Dagur - 14.11.1962, Side 5
4
Daguk
Merkileg fræðsla
MARGAR líísvenjubreytingar hafa orð-
ið hin síðari árin, jafnt á sviði félags-
mála, sem atvinnumála. Fyrrum voru
kirkjuferðir og messugjörðir helztu
mannfundir og mannfagnaðir. Nú eru
kirkjur fásóttar en danshús troðfull. Áð-
ur voru stjómmálafundir miðið sóttir
—* * f* J
og umtalaðir og menn fóru langar lciðir.
til að sjá og heyra þjóðkunna stjómmála-
skömnga. Nú em hinir pólitísku fundir
svo lítið sóttir að stjórnmálaforingjar fá
ekki áheyrcndur nema að hafa trúða.í
för með sér. Áður undu menn löngum
stundum við samræður og var mikið
lagt upp úr frásagnarlist. Hin löngu
vetrarkvöld voru með samræðum og upp
lestri hinn andlegi arin heimilanna. Nú
em samræður hljóðnaðar en útvarpið
segir það sem segja þarf.
Á VETTVANGI félagsmála er svipaða
sögu að segja og hjá pólitískum samtök-
um, að það er erfitt að lialda umræðu-
fundi, og jafnvel lögboðnir aðalfundir
hinna ýmsu félaga falla niður um árabil
vegna slæglegrar fundarsóknar.
MEÐ ÞETTA allt í huga mætti það
vekja nokkra eftirtekt, að í meira en
hálfan annan áratug hefur gróskumikið
félagsstarf verið rekið meðal bænda, í
formi Bændaklúbbsins. Öllum þeim til
athugunar, sem í erfiðleikum eiga með
félagsstarf á öðrum sviðum, skal bent á
nokkur atriði varðandi Bændaklúbbinn.
Skjallega var hann aldrei stofnaður,
stjórn hans hefur aldrei verið kosin, fund
argerðir aldrei skrifaðar, tillögur aldrei
gerðar eða opinberar ályktanir, félags-
gjöld engin innheimt, gerðabók engin
rituð og þar af leiðandi er Bændaklúbb-
urinn hvergi formlega skráður. Engu að
síður er hann til og starfar á þann veg,
að fundir eru hálfsmánaðarlega að vetr-
inum. Sérfróðir menn, oft langt að komn
ir, flytja framsöguerindi, oftast um land-
búnaðarmál og umræður fara fram
á eftir. Fundimir eru svo vel sóttir,- að
þar mæta nokkuð oft yfir 100 manns og
eru þó aldrei svonefndir skemmtikraftar
með í för. Þessi einstæði félagsskapur
sem býður alla velkomna, án þess að
binda menn nokkrum félagsskyldum, er
eins konar bændaháskóli Eyfirðinga og
annarra nærsveitamanna og veitir án
alls efa hina beztu mcnntun í búvísindum
og í almennri búfræði, sem unnt er utan
skóla.
BÆNDAKLÚBBURINN leggur engum
neinar skyldur á herðar. Enginn þarf að
óttast að verða kosinn í nefnd eða stjórn
því að hvorugt er til. En fundarreglum
verða menn skilyrðislaust að hlýta. Fund
um stjóma þrír menn úr stjóm Jarð-
ræktarfélags Akureyrar til skiptis og út-
vega ræðumenn. Svo var það í upphafi
og er enn. Bændaklúbbsfundimir eru að
jafnaði haldnir á Akureyri, en stundum
úti um sveitir. Þar skeður oft hið óvænta
í umræðum, þegar umræðuefni leitar
sér nýrra farvega og brýst fram með
brauki og bramli. Þeir sem vanir eru að
fást við hin félagslegu störf pólitískra
flokka og félaga sáu sér Ieik á borði að
fá samþykktar yfirlýsingar, mótmæli
gegn stjórninni o. s. frv. Þá kom til átaka
og voru tillögumenn kveðnir í kútinn. □
_______________________________y
HELGI VALTÝSSON:
Á hverfanda liveli
Ljóð.
Helgafell, Reykjavík 1962.
ENGINN, sem mætir Helga
Valtýssyni á götu, gæti látið
. sér til hugar koma að þar væri
háifníræður öldungur á ferð.
