Dagur - 22.12.1962, Side 2
2
Hvers virði er frelsið?
Þekkið þið dæmisciguna um föðurinn, sem kenndi sonum sínum tólf, Iivaða þýðingu það hefði að vinna saman? Gamli maðurinn
fékk þeim sinn stafinn hverjum og sagði þeim að reyna að brjóta. Það var auðvelt. Síðan tók hann nýja stafi og batt þá alla saman
i knippi, og þá gat ekki einu sinni sá sterkasti af sonunum brotið þá.
■Hefur nauðsyn samstöðu og samvinnu nokkurn tíma verið slík sem nú við þessi áramót? Hafa árekstrar vegna ólíkra sjc'marmiða
og síaukins munar auðs og örbirgðar nokkurn tíma ógnað veröldinni sem nú?
Hönd með liendi í stað hnefi mót hnefa þýðir: friður. i. ‘ •1' - "
fWSP"----
Minnkandi fjarlægðir hafa fært mennina nær liver öðrum. Glaðir getum vér ekki lengi notið allsnægta, ef aðrir menn svelta. Hvers
virði er oss frelsið, systunAðrár Óg bráíðtir-gista fangabúðir fátæktar og fáfræði?
íslenzkir samvinnumenn: Treystum samvinnustarfið heima fyrir. Látum fyrirbænum um gleðilegt nýtt ár fylgja ásetning um ríku-
lega hlutdeild í alþjóðastarfi samvinnumanna til hjálpar og eflingar þjóðunum í vanþróuðum lc'jndum. Tiikum virkan þátt í þeirri
viðleitni samvinnumanna um allan heim, að efla frið og bræðralag og útrýma oki fátæktarinnar.
Óskum samvinnufólki um land allt, svo og öðrum
landsmönnum gleðilegra jóla, drs og friðar.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA