Dagur - 22.12.1962, Blaðsíða 4
4
5
...'.1 ...V" .. '
Dagur
Landið og
byggðin
ALLIR VITA hvemig búseta manna hef-
ur breytzt í landi okkar á síðustu ára-
tugum, þannig að nær öll fólksfjölgunin
er nú á litlu svæði. Reykjavík og ná-
grenni hennar. En það er gagnstætt
byggðastefnunni eða þeirri stefnu, að
nytja gæði alls landsins og að fólksfjölg-
unin verði sem jöfnust um land allt, þar
sem á annað borð er talið byggilegt. Á
þessu ári hafa heil sveitarfélög farið í
eyði og sýnir það vaxandi flótta úr sveit-
um.
Forfeður okkar námu landið allt, mynd
uðu norrænt þjóðríki og unnu þau and-
legu afrek, sem ljómi stendur af og enn
í dag er leiðarljós þjóðarinnar og hinn
trausti menningargrundvöllur. Dreifbýl-
ið hefur alla tíð gefið þjóðinni nær öll
skáld, listamenn og helztu skörunga í
félags-, atvinnu- og framkvæmdamálum.
Og fólk hinna dreifðu byggða á íslandi
leggur víðast hvar meira í þjóðarbúið,
hlutfallslega, en aðrir þegnar þjóðfélags-
ins. Bændur Ieggja árlega í þjóðarbúið
aðalfæðutegundimar, sem metnar eru á
11—1200 milljónir króna. Sjómenn í
þorpum og útgerðarstöðvum Ieggja til
bezta fiskinn og hlutfallslega mestar fisk
afurðir. Þessar staðreyndir eru sjaldnast
metnar að verðleikum, né heldur hitt, að
landið verður ekki nýtt eða gæði þess,
nema með búsetu á því, út til nesja og
inn til dala. Landið sjálft og gróðrarmold
þess er dýrasti auður þjóðarinnar. Sá
þjóðarauður er vanmetinn, fólkið flýr
hann vegna annarlegra sjónarmiða stjóm
valda landsins og hættulegrar tízku, sem
dýrkar hið fljótfengna og yfirborðs-
kennda. Maður, sem getur hermt eftir,
sungið dægurvísur, stokkið langt eða
bmgðið sér í margra kvikinda líki á leik-
sviði eru hetjur dagsins og skmmkrýndir
konungar hans. Maðurinn við árina og
orfið þykir naumast umtalsverður nema
fyrir kosningar. Töfrar íslenzkrar nátt-
úru og íslenzks sveitalífs eru fótum
troðnir af hugsjúkum lánleysingjum, sem
látast vera skáld og listamenn. Ef áfram-
hald verður á þjóðflutningum á fslandi,
frá moldinni til malarinnar, verða sveit-
ir landsins, margar hverjar, eyddar að
fullu eftir skamma stund og íslendingar
hafa þá tapað siðferðilegum eignarrétti
yfir ættlandi sínu.
Norðmenn áttu við nákvæmlega sama
vandamál að stríða og eiga enn. En það
er um áratugur síðan að þeir spymtu
við fótum og gerðu sínar ráðstafanir til
að halda landi sínu í byggð. Það gerðu
þeir með stórkostlegum fjárveitingum
til N.-Noregs-áætlunarinnar. Þær voru
m. a. fólgnar í því, að veitt var mörgum
milljörðum króna (talið í ísl. kr.) til
margvíslegra framkvæmda, með allt að
20 ára lánum og með 3*4% ársvöxtum.
Lánin voru einkum veitt til iðnaðarfram-
kvæmda og raforkuvera, en einnig var
margs konar aðstoð veitt til landbún-
aðarins. Árið 1961 var ný áætlun gerð
á enn breiðari grundvelli til eflingar at-
vinnulífi Norður-Noregs.
Ekki má lengur dragast að Iandsfeður,
sem aðrir landsmenn, átti sig á því, að
rangt er stefnt hér á landi og nýrrar
stefnu er þörf hið bráðasta. □
v----------------------------/
Heitir staðir á Norðurlandi
ÁTTA þingmenn úr Norður-
landskjördæmi eystra flytja til-
lögu til þingsályktunar um jarð
hitarannsóknir, jarðhitaleit og
áætlanir um hagnýtingu jarð-
hita á Norðurlandi eystra.