Þessi hraðstígi, brosmildi mað-
ur vekur undir eins á sér at-
hygli. Ekki af því að hann sé
,.svo hnakkakertur og fasmikill,
því að yfirlætislausari maður er
okki til, heldur vegna æsku-
.Ijómans, sem yfir honum hvílir,
og þeirra persónutöfra, sem frá
honUrn streyma.
•Það.er fyrst og fremst Ijúf-
. mennskan, sem af honum skín,
er - vér tökum fyrst eftir. Er
hann.., er tekinn tali, verður
maður þess var, að eldur hug-
sjónanna brennur enn með glöð
um loga í sálinni, og frá honum
.geislar varma og birtu. Enda
þótt lífið hafi ekki ávallt tekið
mjúkum höndum á honum fer
því fjarri að hann sé orðinn leið-
ur á því eða uppgefinn. Hann
hefur áhuga á hinum sundur-
leitustu efnum. Sálin hefur
engu glatað af mýkt eða tilfinn-
ingahita æskunnar. Þannig er
bezt að lifa. Fögur sál er ávallt
ung undir silfurhærum.
Helgi Valtýsson hefur ein-
hvern tíma komizt þannig að
orði, að mannsævin væri of
stutt til þess að hún entist
manni til að verða gamall. Þetta
sannast bezt á honum sjálfum.
Alla ævi hefur hann verið svo
önnum kafinn, að hann hefur
ekki mátt vera að því að gefa
ellinni gaum.
Um tvítugsaldurinn fór hann
til Noregs til kennaranáms og
gerðist þar blaðamaður og rit-
höfundur. Vann hann þar gott
landkynningarstarf með því að
snúa á nýnorsku íslenzkum
sögum og kvæðum. Þar kynnt-
ist hann ýmsum merkum skáld-
um og rithöfundum, eins og t. d.
Herman Wildenvey, sem seinna
átti eftir að gera garðinn fræg-
an í Noregi.
Eftir heimkomuna gerðist
hann einn af brautryðjendum
ungmennafélagshreyfingarinnar
hér á landi, stofnandi blaðsins
Skinfaxi og fyrsti ritstjóri þess,
og um skeið ritstjóri Skólablaðs
ins og barnablaðsins Unga -ís
lands, en stundaði jafnframt
kennarastörf.
Ekki kann ég skil á öllu því,
sem Helgi hefur lagt á gjörva
hönd um dagana, en kunnastur
er hann af ritstörfum sínum og
þeim mörgu bókum, sem kom-
ið hafa frá hans hendi, þýddar
og frumsamdar. En mest af
þeim ritverkum er ritið Sögu-
þættir landpóstanna, í þrem
bindum, sem vinsælt varð á sín-
um tíma og Hreindýraslóðir,
þar sem hann segir sögu hrein-
dýranna á íslandi. Eru þetta
fræðirit. En af frumsömdum
skáldsögum má nefna: Væringj-
ar, (1935), Á dælamýrum og
aðrar sögur (1947) og Þegar
kóngsbænadagurinn týndist og
aðrar sögur (1954). Otölulega
margar eru þær sögur, sem
hann hefur snúið á íslenzku. Af
frumsömdum ljóðum vakti
fyrsta ljóðabók hans: Blýants-
myndir (1907 og 1908) athygli.
Síðan komu ekki ljóð eftir hann
nema ævintýraleikurinn Jóns-
messunótt (1951), en grunur
minn er sá, að fjöldamargt eigi
hann af ljóðum í fórum sínum,
sem aldrei hefur komið fyrir
almenningssjónir.
í tilefni af 85 ára afmæli
Helga Valtýssonar 25. okt. s. 1.
hefur Helgafell gefið út dálítið
ljóðasafn eftir hann, sem hann
nefnir: Á hverfanda hveli. Eru
þetta einkum kvæði frá seinni
árum bæði á íslenzku og norsku
og ekki nema sýnishorn. Það
sem einkennir þessi ljóð, eins og
allt sem Helg hefur skrifað er
hinn létti, ljóðræni stíll, mælsk-
an og hraði hugsananna og hiti
tilfinninganna. Bera þessi síð-
ustu Ijóð hans engin ellimerki á
sér að þessu leyti. Ættjarðarást-
in er enn þá sá undirstraumur
sem ber uppi alla hugsun hans.
