Dagur - 20.03.1963, Side 1
Mái.gagn Framsóknarmanna
Rixstjóri: Erlinggr Oavíösson
SkRIFSTOFA í H AKNARSTR.cn 90
Sími 1166. Sf.tningu og prenton
ANNAST PrKNTVERK OdDS
liJÖRNSSONAR H.F., AKUREYRI
s____________________________
---------------------------——------V
Al Gl.ÝSINGASTJÓRl JÓN SAM- •
ÚF.LSSON . ÁrGÁNGURLNN KOSTAR
KR. 120.00. Gjalddagi er 1. JÚI.Í
Bladid kemur út á MinviKODÖt;- _
UM OG Á LAUGARDÖGUM,
ÞEGAR ÁSTEÐA ÞYKIR TIL
■_______________________ ...... ,,..<
FLUGVÉL TÝND
ÞAU SORGLEGU TÍÐINDI urðu sl. mánudagsnótt, að ný,
tVeggja hreyfla, fjögurra farþega flugvél Flugsýnar týndist.
Vélin var á heimleið. Hún fór frá Gander í Nýfundnalandi
um klukkan hálf þrjú í fyrrinótt og ætlaði til Grænlánds,
en kom ekki fram. Leit hefur ekki borið árangur. Flugstjóri
var Stefán Magnússon, 36 ára, og Þórður Ulfarsson flugmað-
ur, 24 ára. Talið er, að ísing hafi valdið slysinu. □
Sorpeyðingarsföð á Akureyri?
Bæjarstjórn athugar síðasta tilboðið
HINGAÐ koma í dag sendi-
menn frá þýsku fyrirtæki, sem
m. a. framleiðir sorpeyðingar-
stöðvar. Hefur tilboð þess fyrir-
tækis verið í athugun hjá yfir-
völdum bæjarins.
Bæjarstjórn hefur ekki sam-
þykkt að koma slíkri stöð á lagg
irnar, en bæjarráð samþykkti
á sínum tíma að málið væri
rækilega athugað og leitað eftir
tilboðum.
Sænskt tilboð hefur áður bor-
izt, en til þessa hefur enginn
ákvörðun verið tekin og er mál-
ið á könnunarstigi.
Ekki verður hér framleiddur
„skarni“ úr sorpinu, svo sem
Reykvíkingar gera, sjálfum sér
(Framh. á bls. 2)
Wmm
(Ljósm. E. D.)
Færri komast á sjóinn en vilja, sýnist manni á þessari mynd,
-■
Mikil starfsemi Ferðafélags Ak.
AÐALFUNDUR Ferðafél. Ak-
Jón Þórðarson við handfæravinduna.
; ureyrar fyrir árið 1962 fór fram
! 3. marz. í skýrslum stjórnar og
!! ferðanefndar kom meðal annars
!| þetta fram:
I Skemmti- og fræðslufundir
I; voru tveir á s.l. ári. Á hinum
;; fyrri, er fram fór 11. febr. og
;; helgaður var Dyngjufjöllum og
! Öskju, flutti Ólafur Jónsson,
! ráðunautur, erindi um eldstöðv-
arnar þar, og sýndar voru
I; skuggamyndir er Tryggvi Helga
i; son flugmaður og fleiri höfðu
;; tekið, er gosið varð þar árið
;j 1961. Eðvarð Sigurgeirsson ljós-
;! myndari sýndi kvikmynd frá
! sama gosi og Guðmundur Frí-
!; mann skáld las upp. Síðari fund
!; urinn fór fram 9. des, og voru
;; þá sýndar skuggamyndir frá
;; ferðum félagsins, en Ólafur
;; Jónsson ráðunautur skýrði þær.
]; Eins og að undanförnu gaf fé-
;! lagið út ritið Ferðir, er að þessu
! sinni fjallaði aðallega um
!; Dyngjufjöll og Öskju. Var það
j; kærkominn leiðarvísir mörgum
;! ferðamönnum, er lögðu leið
Ný islenzk handfæravinda
NÝLEGA var Sveinbjörn Jóns-
son hér á ferðinni og notaði Dag
ur tækifærið til að spyrja hann
frétta um tæknilegar nýjungar.
Hann kvað þá helzta, að frændi
sinn hefði fundið upp vélknúna
handfæravindu, sem ekki aðeins
létti mestu erfiði af sjómönnum,
sem handfæraveiðar stunda,
heldur þyrfti ekki nema einn
mann við tvær vindur.
Það er Jón Þórðarson, tækni-
legur framleiðslustjóri á Reykja
lundi, sem síðastliðin tvö ár hef
ur náð þessum árangri í hjá-
verkum sínum, sagði Svein-
björn.
Þekktur reykvískur sjómað-
ur, Haraldur Kristjánsson, hef-
ur reynt nýju færavinduna á
skipi sínu, Kristínu, og er hann
sérlega ánægður með árangur-
inn og segir auðvelt að nota
tvær vindur í einu.
