Dagur - 06.02.1963, Qupperneq 2
2
(Framhald af blaðsíðu 5).
Stefáni, sem fékk bullandi blóð-
nasir.
Hvenær fórstu fyrst í göng-
ur?
Þá var ég 11 ára og ekki hár
í loftinu. Enda fór það svo, að
félagar mínir treystu ekki á
hreysti mína og skildu mig eft-
ir á malar- eða sandhrúgu uppi
á Gljúfurárjökli. En þannig
stóð á því, að er við vorum þar
komnir, sáust kindur tvær
framanvert við jökulinn áustán-
verðan. Þeir fóru að sækja
kindurnar en báðu mig að halda
kyrru fyrir og gerði ég það. Sól-
skin var og hlýtt.
Ég lét fara vel um mig og
naút veðurblíðunnar, liggjandi
á þessu undarlega kennileiti
jökulsins. Eftir stundarkorn fór
ég að heyra eins og steina dettá
eða grjóthrun, óljóst þó, og átt-
aði mig ekki á, hvaðan hljóðið
kom. Lét ég mig það svo engu
skipta fyrr en ég leit útundan
mér og sé þá örlitla hreyfingu í
sándhrúgunni, sem ég lá á. Ég
i'ærði mig þá út á jökulsvéllið
og béið þar. Félagarnir komu
kindalausir og höfðu ekki kotiri-
izt af jöklinum því svo var
hann sprunginn. En þéim brá í
brún þegar þeir komu. Malar-
eða sandhrúgan var hbffin, en
firna mikil sprunga komin í
staðinn. Jökull þessi er skrið-
jökull.
Húenær eignaðist þú fyrstu
kindina?
Vofið 1893 var mér gefin mó-
kápótt gimbur. Mér þótti hún
falleg. Um haustið voru miklir
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðú 5).
ustu útgjöldum. En til þess að
ná þeim tekjum, þyrfti verka-
maðurinn að vinna um 11 klst.
á dag, miðað við kaupið í des-
-ember 1962.
Þessu vill Bragi ekki kyngja
og kallar tölufals og svívirðing-
ar við lesendur. En það vill svo
til, að hann getur ekki hrakið
eina einustu af þésédtli tölum,
énda eru þær frá Hagstofu fs-
lands og frá Alþýðusambandi
íslands.
Sóðalegu orðbragði Braga um
fals og^ svívirðingar ætti hánn
að beina til þéirra, sem bera á
því ábyrgð, að þéssár tölúr
liggja fyrir, sem vitni um ó-
gæfulega stjómarstefnu.
Silimgur í Höfðavatni
(Framhald af blaðsíðu 8)
hér. Én í Alaska lifir svartfisk-
urinn, sem er silungstegund, vet
urinn af, þótt verustaður hans
botnfi-jósi, sagði veiðimálastjóri
áð lokum.
Bændur við Höfðavatn veiða
árlega mikið af silungi. Er það
því mikið hagsmunamál fyrir
þá að silungurinn dafni í vatn-
inu. Ennfremur er talið líklegt
að Höfðavatn geti orðið eftir-
sóttur staður fyrir sportveiði-
menn, og getur það einnig.verið
tekjulind bænda. Q
á Yfra-Hvarfi
vatnavextir í göngunum. Þá var
það, sem ég óð mig fastan í
Skíðadalsá. Maður sótti mig á
hésti. Þá voru ámar óbrúaðar
og ekki gerlegt talið að setja
féð, sem komið var í Tunguna,
austur fyrir ána. En á þeim ár-
um voru sauðir heima. Þegar
þeir vora komnir svona nærri
heimaslóðum, héldu þeim engin
bönd. Þeir tóku strikið heim,
skélltu sér hiklaust í ána og all-
ur hópurinn á eftir þeim. Allt
fór vel.
Ég var búinn að koma auga
á Mókápu mína fyrr um daginn,
en sá hana hvergi eftir að féð
var allt komið vestan yfir ána.
Leitaði ég hennar lengi og fann
hana loksins í dýi, og stóð að-
eins hausinn upp úr Ég tosaði
henni upp. Mókápa varð gömul
og mesta happakind.
Hvenær vora ámar, Svarfað-
ardálsá og Skíðadalsá, brúaðar?
Það var gert árið 1896. Þær
voru byggðar úr tré. Það var
mikið átak, en líka mikil sam-
göngubót.
Hvenær liófstu búskap?
