
alvarlega þegar hún kom fyrst fram. —
Síðan íhaldið hlaut valdaaðstöðu í ís-
lenzkum stjórnmálum og liin nýja efna-
hagsstefna var upp tekin, hefur verið
svo að bændum kreppt, að jafnvel flokks-
bundnir og einlægir íhaldsbændur ganga
nú fram fyrir skjöldu til að mótmæla á-
rásum ríkisstjómarinnar á bændastéttina
og hóta sölustöðvun, ef ekki verður úr
bætt. Morgunblaðið hrekkur upp með
andfælum, þegar franmii fyrir því blasa
skeleggar samþykktir öflugra bændasam-
taka í lieilum landshlutum, samanber
Laugafundinn. Þá prentar það stórar fyr-
irsagnir eins og þessar: „Sjálfstæðismenn
munu vinna áfram að uppbyggingu land-
búnaðarins.“
Bændur landsins vilja allt annað frem-
ur en áframhald þessarar uppbyggingar-
stefnu íhaldsins og afþakka hana cinarð-
lega. Þeir óskuðu ekki eftir 1700 króna
ársskatti á hvert býli. Ekki voru þving-
unarlög og óáfrýjanlegur dómur um
verðlag landbúnaðarvara sett þeim í hag
eða að þeirra ósk. Ekki báðu bændur um,
að verð landbúnaðarvéla hækkaði um
nálega helming á sama tíma og mjólk og
kjöt hækkaði aðeins lítilsháttar. Þau haf-
ast illa við, sárin, sem bændastéttin hef-
ur lilotið af opinbemm aðgerðum „við-
reisnarstjórnarinnar‘'. Stórar fyrirsagnir
um, að Sjálfstæðismenn „muni vinna á-
fram að uppbyggingu landbúnaðarins"
er ósvífin hótun af hendi stærsta stjóm-
arblaðsins, en engin sárabót.
Athyglisvert er það, að síðan 1950 hafa
bændur landsins aukið framleiðslu kjöts
og mjólkur um meira en helming, án þess
þeim hafi fjölgað. En þessi framleiðslu-
aukning hefur nálega ekkert aukið tekj-
ur bænda, vegna þess hve búvöruverð
hefur lítið hækkað. Ágóðinn af hinni gíf-
urlegu framleiðsluaukningu, sem er
hreint þrekvirki heillrar stéttar, hefur
runnið í vasa neytenda. Neytendumir
hafa notið Iandbúnaðarframkvæmdanna
fyrst og fremst, en bændur ekki. Laun
bænda em háð gerðardómi og eru miðuð
við kaup verkamanna. Bændur væru vel
stæðir nú, ef þeir hefðu sjálfir notið á-
vaxtanna af þeim verklegu dáðum, sem
þeir hafa drýgt. En þegar að ofan á þetta
bætast nýjar álögu? af hendi hins opin-
bera, er hinni seinþreyttu bændastétt nóg
boðið. Hún mun seint viðurkenna nauð-
syn helmingsfækkunar eða að það sé
þjóðfélagsþörf á að hún „dagi uppi".
V--------------------------------^
«Miiilllll•lliiiniiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiim»111111111111 niiillllll■lllllllliiiiiiiiiiiiiiiiiiii;iMiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiia«: n«
I Línan að sunnan I
AKUREYRARBÆR
„á eitt hið fegursta bæjarstæði, þótt víða
sé leitað“ -
Óli Bjarnason Grímsey sexiugur
ÞANN 29. ágúst næstkomandi
er Oli Bjarnason, útvegsbóndi á
Sveinsstöðum í Grímsey, sex-
tugur.
Óli er fæddur á Steindyrum í
Suður-Þingeyjarsýslu 29. ágúst
1902 og sonur hjónanna Bjarna
Gunnarssonar, sjómanns, og
Ingu Jóhannesdóttur, sem þá
bjuggu þar. Hann missti föður
sinn fimm ára gamall. Giftist
Inga aftur. Seinni maður henn-
ar var Guðlaugur Óli Hjálmars-
son. Hann lézt 2. nóv. 1955.
