Dagur - 10.07.1963, Blaðsíða 1
'Mái.gagn Framsói>narmanna
Ritstjóri: Erlincur Davíðsson
Skrifstofa í Hafnarstr.eti 90
Sími 116(5. Setningu og prentun
ANNAST PrENTVERK OlIDS
Björnssonar h.f., Akurevki
r-----------
Auglýsingastjóri’'Jón Sám-j;, "
:.úelssonÁrcancujunn kostar
kr. 150.00. Gjalddagi er
ÍÍLADID KF.MÚR ÚT Á ÁlIÐVIKUDÖG- ’
' . U.M OG Á LAUCÁRDÖGU.M,.
ÞEGAR ÁST.EÐA FVKlR TIL
___................ ' _________
Skozkir fræðimenn slá tjöldum
Hveitibrauðsdögum eytt við rætur Hálsjökuls
Hópur skozkra fræðimanna
hefur nýlega sett tjöld sín og
tæki rétt við bæinn Kleif í Þor-
valdsdal á Árskógsströnd, og
ætlar að dveljast þar í 10 vikur.
Hér er um að ræða jarðfræð-
inga, grasafræðing, fuglafræð-
ing og dýrafræðing o. fl. Tjöld
þessara erlendu manna standa
við Stórhól. Dag hvern fara
fræðimenn þessir í lengri og
skemmri könnunarferðir og
vinna einnig að rannsóknum í
bækistöð sinni.
Bóndinn á Kleif heitir Einar
Petersen og er danskrar ættar,
býr sjálfur hjá sér í gömlum
húsakynnum á Kleif, er víðles-
inn maður og vill ógjarnan fara
troðnar slóðir í búskapnum, svo
sem m. a. sést á því, að hann
varð fyrstur manna hér á landi
Norðlenzka
að taka upp „skurðverkun" ,á
votheyi og hefur gefizt það vel.
Einar er nú túlkur og fyrir-
greiðslumaður fræðimannanna
skozku.
Grasafræðingurinn varð strax
svo hrifinn af dvöl sinni í Þor-
valdsdal, að hann sótti konuefni
sitt til Skotlands, flýtti brúð-
kaupi sínu og er kominn aftur,
kvæntur maður. Hveitibrauðs-
dögunum ætlar hann, og þau
hjón, svo að eyða við Hálsjök-
ul, sem er næsti dalur vestan
Þorvaldsdals. □
PILTUR Á FLÓTTA
Á SUNNUDAGINN tók ölvað-
ur piltur bíl og ók honum. Pilt-
urinn var próflaus og aðeins 16
ára. Hann sinnti ekki stöðvun-
armerki lögreglunnar. En hún
elti hann, fyrst á bíl, en síðan
varð flótti og eftirför á „tveim-
ur jafnfljótum“ og varð undan-
koma stöðvuð.
Hún er ekki stórbrotin löndunin við þessa bryggju og aflinn ekki mældur í hundruðum mála eða
tunna. Hér eru bræður tveir á Skútustöðum í Mývatnssveit að gera að silungsafla sínum. Silung-
urinn er hálft annað pund á þyngd til jafnaðar. Æfðar hendur fletja og salta. Siðan er þessi lands-
þekkti gæðafiskur reyktur og seldur í matvöruverzlunum. Nú í sumar er aflinn í Mývatni mjög
mikill og silungurinn feitur og ljúffengur, nær allt bleikja. Myndin er tekin s.l. sunnudagskvöld
og keypt í soðið um leið. Kilóið kostar 25 krónur. (Ljósmynd: E. D.)
Síldin nær landi og vestar en f yrr
Kjaradómur felldi úrskurð sirat
segir Jakob Jakobsson fiskifræðingur, er stjórn-
ar síldarleit á Vestursvæðinu.
Byggðasafnið
STJÓRN Norðlenzka byggða-
safnsins hefur ákveðið, að safn-
ið í Kirkjuhvoli á Akureyri
verði opnað fyrir almenning 17.
júlí n.k. kl. 5 e. h. og verði dag-
lega opið frá þeim tíma að telja,
samkvæmt nánari ákvörðunum
síðar. Kl. 2 e. h. hinn 17. júlí
opnar þjóðminjavörður, dr.
Kristján Eldjárn, safnið og flyt-
ur ræðu og verða þá ýmsir boðs
gestir viðstaddir.
Safnvörður er Þórður Frið-
bjarnarson, form. safnstjórnar
er Jónas Kristjánsson. □
í fyrrinótt var ölvaður mað-
ur tekinn fastur, er hann hafði
tekið bíl „traustataki" og kom-
inn af stað.
