Dagur


Dagur - 27.03.1963, Qupperneq 1

Dagur - 27.03.1963, Qupperneq 1
--------------------—““ll Málcacn Framsóknarmanna Rjp'STJÓRl: Eruncur Davíðsso.n Skrifstoi a í Hafnarstr.t.ti 90 SÍMI 1160. Sf.tningu og prentun ANNAST PrENTVERK OdDS Björnssonar h.f., Akureyri V - Dagur XLVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 27. marz 1963. — 18. tölublað < , --------------- Augi.ýsingastjóri Jón Sam- ÚELSSON . Árg?ANCURINN KOSTAR kr. 120.00. Gjalddáói ER 1. JÚLÍ BLADID KEMOR C'T Á MÍDVl KUDÖG- UM OC Á I.ÁCGARDÖGUM, ÞEGAR ÁSTÆDA ÞVKIR TIL Mánafoss í ævinfýri á Húsavík Norðurlandsborinn farinn upp í Mývatnssveit Húsavík 25. marz. Þegar Mána- foss var að fara frá bryggju hér á Húsavík sl. laugardag, rak hann undan suðlægri golu norð ur eftir höfninni og inn á lægi smábátanna. Skipið var búið að sleppa bryggjunni og hafði því engan stuðning af henni. Anker ið var úti og gat skipið því von bráðar stöðvað sig, en var þá komið ískyggilega nærri landi. Því tókst að mjakast vestur að hafnargarðinum, en þar voru menn fyrir, sem gátu fest það við hafnargarðinn. Skömmu síð ar komst Mánafoss klakklaust út úr höfninni. Á ferðalagi sínu um höfnina hafði skipið með ankeri sínu dregið til legufæri báta og opna vélbátinn Báru ÞH 18 dró skip- ið með sér. En engar skemmdir urðu á Báru eða öðrum bátum, enda flestir bátarnir við bryggju þegar þetta bar við, annars hefði illa farið. í vetur hafa miklar útvarps- truflanir verið á Húsavík og slæm hlustunarskilyrði. Einhver erlend stöð eða stöðvar yfir- gnæfa oft hið innlenda útvarp, einkum á aðaldagskrártímanum, kl. 20—22. Bæjarstjórn Húsavík ur hefur sent formanni útvarps- ráðs tilmæli um úrbætur. Von- andi koma þau í veg fyrir að hlustendur efli með sér samtök og grípi til gagnráðstafana, svo sem áður hefur komið fyrir. Starfsmenn Norðurlandsbors- ins eru nú farnir og borinn líka, upp í Mývatnssveit. Áður en starfsmenn fóru mpeldu þeir hit ann í borholunni á Húsavík og reyndist hann 115 stig. Nú er búið að panta nauðsynleg tæki frá Svíþjóð, til að unnt sé að ; ■ ' -£ ■ ' ”* " *' ’ -rw-jjl Snjólaust í byggð. — Skíðasnjór í fjöllum (Ljósmynd: E. D.) ÞORA EKKI AÐ TAKA AFSTÖÐU? bora dýpra. Eiga þau tæki að Landssamtök liinna ýmsu greina fiskiðnaðarins gera kleift að bora niður í 2000 J ° mæltu eindregið með samþykkt tillögunnar metra dýpi. Og það verður gert þegar pöntunin kemur, væntan lega í júní eða júlí. Bruni í Hvammi í Þistiifirði Gunnarsstöðum í Þistilfirði 25. marz. Á laugardaginn kviknaði í vélaverkstæði í Hvammi og urðu þar miklar skemmdir. Ung ur maður, Arnar Aðalbjörnsson, var nýbúinn að koma sér fyrir með verkstæði þetta og byrjað- ur að vinna við fyrstu dráttar- vélarnar, og var að logsjóða, þegar eldurinn varð laus. Önn- ur dráttarvélin var gangfær og var henni fyrst bjargað, þá bar þar að annan bónda í Hvammi, en þar er þríbýli, og litlu síðar menn af næstu bæjum. Hinni vélinni varð einnig bjargað, og eldurinn var slökktur, áður en hann næði að breiðast út. En þak verkstæðisins ónýttist að mestu og Arnar missti mikið af lágt brunatryggðum eða ó- tryggðum verkfærum. Er tjónið því tilfinnanlegt fyrir hann. Afi Arnars var Arngrímur Jónsson, dáinn fyrir nokkrum árum, dverghagur maður bæði á tré og járn. Hann bjó í Hvammi og byggði verkstæði það, er nú brann. En þar hafði Arnarr nú hafið starf og gert sér íbúð í hluta verkstæðis- hússins. íbúðina tókst að verja og munu þar litlar skemmdir, af vatni og reyk. □ ÞVERMÓÐSKA ríkisstjórnar- innar og ósjálfstæði margra þeirra þingmanna, sem styðja haría, kemur víða fram um þess- ar mundir. Eitt nýjasta dæmið er af- greiðsla allsherjarnefndar sam- einaðs þings á tillögum fiskiðn- skóla, sem þeir Ingvar Gíslason, ÚR AFREKASKRÁ „VIÐREISNARINNAR“ VERÐRÝRNUN KRÓNUNNAR. Gengi krónunnar hefur verið fellt um nær helming, þótt tekið sé tillit til þeirra yfirfærslugjalda sem áður voru. Með þessu hafa sparifjár- eigendur óbeint verið sviptir miklum eignum. Enn er þó ógnað með meiri gengisfellingu. MARGFÖLDUN NEYZLUSKATTA. Skattar, sem leggjast á nauðþurftir manna, eins og innflutningstollar og sölu- skattar, hafa verið margfaldaðir, en óbeinir skattar á lág- tekjufólki þó ekki lækkað skv. vísitöluútreikningi Hag- stofunnar. RANGLÁTARI EIGNA- OG TEKJUSKIPTING. Hinar miklu gengisfellingar, auknu skattaálögur og aðrar hlið- stæðar