Óli Bjarnason ólst upp á
Steindyrum til fjögurra ára ald-
urs, en þá flutti hann út í
„Fjörðu" og var þar í sjö ár. En
þá flutti hann með móður sinni
og stjúpföður til Grímseyjar.
Fyrst áttu þau heima á Básum í
15 ár. Er það nyrzti bærinn á
eyjunni, og nokkru utar en að-
albyggðin í Sandvíkinni.
Þann 5. nóv. 1927 kvæntist
Óli Elínu Þóru Sigurbjörnsdótt-
•ur á Sveinsstöðum Sæmunds-
sonar. Hófu þau búskap þar og
búa þar miklu myndarbúi. Þau
eiga 7 börn og það yngsta er
Þórleifur átta ára gamall. Óli
sonur þeirra býr í Sveintúni,
sem er rétt við Sveinsstaði og
er hann kvæntur Halldóru
Traustadóttur.
Óli Bjarnason hefur áttheima
í Grímsey nærri hálfa öld, og
hann á sinn þátt í lífi og sögu
eyjarinnar á þessu tímabili. —
Það er saga um harða lífsbar-
áttu og stóra sigra. Sjósókn hef-
ur verið aðalstarf hans frá því
fyrsta. Hér áður var róið á ára-
bátum, og þá tíma Þekkir Óli
vel. Og marga ferðina reri hann
í land. Hreysti, áræði og trúar-
þrek þurfti til þess að ganga í
gegn um það, sem beið sjó-
mannsins á hinum litlu opnu
fleytum á hafi úti. En allt það á
Óli í ríkum mæli.
í fleiri áratugi var hann sig-
maður og sótti egg og fugl nið-
ur í björgin á hverju sumri. —
Hann er kunnugur björgunum,
og mönnum er það í fersku
minni, þegar hann og Óli sonur
hans fóru niður bjargið festar-
lausir í náttmyrkri til þess að
bjarga skipverjum af Bergfossi,
sem strandað hafði hjá Flata-
skeri austan við eyjuna. Sá, sem
kemur að þverhnítpu bjarginu
og sér hvar þeir fóru, á ekki
orð til að lýsa undrun sinni. Og
sá, sem fylgist með lífi íbúanna
kemst að raun um, að það er
ekkert einstakt þetta, að taka á-
hættunni.
Mér verður ávallt minnisstætt
samstarf okkar í Miðgarða-
kirkju. Áður en núverandi org-
. anisti, frú Ragnhildur Einars-
dóttir á Básum, tok við organ-
istastarfinu var það í höndum
Óla. Þegar ég flutti fyrstu guðs-
þjónustur mínar var hann við
orgelið. Hann hefur yndi af
hljóðfæraleik og söng og er
hann hætti organistastörfum
söng hann í kirkjukórnum. Um
liðsinni hans munar mikið bæði
í söngstarfinu og kirkjulífinu
yfirleitt.
Óli er mikil hamhleypa til
allrar vinnu og er hinn mesti
vaskleikamaður, og það er þá
erfitt að sækja björg í bú, hvort
heldur er á sjó eða landi, ef
hann getur það ekki.
Glaður er hann í hópi vina,
og gaman að blanda geði við
hann. Hann á ríka frásagnar-
gáfu og kann vel að segja frá.
Gæfan hefur brosað við honum.
Ekki sízt veit ég að hann minn-
ist þess á tímamötunum, þegar
hann hugsar um heimilið sitt,
eiginkonuna og börnin. — Úr
mannraunum á láði og legi var
gott að koma heim að Sveins-
stöðum. Heimili hans einkenn-
ist af gestrisni og kærleika.
Vil ég nú mega þakka fyrir
margvíslegan vináttuvott og
hlýhug, sem mér hefur þar jafn-
an mætt, um leið og ég færi af-
mælisbarninu heilla- og ham-
ingjuóskir. Pétur Sigurgeirsson.
Freðsíldin selst vel
ÞAÐ, sem af er þessu ári hefur
sala hraðfrystrar síldar verið
mikil miðað við fyrirfarandi ár.
