Dagur - 13.02.1963, Blaðsíða 4
4
5
Daguk
L
ÁBENDING
NÝLEGA SENDU KONUR á Akureyri
bæjarfógetanum opinbera áskorun um
meira eftirlit með félagsheimilum. Þær
gleymdu að biðja um sams konar eftjrlit
í bænum. Sveitamaður skrifaði um sama
leyti skelegga grein m a. um ófagran
þátt Akureyringa í samkomum sveita-
manna og kom víða við. Ástæðan fyrir
blaðaskrifum og almennum umræðum
um samkomur fólks hér um slóðir og fyr-
ir vítum sitt á hvað, á opnum vettvangi,
er siðleysi fólks á opinberum skemmti-
stöðum, einkum í sambandi við ofnotkun
áfengis. Drykkjuskapur og siðleysi hald-
ast jafnan í hendur, svo sem mjög marg-
ar almennar skemmtisamkomur bera
glöggt vitni hér um slóðir, bæði í sveit
og bæ.
Eii það vill svö til, í sambandi við fé-
lagsheimilin í nágrenni Akureyrar, að
ekki er hægt að ganga íram hjá þessum
tveim staðreyndum í umræðum: Sveiía-
menn byggðu hin glæsilegu félagslieim-
ili og starfrælcja þau. Bæjarbúar sækja
opinberar samkomur bar að miklum
meiri hluta. Þessar staðreyndir hljóta
fyrr eða síðar að leiða til samvinnu með-
al sveitafólks og bæjarmanna um úrbæt-
ur í áðumefndum vandamálum sam-
komuhaldsins og eiga að gera það.
Við spyrjum sjálf okkur og aðra, hver
sé veikasti hlekkurinn í spilltu samkomu
haldi. Við getum einfaldlega skellt skuld
inni á stjórnendur félagsheimilanna fyrir
lélegt aðhald. Við getum líka sakfellt
dómsvaldið fyrir að taka ekki í taumana,
svo sem því er skylt, ef Iög eru brotin.
Þá getum við einhliða skellt skuldinni á
þann undirheimalýð, sem selur eða gef-
ur ungmennum áfengi undir hús\(eggj-
um eða jafnvel innan þeirra, en þar
munu flest lögbrotin. í gremju sinni
skella margir skuldinni á unga fólkið
sjálft eða skólana og lieimilin. En ef
menn vilja athuga hvern þessara þátta
fyrir sig og síðan alla í einni heild, er
ljóst, að einhliða rökræður eru haldlaus-
ar og úlfúð milli sveita og bæja út af
þessum málum hin skaðlegasta.
Hér skal enginn áfellisdómur upp
kveðinn, en hins vegar bent á, í fram-
haldi af því, sem sagt er hér að framan,
að samvinnan er h'klegust til árangurs.
Hér á Akureyri er nýstofnað æskulýðs-
ráð, sem hefur ráðið sér framkvæmda-
stjóra. Stjómir félagsheimilanna og
æskulýðsráð gætu eflaust í sameiningu
fundið leiðir til varanlegra bóta í
skemmtanalífinu og þessum aðilum er
það öðrum skyldara. Er þeirri ábendingu
hér með komið á framfæri, að æskulýðs-
ráð, eða framkvæmdastjóri þess, leiti
samvinnu við forsvarsmenn félagsheim-
ilanna um þessi mál.
Líklegt er að bæjarfógeti og lögreglu-
menn vildu taka þátt í viðræðum þess-
um, ennfremur skólamenn.
Við athugun mun það koma í ljós, að
stór meirihluti æskufólks í bæ og sveit
óskar einlæglega eftir breytingu og á
fullan rétt á að krefjast hennar. Það er
alveg fráleitt, að virða þær óskir að
engu, lengur en orðið er.