Um þetta vitnar strax fyrsta
kvæðið í bókinni, sem ég hygg
að verða muni langlíft. Vísan
eina. Það endar þannig:
Landið mitt hörku-ljúfa og
[blíða!
Mitt hjarta er helgað þér!
í sælustu gleði og sárasta kvíða
býrð þú í brjósti mér.
Ekki eru heldur ellimerki á
þessu:
Frjómoldin ilmar og grasið
[grær.
Gróður í hverju blaði og strái.
Svellandi líf, þar sem svart var
[í gær.
Sólskin og vor og lömb og ær.
— Lífið er vaknað úr vetrarins
[dái!
Leikandi börn klappa lófum
[saman,
broseyg og brún í framan.
Og hér kemur öpnur vorvísa:
Vorið er komið! Það kom í nótt
með kliðþýða sunnanátt.
Nú fer það syngjandi um ger-
[vallan geiminn
með gleðitindrandi strengja-
[slátt.
Blátærar bunulæks-hörpur í
[hlíðum
heiðloftin fylla söng.
Og hjarta mitt syngur í víðblá-
[ins veldi
vorkvöldin sólroðin, björt og
[löng.
Ekki veit ég hvort Helgi
Valtýsson er söngvinn í venju-
legum skilningi, en ljóð hans
eru söngvar. Ég vil aðeins bæta
við enn einu sýnishorni, upp-
hafinu á kvæðinu Þrír svanir:
í dag flugu svanir að sunnan,
— sumarsins hvíta þxá.
Hugur minn fylltist fögnuði og
[söng
við flug þeirra um loftin blá.
Hann fylgdi þeim hátt í heiði.
Mitt hjarta varð ungt á ný:
þrungið af vorsól og Drottins
[dýrð,
og draumblátt hvert vona-ský.
Árin festa sig ekki við þá,
sem þannig yrkja. Ég gríp þetta
tækifæri til að óska Helga Val-
týssyni til hamingju með æsk-
una og ævistarfið.
Bcnjamín Kristjánsson.
Tvær barnabækur
MIKIÐ er gefið út af barnabók-
um á ári hverju, misjöfnum að
efni og frágangL
Nýlega hefur bókaútgáfan
Leiftur sent frá sér nokkrar
barnabækur, og verður hér laus
lega getið tveggja þeirra.
Onnur þeirra er Gömul ævin-
týri í þýðingu Theódórs Árna-
sonar. Eins og kunnugt er,
þýddi Theódór fimm hefti af
Grimms ævintýrum á fallegt
mál. Þessa ævintýrabók má því
skoða sem framhald af þeim.
Bókin er prýdd nokkrum teikni
myndum.
Falleg ævintýri er gott les-
efni handa börnum. Þau eru í
senn skemmtileg aflestrar og
auðga ímyndunarafl barnanna.
Hin bókin er Nasareddin,
kímnisögur um tyrkneska skóla
kennarann. Þessar sögur hafa
verið mjög vinsælar og næsta
ótrúlegt hverju þessi háðfugl
finnur upp á. Smásögur þessar
eru tilvaldar til upplestrar. í
bókinni eru nokkrar góðar
teiknimyndir.
Báðar þessar bækur munu
vera önnur útgáfa bókanna, en
ekki stendur það á þeim. Þá
vantar útgáfuár á báðar bæk-
urnar. Sá ósiður að prenta ekki
ártöl á bækur fer vaxandi og er
ekki samboðinn stórum útgáfu-
fyrirtækjum. Mun það valda
bókasöfnum miklum erfiðleik-
um. E. S.
Skeldýrafána íslands
II Sæsniglar með skel.
Höfundur: Ingimar Óskarsson.
Útgefandi:
Prentsmiðjan Leiftur, Rvík.
INGIMAR ÓSKARSSON, sem
alþjóð er kunnur fyrir mörg
fróðleg og skemmtileg útvarps-
erindi um náttúrufræðileg efni
og greinar og ritgerðir um sama
efni, hefur nú samið aðra bók
um skeldýr, og ber hún undir-
heitið Sæsniglar með skel. En
fyrri bók Ingimars fjallaði um
samlokur og kom út fyrir 10
árum.