Frá haustvertíð 1961 ogtilþessa
er salan 19.310 tonn. Til saman-
burðar er árssalan 1960 7.248
tonn og allt árið 1961 14.456.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur selt þessa síld til Rúss-
lands, Vestur-Þýzkalands, A,-
Þýzkalands, Tékkóslóvakíu,
Rúmeníu, Póllands, Englands
og Ameríku. Rússar hafa keypt
mest af þessari vöru. Q
•rrrrrr-*.
I.
Glöggt er gests auga.
í HLÝJUM og drengilegum
kveðjuorðum sínum í útvarps-
viðtali um síðastliðin mánaða-
mót drap danski íslandsvinur-
inn, Bent Kock ritstjóri, á ferð
sína til Norðurlands og komst
þá m. a. þannig að orði, að Ak-
ureyri ætti eitt hið fegursta
bæjarstæði, þótt víða væri leit-
að (í allri Evrópu, minnir mig
helzt að hann segði!).
Þessi ummæli vöktu athygli
mína, þareð ég hafði einmitt
Akureyri í huga um þær mund-
ir í tilefni af aldarafmæli bæjar-
ins innan skamms.
Glöggt er gests auga! Og þetta
er óefað rétt og skarplega at-
hugað hjá útlendingi á hraðri
ferð. Sannleikurinn mun sá, að
frá náttúrunnar hendi hefur Ak-
ureyri óvenju mikil skilyrði og
fjölbreytt til að verða glæsileg
borg, er framí sækir, svo fremi
sem íbúar bæjarins og forráða-
menn grípi ekki fram í fyrir heil
brigðum vexti borgarinnar og
hagkvæmu skipulagi.
II.
Svipast um.
Það væri viðsjárverð ástríða
að fara um of að dæmi höfuð-
borgarinnar að þenja sig út um
holt og hæðir, mýrar og móa,
víkur og voga — um skör fram,
og eins hitt að „príla" 8—10
hæða byggingum uppá holt og
hæðir, til stórspjalla á samræmi
og heildarsvip borgar eða borg-
arhluta!
Á Akureyri er ólíkt hægra um
vik. Hér er gróið graslendi á
alla vegu landmegin, svo að
bærinn vex blátt áfram eðlilega
út í sveitina, og hefur gert það
allhratt tvo síðustu áratugina.
Enda eru mýrarnar vestan við
bæinn ofanverðan grónar og
greiðfærar ,en þó helzt til „of
mjúkar undir fæti!"
Og nú hefur grænt og gróið
Glerár-hverfi bætzt við. Því
auðvitað er þar ekki þörp fram-
ar, er það hefur gerzt hluti bæj-
arins (hverfi)! Og óefað mun
það draga til sín í náinni fram-
tíð drjúgan hluta íbúðarhúsa
iðnaðarmanna og starfsfólks í
verksmiðjum bæjarins,sem eðli-
lega munu eiga vettvang sinn
framvegis niður með Glerá.
Þá mun byggðin vaxa hrað-
fari út á við í áttina til Krossa-
ness. Og áður en varir, rennur
Glerá um miðja borg! Vonandi
verður henni þá sá sómi sýndur
sem hún á fyllilega skilið, —
önnur eins bæjarprýði og hún
gæti verið!
Hér er sjón sögu ríkari, að
bærinn vex hraðfari „út í sveit-
ina“. — En á hinn bóginn vex
sveitin einnig „inní bæinn"! —
Leirurnar stækka áberandi með
hverju misseri. Þær nema ekki
staðar við Frímanns-garð nema
um hríð, heldur lyfta sér yfir
hann og halda áfram. Og um
næstu aldamót Akureyrarborg-
ar verða óefað grænar grundir
langt áleiðis út á marbakka. Þar
verða þá víðir vellir, þurrkaðir
og ræktaðir, — og ef til vill
byggðir að einhverju leyti. —
Sennilega verða þeir þá taldir
græn og gróin gjöf frá öllum
innsveitum sýslunnar til glæsi-
legrar höfuðborgar sinnar við
bjarta og blikandi strauma
lands og sjávar!