Á meðan Akureyringar eiga ekki
skemmtistaði á borð við félagsheimilin,
er eðlilegt að þau verði mikið sótt enn
um skeið. Ekkert er athugavert við það
þegar nokkrar meinsemdir skemmtana-
lífsins hafa fengið rétta meðferð. 1 þessu
efni hafa bæjarbúar allt að vinna og ættu
því að hafa frumkvæðið. □
J ar ðræktarf ramkvæmdir í Eyjaf jarðarsýslu
og nokkur atriði frá aðalfundi Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar 4. og 5. febrúar sl
FRÁ BÆJARSTJÖRN
EINS OG sagt var í síðasta
blaði, hélt Búnaðarsamband
Eyjafjarðar aðalfund sinn 4. og
5. febrúar. Þar lagði stjórn sam-
bandsins fram skýrslu sína og
ráðunautamir sínar starfsskýrsl
ur,. og hafa blaðinu nú borist
þæj\
■ Ur stjórn sambandsins átti
Björn Jóhannsson á Laugalandi
að ganga og gaf hann ekki kost
á sér til endurkjörs: í hans stað
var Jón Hjálmarson í Villinga-
dal kosinn Aðrir í stjórn eru:
Ármann Dalmannsson, Akur-
eyri, form. og Eggert Davíðs-
son, Möðruvöllum.
Aðalfundurinn samþykkti fyr
ir sitt leyti að verða við ósk
Jarðræktarfélags Akureyrar,
um að taka að sér fyrirgreiðslu
bændaklúbbsfundanna, svo sem
getið var í síðast blaði.
ÚR SKÝRSLU STJÓRNAR.
Fjárhagur Búnaðarsambands-
ins er tiltölulega góður, þrátt
fyrir nokrar framkvæmdir. Það
hefur starfrækt búvélaverk-
stæði undarfarin ár, sem bænd-
um hefur verið hið þarfasta. En
nú hefur lóðarsamningi verið
sagt upp og verður verkstæðið
því að flytja. Eru líkur taldar á
því, að það fái hluta væntan-
legrar nýbygingar Þórshamars
hf. á Akureyri til nokkurra
ára.
Stjórnin hefur unnið að und-
irbúningi þess, að koma upp
jarðvegs- og fóðurrannsóknar-
stöð vegna óska búnaðarfélag-
anna í flestum hreppum hér-
aðsins. Unnið er að því að koma
upp rannsóknarstofunni í sam-
^ bandi við Sjöfn á Akureyri og
1 undir umsjón forstöðumanns
hennar. Sótt hefur verið um
framlag af gjafafé því, sem SÍS
hefur ákveðið að verja til jarð-
vegsrannsókna í landinu.
Búnaðarsambandið hefur
gengizt fyrir því, að haldinn
hefur verið árlegur bændadag-
ur síðustu árin í félagi við
Bændafélag Eyjafjarðar og
Ungmennasamband Eyjafjarð-
SKÝRSLA JARÐRÆKTAR-
RÁÐUNAUTS.
Ingi Garðar Sigurðson, jarð;
ræktar og sauðfjárræktarráðu-
nautur sambandsins lagði fram
starfsskýrslu sína. Fara hér á
eftir nokkur efnisleg atriði
hennar.
Mældar jarðabætur á árinu
voru: Nýræktir 250,7 ha, túna-
sléttur 9,8 ha, matjurtagarðar
7,6 ha, handgrafnir skurðir 250
m, hnausaræsi 272 m, grjót- og
viðarræsi 2603 m, girðingar
35875 m, vélgrafnir skurðir
399795 m eða 181716 m3. Byggð-
ar voru þurrheyshlöður, samt,
14983 m3 og súgþurrkunar-
kerfi sett í hlöður að rúmmáli
3020 m3. Haughús voru 1655 m3,
safnþrær 36 m3, haugstæði 151
m3 og garðávaxtageymslur 505
m3.
Fjöldi jarðabótamanna var
308, eða 7 færri en árið áður.