í greinargerð tillögunnar seg-
ir svo m. a.:
„Mikill hluti Norðurlands
eystra er í aðaljarðhitabelti ís-
lands eða rétt við það belti.
Víða eru þar snarpheitar laug-
ar og volgar lindir ofanjarðar.
Einnig bæði vatnshverir og
gufuhverir. Jarðblettir eru þar
sums staðar, sem bræða af sér
snjó á vetrum, svo að sýnt er,
að hiti býr undir, þó að ekki
verði hans í öðru vart á yfir-
borðinu.
Enn þá hafa ekki rækilegar
rannsóknir og skipulegar farið
fram í þessum landshluta á jarð
hitasvæðunum eða áætlanir ver
ið gerðar, nema á stöku stað,
um hagnýtingu hans. Jarðbor-
anir hafa óvíða verið gerðar og
aðeins á einum stað til úrslita
að kalla má; það er í Ólafsfirði.
Ólafsfjarðarkaupstaður hefur
látið bora eftir heitu vatni hjá
sér með góðum árangri og virkj
að vatnið til hýbýlahitunar.
Nokkrir skólar hafa verið
reistir með aðstöðu til að hag-
nýta auðfenginn jarðhita. Ein-
stök býli hafa notfært sér slík-
an jarðhita til upphitunar. Á fá-
einum heitum stöðum hafa gróð
urhús verið byggð og gefið góða
raun.
Húsavík er þegar búin að
kosta allmiklu til rannsókna hjá
sér á skilyrðum til að fá heitt
vatn úr jörðu. Þar eru nú í þann
veginn að hefjast boranir eftir
heitu vatni með hinum svo-
nefnda Norðurlandsbor, sem
ríkið á.
Fyrirhugað er því næst, að
ríkið láti Norðurlandsborinn
starfa um tíma á gufuhverfa-
svæðinu við Námafjall vegna
væntanlegrar kísilgúrvinnslu
við Mývatn.
Mikil auðlegð er falin í
jarðhitasvæðunum.
Akureyri mun hafa hug á að
fá Norðurlandsborinn þessu
næst til að leita með honum að
heitu vatni hjá sér.
Allt þetta er ágætt út af fyrir
sig og stórlega mikilsvert, en
þó langt frá því að vera full-
nægjandi af því að verkefni
jarðhitarannsókna og jarðhita-
leitar á Norðurlandi eystra eru
geysilega mikil og mörg og víðs
vegar. Þau verða flest ekki unn
iii, svo að lag sé á og að gagni
komi, nema fyrir atbeina hins
opinbera og á vegum þess.
Jarðhitarannsóknunum og
jarðhitaleitinni þurfa að vera
samfara áætlanagerðir og leið-
beiningar um hagnýtingu jarð-
hitans á hverjum stað. Fólkið,
sem þarna býr — eða vill búa,
— þarf sem allra fyrst að vita,
hvort og hvernig þessar auðlind
ir geta orðið því til hagræðis og
lífsþæginda.
Vitneskja í þessum efnum
getur haft stórkostlega þýðingu
á mörgum stöðum í þessum
landshluta, t. d. þegar koma
skal upp byggðahverfum eða
iðjuverum, staðsetja einstök ný
býli, endurbyggja og færa til
gamla bæi, velja skólahúsum
og félagsheimilum staði o. s.
frv.“
Karl Kristjánsson er fyrsti
flutningsmaður tillögunnar og
mun mæla fyrir henni á Al-
þingi.
Greinargerðinni fylgir frá
j arðhitadeild raforkumálaskrif-
stofunnar skrá um ca. 90 heita
staði á umræddu svæði. er hún
hér á eftir.