III.
Ur vöndu að ráða.
Iðnaðarhverfin norðan Glerár
hefðu átt að vera — og eiga að
verða til fyrirmyndar í fram-
tíðinni! — En nú er þar örðugt
um vik sökum algers skipulags-
leysis í fyrrverandi Glerár-
þorpi. „Nýmæli" breytinga, —
þar sem þeim verður við kom-
ið, — og í nýbyggingum, við-
auka á hagkvæmum svæðum og
skipulagshæfum ættu að vera
eitthvað í þessa átt:
Nýjar götur beinar og breið-
ar, um grónar lendur, með
snotrum einbýlis- eða tvíbýlis-
húsum á sem ríflegustum lóð-
um, nægilega stórum til garð-
ræktar: blóma, runna, trjáa og
grasbala. Þetta gætu orðið fög-
ur og skemmtileg hverfi, áþekk
alþýðuhverfum í sumum meðal-
stórum iðnaðarborgum á Bret-
landi, og einnig í sumum smærri
borgum á Norðurlöndum. Hér
er ákjósanlegt landrými til
slíkra framkvæmda, sé það at-
hugað í tæka tíð og skipulagt
með nánustu framtíð fyrir aug-
um!
Þessa afmælisgjöf til borgar
sinnar ætti bæjarstjórn Akur-
eyrar að hafa ofarlega í huga á
„höfuðdegi" sínum 29. þ. m.!
Helgi Valtýsson.
ÁFENGISSALAN
1. apríl til 30. júní 1962.
Heildarsala:
Selt í og frá Reykjavík kr.
48.216.916.00, Akureyri kr.
5.116.217.00, ísafirði kr.
1.887.089.00, Siglufirði kr.
1.404.197.00, Seyðisfirði kr.
1.583.703.00. — Samtals kr.
58.208.122.00.
Á sama tíma 1961 var salan
eins og hér segir:
Selt í og frá Reykjavik kr.
38.499.718.00, Akureyri kr.
3.984.353.00, Isafirði kr.
1.416.270.00, Siglufirði kr.
1.191.897.00, Seyðisfirði kr.
1.117.950.00. — Samtals kr.
46.210.188.00.
Fyrstu sex mánuði þessa árs
hefur sala áfengis frá Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins numið
samtals kr. 104.418.210.00, en á
sama tíma 1961 varð salan kr.
84.781.102.00. Salan hefur því
aukizt um 22.8% á þessu tíma-
bili miðað við 1961.
Hækkun varð engin á áfengi
á fyrra Kelmingi þessa árs.
Áfengisvarnarað.
(Heimild: Áfengis- og tóbaks-
verzlun ríkisins.)
í STURLUNGU segir svo um
Einar auðmann, sem bjó í Vík
út frá Stað í Skagafirði, og var
í liði sveitunga sinna á Haugs-
nesfundi, að „hann var til þess
settur, sem hann gerði, að hann
flýði fyrstur manna." — Biðu
Skagfirðingar lægra hlut og létu
höfðingja sinn, Brand Kolbeins-
son, sem kunnugt er.
Svo er að sjá í ritsmíð einni í
Verkamanninum 13. júlí sl. um
Jökulsárfundinn, að þar sé sá á
ferð, er tekið hefur að sér hlut-
verk Einars auðmanns, að
„flýja fyrstur manna" frá sam-
stöðu þeirri, er ætla mátti að
náðst hefði meðal Norðlendinga
og Austfirðinga í því stórmáli,
sem hér er um að ræða, þrátt
fyrir þann „erkibiskups boð-
skap" er þar var fluttur frá
hærri stöðum. Það mun svo
sýna sig hverjir fylgja honum á
þeim flótta.
