Dagur - 03.07.1963, Qupperneq 8
8
FréSiabréf úr Bárðardal
Stóratunga 24. júní. arbrekkukifkju. Sr. Þórarinn
NU ER blíðviðristíð aftur eftir Þórarinsson sóknarpréstur þión
viku þokur og úrhellis úrkomu. aði. í kirkju voru gefin saman
Tún spretta vel. tvenn hjón.Guðrún Sveinbjörns
Hinn 19—20 þ. m. var aðal- dóttir frá Ófeigsfirði á Strönd-
fundur Sambands þingeyskra um og Tryggvi Höskuldsson frá
kvenna haldinn hér í hinum Bólstað í Bárðardal og Ásta
nýju og .vistlegu húsakynnum Jakobsdóttir frá Akureyri og
barnaskólans. Mættir voru um Jón Höskuldsson einnig - frá
40 fulltrúar víðsvegar að úr Bólstað. Einnig voru skírð fjög
héraðinu auk stjórnar. Kven- ur börn í kirkjunni.
félagið Hildur í Bárðardal sá Eftir kirkjuathöfnina var boð
um fundinn, með mestu prýði. ið til veizlu í barnaskólanúm.
Fyrri dagurinn fór í venju- Setið var við kaffiveitingar
leg aðalfundarstörf, en síðari (Framh. á bls. 7)
daginn flutti séra Sigurður
NÝI FARÞEGAVAGNINN Á AKUREYRI HEFUR MIKIÐ AÐ GERA
FYRIR um það bil einum mán-
uði kom til bæjarins 38 farþega
bifreið, sem síðan hefur tæpast
sézt í bænum, svo mjög hefur
hennar verið þörf til hópferða.
Þarf raunar engan að furða, sem
lítur á bifreiðakost bæjarbút til
slíkra hluta. Hann er æði bág-
borinn og rýr. Hefur þess-
vegna oft þurft langt að leita
eftir viðunandi farkosti.
Nýi farþegavagninn kostaði
um 840 þús. krónur og er talinn
góður. Eigandi er Hópferðir s.f.
á Akureyri. Bjarni Bjarnason,
Guðmundur Tryggvason, sem
áttu tvo 17 farþega bíla áður, og
Hilmar Gíslason, eru stofnend-
ur Hópferða og eigendur nýja
vagnsins.
Nýi bíllinn bætir úr brýnni
þörf, og vonandi tekst rekstur
hans svo vel, að fleiri komi á
eftir og hægt verði að fullnægja
hópferðaþörf bæjarins og ná-
grannasveita á sómasamlegan
hátt.
Ferðaskrifstofan Saga hefur
afgreiðslu hins nýja bíls, ásamt
eigendunum. n
Ákveðnar bendingar um áburðar- og grasfræteg.
Kjarni gefur minni eftirtekju en kalksaltpétur
í UMFANGSMIKLUM tilraun-
um á Hvanneyri í Borgarfirði
með áburðartegundir og gras-
frætegundir, hafa athyglisverð-
ar bendingar komið fram, er
margir munu hafa áhuga á að
heyra nánar frá.
Þar hefur það t. d. komið
fram, að því er Tíminn hermir
28. júní s.l., að Kjarninn okkar
ísjenzki reynist verr en kalk-
saltpétur sá, sem fyrrum var
mjög notaður hér á landi og
einnig er einhliða köfnunarefn-
isáburður, en þó framleiddur á
annan hátt. Kjami gefur minni
uppskeru og jörð, sem Kjarni
er borinn á, er hættara við kali,
en samanburðarreitirnir, sem
kalksaltpétur er borinn á.
Áburðarverksmiðjan í Gufu-
nesi, sem Kjarnann framleiðir,
notar ekki kalk til íblöndunar
og má vera, að þar sé skýringin
Nýjar gerðir mjaltavéla
SÍÐUSTU daga hefur Sigurgeir
Stefánsson, starfsmaður SÍS,
sett upp nýja gerð mjaltavéla
hjá tveim eyfirzkum bændum.
Mjaltavélar þessar eru af gerð
inni Alfa-Matic og eru sjálf-
rennslisvélar, þannig að mjólkin
kemst ekki í snertingu við and-
rúmsloftið í fjósunum, en renn-
ur eftir loftþéttum plastleiðslum
frá spenum kúnna og alla leið í
kælinn í mjólkurhúsi eða beint
í mjólkurbrúsana, sem þá eru
þróarkældir.
Við þessa aðferð eru engar
mjólkurfötur notaðar við mjalt-
ir. Er að því mikill léttir og einn
ig mun þar um vinnusparnað að
ræða, auk hreinlætisins.
Síld til Ólafsljarðar
FYRSTA síldin kom til Ólafs-
fjarðar í fyrradag, 300 tunnur af
Jónasi Jónassyni, og var hún
söltuð hjá Auðbjörgu h.f. í gær
kom svo Guðbörg, Ólafsfirði,
með 200 tunnur, sem saltaðar
voru á söltunarstöðinni Jökli.