Framkvæmdir eru í sumum til-
fellum dálítið minni en árið áð-
ur, segir ráðunauturinn, svo
sem í nýræktun og vélgröfnum
skurðum, en hlöðubyggingar
meiri. Engar votheysgeymslur
voru byggðar á árinu 1962 og
er það raunar merkilegt rann-
sóknarefni. Eftirtaldir bændur
ræktuðu 3 ha eða meira: Skírn-
ir Jónsson Skarði í Grýtubakka-
hreppi, 4,4 ha. Flosi Kristins-
son Höfða, sömu sveit, 4,3 ha,
Gunnbjörn Jónsson Olversgerði
Saurbæjarhreppi, 3,56 ha, Gísli
Þorleifsson Hofsá Svarfaðardal,
3,51 ha, Benedikt Alexanders-
son Ytri-Bakka Arnarneshreppi
3,17 ha og Reimar Sigurpálsson
Steindyrum Svarfaðardal, 3,0
ha. Mestar nýræktir í einum
hreppi eru í Ongulsstaðahreppi,
44,0 ha, næstur er Saurbæjar-
hreppur með 33,56 ha og þriðji
Svarfaðardalshreppur með 31,31
ha. Mestar nýræktarfram-
kvæmdir eru í Árskógshreppi,
ef miðað er við tölu jarðabóta-
manna. Þar kemur 1,08 ha í
hlut hvers, en næstir eru, í
þesu efni, bændur í Glæsibæjar-
hreppi og Arnarneshreppi með
1,07 ha og 1,01 ha á jarðræktar-
mann. Mestur skurðgröftur er
í Grýtubakkahreppi, þá í Ong-
ulsstaðarhreppi og Akureyri er
nr. 3 í röðinni.
Geta má þess, að árið 1959
mældust nýræktir 437,29 ha (nú
250,7 ha). Þá voru vélgrafnir
skurðir 265,037 rúmmetrar (nú
181,716 rúmmetrar). Hér er
minnst á þessar undirstöðu-
greinar fyrir aukna framleiðslu
til að sýna hinn tölulega og
mikla samdrátt í framkvæmd-
um.
SAUÐFJÁRRÆKTAR-
FÉLÖGIN.
Félagatala í sauðfjárrækt-
ar félögunum er kominn niður
fyrir 70. Fjöldi kinda á skýrslu
breyttist þó mjög lítið og var
nú 1581. Gerður er samanburð-
ur á Vestfjarðafé og þingeysk-
um stofni. Niðurstöður virðast
svipaðar og fyrri ár. Til jafn-
aðar í félögunum gaf vestfirzki
stofninn 21,37 kg. kjöts eftir
ána en sá þingeyski 21,29 kg.
Ásgrímur Halldórsson á Hálsi
fékk mestan kjötþunga eftir á,
30,43 kg. Marínó Sigurðsson
Koti 26,84 kg., Sigfús Þorsteins-
son Rauðuvík 26,83 kg., Sigurð-
ur Jónsson Miðlandi 26,58 kg.,1
Sigurður Stefánsson Stærri Ár-j
skógi 26,30 kg og Gestur Sæm-j
undsson Efstalandi 25,46 kg.É
Allir þessir bændur hafa þing-j
eyskan stofn. Vestfirzkan hafa:l
Jón Sigfússon Hallandsnesij
28,30 kg. og Grímur Jóhannes-j
son Þórisstöðum, 26,58 kg.
EFNAGREININGAR JARÐ-
VEGS.
Atvinnudeild Háskóla íslandsj
gerði efnagreiningu á 550 sýn-j
ishornum, og urðu Hrafnagils-j
hreppur, Akureyri, Glæsibæjar-j
hreppur og Svarfaðardalur fyr-j
ir valinu að þesu sinni, auk 150 j
sýnishorna úr Ongulsstaða-j
hreppi notfærðu sér 22 bændurj
efnagreiningarnar viðvíkjandij
áburðarnotkun.