Jón hefur sótt um einkaleyfi
á vindunni og Fiskimálasjóður
íslands hefur veitt honum mynd
arlega viðurkenningu. Jón und-
irbýr nú framleiðslu á 50—100
vindum, sem verða tilbúnar fyr-
ir haustvertíðina. Ráðgert er, að
Haraldur skipstjóri og Marinó
Pétursson kaupmaður, sem tek-
ið hefur að sér sölu á vindunum
hér og erlendis, komi hingað til
Akureyrar og kynni þetta nýja
tæki hér á Pollinum fyrir norð-
lenzkum sjómönnum.
Vinda Jóns gengur fyrir sjó,
sem dælt er með vissum þrýst-
ingi að vinduhjólinu. Með lítilli
sveif er hægt að láta línukeflið
renna færinu út, eða draga það
upp, og gefa eftir þegar alda
hnykkir bátnum til eða gefa
þarf eftir þegar stórfiskur er á.
Rörið, sem vindan sést standa
á, á myndinni, er rammlega fest
við borðstokk bátsins. Vindan
vegur ca 16 kg. Sennilega kost-
ar hún 10—15 þús. krónur. □
sína um þessar slóðir á síðast-
liðnu sumri. Hundruð manna
hafa nú gist í Herðubreiðarlind-
um og notið skjóls í Þorsteins-
skála, sem F.F.A. reisti þar.
Ferðafélagið gekkst fyrir sex
ferðum í Öskju auk annarra
ferða, er farnar voru. Lengsta
ferðin var farin um Suðurland
og var þá komið í Þórsmörk,
Landmannalaugar og víðar. Sú
nýbreytni var tekin upp í ferð-
um félagsins, að greiðsla fyrir
morgundrykk og súpu var inni-
falin í fargjaldinu í lengri ferð-
unum.
Á undanförnum árum hefur
félagið gert tilraunir með áburð
ardreifingu við skálann í Herðu
breiðarlindum og gefur það
góða raun. Umgengni í skálan-
um og við hann var nokkuð
misjöfn, en í heild var hún frem
ur góð.
Eins og kunnugt er, hefur
F.F.A. lengi beitt sér fyrir veg-
arlagningu upp úr Eyjafirði
suður á fjöll, og fyrir atbeina
þess var gerður bílfær vegur
upp Hafrárdal og suður um
Vatnahajlla. Síðar var horfið að
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Skólaæskan leilar til fjatla
Skíðahótelið í Hliðarf jalli er miðstöð hennar
UM ÞESSAR mundir eru dag>
lega stórir hópar skólafólks frá
Akureyri uppi í Hlíðarfjalli, og
sækja þangað væntanlega bæði
líkamshreysti og andlegan þrótt.
Nemendurnir eru þarna í fylgd
með kennurum sínum. Göngu-
ferðir, skíðaíþróttir og hvers
konar leikir er stundað að deg-
inum, en kvöldvökur hafðar í
næturstað. Skíðahótelið er dval-
arstaður fólksins, á meðan „úti-
legan“ stendur yfir. En þar er
aðstaða í flestu til fyrii-myndar.
Gagnfræðaskólinn sendi fyrst
sína nemendur til fjalla, næst
kemur Menntaskólinn og að síð-
ustu barnaskólarnir. Veður hafa
verið hin hagstæðustu og óhöpp
hafa ekki orðið. Svefnloft góð
eru í Skíðahótelinu — en örygg-
isútbúnaði er ennþá áfátt, hvað
þau snertir. Munu ekki hafa ver
ið sett upp „rör“ eða stigar, við
neyðardyr, og er það mikil van-
ræksla með tilliti til eldhættu.
Sími er ennþá enginn í Skíða
hótelinu, og er það mikil vönt-
un ef skjótt þarf til að taka, svo
sem verða vill, ef ná þarf til
læknis eða annarrar aðstoðar.
En sími er næst á Glerá, og
mun um 20—30 mínútna gangur
þangað frá hótelinu.
(Framhald á blaðsíðu 2).
| TÍZKUSÝNING
SUNNUDAGINN 24. þ. m. efn-
ir Knattspyrnufélag Akureyrar
\ til tízkusýningar að Hótel K. E.
í A. Sýningarnar verða tvær, sú
fyrri kl. 3 e. h.
\ Spilað Bingó í hléinu. Seinni
sýningin verður kl. 9 um kvöld-
í ið. Þessi fyrirtæki taka þátt í
> sýningunni: Herradeild K. E. A.
Herradeild J. M. J., Saumastofa
j Gefjunar, Verzlunin Heba,
\ Verzlun B. Laxdal, Verzlunin
j Markaðurinn, Verzlunin Drífa.
I' Þá verða sýndir kjólar frá fyrir-
fækjum í Reykjavík.
Forsala aðgöngumiða hefst að
Hótel K. E. A. á laugardaginn
\ kl. 1 e. h. □