Dagur - 30.05.1963, Síða 1
Málgagn Framsóknarmanna
Ríi stjóki: Erlincur Davíosson '
Skrifstoi a í Hafnarstræti 90
Sími 1166. Sktmncu og trkntun
ANNAST PRENTVERK OdDS
Björnssonar h.f., Akureyri
___________________________
Dagur
XLVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 30. maí 1963. — 35. tölublað
............................... »..
Auci.ýsingajtjóri Jón Sam-
ÚF.LSSON . ÁrGANGURINN KOSTAR
kr. 120.00. Gjalddáci F.R 1. JÚLÍ
BlAOIÐ KEMÍJR ÚT Á MIÐVIKUDÖC-
U.M OG Á LÁUGARDÖCUM,
ÞEGAR ÁST.EÐA ÞYKIR TIL
- ■■ - ■ '1
Sjómannadagurinn á Ak.
NorSI
úsmóö
ir
SJÓMANNADAGURINN verð-
ur að þessu sinni n. k. mánudag
(ánnan í hvítasunnu). Þess
vegna mun sú breyting verða á
tilhögun, að kappróðrakeppni,
sém að venju hefur farið fram
kvöldið áður, fer nú fram fyrir
hádegi á Sjómannadaginn. Sjó-
mannamessa verður svo í Ak-
ureyrarkirkju kl. 13.30 og úti-
SIGIÐ í BJÖRG
í GRÍMSEY
Grímsey 29. maí. Undanfarna
daga hefur verið sumarblíða hér
og ekki stormar eins og fréttir
berast af úr landi. Gróðri fleyg-
ir fram. Sauðburðurinn gekk
mjög vel og er honum lokið hjá
flestum.
Langt er síðan fuglinn kom í
bjargið og nú er hann byrjaður
að verpa. Menn eru líka byrjað-
ir að síga í björgin eftir eggjum.
En nú er svo komið, að fáir vilja
gefa sig fram til að síga í björg
og þess vegna verður eggjatak-
an lítil, mest til matar heimafyr-
ir og handa kunningjunum.
Uppihald er á róðrum, en
menn mála báta sína og búa
sig undir vertíðina á annan hátt.
Ennfremur er hugsað fyrir sum-
arsöltuninni, og í stórum drátt-
um er allt til. Verið er að ljúka
við smíði tveggja nýrra íbúðar-
húsa, sem hér hafa verið í bygg-
ingu, og fiskmóttökuhús Harald-
ar Jóhannssonar er í byggingu.
kaupir í matirm
samkoma við sundlaugina kl.
15.30. Sú nýbreytni verður í
róðri, að auk keppni milli skips-
hafna og landmannasveita, fer
fram keppni milli sjómanna frá
Akureyri, Grenivík, Litla-Ár-
skógssandi, Dalvík og ef til vill
fleiri staða við Eyjafjörð. Ætl-
unin er að þessi keppni fari
fram árlega, en sitt árið á hverj-
um stað. Þá er einnig í athugun
að fá þyrlu til þess að sýna
björgun, og færa það atriði þá
væntanlega fram að loknum
róðri.
Sjómannadagsráð hefur á-
kveðið að allur ágóði þessa Sjó-
mannadags á Akureyri skuli
renna í „Sjóslysasöfnunina“. Þá
mun einnig þenna dag verða
tekið á móti gjöfum, í söfnunina
á skrifstofu „dagsins“, sem verð
ur eins og áður á sama stað á
afgreiðslu Eimskip.
Þetta er 25. Sjómannadagur-
inn, sem haldinn er hátíðlegur
hér á Akureyri, og í tilefni þess
verður Sjómannadagsblaðið að
miklu leyti helgað Akureyri.
HÚSMÆÐURNAR ræða oft um
verðlag neyzluvaranna, sem þær
kaupa daglega til heimila sinna.
Flestar eru víst á eitt sáttar um
það, að vöruverðið sé hátt og
viku eða mánaðarkaup bóndans
hrökkvi skammt. Sannleikurinn
er líka sá, að verð margra nauð-
synlegustu vara hefur hækkað
frá 50—100%, mismunandi eftir
vöruflokkum.
Blaðið fékk að fylgjast með
innkaupum tveggja húsmæðra
nú í vikunni. Þær réðu ferðinni
og að sjálfsögðu innkaupunum,
en blaðamaðurinn skrifaði hjá
sér hvað keypt var og hvað það
kostaði.
Við birtum hér árangurinn,
þ .e. það, sem önnur húsmóðirin
keypti, og er það í fremri dálki,
en í aflari dálknum er verð á
samskonar vörum eins og það
var 1. okt. 1958.