í mjög fróðlegum inngangi
segir, að um 1920 hafi verið bú-
ið að gefa öllum íslenzkum sæ-
sniglum heiti, en fleiri hafi
bætzt í hópinn síðan. í heimin-
um eru þekktar næst 85 þúsund
ir tegunda sæsnigla, þar af 204
tegundir íslenzkar. Af íslenzku
tegundunum eru myndir í hinni
nýútkomnu bók, af þeim er í
sjó lifa og fortálknar nefnast.
Fram að allra síðustu áratug-
(Framhald á bls. 7.)
Alþingispistill Nýskip Eimskipafélags íslands
5. nóv. 1962
ÞEGAR ,viðreisnarstjórnin‘ tók
við völdum fyrir 3 árum var
það eitt hennar fyrsta verk að
skerða hundraðstölu afurðalána
bænda úr a. m. k. 67% niður í
50—55% með þeirri ráðstöfun
sinni að veita sömu upphæðir
að krónutölu og verið höfðu
undanfarin ár, en miða ekki við
afurðamagnið. Hefur þetta sætt
hinni mestu gagnrýni af hálfu
bændastéttarinnar og á síðasta
aðalfundi sínum samþykkti
Stéttarsamband bænda með öll-
um greiddum atkvæðum áskor-
un um, að lán út á landbúnað-
arafurðir yrðu kækkuð í 70%.
Landbúnaðarráðherra, Ingólfur
Jónsson, sat fund stéttarsam-
bandsins og lét svo um mælt í
ræðu, sem hann flutti þar, að
hann myndi beita sér fyrir því
að fá afurðalánin hækkuð, eins
og krafa bænda hljóðaði um.
Ásgeir Bjarnason, 1. þingmað
ur Vesturlands, gerði þetta mál
að umræðuefni á Alþingi í fyrri
viku, er hann mælti fyrir fyrir-
spurn er hann beindi til Ingólfs
landbúnaðarráðherra, svo hljóð
andi:
„Hvað líður ráðstöfunum af
hálfu landbúnaðarráðherra til
að koma því til leiðar og tryggja
það, að út á birgðir landbúnað-
arafurða fáist bankalán (er þá
átt við samanlögð seðlabanka-
lán og viðskiptabankalán), sem
nemi a. m. k. 70% af heildar-
söluverði birgðanna?“
Ráðlierrann svaraði og kvaðst
hafa átt viðræður við banka-
stjórana og lagt á það áherzlu
að landbúnaðurinn sæti, að því
er afurðalán snerti, við sama
borð og sjávarútvegurinn, sem
yfirleitt nyti 70% lána út á af-
urðir sínar. Kom fram í máli
ráðherrans, að ríkisstjórnin og
Seðlabankinn hefðu ákveðið að
bankinn lánaði 55% út á afurðir
þessa árs, en hins vegar gat ráð-
herrann ekki lofað neinu
ákveðnu um það, hvort við-
skiptabankarnir lánuðu þau
15% til viðbótar, sem á vantaði,
til þess að ^fullnægja kröfu
stéttarsambandsins um 70% lán.
Kvaðst þó sannfærður um, að
bankastjórar viðskiptabank-
anna væru málinu „velviljað-
ir“.
Það er augljóst, eins og hér
er rakið, að enn er allt í óvissu
um það, hvort ríkisstjórnin
stendur við þau fyrirheit, sem
bændum voru gefin með yfir-
lýsingu ráðherra á stéttasamb-
andsfundinum. Það er að vísu
spor í áttina, að afurðalán
Seðlabankans eru nú ákveðin
55%, en hitt er jafnvíst, að hlut
ur viðskiptabankanna er enn
eftir, þrátt fyrir yfirlýstan „vel-
vilja“ þeirra.
Ríkisstjórnin getur ekki
hummað málið fram af sér með
því að láta einstaka bankastjóra
segja fyrir um það, hvaða stefna
skuli ríkja um afurðalán. Það
er auðvitað ríkisstjórnin sjálf,
sem á að móta þá stefnu og
segja bönkunum fyrir verkum,
en ekki öfugt. Því miður verður
að segja eins og er, að landbún-
aðarráðherra hefur enn ekki
staðið við fyrirheit sín um fulla
hækkun afurðalánanna, og með
an svo horfir munu bændur að
sjálfsögðu halda kröfum sínum
til streitu. —i.