Reykdælalir.:
Birningsstaðir 52 0.7
Brettingsstaðir 22.9
Hjalli 45 0.25
Kasthvammur 24.3
Laugaból 46 0.43
Laugar í Reykjadal 55
Litlu-Laugar 57.5 0.7
Stafn 27.5 0.5
Stóru-Laugar 52 1.2
Öndólfsstaðir 27 0.10
Reykjahreppur:
Hverav. (Uxahver) 100 16
— (Yztihver) 100 27
Syðstihver 100
Hverav., Strokkur (gufa)
Reykir (Þvottahver) 82 3.5
Reykir 90.4
°C lítr/sek
Akureyri:
Glerárgil 55
Árskógsströnd:
Hámundarstaðaháls 2ú
Glæsibæjarhr.:
Laugal. í Hörgárd. 77.1
— (borhola) 78 3.5
Hrafnagilshr.:
Grísará 41
Syðri-Hrafnagilslaug 57
Hrafnagil, a 55 0.6
Hrafnagil, b 32- -35 0.33
Hrafnagil (sundl.) 35 0.5
Ytri-Hrafnagilslaug 46
Kristnes 58 1
Kristn. (Reykhúsal.) 75 1.5
Reykhús 74 1.4
Ytra-Gil 47.5 0.33
Hrísey:
Yzti-Bær 39 0.05
Yzti-Bær 62 0.4
Skútustaðahr.:
Hofstaðir í Laxárdal 22 6
Svalbarðshr.
við Þistilfjörð:
Gunnarsstaðir
Laxárkrókur ca. 23
Kollavík
Svalbarðsstrandarhr.:
Tunga 20
Svalbarðseyri 33
Skútustaðahr.:
Brennisteinsþúfa,
Námafjall (gufa)
Gufuauga, Námafj. (gufa)
Hverarönd, leirhver, Námafj.
Hverarönd, brennisteinsþ.
Hraunbrún, brennist.þ.
Vatnssprunga, Námafj. (gufa)
Hverir á háfjalli, Námafj. gufa
Námaskarð 100
Reykjahlíð v. Mýv. 27
Vogar, Grjótagjá 41
Þeistareykir (gufa)
Axarfjarðarhr.:
Ólafsfjörður:
Bakki 17
Karlsstaðir 27
Kleifarhorn 33.4
Ósbrekka 30.8
Reykir 50 0.4
Reykir 52 4
Skeggjabrekka 49 11
Vatnsendi 36 0.05
Saurbæjarhr.:
Skógar
Ærlækjarsel (gufa)
Kelduneshr.:
Ytri-Bakki
Arnanes
Við Lónsós
Skeiðsöxl
Upplýsingar um hita og rennsli
eru tilgreindar þar sem þær
liggja fyrir.
Hleiðargarður 15 0.3
Djúpidalur 15—16 0.45
Hólsgerði 21 0.1
Hólsgerði 43 0.5
Svarfaðardalshr.:
Hamar 39.5
Tjarnargarðshorn
— (Laugahlíð) 27
Sundlaugin við
— Gullbringu 25 5
Öngulsstaðahr.:
Björk 28 0.4
Brúnal. (Brúnshus) 66.5 2
Garðsá 19.4
Grýta 32 0.8
Hóll 46.5 0.8
Laugaland 55 1-1.5
Aðaldælahreppur:
Presthvammur 43.2
Grýtubakkahr.:
Grýtubakki 26 0.25
Sundl. v. Gljúfurá 18
Hálshreppur:
Draflast. (Fnjóskad.) 44 0.4
Reykir, Fnjóskad. 90 1.2
Húsavíkurkaupst. 63 0.20
— 36
Laugardalur
Kelduhverfi:
Litlaá 15
Krafla við Litla-Víti (gufa)
Krafla v. Stóra-Víti (gufa)
Leirhnjúkur (gufuauga)
Hrútfjallahitur
Goðasteinn
SVO nefnist tímarit, hið eina,
sem gefið er út uppi í sveit hér
á landi, og hefur blaðinu borizt
fyrsta hefti þess. í því er kvæði
sr. Sigurðar Einarssonar í Holti
um Pál biskup Jónsson, Eg man
þá nótt eftir Kjartan Leif Magn
ússon, Parísarför eftir Jón R.
Hjálmarsson, Eitt sinn átti að
gefa Rússum ísland eftir sama.
Ennfremur eru þarna sagnaþætt
ir, eftirmæli o. m. fl.
Ritstjórar blaðsins eru Jón R.
Hjálmarsson og Þórður Tómas-
son, en útgáfustaður er Skógar
undir Eyjafjöllum.