Fæst hér glöggur samanburð-
ur, sem sannar ótvírætt hið sam
eiginlega álit húsmæðra, að hin-
1 kg smjör
2 kg. strásykur
2 kg molasykur
100 gr te
Þvottaefni
5 kg kartöflur
1 st. rúgbrauð
5 kg hveiti
2 kg hafragrjón
1 kg smjörlíki
1 kg rúgmjöl
4 1 mjólk
Vl kg vínarpylsa
V2 kg fiskibollur
1 kg nautasteik
ar gífurlegu verðhækkanir eru
staðreyndir, sem þær daglega
reka sig á.
kr. 83.20 kr. 55.00
— 21.00 — 9.30
— 20.60 — 12.00
— 18.85 — 10.80
— 8.30 — 4.00
— 38.75 — 14.00
— 11.00 — 5.50
— 39.00 — 20.00
— 15.20 — 8.60
— 18.00 — 13.80
— 6.40 — 3.00
— 20.00 — 16.92
— 21.50 — 15.00
— 10.13 — 6.23
— 95.95 — 52.00
Kr. 427.88 Kr. 246.15
,Fyrrverandi formaður Þjóðvarnarflokksins og 9 Þjóðvarnarmenn aðrir senda dagblöðunum yf-
^irlýsingu um andstöðu
íEFTIRFARANDI yfirlýsing frá
>10 kunnum Þjóðvarnarmönnum,
jsem a. m. k. flestir eða allir
woru meðal forystumanna flokks
>ins í öndverðu, hefur verið send
jblöðum til birtingar:
við kosningabandalagi við kommúnista
„Að gefnu tilefni viljum við
undirrituð, sem studdum Þjóð-
varnarflokkinn í síðustu alþing-
iskosningum, lýsa yfir eftirfar-
andi:
Með kosningabandalagi því,
sem efnt hefur verið til í nafni
Þjóðvarnarflokksins við Sósíal-
istaflokkinn undir merkjum AI-
þýðubandalagsins, teljum við al
gerlega gengið í berhögg við
fyrri stefnu og yfirlýsingar Þjóð
varnarflokksins, enda munum
við ekki veita fyrrnefndu kosn-
ingabandalagi atkvæði okkar né
annan stuðning.
Yfirlýsing þessi er send öllum
dagblöðum Reykjavíkur til birt-
ingar. (Framh. á bls. 7).
■ I
Á SUNNUDAGINN stofnuðu
ungir menn á Húsavík nýtt
Framsóknarfélag með myndar-
brag. Stofnendur þess félags
voru 53 talsins, bæði karlar og
konur. En fundurinn hafði áður
verið undirbúinn af hinum ungu
áhugamönnum staðarins. Að
sunnan komu, til að vera við-
staddir á stofnfundinum, formað
ur Sambands ungra Framsókn-
armanna, Örlygur Hálfdánarson
og gjáldkeri sambandsins, Krist
inn Finnbogason.
Fundurinn var haldinn í sam
komuhúsinu, sem nú er orðið
hið vistlegasta. Þangað komu 39
manns til að sitja stofnfundinn,
en hinir, 23 að tölu, höfðu sent
úmsóknir sínar, en voru fjar-
verandi við margs konar störf.
Guðmundur Bjarnason var
málshefjandi, en fundarstjóri
var Ingimundur Jónsson og
fnndarritari Bjarni Aðalgeirs-
son. Aðalsteinn Karlsson gerði
grein fyrir verkefni fundarins.
í stjórnina voru kjörnir þessir
menn: Haukur Logason formað-
ur, og aðrir í stjórn, Bjarni Að-
algeirsson, Guðmundur Bjarna-
son, Aðalsteinn Karlsson og
Árni Björn Þorvaldsson. Vara-
menn: Ásgeir Bjarnason, Jón
Olgeirsson og Tryggvi Finnsson.
Endurskoðendur: Ingimundur
Jónsson og Haukur Haraldsson.
Fulltrúar á kjördæmisþing
voru kjörnir: Haukur Logason,
Aðalsteinn Karlsson og.til vara:
Haukur Haraldsson og Bjarni
Aðalgeirsson.
Að kosningum loknum tók
Haukur Logason, hinn nýkjörni
formaður til máls og flutti
hvatningarræðu, um leið og
hann þakkaði það traust, sem
sér væri sýnt. Hann taldi fyrsta
verkefni félagsins vera það, að
vinna að kosningasigri Fram-
sóknarflokksins.
Gestir fundarins, þeir Örlygur
Hálfdánarson og Kristinn Finn-
bogas., fluttu ávörp og tilkynnti
hinn síðarnefndi, að félaginu
yrði sendur fundarhamar að
gjöf frá SUF, í tilefni af stofnun
félagsins og 25 ára afmæli sam-
bandsins.
Hin mikla þáttaka í félags-
stofnun þessari í Húavikurkaup-
stað, þykir fréttnæm og hefur
þegar vakið athyggli. Sýnir hún
glöggt hvert straumurinn stefn-
ir á þeim stað.
Stjórn, trúnað-
armenn og
nokkrir aðrir
á stofnfuml-
inum.
(Ljósmyndastofa
Péturs, Hósavík.)