Flótti Einars auðmanns er af
sagnaritara 13. aldar rakinn til
tengsla við Sturlunga. Eigi mun
hér slíku vera til að dreifa í
bókstaflegum skilningi. En
margir hafa veitt því athygli, að
Verkamaðurinn hefur (sem
norðlenzkt blað) verið undar-
lega tómlátur um þetta mál, og
svo virðist sem hann bíði átekta
- enda þótt þingmaðtir Alþýðu-
bandalagsins í kjördæminu hafi
á Alþingi verið einn af flutn-
ingsmönnum tillögunnar um „að
undirbúa virkjun Jökulsár á
Fjöllum til stóriðju", og nú í
sumar meðal boðenda Jökulsár-
fundarins, átt sæti í undirbún-
ingsnefnd fundarins og að lok-
um tekið sæti í framkvæmda-
nefnd þeirri, er að Jökulsármál-
inu vinnur. Það er því að sjálf-
sögðu einhver annar en Björn
Jónsson, alþingismaður, sem
valdið hefur trúboði blaðsins og
viljað bíða átekta. Ekki þarf
skarpskyggnan mann til að geta
sér þess til, að drottinhollur
blaðamaður hafi beðið eftir línu
að sunnan. Nú er hún komin.
Það er ósvikinn raforkumála-
stjórnar- og stóriðjunefndar-
tónn í þessari makalausu grein.
Ósvikinn úrtölutónn gagnvart
Norðlendingum og Austfirðing-
um, fimbulfamb til að drepa
málinu á dreif og reyna að mála
fjandann á vegginn, útlent fjár-
magn, sennilega vestrænt, til að
hræða þá, sem beyg hafa af
slíku, og það eru auðvitað marg-
ir, sem eðlilegt er. Aðferðin er
kynleg. Fyrst að fá Norðlend-
inga og Austfirðinga til að af-
henda sér Dettifossvirkjun af
ótta við erlent fjármagn, og fá
þar með betri aðstöðu til að
binda það í stórvirkjun syðra!
Greinarhöfundur segir, að í
stað þess að óska eftir Dettifoss-
virkjun hefðu Norðlendingar
átt að byrja á því að krefjast
samtengingar orkusvæðanna
sunnanlands og norðan með há-
spennulínu. Víst væri sú fram-
kvæmd æskileg og að henni þarf
að stefna. Ekki til þess fyrst og
fremst að nota sunnlenzka orku
á Norðurlandi og norðlenzka
orku á Suðurlandi, heldur til
þess að sjá fyrir varaaflinu. En
sem sagt: Leiðin átti að vera sú,
að heimta nokkur hundruð
milljónir til þess að tengja sani-
an raforkuskortinn norðanlands
og sunnan. Síðan að byggja
orkuver og þá mátti það eins
vera við Þjórsá. Hér er ekki um
útúrsnúning að ræða, því að
greinarhöfundur segir orðrétt:
„Eftir að sú samtenging er feng-
in, þá skiptir engu, hvorki fyrir
Sunnlendinga eða neina aðra,
hvar á landinu virkjað er, og þá
koma engin önnur sjónarmið til
greina en þau, hvar hagkvæm-
ast er að reisa virkjun og koma
böndum á stórfljót.------Hvor
heldur fyrr verður valin (þ. e.
Jökulsá eða Þjórsé), þá kemur
röðin næst að hinni."
Þetta átti greinarhöfundur að
segja þeim, semnú eru að hugsa
um viðbótarvirkjun við Laxá
vegna yfirvofandi raforku-
skorts: Að þeir skuli láta leiða
hingað raforku að sunnan!
Hvers vegna fengum við ekki
strax orku frá Soginu í stað
þess að vera að basla við Lax-
árvirkjun og smærri virkjanir
hér á Norðurlandi?
En það er meira blóð í kúnni.
Greinarhöfundur talar um, að
það þurfi að „forða Dettifossi
frá menningunni". Um það geta
auðvitað verið skiptar skoðanir,
hvort Dettifoss eigi framvegis
að „bæta lands og lýðs vors
kjör", eins og skáldið sagði, eða
vera augnayndi ferðamanna í
óbyggðum. En svo vel vill til,
sem greinarhöfundinum er lík-
lega ekki kunnugt um, að þetta
getur farið prýðilega saman. —
Aflið, sem nú er helzt talað um
að virkja í Dettifossi er ekki
nema lítið brot af því vatns-
magni, sem í ánni er í sólskini
á sumrin, þegar ferðamenn
koma helzt að fossinum. Stíflan
verður ekki við Dettifoss, held-
ur mun ofar, við Selfoss.