Við Soffía sáluga, sem er ný-
látin, giftum okkur 1906 og hóf-
um þá búskap á Ytra-Hvarfi.
Áður hafði ég búið með móður
minni í eitt ár. Allt annað
var þó ætlunin. Sigurður bún-
aðarmálastjóri, sém síðar varð,
var eiginlega búinn að fala mig
til starfa. En ráðgert var að ég
færi után til frekara náms. Ég
var þá orðinn búfræðingur frá
Hólaskóla. Já, svona vildi það
til að ég gerðist bóndi. Ég var
aldrei neinn búmaður. Þetta
hefur baslazt svona og reyndar
smálagaðist efnahagurinn, og
ekki kom það fyrir nema einu
sinni, að ég gæti ekki staðið
fullkomlega í skilum.
En ég hafði samt alltaf gaman
af búskapnum. Það er svo
margt sem telja má honum til
gildis, umfram það sem beinlín-
is snertir afkomuna, og naum-
ast er að finna annars staðar.
Nú hefur Ólafur sonur minn bú-
ið á Ytra-Hvarfi í allmörg ár.
. Ég er alveg hættur, á ennþá
nokkrar kindur að gamni mínu,
þykíst grípa í verk stundum, eri
það munar ekkert um mig.
Eitthvað um félagsniál í Svarf
aðardal?
Ég held við látum þau liggja
milli hluta þó af mörgu sé að
taka og merkilegar félagsmála-
hreyfingar hafa hvað eftir ann-
að skotið upp kollinum í Svarf-
aðardal. Á öðrum tug aldarinn-
ar var t. d. starfrækt rjómabú
á Dalvík, sem yfir 30 bændur
stóðu að, þegar flest var. Eigin-
lega var það innan ramma Land
afurðafélagsins, sém fyrr komst
á fót. í fyrra var gamla rjóma-
búshúsið jafnað við jörðu. Það
stóð sunnan við Lágina. Ein-
hvernveginn var það svo, að
hagur bænda virtist batna með
tilkomu rjómabúsins. Valgerður
frá Ósi var rjómabússtýra einn
vetur, en lengst var Aðalbjörg
Sigurðardóttir það og síðast
Þóra Sigurðardóttir frá Hrís-
um. Það gat svo sem hvesst á
sveitarfundum hjá okkur í þá
daga og út af margs konar hlut-
um, en það förum við nú ekki
að rifja upp. — Og nú treður
Tryggvi í pípu sína og ekki þá
fyrstu.
Hvenær byrjaðirðu að reykja,
Tryggvi?
Það veit ég svei mér ekki, en
það er orðið langt síðan. Þegar
mér hefur alveg ofboðið hvað
ég reykti mikið, hætti ég stund-
um og fór að tyggja, kannski
svona ár í einu. En svo hefur
þessi skratti komið yfir mig aft-
ur, einkum á vorin, að mig hef-
ur farið að langa í pípuna. En
þó ég reyki, hef ég skroið við
hendina og tek svona eina tölu
á dag, helzt áður en ég fer að
sofa.
Þú hefur alltaf verið lieilsu-
hraustur?
Ég var nærri dauður úr blóð-
eitrun 1910. Ég var þá staddur
á Akureyri og fór að finna smá
stingi í handarbakið. Ég hélt að
strá eða eitthvað svoleiðis væri
uppi í erminni. En svo leyndi
sér ekki að hverju stefndi. Ég
var með mótorbát, sem ætlaði
morguninn eftir til Dalvíkui'.
Fór ég um borð um kvöldið og
svo úteftir daginn eftir. Fram
að Árgerði staulaðist ég, en
var svo máttfarinn, að ég varð
að hvíla mig öðrum hvoru. Sig-
urjón læknir græddi mig og síð-
an hef ég eiginlega aldrei legið
í í'úminu. Svo er fyrir að þakka.
Og livernig finnst þér svo ver-
öldin í dag?
Maður þekkir nú ekki mikinn
part af veröldinni. Fólkið virðist
mér að mörgu leyti betra en
það var í gamla daga. En það
er of alvörulítið og of mikil
lausung í orðum þess og athöfn-
um Landbúnaðurinn er á heljar
þröm. Ég er oft að renna aug-
unum yfir sveitina, og sé ég
ekki betur, en að það sé alveg
á takmörkum, að margar jarðir
fari í eyði Og ég get ekki komið
auga á, að maður komi í manhs
stað á jörðunum. Það er ekkert
undanfæri fyrir þjóðfélagið að
opna mönnum leið að svo hag-
stæðum lánum, að landbúnað-
urinn ráði við þau og að bænd-
ur fái viðhlýtandi verð fyrir bú-
vörar. En það þarf meira til.