Á fjórða tug manna er búið
að taka, það sem af er árinu,
vegna ölvunar við akstur. Það
er ískyggileg þróun og þarf að
taka fast í taumana í þessu efni,
áður en voðaslys hljótast af
hinni miklu og auknu áfengis-
neyzlu meðal ökumanna. □
Dagur
kemur ekki út næstu þrjár vik-
ur vegua sumarleyfa í prent-
smiðjunni.
BLAÐIÐ átti í gær viðtal við
Jakob Jakobsson fiskifræðing,
sem stjórnar síldarleit á Ægi á
Vestursvæðinu.
Síldin er, sagði hann, á leið
vestur og er komin nær landi
en áður. Pétur Thorsteinsson
leitar fyrir austan en Fanney
út af Sléttu.
Austan Langaness hefur ver-
ið leiðindaveður síðustu daga.
í nótt var nokkuð góð veiði út
af Sléttu, sagði fiskifræðingur-
inn, eða rúmlega 35 þúsund
mál og tunnur. Þar var sæmi-
legt veður. Síldin er 35—40 míl-
ur frá Rauðunúpum og heldur
vestar en hún var fyrir helgina.
Þetta stendur allt til bóta, og
þótt ísinn sé nærri, er þess að
mihnast, að gömlu síldveiðisjó-
mennirni köstuðu milli jakanna
og mokveiddu á Húnaflóa. ísinn
þarf því ekki að hindra síldveið
arnar þótt hrafl af honum komi
nær landi en nú er.
Talsverð áta er komin á vest-
ursvæðið og ekki ástæða til
syartsýni, sagði Jakob Jakobs-
son að lokum.
í síðustu viku var reitings-
afli. Veður var gott en oft þoka.
Vikuaflinn var rúmlega 120 þús
und mál og tunnur síldar. Heild
araflinn í vikulok 357,962 mál
og tunnur. Rúmlega 47000 tunn
ur höfðu þá verið saltaðar. 205
skip höfðu fengið einhvern afla,
þar af 166 skip 500 mál og tunn-
ur eða meira. Aflahæstur er nú
Sigurpáll, Garði, með 8,922 mál
og tunnur, næstur er Sigurður
Bjarnason Akureyri með 7.378
mál og tunnur. Þá koma næst:
Gunnar, Reyðarfirði, 5.787, Hof-
fell 5.558, Guðmundur Þórðar-
son Reykjavík 5.449, Hannes
Hafstein, Dalvík, 5.399, Eldborg
Hafnarfirði, 5.377, Helgi Fló-
yentsspn, Húsavík, 5.364, Grótta
Reykjavík, 5.316, Halldór Jóns-
son, Ólafsvík, 5.277 og Sæfari,
Tálknafirði, 5.081 mál og tunn-
ur. □
barizt fyrir.
Ríkisstjórnin hafði boðið 23%
kauphækkun. Úrskurður kjara-
dómsins er því 17% hærri en
síðasta og hæsta tilboð stjórnar-
innar var. Samkomulag virtist
því óhugsandi, þótt það hefði
verið æskilegast. Q
BÆNDADAGURINN
SAMKOMAN, sem getið var
um í síðasta blaði, verður að
Laugarborg, sunnud. 28. þ. m.,
en ekki Árskógi, eins og gert
hafði verið ráð fyrir. Verður
nánar tilkynnt síðar út um sveit
irnar um tilhögun samkomunn-
ar. □
Sundlaugin í Selárdal við heitar uppsprettur. Suadnámskeið stendur yfir. Kennarinn er frá Keykja-
vík, en ráðskonan frá Ytri-Nýpum. Bömin eru frá Vopnafirði og Bakkafirði. Mörg þamba gos og
jóðla góðgæti, þótt verzlun sé ekki á næsta leiti. Hér er Sundlaugarhylur — efri og neðri, skammt
upp með ánni er gúmmíbátur á streng til hagræðis fyrir veiðimenn, og héðan er aðeins snertuspölur
fram að fossi. Fossin hindrar laxgöngu lengra fram á dal. En hver veit, hvað gert verður fyrir laxinn.
(Ljósmynd: E. D.)
í SÍÐUSTU viku birtist „Salo-
monsdómur“ Kjaradóms í deilu
stjórnarvaldanna við ríkisstarfs
menn. Samkomulag hafði þó áð
ur orðið milli.samningsaðila um
skiptingu í 28 launaflokka. Kom
því aðeins til kasta dómsins að
ákveða föst laun í hverjum fl.,
vinnutíma, yfirvinnugi«eiðslur
og önnur starfskjör.
Talið er, að kauphækkun sam
kvæmt þessum dómi sé um
40%, og er það mikil kjarabót,
enda voru ríkisstarfsmenn orðn
ir langt aftur úr.
Kjaradómurinn staðfesti að
nokkru launamun með hliðsjón
af menntun, ábyrgð og sér-
hæfingu, sem lengi hefur verið