Stóriðju „á erlendan mæli-
kvarða" segir höfundur að við
íslendingar eigum alveg að
varpa frá okkur. Með öðrum
orðum, við megum ekki stofna
til stóriðju, sem þarf 60 þús.
kw. afl eða ca. 500 þús. kwst. á
ári. Það er sá „erlendi mæli-
kvarði", sem sérfræðingarnir
höfðu með sér á Jökulsárfund-
inn. Ef við gerðum það, værum
við að „ræna" orku, sem „börn-
um okkar ber", segir hann. Það
er nú svo. Sigurður Thorodd-
sen, verkfræðingur, segir, að ís-
lenzk fallvötn geti framleitt
þrjátíu og fimm þúsund millj-
ónir kwst. á ári. Höfundur seg-
ir, að þessi forði endist ekki
nema í 50—60 ár, samkvæmt
nánar tilgreindri reglu. En sam-
kvæmt sömu reglu endist vatns-
aflsforði Norðmanna ekki nema
í tæp 20 ár, og í tæp 30 ár, ef
stóriðnaður væri lagður niður
þar. Sannleikurinn er sá, að ný
tegund orku er að ryðja sér til
rúms í heiminum. Það er ekki
talið líklegt, að vatnsaflsstöðvar
til framleiðslu á raforku verði
byggðar eftir 50—60 ár hér á
landi eða annars staðar.
RÁÐHÚ STORG
Já, hvers vegna ekki að skýra
Ráðhústorg upp, vegna þess að
þar er ekkert ráðhús, og kalla
það til dæmis Bankatorg? —
Hvernig væri að skíra það Stein-
torg eða Steinstorg? Eða Dav-
íðstorg eftir þjóðskáldinu ást-
sæla, sem er eini núlifandi heið-
ursborgari Akureyrarkaupstáð-
ar?
Gestur.
landhelgisgæzlan
Landhelgisgæzlan er búin að
fá nýja Skymasterflugvél til
gæzlu á miðunum, en Rán, eldri
flugvél Landhelgisgæzlunnar,
hefur verið tekin úr umferð. —
Þetta er góður áfangi í marg-
þættri aðstoð og eftirliti, sem
Landhelgisgæzlan annast.
íslendingar fagna einhuga í
hvert sinn, er hetjudáðir og
happasæl störf eru innt af hendi
hjá Landhelgisgæzlunni. — En
hversu má það vera, að fullur
skipstjóri fái óátalið að sigla
einu hafskipi þessarar stofnun-
ar í strand í logni og sólskini,
fyrir augum hundraða manna —
og án sjóprófa, eftir slíkan at-
burð? Q
ÁSGRÍMUR KOMINN
ÚRVAL úr Ásgrímssafni hef-
ur verið sett upp í Oddeyrar-
skóla. Myndirnar eru yfir 50
talsins. Á þann hátt kom hinn
mikli listamaður norður til Ak-
ureyrar og heiðrar höfuðstað
. Norðurlands á 100 ára afmæli
bæjarins.
Opnun málverkasýningar þess-
arar í Oddeyrarskóla er fyrsti
þáttur margvíslegra hátíða-
halda, er hefst með nk. sunnu-
degi.
Ásgrímur Jónsson andaðist 5.
apríl 1958, 82 ára gamall, en arf-
leiddi þjóðina að húsi sínu,
heimili og hinu dýrmæta mál-
verkasafni.
Frú Bjarnveig Bjarnadóttir,
frændkona listamannsins og
safnstjóri Ásgríms safns, kom
hingað norður til að leiðbeina
um uppsetningu.