Það þarf þjóðarv'akningu til að
landbúnaðurjpn- ym-ði rétt met-
inn og eftirsótt atvinnugrein,
segir Tryggvi Jóhannsson að
lokum.
Dagur þakkar skemmtilegar
samræður og vonar, að hinn
aldni Svarfdælingur megi enn
njóta margra ára í skjóli af-
komendanna í hinum fagra
Svarfaðardal. E. D.
UNCU MENNIRNIR
AF LISTA fullrúanna á auka-
kjördæmisþingi, sem birtur var
í síðasta blaði féllu niður í prent
un nöfn fulltrúanna frá Félagi
ungra Framsóknarmanna á Ak-
ureyri. Fulltrúarnir voru: Sig-
urður Jóhannesson, Haukur
Árnason og Gunnar B. Gunnars
son. Þá er Sæmundur bóndi í
Fagrabæ, sem var einn af full-
trúurn S.-Þing. talinn Jónsson,
en hann er Guðmundsson. Eru
hlutaðeigendur beðnir velvirð-
ingar á þessu □
FREYVANGUR
Dansleikur í Freyvangi
laugardaginn 9. febrúar
kl. 9l/2 e. h.
Hljómsveit
Pálma Stefánssonar
leikur.
Kvenfélagið „Voröld“.
SPILAKLÚBBUR
LÉTTIS
Næsta spilakvöld okkar
verður í Alþýðuhúsinu
föstudaginn 8. febrúar
kl. 8.30 e. h.
Fjölmennið,
mætið stundvíslega.
Skemmtinefndin.
GÓÐ ÍBÚÐ ÓSKAST
í vor eða nú þegar.
Uppl. í síma 2844
og 2099.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Ung hjóii ósiká eftir íhúð
æm fyrst.
Uppl. í síma 2619.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Ung hjón óska eftir 2—4
herbergja íbúð til léigú
eða kaups. sem fyrst, óg
helzt á góðum stað í bæn-
um. — Góð úthorgun.
Ritstjórinn gefur u’þp-
lýsingar.
EINBÝLISHÚS
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 2636
milli kl. 7 og 9
næstu kvöld.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Tveggja herbergja íbúð
óskast, sem fyrst.
Uppl. í síma 1781.
RITVÉL TIL SÖLU
Vil sélja Olympia-ritvél,
sem nýja. Hagstætt verð;
Uppl. í sírna 1161.
TIL SÖLU:
Fimmtíu ær. Hey getur
fyígt.
Uppl. í síma 2477
eftir kl. 6 e. h.
TIL SÖLU:
G.óðtir gítarmagnari, með
vihrasjón.
Uppl. í síma 34, Dalvík,
frá kl. 1—6 e. h.
TIL SÖLU:
Tan Sad BARNAVAGN,
vel með farinn.
Uppl. í síma 2767.
TIL SÖLU:
Sem nýr BARNAVAGN.
Uppl. í síma 1781.
TIL SÖLU:
Chevrolet sendibíll,
árgerð 1955, í fyrsta
flokks lagi.
Gísli Kr. Lórenzson,
Lyngholti 11, sími 1642.
HUNANG
Enskt og hollenzkt
KJÖTBÚÐ K.E.A.
Anairas-safí
í dósum.
Hvað haldið það hanri
kosti?
Aðeins 8.00 kr. dósin.
Það er ódýrt, en gott.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
ROSE DALE
ANANAS
í 14 — /> — 1/1 dósum.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
Hýjar vörur
frá Tilrauriareykhúsi SÍS
REYKTUR LAX
béinlaus.
Fallég og ljiiffeng vara.
HEILREYKT SÍLD
(Buckling)
Nýtt, sem ekki hefur
komið á markað hér áður.
KJÖTBÚD K.E.A.
Nýjar amerískar
NIÐURSUÐU-
V Ö R U R :
LIBBY’S VAX BEANS
LIBBY’S
BL. GRÆNMETI
LIBBY’S
SPANISH RICE
LIBBY’S
SNITTU BAUNIR
LIBBY’S
PICKLES, hakkaður
LIBBY’S
PICKLES, blandaður
KJÖTBÚÐ K.E.A.