BÚVÉLAVERKSTÆÐI
BSE
Eitt merkasta viðfangsefnij
Búnaðarsambands Eyjafjarðar
hin síðari ár, er tvímælalaust
rekstur búvélaverkstæðisins og
leiðbeiningastarf vélaráðunauts
sambandsins. Stefán Þórðarson
vélaráðunautur hefur þríþætt
starf: í fyrsta lagi stjórnar hann
verkstæðinu, í öðru lagi hefur
hann umsjón með vélum rækt-
unarsambandanna, sem er dýr
vélakostur og mikilsvert að sé
í lagi, og í þriðja lagi hefur
ráðunauturinn leiðbeint á drátt-
arvélanámskeiðum í héraðinu,
nú síðast í Engihlíð á Árskógs-
strönd.
Fimm menn starfa að stað-
aldri á búvélaverkstæðinu, en
sennilegt telur ráðunauturinn,
að ekki muni veita af 10 starfs-
mönnum, þegar starfsskilyrði
batna, hvað snertir húsrúm, en
að því er vikið áður í grein
þessari.
Vélar ræktunarsambandanna
gengu í sumar án mikilla tafa.
Þrjár nýjar beltisvélar komu í
notkun á árinu. Væntanleg er
vél til Svalbarðsstrandar- og
Grýtubakkahrepps, B. T. D. 20.
Slíkar vélar eru af stærstu gerð,
sem notaðar eru við jarðvinnslu
hér á landi. □
í NÆST SÍÐASTA blaði íslend
ings segir í leiðara, að núver-
andi stjórn sé sú, sem þori að
bæta meinsemdirnar í þjóðfé-
langinu, þótt það kosti einhvern
sársauki í bili. . . . Hverjar voru
svo þessar meinsemdir? Jú, það
var verðbólgan, erlendu skuld-
irnar, vinnudeilurnar og skatta-
álögurnar. Og aftur skal spurt:
Hvernig hefur gengið að bæta
þessar meinsemdir? Undan því
víkur íslendingur sér að svara,
enda kostar það „einhvern sárs-
auka“ að minnast á misheppn-
aðar aðgerðir stjórnarinnar. En
minnt skal á, að verðlag inn-
fluttra vara hefur hækkað í
landinu um allt að helming.
Minna mátti nú gagn gera til
að halda niðri verðbólgunni. Er-
lend lán hafa verið tekin í stór-
um stíl og aldrei meiri en undir
j „viðreisnarstjórninni“. Á vinnu-
= markaðinum hefur verið ófrið-
samara en nokkru sinni áður í
j sögunni og sýnilegt hvert stefn-
I ir í þeim málum, því flest verka-
[ lýðsfélög hafa lausa samninga,
i þrátt fyrir 5% kauphækkunina
É í janúar sl. Enda er launagrund-
i völlurinn algerlega brostinn og
jj hreint öngþveiti ríkjandi í þeim
É málum. Og skattarnir hafa
i hækkað stórköstlega. Ofan á
É þetta eru svo sparifjáreigendur
E hlunnfarnir á svívirðilegan hátt.
i Svo kemur „stérki Jón“ í íslend
É ingi og segir sína menn „þora“
i bæði eitt og annað.
É EINTAL SÁLARINNAR.
i Ritstjóri Alþýðumannsins
i birti nýlega viðtal við sjálfan
| sig, sem margir hafa hlegið að.
É Þetta eintal sál-arinnar, þar sem
É hann skiptir sér í tvennt, bónda
NÝTT stórmál var til umræðu
á bæjarstjórnarfundi 6. þ. m.:
Varmaveita fyrir Akureyrar-
kaupstað, undirbúningur að
rannsókn þess máls verður
að sjálfsögðu fyxst og fremst
fólginn í því að borað vei-ði
eftir heitu vatni hér í nágrenn-
inu. Norðurlandsborinn frægi,
sem unnið hefur verið með í
Ólafsfirði og nú er tekinn til
starfa á Húsavík, hefur áætlun
hingað, en mun þó fyrr sendur
í Námaskarð, svo ólíklega kem-
ur hann hingað fvrr en næsta
vetur. Jarðboranir eru fyrir-
hugaðar á þrem stöðum hér,
Kristnesi, Laugalandi í Hörgár-
dal og í landi kaupstaðarins.