Myndir þær, er hingað komu
að þessu sinni, eru hálfrar ann-
arar milljón króna virði. Q
FLESTIR LESA GUÐRÚNU
Samkvæmt upplýsingum
fræðslumálaskrifstofunnar um
almenningsbókasöfn, er Guð-
rún frá Lundi mest lesin í höf-
uðborginni. Næstur komur Guð-
mundur Hagalín, þá Kristmann,
Ragnheiður Jónsdóttir, Kiljan,
Ármann Kr. Einarsson, Guðm.
Daníelsson, Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, Þórbergur Þórðarson,
Stefán Jónsson, Elinborg Lárus-
dóttir og Gunnar M. Magnúss,
svo að nefndir séu 12 þeir efstu.
Almenningsbókasöfn eru 182,
sem skýrslur ná yfir fyrir síð-
asta ár.
Margar ályktanir má draga af
þessum upplýsingum um bók-
menntaáhuga íslendinga og and-
legan þroska þjóðarinnar yfir-
leitt. □
ÞV OTTURINN
Víðförul eldri kona hefur ósk-
að að koma því á framfæri við
bæjarbúa, að þeir athugi hve ó-
smekklegt það sé, að hafa þvott
hangandi á snúrum afmælishá-
tiðadaga bæjarins. í Noregi sé
þetta, eða hafi a. m. k., verið
stranglega bannað, og að það
fari í taugarnar á mörgum hér á
landi. — Er þessu hér með kom-
ið á framfæri. Q
HRINGFERÐ
Kennarar hafa verið svo illa
launaðir, að kennaraskortur er
mikill í landinu. Einn þeirra
manna, sem bezt má um þessi
mál vita, og ekki verður nafn-
greindur hér, sagði í sumar efn-
islega á þessa leið: Vegna þess,
hve kennarastarfið er lítið eftir-
sótt, eru sumir starfandi kennar
ar hálfgerðir vandræðamenn.
Nefndi hann sorgleg dæmi um
þetta. Meðal annars var þetta:
Kennari einn, „töluvert bilað-
ur“, hóf starf á ónefndum stað
norðanlands. Síðan hefur hann
hrakist stað úr stað, þykir óhæf-
ur alls staðar, en fær þó jafnan
starf á ný. Hann er nú bráð-
um búinn að fara hringinn og
getur þá væntanlega byrjað
aðra umferð!
Ástandið í þessum málum er
hið alvarlegasta, og því tilfinn-
anlegra sem skólagangan er
lengri.
Auðvitað er margt úrvals-
manna í kennarastétt og eru
störf þeirra og áhrif alveg ómet-
anleg. En hinir eru bara alltof
margir, og úr því verður að
bæta. Foreldrar eiga fullan rétt
á að krefjast úrbóta. Q
Háfíðadagskrá
AKUREYRARKAUPSTAÐAR
SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST:
Kl. 14.00:
Opnuð sýning í Oddeyrarskólanuin á málverkum úr lista-
safni Ásgríms Jónssonar. Sýningin verður opin alla hátíða-
dagana frá kl. 13.00 til 22.00. Aðgangur kr. 10.00 fyrir full-
orðna, ókeypis fyrir börn.
Kl. 16.00:
Á íþróttavellinum:
a) Lúðrasveit Akureyrar leikur undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar.
b) Ávarp. Formaður íþróttabandalags Akureyrar, Ármann
Dalmannsson. íþróttavallarbyggingin tekin í notkun.
c) Bæjakeppni i knattspyrnu: Reykjavík—Akureyri.
ÞRIÐJUDAGUR 28. AGÚST:
Kl. 18.00:
Opnun iðnsýningar í Amaro-húsinu, Hafnarslræti 99. Þar
verða sýndar framleiðsluvörur iðnfyrirtækja á Akureyri. Sýn-
ingin .verður opin daglega kl. 10.00 til 22.00. Veitingasala á
6. hæð og svölum. Sýngingunni lýkur sunnudagitin 9. sept-
ember. Aðgangur kr. 15.00 fyrir fullorðna.
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST — AÐALHÁTÍÐ: j
KI. 08.00: ■ •
Fáuar dregnjr að .hý.n,..