STJÓRN Eimskipafélagsins hef-
ur ákveðið að leita tilboða er-
lendis frá í smíði tveggja eða
þriggja vöruflutningaskipa, sem
fermi sem næst 900 tonnum af
vörum og hafi um 70 þúsund
teningsfeta lestarrými. Slík skip
eru um 1000 tonn D. W.
Eimskipafélagið hefur allt frá
upphafi látið smíða skip sín af
traustustu gerð með þeim full-
komnasta útbúnaði, sem hverju
iinni hefur verið fáanlegur og
verður ekki vikið frá þein'i
stefnu.
Með því að smíða slík skip
telur Eimskipafélagið mögu-
leika á að bæta verulega þjón-
ustu sína við hafnir úti á landi,
þannig að eitt af þessum skip-
um sigli í áætlunarsiglingum
umhverfis landið og hin tvö
skipanna, milli íslands og Evr-
ópuhafna, með það fyrir aug-
um fyrst og fremst, að þau
flytji vörur beint til hafna úti
á landi án umhleðslu í Reykja-
vík. Með þessu móti fá vöru-
eigendur vörurnar fyrr í hend-
ur en ella, og við það sparast
einnig mikill umhleðslukostnað-
ur.
Hugmyndin er að hraða nú
sem mest nauðsynlegum undir-
búningi að fyrrgreindum fram-
kvæmdum og verður fyrst unn
ið að öflun tilboða í nýsmíðarn-
ar, útvegun lána og nauðsyn-
legra byggingarleyfa.
(Fréttatilkynning frá H. f.
Eimskipafélagi íslands).
Afi falar við sonarson sinn
„ÞÚ ERT ORÐINN svo lærður
í skólanum, Bjössi minn, að það
á að mega tala við þig um pen-
ingamálin okkar, elzta og
yngsta mannsins á heimilinu.
Við erum nefnilega þeir einu á
þessu heimili, sem eigum spari-
sj óðsinnstæður, karlarnir.“
„Já, þú gafst mér á jólunum
fyrir þremur árum sparisjóðs-
bók með eitt þúsund krónum í,
afi minn.“
„Hefurðu tekið nokkuð úr
henni?“
„Nei, nei, en háu vextirnir,
sem ríkisstjórnn lætur borga
mér, eins og öðrum, hafa verið
lagðir við innstæðuna síðan.“
„Jú, jú! Lof mér að sjá bók-
ina “
— (Bjössi sækir sparisjóðs-
bókina).
„Sjáum nú til, drengur minn.
Fylgstu nú með: Eitt þúsund
RÖDD AÐ SUNNAN.
KÆRI DAGUR:
Það er víst orðð mál að senda
þér línu. Ég^bið afsökunar á
því hve langt er síðan, og þakka
jafnframt þolinmæðina, því þótt
engar sérstakar stórfréttir verði
sendar með þessum línum er þó
verið að sýna lit á því að efna
gamalt loforð. Það er nýtt að
snjórinn komi svona snemma
hér í höfuðborginni, og þótt
hann sé ekki mikill, þá setur
hann þó svip á borgina og sýnir
að sumarið er farið frá völdum,
og veturinn hefur tekið við á
réttum tíma. Ég held að við
ættum að standa við þarna of-
urlitla stund, og hugleiða miss-
iraskiptin. Við mennirnir fljót-
um með straumi tímans, án þess
að geta nokkru um ráðið, og
hvert árið færir okkur nær
þeirri stund, sem allir verða að
lúta. Er ekki undarlegt að
hugsa um það, hve tímakerfið
og náttúrulögmálið er bundið í
fastar skorður. „Allt fram
streymir endalaust“. Hver árs-
tíðin tekur við af annarri og
himintunglin gegna sínu hlut-
verki eins og þeim hefur verið
fyrir sett frá öndverðu. Allt er
í stakasta lagi frá drottins hendi
og öllu vel stjórnað. Svo eru
mennirnir með allt sitt fávísa
brölt, að reyna að seilast út fyr-