Goðasteinn fæst á Akureyri í
Bókabúð Rikku. □
Skinfaxi
1.—2. HEFTI þessa árs flytur
að vanda margbreytt efni. Má
þar nefna: Lýðháskóli á íslandi
eftir Bjarna M. Gíslason, Nor-
ræna æskulýðsvikan eftir Skúla
H. Nordal, Landsmótið á Laug-
um, Saga U. M. F. í. eftir And-
rés Kristjánsson og Væringja-
kveðju, kvæði eftir Bjarna M.
Gíslason. Þá eru í þessu hefti
margvíslegar fréttir frá ung-
Ljósavatnshr.:
Stóru-Tjarnir 53 0.66
mennafélögunum og sambönd-
um þeirra. □
Þrjár nýjar bækur
frá Fróða
BLAÐINU hafa borizt þrjár
nýjar bækur frá bókaútgáfunni
Fróði. Þær eru þessar:
Breiðfirzkar sagnir II eftir
Bergsvein Skúlason. í bókinni
eru viðtöl við gamla Breiðfirð-
inga og ýmis konar þjóðlegur
fróðleikur í bundnu og óbundnu
máli. Skemmtilegustu þættir
bókarinnar eru viðtölin við Ge-
org Jónasson Grundfjörð og Júl
íus Sigurðsson í Litlanesi. Fyrra
bindi af Breiðfirzkum sögnum
kom út fyrir þremur árum.
Sögur Jesú endursagðar af
Kaj Munk í þýðingu Sigurbjarn
ar Einarssonar biskups er falleg
barnabók. Ragnhildur Ólafsdótt
ir hefur teiknað smekklegar
myndir í bókina.
Sögur Biblíunnar fá nýtt líf
við það, að þessi danski ritsnill-
ingur segir þær á talmáli fyrir
börn. Þýðingin er á gullfallegu
máli. Þetta er góð bók og við-
eigandi til jólagjafa handa börn
um.
Beruð höfuðuð hátt — það
gæti gengið verr er ný bók að
mestu í myndum eftir þá félag-
ana danska skoprithöfundinn
Willy Breinholst og Léon hinn
hugkvæma teiknara hans. Ber
hún vott um, hvað þessum
skemmtilegu mönnum getur
dottið í hug.
HAUGAELDAR
BÖKAÚTGÁFAN EDDA á Ak-
ureyri hefur sent frá sér bókina
Haugaelda —- ritsafn Gísla Jóns
sonar frá Háreksstöðum á Jök-
uldal. Inngang að bókinni ritar
dr. Stefán Einarsson.
Gísli Jónsson er kominn hátt
á níræðisaldur og gegnir enn
ritstjórastarfi í Winnipeg í Kan-
ada. Hann er allt í senn, prent-
ari, skáld og ritstjóri, vel þekkt-
ur maður austan hafs og vestan.
Ljóðabækur hans tvær, Farfugl-
ar og Fardagar, eru meðal
verka hans.
Hin nýja bók, Haugaeldar, er
samsafn greina og ritgerða,
bæði áður prentaðra og óprent-
aðra. Meðal annars er í þess-
ari bók mjög merkur þáttur af
æskuheimili höfundar í einni
afskekktustu byggð á íslandi,
sem hinir nafnkunnu Háreks-
staðabræður kenna sig við.
Bókin er á fimmta hundrað
blaðsíður, prentuð á vandaðan
pappír og er vönduð að frágangi
frá Prentsmiðju Björns Jónsson
ar á Akureyri.
Gísli Jónsson dvaldi hér um
tíma í sumar á Akureyri og
eignaðist þá marga kunningja.
Hann er hinn vörpulegasti mað-
ur og vel á sig kominn, þrátt
fyrir háan aldur og ekki er held
ur neinn elliblær á síðum bókar
innar, og eru þar þó t. d. ferða-
minningarnar aðeins nokkurra
ára gamlar.
Mörgum mun þykja mikill
fengur að Haugaeldum Gísla
Jónssonar frá Háreksstöðum. Q
HELZTU TRÚARBRÖGÐ
HEIMS.
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up þýddi texta.
Almenna bókafélagið.
Út er komin hjá Almenna
bókafélaginu íburðarmikil og
glæsileg bók, sem nefnist Helztu
•trúarbrögð heims. Biskupinn yf
ir íslandi, herra Sigurbjörn Ein-
arsson annaðist þýðingu og út-
gáfuna. Myndprentunin er unn-
in í Kaupmannahöfn, og eru
myndirnar á þriðja hundrað og
flestar í litum, en alls er bók
þessi 200 blaðsíður í stóru broti.