Þorskafli er enginn. Heyskapur
hófst mjög víða á fimmtudag-
inn og fyrsta heyið er þegar bú-
ið að þurrka. Spretta er sæmi-
lega góð. ' □
Fyrstu mjaltavélarnar af þess
ari gerð, sem settar eru í norð-
lenzk fjós, eru hjá Sigurði
bónda Jónssyni á Ásláksstöðum
í Kræklingahlíð og í Leyningi í
Saurbæjarhreppi, hjá Kristjáni
Hermannssyni. Bráðlega verða
slíkar vélar settar upp á Hall-
anda á Svalbarðsströnd.
Áður hafa 7 bændur hér á
landi reynt þessar mjaltavélar
og látið vel af. Fyrstur þeirra
var Sveinn bóndi á Egilsstöðum.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
söluumboð fyrir vélar þessar. □
á nefndum mismun. En sé svo,
og að ekki sé hægt að breyta
Kjarna með tilliti til þessa, þarf
súr jörð sérstakan kalkskammt.
Hér virðist ekki .um endanlegar
niðurstöður tilrauna að ræða,
heldur ákveðnar ábendingar við
þau skilyrði, sem á þessu til-
raunalandi eru.
Þá hefur það komið í Ijós í
nefndum tilraunum á Hvann-
eyri, að vissar tegundir af vall-
arfoxgrasi, sem jafnan er mikið
af í grasfræblöndum fyrir tún-
rækt, þoli illa íslenzka veðráttu,
en aðrar mjög vel, svo sem tvær
norskar tegundir.
Hinar stórkostlegu kalskemmd
ir á túnum norðanlands í fyrra,
eru að mestu órannsakaðar og
ýmsum getum leitt að orsökum
þeirra. Slíkar skemmdir hljóta
stöðugt að vera yfirvofandi, þar
til viðhlýtandi rannsóknir hafa
leitt í ljós, hverjar hinar raun-
verulegu ástæður liggja þar til
grundvallar, og hvaða ráð eru
til varnar.
Sé það svo, að Kjarni og mjög
óþolnar grastegundir uppfylli
ekki nægilega kröfur um vöru-
gæði, er sannarlega tími til þess
kominn, að bændur eigi kost á
betri vörum til búa sinna. Q
Haukur Guðjónsson erindi er
hann nefndi „Morgunþankar
um konuna og kirkjuna" og var
gerður að því mjög góður róm-
ur. Fundinum lauk með kaffi
samsæti og tóku þátt í því flest
ar konur sveitarinnar, einnig
flutti Ingvar Þórarinsson erindi
og sýndi skuggamyndir.
21. þ. m. áttu gullbrúðkaup
hjónin Jón Pálsson Jónssonar
hreppstjóra frá Stóruvöllum og
Guðbjörg Sigurðardóttir Jóns-
sonar fyrrverandi ráðherra frá
Ystafelli. Þau hafa búið allan
sinn búskap á Stóruvöllum.
Þau buðu til sín ættingjum og
vinum er þágu rausnarlegar
veitingar.
í gær var guðþjónusta í Lund
Margir áhorfendur
á íþróttavellínum
Á SUNNUD AGSKV ÖLDIÐ
fjölmenntu Akureyringar á
íþróttavöllinn, svo sem á þjóð-
hátíðardegi væri. Erindi þeirra
var að sjá ÍBA-liðið keppa við
Va 1 í knattspyrnu. Þetta var
fyrsti I.-deildar-kappleikurinn,
sem hér er í ár, og virðast bæj-
arbúar ætla að sýna þessari
íþrótt mikinn áhuga í sumar.
Eins og sagt er frá í íþrótta-
þætti sigruðu Akureyringar í
þessum leik með 2:1. — Betur
þarf að skipuleggja aðgöngu-
miðasöluna en nú var gert. Fólk
ætti ekki að þurfa að bíða í
hundraðatali við inngönguhlið.
Vonandi stendur þetta til bóta.
Fjórtán flugvélar samtímis á Ák.
UM ÞAÐ leyti á mánudag er
morgunsólin vakti árrisula
Akureyringa, heyrðist gnýr
mikill í lofti er tvær millilanda
flugvélar Loftleiða, Snorri Þor-
finnsson og Snorri Sturluson
flugu yfir bæinn og settust með
stuttu millibili á Akureyrarflug
völl. Vélar þessar komu vestan
um haf með um 190 manns inn
anborðs en gátu ekki lent í
Reykjavík, eða á Keflavíkur-
flugvelli sökum þoku. En hér
sást tæplega ský á lofti og hið
blíðasta sumarveður. Naut
ferðafólkið veðurblíðunnar
lengi dags, og þótti gott hér að
vera.
Átta flugmenn brugðu sér' í
sundlaugina og luku þar 200
metra sundinu á meðan dvalist
var í bænum. Flestir farþeg-
anna voru útlendingar.
Á mánudaginn voru 14 flug-
vélar staddar samtímis á Akur-
eyrarflugvelli. Ljósm. E. D.