ir þau takmörk, sem þeim eru
ætluð, þó að allt sé í öngþveiti
á þeirra starfssvæði, en þetta
er mönnum áskapað, að for-
vitnast um það, sem hulið er á
bak við tjöldin, hvort sem þeir
hafa nokkuð gott af því eða
ekki. Og merkilegt er það hve
langt þeir komast. Maður stend-
ur ráðþrota og spyr: „Hvað
verður næst?“ Það má svo sem
búast við því að einn góðan
veðurdag vakni maður upp við
það, að þeir séu komnir til
mánans, eða einhverrar stjörn-
unnar. Tæplega munu þeir þó
fá að ráða þar ríkjum, eða hvað
heldur þú „Dagur“ sæll? Það
er taugastríð í heiminum núna
eins og þú veizt, og ekki þarf
mikið til að allt fari í bál. Það
er hróplegt ranglæti, að einn
maður í þessum stóra heimi
skuli hafa svo mikið vald að
hann þurfi ekki nema að
kveikja á einni eldspýtu til þess
að allt fari í bál. Skyldi nú ekki
sú stund upprunnin, sem biblí-
an talar um, að jörðin vefjist
upp eins og bókfell, og öllu lífi
verði eytt? Tákn tímanna eru
auðsæ hverjum, sem gefur sér
tíma til að staldra við og athuga
það sem er að gerast í dag.
Þetta eru nú mínar hugleiðing-
ar á þessum tímamótum, ásamt
þakklæti til Skaparans fyrir
vernd og varðveizlu á sumrinu,
sem liðir er. Á meðan ég sit við
gluggann minn og skrifa þessar
línur, er mikið um að vera í
snjónum hérna fyrir utan. Börn
in fá ekki betra leikfang. Það
er hnoðað og byggt, og augun
eru ljómandi af hamingju. Það
er gott að vera barn svo lengi,
sem það varir, en æskan er fljót
að líða, eins og vorið, áður en
varir er haustið komið. Ég
minnist bernsku minnar heima
í sveitinni, hversu skammdegið
var mér dýrmætt, með snjó og
skautasvell, stjörnur og mána,
rökkursögur, söng, tóvinnu,
bókalestur og skólagöngu. Þá
var gaman að lifa. Ég vildi óska
þess að æska nútímans mætti
eiga kost á þeim skemmtunum,
sem þá voru á boðstólum, bæði
við sjó og í sveit. Nú eru kröf-
urnar orðnar svo miklar að til
vandræða horfir. Tímarnir
breytast og mennirnir með, þótt
árstíðirnar komi á réttum tíma.
Gleðilegan vetur, íslenzka þjóð.
krónurnar, sem ég gaf þér fyrir
þremur árum eru með vöxtum
og vaxtavöxtum orðnar um
1300 krónur. Vextir og vaxta-
vextir því um 300 krónur sam-
tals. Vel í lagt er þriðjungur
vaxtanna orðinn til vegna vaxta
hækkunarinnar, sem ríkisstjórn
in fyrirskipaði og hælir sér öll
ósköp af. En gáðu nú að: Hvað
eru peningar?“
„Þeir eru ávísanir á lífsnauð-
synjar, segir kennarinn minn.“
„Ágætt, ágætt, hjá þér Björn
litli! Peningar eru ávísanir á
lífsnauðsynjar eða eitthvað, sem
maður vill kaupa sér. Taktu nú
eftir, Bjössi! Vísitalan segir, að
lífsnauðsynjar hafi hækkað um
40% síðan ég gaf þér sparisjóðs-
bókina. Sú hækkun vísitölunn-
ar er gjöf frá ríkisstjórninni
Þetta er aukning dýrtíðarinnar
á hennar starfstíma. Dýrtíðin
hefir minnkað gildi eitt þúsund
krónur, sem ég gaf þér, um
40% eða nálægt 400 krónum.
Upp í þetta 400 krónu tap hefur
þú 100 kr. vaxtahækkunina frá
ríkisstj órninni, svo hér er um
300 króna skerðingu á þúsund
krónunum þínum að ræða á
þrem árum.