Höfundar eru margir.
Helztu trúarbrögð heims fjall
ar um meginreglur trúarbragða
heimsins,*sem eru: Kristin trú,
Gyðingdómur, Múhameðstrú,
Kínversk trúarheimspeki og
Hindúasiður. □
Saga íslenzkra forn-
bókmennta
N Ó VEMBERBÓK Almenna
bókafélagsins í ár er fyrsta
bindi af Sögu íslenzkra fombók-
mennta eftir prófessor Einar
Ólaf Sveinsson. Þetta bindi er
500 blaðsíður að stærð og skipt-
ist í þrjá megin þætti. Fjallar
hinn fyrsti um upphaf islenzks
þjóðfélags, annar þáttur er yfir-
leitt um kveðskap og þriðji og
lengsti þátturinn er um Eddu-
kvæði. Höfundur hefur sjálfur
kynnt bókina að megindráttum
í útvarpinu.
Ekki leikur neinn vafi á, að
hér er um einkar merkilegt rit-
verk að ræða, sem ætti að auka
skilning manna og áhuga á þeim
fornu rótum, sem íslenzk tunga
byggist á. □
Fá „Utlagar" Einars iónssonar
að setjast að á Akureyri?
Á 100 ára afmæli Akureyrar sl.
sumar, bárust bænum margar
góðar gjafir, og víða að. Meðal
gefenda voru vinabæirnir á hin
um Norðurlöndunum, kaupstað
irnir hér í grenndinni o. fl. Höf-
uðborgin, Reykjavík, hefur einn
ig tilkynnt, að þaðan megi góðr-
ar gjafar vænta, við tækifæri.
Gjafir þessar hafa að sjálfsögðu
verið þegnar með gleði og þakk
læti, þótt flestum bæjarbúum
séu þær lítt kunnar, þar sem
ráðhússalurinn er enn órisinn,
en þar ætti íbúunum að gefast
færi að sjá málverk og mynda-
styttur í bæjarins eigu.
En einn er sá aðili, sem mér
virtist einna líklegastur til að
gefa einhverja fallega og góða
gjöf: sjálft íslenzka ríkið; en frá
því sást ekkert koma.
Þegar önnur mesta stórborg
landsins á slíkt merkisafmæli,
virðist mér ekki óeðlilegt, að
ríkið vildi minnast þess, t. d.
með fjárupphæð nokkurri til
einhverrar menningarstofnunar
í bænum, eða gjöf einhvers lista
verks. Vitanlega á þjóðin, ríkið,
mikinn fjölda listaverka og
góðra gripa, sem safnað er sam-
an í Reykjavík. Það er eins og
sjálfsagt talið af mörgum, að
þar verði allt hið mesta og mik-
ilsverðasta að vera staðsett. En
mun það ekki á hættulegum mis
skilningi byggt? Hvað um „jafn
vægi í byggð landsins“, eins og
nú er svo oft að orði komizt?
En ástæðan til þess, að ég
minnist á þetta nú ,er sú, að ný-
lega heyrði ég þess getið, að
þjóðin, — þar með taldir við
Norðlendingar, held ég, — ætti
aðgang að fjárupphæð, gjöf,
sem verja ætti til þess að gera
afsteypu af einhverju listaverki
Einars Jónssonar, t. d. „Útlög-
um“, og skyldi velja því stað
úti, í Reykjavík.
En nú hefur svo illa til tekizt
áður þar í sveit, að deilt var
svo mjög um gildi og staðsetn-
ingu listaverks nokkurs, að það
var brotið niður og eyðilagt.
Gæti nú eigi farið eins um
„Útlagana“, — að um það lista-
verk yrði svo togazt og deilt, að
til ills leiddi?
Akureyri er höfuðstaður
Norðurlands, mikið heimsóttur
staður, bæði af erlendum gest-
um og innlendum, jafnvel Reyk
víkingum, þegar þrálátt er regn
ið og drunginn mikill þar yfir.