Kl. 09.15:
Vígsla Ellihéimiris Akureyrar. Heimilið verður almenningi
til sýnis frá kl. Í3.00 til 19.00 og laugardaginn 1. september
á sama tima.- •”• .
Kl. 10.30: " :
Hátíðáméssa 'í Akureyrarkirkju. Sr. Pétur Sigurgeirsson pre-
dikar. Sr. Birgir Snæbjörnsson þjónar fyrir altari.
Kl. 13.00:
Lúðrasveit Akureyrar leikur á Ráðhústorgi.
Hátiðiri sett. Jóri G. Sólnes forseti bæjarstjórnar.
Karlakórar bæjarins syngja: „Sigling inn Eyjafjörð". Árni
Ingimundarson stjórnar.
Skrúðganga frá Ráðhústorgi að íþróttavellinum.
Karlakórar bæjarins syngja: „Heil og blessuð Akureyri". Ás-
kell Jónsson 'stjórriar.
Hátíðarræða:! Dkvlð' Stefánsson skáld frá Fagraskógi.
Karlakór Akúreyrar og blandaður kór undir stjórn Áskels
Jónssonar. Undirleikari Guðmundur Jóhannsson.
Upplestur: Guðmundur Frímann skáld.
Ávörp gesta:
Forseti íslands, forsætisráðherra, félagsmálaráðherra og full-
trúar vinabæja.
Kl. 16.00:
Opnun Sögusýningar í Gagnfræðaskólanum við Laugargötu.
Sýningin vcrður opin almcnningi frá kl. 17.30 og síðan dag-
lega frá kl. 14.00 til 22.00 til sunnudagsins 9. september að
kvöldi. Aðgangur ókeypis.
Kl. 17.45:
Hátíðarfundur i bæjarstjórn Akureyrar í Samkomuhúsinu,
Hafnarstræti 57. Öllum heimill aðgangur meðan húsrúm
leyfir.
ÚTIHÁTÍÐAHÖLD Á RÁÐHÚSTORGI:
Kl. 20.30:
Lúðrasveit Akureyrar leikur.
• Karlakórinn Geysir syngur. Söngstjóri Árni Ingimundarson.
Minni Akureyrar. Kvæði. Stefán Ág. Kristjánsson.
Leikþáttur, „Frá horfinni öld“, e. Einar Kristjánsson. Leik-
stjóri Guðntundur Gunnarsson.
Danssýning barna. Stjórnandi frú Margrét Rögnvaldsdóttir.
Tvísöngur: Ingibjörg Steingrímsdóttir og Jóliann Konráðs-
son. Undirleikari ungfrú Guðrún Kristinsdóttir.
Dansar 1862 ög 1962. Sýning.
Smárkvartettinn 'á Akureyri syngur.
Gantanvísur. ,
Almennur dans á götum bæjarins.
Flugeldasýning kl. 24.00.
Dagskrárlok eftir aðstæðum.
FIMMTUDAGUR 30. ÁGUST:
Kl. 17.30:
Samsöngur í Nýja-Bíó: Karlakórinn Muntra Musikanter frá
Helsingfors. Erik Bergmann stjórnar. Aðgangur kr. 50.00.
Kl. 21.30:
Á Ráðhústorgi: Lúðrasveit Akureyrar leikur, Muntra Musi-
kanter og karlakórar bæjarins skemmta, o. 11.
Kl. 22.30:
Blysför frá „gömlu Akureyri", eftir Hafnarstræti að Ráðhús-
torgi. Sveit 100 hestamanna úr „Létti".
Dagskrárlok ákveðin síðar.
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER:
Kl. 10.00:
Róðrarmót íslands á „Pollinum".
Kl. 13.30:
Unglingameistaramót íslands i írjálsíþróttum á íþróttavcll-
inum.
Bæjakeppni í handknattleik kvenna. Hafnarfjörður—Akur-
eyri.
Kl. 15.30:
Sundmeistaramót Norðurlands í Sundlaug bæjarins.
SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER:
Kl. 10.30:
Róðrarmót íslands (framhald).
(Framhald á bls. 7)