Þú færð vegna afskipta ríkis-
stjórnarinnar 30% minna af
lífsnauðsynjum núna fyrir þess-
ar 1000 kr., en þú hefðir getað
fengið, þegar ég gaf þér þær.
Skilurðu. þetta?“
„Já, afi. En hvað hefur ríkis-
stjórnin skert sparisjóðsinn-
stæðu þína um háa upphæð?“
„Þrjátíu siimum hærri upp-
hæð en þína! Geturðu reiknað
hvað sú skerðing er mikil fjár-
hæð?“
„Er það ekki 9000 krónur?“
„Jú.“
„En segðu mér, afi: Hvers
vegna heldur „íslendingur“ því
fram, að ríkisstjórnin sé að
passa innstæðuna fyrir okkur?
Kann hann ekki að reikna?“
„Jú, ætli það ekki. Hann bara
reiknar ekki dæmið allt.“
„Kennir hann svo mikið í
brjósti um ríkisstjórnina?“
„Sennilega er bezt fyrir þig,
að líta svo á. Þú ert ennþá svo
ungur.“
- Frá Bindindisfélagi ökumanna á Akureyri
(Framhald af bls. 2)
ara merkja er hér í bæ.)
7. Numin verði burt umferð-
armerki sem fallin eru úr gildi,
svo sem merki þau sem á stend
ur „Aðalbraut - Stanz - Stopp“.
8. Sett verði upp grindverk á
gangstéttarbrún gegnt dyrum
Borgarbíós.
Akureyri, 6. nóv. 1962.
F. h. Bindindisfél. ökumanna.
Jónas Jónsson
ÞÆTTÍR UM ÞJÓÐMÁL
Á að reyna að siöðva
slrauminn?
ÁRIÐ 1940 var mannfjöldi á Is-
landi nál. 121 þús. Árið 1961,
eða 21 ári síðar, var hann um
180 þúsund. Á þessum tima hef
ur þjóðinni fjölgað um 58—59
þús., eða rúmlcga 48%.
•Heíði jafnvægi verið í byggð
landsins, ætti íbúatalan í hvcrj-
um landshluta að hafa hækkað
um svipaðan liundraðshluta.
Lætur þá nærri, að fyrir liverja
2 íbúa árið 1940 ættú nú að
» • C/-
vera 3 t. d. á Norðurlandi..
En því fer fjarri, að svo se.
Breytingamar í einsiökúm
landshlutum á árunum 1941—
61, að báðum meðtöldúm eru
þessar: Á Suðurlandi, austan
Fjalls, að meðtöldum Vest-
mannaeyjum, liefur íbúunum
fjölgað um 18%, á Austurlandi
um 4%, Á Norðurlandi um
11% og á Vesturlandi, sunnan
Gilsfjarðar, um 22%. Á Vest-
fjörðum hefur íbúum FÆKK-
AÐ um 18%. En í Kjalarnés-
þingi (vestan Fjalls) nemur-
íbúafjölgunin 112%.
Þessar tölur sýna, að í ein-
um landshluta, Vestfjörðum,
hefur orðið bein fólksfækkun á
þessum tíma. í fjórum -lands
lilutuni hefur orðið hlutfallsleg
fólksfækkun, miðað við. 48%
þjóðarfjölgun. En í einum lands
liluta er um gífurlega fólksfjölg
un að ræða. Þessi eini lands-
hluti hefur tekið við 90% af
allri fólksfjölgun landsins. íbú-
um Stór-Reykjavíkur, sem tek-
ur yfir 6 samliggjandi sveitar-
félög á litlu landssvæði, hefur'
fjölgað úr ca. 43.400 upp í ca.
90.600. Þar á nú rúmlega helm-
ingur þjóðarinnar heima.
Jafnvel í höfuðstað Norður-
lands, Akureyri, var um mikla
hlutfallslega fólksfækkun að
ræða á síðasta áratug. Við sam-
anburð á íbúatölum bæjarins
nú og fyrir 10 árum verður að
hafa í huga þá stækkun, «em
orðið hefur á lögsagnarumdæm-
inu eftir 1950.