Bærinn er á orði fyrir fallega
staðsetningu og skrúðgarða,
bæði almenna og í eigu einstak-
linga. Þar fengist, án efa, valinn
staður fyrir einhverja fagra
þjóðareign, — hvar margir
fengju hennar vel notið.
Svo illa er nú fyrir þjóðinni
komið, að of stór hluti hennar
byggir of lítinn hluta landsins,
og æ fleiri verða gripnir þeirri
tilfinningu, að séu þeir ekki bú-
settir í Reykjavík, séu þeir á
vissan hátt eins og útlagar í
landinu.
Færi nú ekki vel á því, að „lík
ir sæki líka heim“, og „Útlagar“
E. J. fái að setjast að á Akur-
eyri, standa t. d. á Eiðsvelli eða
í Lystigarðinum. Það væri óneit
anlega falleg afmælisgjöf. En
e. t. v. fylgja peningagjöfinni
einhver skilyrði í sambandi við
staðsetningu listverksins. Sé svo
ekki, virðist mér, að ef þeir, sem
hér um ráða mestu, líta sann-
gjarnlega á þessa tillögu, að við
Akureyringar, Norðlendingar,
gætum gert okkur von um að
þurfa bráðum ekki suður í
Reykjavík, til þess að sjá eitt
af ótal listaverkum og gersem-
um ríkisins. Smátt og smátt
ætti þeim svo að fjölga hér, og
vissulega víðar um bæi og
byggðir okkar góða, fagra lands.
Jónas Jónsson
frá Brekknakoti.
Winston Churchill,
cnskur stjórnmálamður.
Ohurchill var einu sinni í
samsæti og við hlið hans í borð-
salnum sat kona, sem virtist
gagntekin af pólitískum áhuga.
Hún lét stöðugt dæluna ganga
um ýmiss konar stjómmálaleg
efni og var Churchill orðinn
dauðleiður á að hlusta á hana.
Að lokum tók hún í handlegg
Churchills og sagði: „Svo er
það ástandið í Austurlöndum.
Það er vandamál, sem verður að
leysa. Eftir hverju er stjórnin
að bíða? Eftir hverju bíðið þér,
mr. Churchill?“
„Núna sem stendur bið eg
eftir kartöflunum,“ var svarið.
Á styrjaldarárunum gerðist
það kvöld eitt, þegar Lundúna-
borg var myrkvuð vegna hættu
af loftárásum Þjóðverja, að
Churchill kom í leigubíl til B.
B. C. Hann ætlaði að flytja
ræðu í brezka útvarpinu þetta
kvöld. Bað hann bílstjórann að
bíða eftir sér hálfa klukku-
stund. Bílstjórinn, sem ekki
þekkti Churchill í myrkrinu,
kvaðst ómögulega geta það.
Þegar Churchill spurði, hvers
vegna svo væri, sagðist bílstjór-
inn ætla heim og hlusta á Churc
hill í útvarpinu. Stjómmála-
manninum líkaði svarið vel og
rétti stóra peningaupphæð að
bílstjóranum sem ómakslaun.
„Á eg að fá alla þessa peninga?“
spurði hann undrandi. „Já,“
svaraði Churchill. Þá sagði bíl-
stjórinn: „Jæja, það er ágætt.
Fjandinn hirði þá Churchill. Eg
bíð eftir yður, herra minn.“
PETER FREUCHEN,
danskur Grænlandsfari og
rithöfundur.
Maður nokkur sagði við
Peter Freuchen: „Eg hef heyrt
um heimskautaleiðangur þar
sem menn urðu fyrir svo mikl-
um kulda, að kertaljósin fmsu,
svo að ekki var hægt að
slökkva þau. Hefur þú kynnzt
nokkru þvílíku?“
„Nei,“ svaraði Freuchen, „en
eg man eftir ferðalagi og þá var
svo kaltj að orðin komu út úr
okkur eins og ísmolar og urðum
við að þiða þá, til þess að getá
heyrt það sem við höfðum
sagt.“
Einu sinni í samkvæmi hafði
Peter Freuchen afar forvitna
frú fyrir sessunaut. Sérstaklega
langaði hana mjög til ,að vita
hvers vegna Freuchen hafði
tréfót. Hvað hafði orðið af hin-
um rétta fæti hans? Höfðu há-
karlar étið hann? „Nei,“ sagði
Freuchen, „hann borðaði eg
sjálfur.“ „Borðuðu þeir hann
sjálfur?“ Og frúin varð eitt
spurningarmerki.