ráðstafanir liafa stórbreytt allri eigna- og tekju- skiptingu í landinu — gert þá ríku ríkari og fátæku fátæk- ari. Alveg sérstaklega bitnar þetta á ungu kynslóðinni. SAMDRÁTTUR FRAMKVÆMDA. Margar nauðsynlegustu framkvæmdir hafa dregizt saman seinustu árin, eins og t. d. ræktunarframkvæmdir og íbúðabyggingar. Vegna hins síðarnefnda fer húsnæðisskortur nú mjög vaxandi og í kjölfar hans fer óeðlileg verðhækkun á húsaleigu og hús- næði. Bifreiðarstjórinn grunaður um ölvun við akstur Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ valt fólksbifreið á hliðina við Hafnar stræti 41. í henni voru 4 menn og sakaði engan. Lögreglan tók ökumanninn til athugunar, vegna meintrar ölvunar. Málið er ekki að fullu rannsakað. Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur eitt kvöld ið. En lögreglan hefur nú fullan hug á að koma í veg fyrir glannafenginn akstur í bænum, hefur komið sér upp athugun- arkerfi í þessu sambandi og lát- ið marga ökumenn sæta ábyrgð fyrir háskaleg umferðarbrot. I fyrrakvöld laust fyrir mið- nætti varð maður fyrir bifreið á Glerárgötu, við veginn upp að Þórshamri, og féll hann í göt- una og reyndist fótbrotinn. Hann var þegar fluttur í sjúkra hús. Aðfararnótt sunnudags voru rúður brotnar með grjótkasti í þrem húsum í miðbænum. Biður lögreglan þá, er gefið gætu upplýsingar um spellvirkj ana, að gera henni aðvart. □ Jón Skaftason, Geir Gunnars- son og Gísli Guðmundsson fluttu á öndverðu þingi í vetur. Efni þessarar tillögu er að undirbúa setningu löggjafar um „fiskiðnskóla“ er ætlað sé það hlutverk að búa menn undir fiskmatsstörf, verkstjórn, kennslu og leiðbeiningarstarf- semi í fiskiðnaði.“ Hér virtist um alveg ópóli- tískt efni að ræða og í upphafi var líka leitað eftir því við menn úr stjórnarflokkunum, að þeir yrðu meðflutningsmenn að tillögunni. En þeir, sem talað var við, treystu sér ekki til þess. Var þá ekki meira að þeim lagt. Málið lá lengi í nefnd. En nú nýlega hefur blaðinu borizt álit minnihlutas. Meirihlutaálit- ið, þ. e. stjórnarmanna í nefnd- inni, er ókomið. í minnihluta- álitinu segir, að meirihlutinn hafi reynzt ófáanlegur til að mæla með tillögunni, jafnvel þótt boðið hefði verið upp á breytingu til samkomulags. Hins vegar hafi hann ekki verið bú- inn að gera það upp við sig, hvort hann vildi vísa henni frá með rökstuddri dagskrá! í nefndaráliti minnihlutans kemur fram, að leitað hefur ver ið álits margra sérfróðra aðila um þessi mál. Álitsgerðir hafa borizt nefndinni frá Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna, Sam- bandi íslenzkra samvinnufélaga, Sölusambandi ísl. fiskframleið- enda, Skreiðarsamlaginu og Fiskifélagi íslands. Allir þessir sérfróðu aðilar mæltu með sam þykkt tillögunnar. Allir hafa þeir með höndum fiskverkun af enhverju tagi eða eftirlit með fiskverkun. Hér er um að ræða landssamtök hinna ýmsu greina fiskiðnaðarins og eftirlitsstofn- anir hins opinbera á þessu sviði. Þetta eru þeir aðilar í landinu, sem bezt vita, hvar skórinn kreppir að í þessum efnum og hve mikið er í húfi. íslendingar eru ein mesta, ef ekki mesta fiskveiðiþjóð heims- ins, miðað við fólksfjölda. Vegna nálægðar fiskimiðanna berst hvergi betri sjávarafli á land. Við fslendingar ættum að geta framleitt eins góðar sjávarafurð- ir til utflutnings og nokkur þjóð önnur, ef ekki betri. En aðrar þjóðir hafa yfir að ráða miklu fjármagni og mikilli tæknikunn- áttu til að fullkomna fiskiðnað sinn. Samkeppnin er hörð. Ár- angurinn af starfi þeirra, sem að því vinna að breyta fiskinum eins og hann kemur upp úr sjón um í markaðsvörU, þyrfti að vera meiri en hann er. Gjaldeyr- isverðmæti sjávaraflans þarf að auka. Til þess þarf atvinnutæki. En til þess þarf líka þekkingu, mikla og vaxandi þekkingu, stjórnsemi og leikni í vinnu- brögðum. Sé þekkingu og vinnu brögðum á þessu sviði ábóta- (Framhald á blaðsíðu 5.) f DAG og framvegis verður mjólk á Akureyri afgreidd í nýjum flöskum úr lituðu gleri. Þykir mjólk úr þessum flösk- um betri, því litaða glerið hindrar ljósgeisla, sem valda stundum þráabragði í mjólk- inni. Áfram verður mjólk einnig seld í lausu máli, og skipt verð ur um flöskurnar til 5. apríl. Verð á þeim er óbreytt. Mjólkursamlagið mun í dag dreifa leiðbeiningum um bæ- inn um þetta efni. □ l^»#########################»#d

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.