Samkvæmt áætlun og álitsgerð
s. f. Vermis (er út af fyrir sig
kostaði 100.000 kr.), verður bor
unarkostnaðurinn margar millj-
ónir (8 millj.-). Ekki lá fyrir
skipting þessa væntanlega
kostnaðar milli ríkisins og ann-
arra aðila, en fullyrða má, að
aðeins rannsóknirnar verða
bænum dýrar. Allir virtust á-
hugasamir fyrir þessu mikla
máli, er verður tekið fyrir inn-
an tíðar, eftir athuganir bæjar-
ráðs Virtist bæjarstjóri og bæj-
og blaðamann, sýnir einkar vel
þá sjaldgæfu blaðamennsku, að
gera öðrum upp orðin, eða þá,
ef raunverulegt samtal ritstj. og
bónda hefur átt sér stað, sem
er ólíklegt, að birta viðtal, sem
bóndinn neitar að leggja nafn
sitt við. Slík viðtöl eru aðeins
notuð í neyð.
FRAMBOÐ HJARTAR.
Alþýðumaðurinn hefur það
eftir Alþýðublaðinu og Alþýðu-
blaðið eftir Bergi Sigurbjörns-
syni, að Hjörtur á Tjörn væri
„eftir sem áður þjóðvarnar-
maður“, þótt hanh sé á fram-
boðslista Framsóknarm. í Norð-
Urlandskjörd. eystra. Þessum
blöðum og öðrum þeim, sem á
þessu hafa japlað og haft heim-
ildir sínar frá einhverjum öðr-
um en Hirti sjálfum, skal bent
á, að hinn umræddi frambjóð-
andi er í Framsóknarfélagi
Svarfdæla. Er æskilegt að sú
staðreynd sé höfð í huga, fyrir
þá, sem þetta framboð vilja
ræða.
í MIKILLI HÆTTU.
í leiðara síðasta Alþýðumanns
eru m. a. þessar hugleiðingar:
„Alþýðuflokkurinn er tvímæla-
laust í mestri hættu með full-
trúa sinn hér í kjördæminu, í
uppbótarsæti.“ í sama leiðara
er ritstjórinn að reyna að verj-
ast þeirri hugsun, að Framsókn-
armenn fái hér 4 fulltrúa og
læðist þó að honum sterkur
grunur um það að svo geti farið,
því hann reiknar með fylgis-
aukningu flokksins. Huggun
hans er sú ein, að Framsókn fái
a. m. k. engan uppbótarþing-
mann! □
árstjórn vera vel á verði í mál-
inu, en ætla sér nokkurn tíma
til athugana, áður en samþykkt
verður endanlega hvemig á
þessu verður tekið. Einkum
mun eiga að athuga rækilega,
hvaða grundvöllur er fyrir því
á Akureyri og í nágrenni henn-
ar, að hitaveitufyrirtæki sem
þetta, geti borið sig fjárhags-
lega
Fyrir fundinum lá áætlun
Vatnsveitu Akureyrar, sem er
sjálfstætt bæjarfyrirtæki. Felur
áætlunin fyrir árið 1963 í sér
verulega hækkun vantsskatts-
ins, sem ýmsum mun þó finn-
ast að sé nokkur fyrir, a. m. k.