„Já, það var í Grænlandi,“
sagði Freuchen, „eg og félagi
minn vorum tepptir í snjó. —
Við höfðum engan mat og
gamimar gauluðu í okkur —
og að lokum sá eg ekki önnur
ráð en að hafa annan fótinn til
matar.“ „En félagi yðar?“
spurði frúin. „Hann varð eftir
þarna, vesalingurinn — hann
kunni sér ekki hóf, heldur át
sjálfan sig upp til agna.“
HÁTÍÐAMESSUR í Akureyrar
prestakalli: Aðfangadagur
jóla. Akureyrarkirkja kl. 6 e.
h. Sálmar 73, 78, 87, 82. B. S.
Barnaskólinn Glerárhverfi kl.
. 6e. h. Sálmar: 101, 97, 73, 82.
P. S. Jóladagur. Akureyrar-
kirkja kl. 2 e. h. Sálmar: 78,
73, 82, 93.'P. S. Lögmannshlíð
kl. 2 e. h. Sálmar: 70, 73, 78,
82. Strætisvagn fer úr Gler-
árhverfi kl. 1.30 B. S. Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri
kl. 5 e. h. B. S. Annar jóladag
ur. Akureyrarkirkja kl. 2 e.
h. Sálmar: 93, 76, 73, 82. —
Barnakór leiðir songinn og
ungmenni lesa pistíl og guð-
spjall. B. S. Barnaskólinn
Glerárhverfi kl. 2 e. h, Sálm-
ar 645, 648 73, 82. P. S. Elli-
heimili Akureyrar messa kl.
5 e. h. B. S. Gamalárskvöld.
Akureyrarkirkja kl. 6 e. h.
Sálmar: 488, 492, 97, 489. P. S.
Barnaskólinn Glerárhverfi kl.
6 e. h. Sálm.: 488, 500, 304, 489
B. S. Nýársdagur. Akureyrar
kirkja kl. 2 e. h. Sálmar: 499,
500, 491, 675. B .S. Lögmanns-
hlíðarkirkja kl. 2 e. h. Sálm-
ar: 489, 491, 488, 674, 1. Stræt-
isvagn fer úr Glerárhverfi kl.
1.30. P. S. Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri kl. 5. P. S.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Ak-
ureyri. Jólin 1962. Nýárið
1963. Hátíðadagskrá. 1. jóla-
dag kl. 20.30 hátíðarsamkoma
2. jóladag kl. 14 og 17 jólahá-
tíð sunnud.skólans. Fimmtud.
27. des. kl. 20 jólahátíð Heim-
ilasambandsins. Föstud. 28.
des. kl. 20.30 jólahátíð (Skan-
dinavisk fest). Laugard. 29.
des. kl. 15 jólahátíð fyrir eldra
fólk. Sunnud. 30. des. kl. 15
jólahátíð f. börn (aðg. 3 kr.).
Sama dag kl. 20.30 Almenn
samkoma. Gamlárskvöld kl.
23 miðnæturguðsþjónusta.
Nýársdag kl. 20.30 hátíðarsam
koma. Miðvikud. 2. jan. kl. 15
jólahátíð Kærleikssambands-
ins. Sama dag kl. 20 jólahátíð
Æskulýðsfélagsins. Föstud. 4.
jan. kl. 15 jólahátíð f. börn
(aðg. 3 kr.) Laugard. 5. jan. kl.
20 jólahátíð fyrir Hermenn.
Sunnud. 6. jan. kl. 16 jólahá-
tíð á elliheimilinu Skjaldar-
vík. Verið hjartanlega velkom
in á allar samkomurnar.
FÍLADELFÍA Lundargötu 12
tilkynnir hátiðarsamkomu:
Sunnud. 23. des. kl. 8.30 e. h.
almenn samkoma. Jóladag kl.
5 e. h. almenn samkoma. 2.
jóladag kl. 8.30 e. h. almenn
samkoma. Sunnud. 30. des.
kl. 8.30 e. h. almenn samkoma.
Gamlárskvöld kl. 10.30 e. h.
almenn samkoma. Nýársdag
kl. 5 e. h. almenn samkoma.