Af hálfu Framsóknarflokks*
ins hefur nú verið flutt frum-
varp til laga um sérstakar ráð-
stafanir til að stuðla að jafn-
vægi í byggð landsins. Þar segir
svo, að tilgangi þeim, er í frv.
felst, skuli reynt að ná „með
rannsóknarstörfum, áætlana-
gerð og fjárhagslegum stuðti-
ingi til framkvæmda og eflingar
á atvinnulífi í þehn lands-
hlutum, þar sem bein eða hlut-
fallsleg fólksfækkun hefur átt
sér stað undanfarið eða talin
yfirvofandi“.
Samkvæmt þessu frumvarpi
á að koma upp á vegum ríkisins
sérstakri og sjálfstæðri stofnun
sem sinni því hlutverki einu að
stuðla að jafnvægi í byggð
landsins. Svo er fyrir mælt, að
ríkið leggi ár hvert 1%% af
tekjum sínum í sjóð, sem jafn-
vægisstofnunin hafi undir hönd-
um og ráðstafi, í fyrsta sinn af
tekjum ársins 1962, en 1%% af
áætluðum tekjum þess árs eru
um 26 millj. kr. Svo er til
ætlazt að jafnvægisstofnunin
fylgist með þróuninni í hinum
cinstöku landshlutum og byggð
arlegum, geri um athuganir
sínar skýrslur þær, er nauðsyn-
legar þykja, í samráði við hlut-
aðeigandi aðila, áætlanir urn
framkvæmdir, sem fé verði var-
ið til af hennar liálfu. Gert er
ráð fyrir útlánum „til hvers
konar framkvæmda, sem eru til
þess fallnar að stuðla að jafn-
vægi í byggð Iandsins“, og m. a.
tekið fram, að veita megi sveit-
arfélögum lán til þess að koma
upp íbúðum, þar sem slík aðstoð
telst aðkallandi. Heimilað er þó,
með tilteknum skilyrðum, að
að veiía óafturkræf franilög, ef
sérstaklega stendur á svo og, að
jafnvægisstofnunin gerist með-
eigandi í atvinnufyrirtæki. Um
tryggingu fyrir láni, vexti og
afborgunarskilmála á að fara
eftir ákvörðun sjóðsstjórnar
hverju sinni. Þá er í frv. ákvæði
sem gera ráð fyrir þeim mögu-
leika, að lireppsnefndir, sýslu-
nefndir og bæjarstjórnir geti
sjálfar stofnað jafnvægissjóði,
og fengið til þess aðstoð af því
fé, sem ríkið leggur fram. Hygg
ég, að þar sé um að ræða mjög
atbyglisverða Ieið, sem a. m. k.
sumstaðar myndi verða reynd,
ef til kemur.
í frumvarpi þessu er ekkert
hróflað við lögum þeim um at-
vinnubótasjóð, sem sett voru á
síðasta þingi. í þeim lögum fel-
ast aðallega reglur um úthlut-
un á svonefndu atvinnuaukning
arfé, sem verið hefur til ráð-
stöfunar all lengi og margir
kannast við. Við setningu þeirra
var jafnvægissjónarmiðið ekki
viðurkennt svo sem vera ber.
Var þar um lítið nýmæli og
engin ný fjárframlög að ræða,
heldur minnkun fjárframlags
miðað við verðlag.
Sú hugmynd, að koma upp til
frambúðar sérstakri og sjálf-
stæðri stofnun, sem liafi veru-
leg fjárráð til þess að stuðla að
jafnvæg í byggð, hefur verið
víðar á dagskrá en hér á Islandi.
í Noregi voru sett Iög um þetta
efni fyrir tíu árum og hafa bor-
ið mikinn árangur. í fyrravetur
skrifaði ég í Dag greinarkorn
um þessa norsku löggjöf og uin
hina svonefndu Norður-Noregs-
áætlun, samkvæmt skýrslum,
sem mér bárust frá Noregi um
þetta efni. Að þessu sinni er
ekki hægt að rifja upp það, sem
þar kom fram. Mikilvægi hins
norska jafnvægismáls virðist
vera ráðamönnum Noregs vel
ljóst, og sýna þeir það í verki.
En frumvarp okkar Framsókn-
armanna er að verulegu leyti,
eftir því sem staðhættir leyfa,
samið með hliðsjón af hinni
norsku Iöggjöf.
G. G.