þeim, sem búa í nýjum og nýleg
um húsum. Upplýstist, að hann
væri um 400 kr. á meðalíbúð og
mun það ekki oftalið. Hækkun-
artillagan, sem nemur hvorki
meira né minna en 25% frá
þeim vatnsskatti, sem nú er,
byggist á því tvennu, að fram-
undan eru óhjákvæmilegar
endurnýjunarframkvæmdir á
gönilu vatnsæðunum og að
vatnsþörf bæjarins er í svo ör-
um vexti, að leita verður eftir
meira vatni. Til sannindamerkis
um ástæður vatnsveitunnar má
telja það, að hún greiðir í vexti
af föstum lánum kr. 340.000.00
á ári. Virðist raunar ekki á þá
skuldasúpu bætandi. Hins veg-
ar er hér um að ræða eina
brýnustu þörf fyrir aðbúnað og
atvinnu bæjarbúa, svo að erfitt
mun að standa á móti rökstudd
um hækkunarþörfum rekstrar-
fjár. Er ástæðulaust annað en
leggja trúnað á þær upplýsing-
ar, sem fyrir liggja um þetta
efni, og ekki er vitað til þess,
að illa sé á málum þessa fyrir-
tækis haldið.
Málinu var vísa ðil II. um-
ræðu.
Töluverðar umræður urðu
um sérstakt atriði í skipulags-
málum bæjarins, lóðaveitingar
á Barðstúni, vegna framkominn
ar skipulagstillögu frá bæjar-
verkfræðingi og byggingafull-
trúa. Felur tillagan í sér breyt-
ingu á skipulagi, sem virðist
miðað við lóðarveitingar handa
tilteknum bæjarstarfsmönnum.
er um þetta sterkur ágreining-
ur. Hafði bæjarráð verið klofið
í málinu og svo var einnig þessi
fundur. Kom fram rökstuddur
ótti við, að með þessari undan-
þágu frá heildarstefnu skipu-
lagsmálanna og með hliðsjón af
væntanlegri hugmyndasam-
keppni um skipulag miðbæjar-
; ins, skapaðist hættulegt for-
; dæmi, sem viðkomandi bæjar-
: starfsmönnum yrði sjálfum
: verst ehir á. En svo kom einnig
: fram sú skoðún, að ekki væri
; óráðlegt að hygla þannig starfs-
; mönnum, sem nauðsyn vasri að
; ú-yggja bæjarfélaginu sem
; lengst.
Málinu vísað til skipulags-
j nefndar.
| Þá var enn á ný karpað um
I félagsheimilislóð verklýðssam-
j takanna. Gætir þar greinilega
j tortryggni forustumanna bygg-
É ingarmálsins í garð þeirra, sem
É (Framhald á blaðsíðu 2).
Skurðgröfurnar þurrka landið.
111111111 ■ 11 ■ i ■ ■ ■ ■ 111111111 ■ i ii ■ ■ 111 ■ ■ 1111
LITIÐ I
BÆJARBLOÐIN
JÓHÁNN PÉTURSSON
FIMMTUGUR
JÓHANN Pétursson, stundum
nefndur Risinn úr Svarfaðardal,
varð fimmtugur á laugardaginn
var 9. febrúar. Hann er fæddur
á Akureyri, en fluttist kornung-
ur með foreldrum sínum út í
Svarfaðardal og ólst þar upp í
Brekkukoti, ásamt systkinum
sínum. Jóhann varð með
stærstu mönnum heims, 2 m
25 cm, og hefur hann goldið
þess og notið.
Frá tvítugsaldri hefur hann
ferðast víða um lönd með sýn-
ingarflokkum og sirkusum og
hvervetna vakið hina mestu
undrun. En fyrstu ferð sína úr
landi, fór hann ásamt Stein-
grími Matthíassyni lækni, sem
opnaði honum lífvænlega æf-
intýraleið, er hann síðar hefur
gengið meðal framandi þjóða.