Sunnudagaskóli hvern sunnu
dag kl. 1.30 e. h. Öll börn
hjartanlega velkomin.
SAMKOMUR að Sjónarhæð
sunnud. 23. des. kl. 5 e. h. 1.
jóladag sama tíma. Sunnudag
30. des. sama tíma og gamla-
árskvöld kl. 11 e. h. og nýárs-
dag kl. 5 e. h, — Allir vel-
komnir, einkum á gamlaárs-
kvöld.
HEIMSÓKNARTÍMAR á Fjórð
ungssj úkrahúsinu um hátíð-
arnar verða sem hér segir:
Á aðfangadag kl. 6—10 e. h.,
á jóladag og annan jóladag
kl. 2—4 og 7—7.30 e. h., á
gamlaársdag kl. 6—10 e. h. og
á nýársdag kl. 2—4 og 7—7.30
e. h.
JÓLATRÉSSKEMMTUN barna
stúknanna verður fimmtudag
inn 27. þ. m. að Hótel KEA
Kl. 2 fyrir 9 ára og yngri, en
kl. 4.30 fyrir 10 ára og eldri.
Aðgöngumiðar verða afhent-
ir í Varðborg sama dag kl.
10—12. Munið árgjöldin.
LIONSKLÚBBARNIR á Akur-
eyri halda dansleik annan
jóladag og áramótafagnað á
Gamlársdag að Hótel KEA,
til ágóða fyrir Styrktarfélag
vangefinna. Sjáið nánar augl.
í blaðinu í dag.
FRÁ AMTSBÓKASAFNINU:
Safnið verður lokað frá og
með laugardeginum 22. des-
ember 1962 til fimmtudags 3.
janúar 1963, að undanskildum
föstudeginum og laugardeg-
inum 28. og 29. desember n. k.
ORGELSJÓÐI Akureyrar-
kirkju hefur borizt gjöf að
upphæð kr. 1000.00 frá hjón-
unum Ingibjörgu Árnadóttur
og Rögnvaldi Þórðarsyni. —
Hjartanlegustu þakkir. Sókn-
arprestar og sóknarnefnd.
B. S. O. Lokað frá kl. 18.00 á að
fangadag og allan jóladag. Á
Gamlaárskvöld opið til kl.
2.30 eftir miðnætti. Lokað á
nýársdag.
Sá hlýtur viðskiptin, sem
athygli vekur á þeim. —
Góð auglýsing geíur
góðan arð.
- Styrktarfélög van-
gefinna
(Framhald af blaðsíðu 8)
styrktarfélag vangefinna á Ak-
ureyri með samskonar höfuð-
markmiði og reykvíska félagið,
en þó sjálfstætt félag. Gengu í
þetta félag strax rúmlega 100
manns og eru flestir þeirra í því
enn, en aðeins fáir, sem vinna-
beinlínis að málefnum þess.
Upphaflega var ætlunin að
vinna að stofnun hælis fyrir
vangefna hér í nágrenni Akur-
eyrar, og um skeið voru sterk-
ar líkur fyrir því, að það fengift
fram. Nú hefur sú tillaga verjð
að fullu felld, þar eð erlendúr
sérfræðingur hefur fullyrt, að
hælisþurfandi vangefið fólk á
íslandi muni ekki fleira en hæfi
legt sé fyrir eina stofnun. Er
því í athugun, hvort ekki muni
rétt að reisa hér heimavistar-
skóla fyrir þá, sem ekki þurfa
endilega hælisvistar við, en
geta eitthvað lært, þó að þeir
eigi ekki samleið með nemend-
um annarra skóla. Akureyrar-
félagið hefur því lítið getað að-
hafzt enn, nema vinna að fjár-
söfnun. Lítillega hefur verið
farið af stað með einkakennslu
fyrir fáein börn, sem félagssjóð-
ur greiðir að mestu. í stjórn fé-
lagsins hér eru: Jóhannes Oli
Sæmundsson námsstjóri, Jó-
hann Þorkelsson héraðslæknir,
Albert Sölvason vélsmiður, Jón
Ingimarsson verklýðsforingi og
Ásgeir Jakobsson bóksali.
(Upplýsingar að mestu úr er-
indi Þórðar Hjaltasonar).