Fyrir stríð dvaldi hann í
Þýzkalandi, en var í Danmörku
á myrkum hernámsárum. Síð-
ustu 15 árin eða svo hefur svo
Jóhann dvalið í Bandaríkjun-
um, lengst af í Florida. Heim
hefur hann komið nokkrum
sinnum, en ekki fundið verkefni
við sitt hæfi hér á landi. Margt
hefur á daga hans drifið, bæði
æfintýralegir atburðir og aðrir
hrollvekjandi, sem hér verður
þó ekki raktar. En hvar sem veg
ir Jóhanns liggja um framandi
lönd, fer þar sannur íslendingur
og hinn ágætasti drengur. Dag-
ur sendir honum hinar hugheil-
ustu árnaðaróskir. □
Fluttur á sjúkrasleða
Á LAUGARDAGINN varð það
slys hjá skátum í Fálkafelli, að
einn þeirra fór úr axlarlið. Mað
urinn var þegar í stað lagður á
sjúkrasleða, er skátar áttu þar
upp frá og ekið til bæjarins, þar
sem sjúkrabíll beið. Pilturinn
fékk nauðsynlega meðferð í
sjúkrahúsinu, en var síðan
fluttur heim til sin. □
F oring j anámskeið
UM HELGINA var haldið for-
ingjanámskeið skáta, fyrir 17—
19 ára, í Skíðahótelinu í Hlíðar-
fjalli. Leiðbeiningar veitti Ing-
ólfur Ármannsson, erindreki
Bandalags íslenzkra skáta. □
Þeir komasf ekki af baki
I AFSTÓÐU sinni til Efnahags-
bandalags Evrópu, minna for-
ingjar ríkisstjórnarinnar á strák
inn, sem þjóðsagan segir að hafi
í fljótfærni og óleyfi farið á bak
reiðskjóta Eiríks á Vogsósum.
Strákurinn festist við bak hests-
ing og mátti dúsa þar, þangað
til Eiríkur sjálfur tók hann af
baki.
Foringjar þessir fóru snarlega
á bak og vildu þeysa.
í janúarmánuði 1961 lýsti við-
skiptamálaráðherra því yfir, að
álit sinna manna um, að ísland
gæti kimizt af með að gera tolla-
og viðskiptasamning við Efna-
hagsbandalagið, stafaði af van-
þekkingu.
í febrúarmánuði 1961 hélt
miðstjórn Alþýðuflokksins aðal-
fund sinn í Reykjavík og álykt-
aði, að ráðlegast væri fyrir Is-
land, að ganga í EBE með auka-
aðild.
f sepembcrmánuði 1961 hélt
Samband ungra Sjálfstæðis-
manna fund hér á Akureyri og
lýsti yfir því, að fsland ætti að
sækja um aðild.
f október 1961 hélt Sjálfstæð-
isflokkurinn landsfund í Reykja
vík. Ekki setti sá fundur ofaní
við ungu mennina frá Akureyr-
arfundinum. Öðru nær. Fundur-
inn ályktaði, að tryggja yrði að-
ild fslands að EBE.
Síðla sumars 1961, þegar mik-
ið fór að bera á ákafa ríkis-
stjórnarinnar í máli þessu, ósk-
aði miðstjóm Framsóknarflokks
ins að fá að láta menn frá sér
ræða við ríkisstjórnina um mál-
ið og sjá gögn þau, er ríkis-
stjómin hafði á að byggja um
EBE. Var því vel tekið. Beittu
nú Framsóknarmenn áhrifum
sínum, eftir því sem þeir gátu,
til þess að ekki væri rasað um
ráð fram eða farin gönuskeið í
málinu. Kröfðust þess, að mál-
ið væri Jagt fyrir Alþingi áður
en nokkurt spor væri stigið er
bundið gæti.
Á miðstjórnarfundi Framsókn
arflokksins í febrúar 1962 var
gerð álykíun, þar sem lýst var
yfir, að miðstjórnin teldi ekki
koma til greina að ísland gengi
í EBE, vegna þess, að íslending-
ar geti ekki gengið undir sam-
stjórn með öðrum þjóðum eða
veitt útlendingum jafnan rétt
sér, til atvinnu í landinu og af-
nota af því. Hinsvegar var
áherzla á það lögð, að leysa
vandann með sérsamningum
um tolla- og viðskiptamál.
Þessi ályktun vakti mikla at-
hygli. Það fór að byrja svip-
breyting á andlitum forystu-
manna stjómmálaflokkanna.
Kosningar til Alþingis fóru að
nálgast.
f nóvember 1962 lagði ríkis-
stjórnin skýrslu um Efnaliags-
bandalagið fyrir Alþingi. f
þeirri skýrslu taldi stjórnin að-
eins um tvær leiðir að velja fyr-
ir ísland: Aukaaðild eða tolla-
og viðskiptasamning.
Framsóknarmenn töldu tví-
mælalaust, að íslendingar gætu
ekki gengið í EBE með aukaað-
ild. ToIIa- og viðskiptasamning-
ur væri sú leiðin, sem þeir yrðu
að fara. Þá urðu stjómarliðar
æfir, og mátti af því ráða hvert
þeir stefna. Þeir vilja auðheyri-
lega innlima ísland í EBE. Hitt
leyndi sér ekki, að þeir vildu
ekki segja þetta berum orðum
strax af því að kosningar em
fyrir dyrum og þeir vita, að al-
menningur er á móti því, að
okkar litla þjóð týni sjálfri sér
með því að ganga í stórvelda-
samsteypuna EBE.
Þeir ætluðu sér að fara af
baki fram yfir kosningamar —
á klár, sem þeir liöfðu ætlað að
þeysa á í óleyfi.
Svo gerðist það, að de GauIIe
forseti Frakklands beitir neit-
unarvaldi sínu til þess að
hindra, að Bretar fái inngöngu
í EBE.
Þá halda forsprakkar þessir,
að þeir hafi fengið tækifæri til
að komast af baki. Þeir segja:
„Málið er úr sögunni. Fram-
sókn hefur misst glæpinn og nú
getur hún ekki haft það fyrir
kosningamál, að deila á okkur
fyrir að við ætlum að innlima
ísland með aukaaðild í EBE.“
En þetta bjargar þeim ekki.
Málið er ekki úr sögunni. Það
hefur, eins og Bretar segja, —
aðeins orðið töf. Sama segja for-
sætisráðherra Frakklands og
framkvæmdastjóri EBE, og jafn
vel de Gaulle. Allir, nema ís-
lenzka ríkisstjórnin.
íslendingar mega ekki undir
■ höfuð leggia, að ræða til hlýtar
afstöðu sína til EBE. Undan
því komast stjómarflokkarnir
ekki fyrir kosningar. Þetta er
eitt allra mikilvægasta kosninga
málið.
Forsprakkar stjórnarflokk-
anna sitja fastir á baki, fram að
kosningum, hvernig sem þeir
sprikla. Allir vita hvert þeir
ætluðu að hleypa. En í kosning-
unum tekuð þjóðin þá af
baki. □
Nv tarbeqatluqvei til lanasins
Farþegaflug til Snæfellsness og Vestfjarða
BJÖRN PÁLSSÖN flugmaður
er nú að gera ráðstafanir til að
reyna að leysa samgöngumál
þeirra staða á landinu, sem ekki
hafa fengið stóra flugvelli.
Hann var nýlega úti í Bret-
landi og festi þar kaup á 15 far-
þega vél af gerðinni Prestvic
Pioneer. Flugvél þessi hefur sér
staklega stutta lendingar og
flugtakseiginleika, þannig að
hún getur lent á öllum sjúkra-
flugvöllum. á landinu. Hún er
sérstaklega hentug til farþega-
flugs til Snæfellsness og Vest-
fjarða.
Prestvick Pioneer er að ýmsu
leyti lík hinni svokölluðu Ceri-
bou-flugvél, sem .mikið var tal-
að urn að kaupa fyrir nokkrum
árum, en miklu ódýrari. □