Dagur - 10.07.1963, Blaðsíða 8
8
Ótrúlegt en satt: 1940 varð svo stórkostlegt jakahlaup í Selá, að það fyllti nær undir brúarbogann
og rann yfir veginn beggja megin. Af myndinni geta menn getið sér til um hamfarirnar, hún er
af Selárbrú en er tekin á kyrru kvöldi um síðustu helgi. Tveir menn freista gæfunnar í ánni. Frá
vinstri remnur Hvammsá og á ármótunum er lengi von á einum. (Ljósmynd: E. D.)
SumarSeyiin eru a5 hefjast
Nýtt samkomuhús opnað á Ak.
Á FÖSTUDAGINN var opnað-
ur samkomu- og veitingasalur í
Sjálfstæðishúsinu við Geisla-
götu. Sem kunnugt er byggðu
Sjálfstæðismenn og Sjálfstæðis-
flokkurinn, undir nafninu Akur
h.f., hús þetta. Er þetta annar
áfanginn, sem nú var tekinn í
notkun, en á neðstu hæð var
áður opnuð verzlunin Kjörver.
Á efstu hæð, sem enn er í smíð-
um, verða skrifstofur og 60—80
manna salur með veitingaað-
stöðu, auk fundaherbergja.
Húsakynni þau, sem nú voru
opnuð og tekin í notkun, eru á
annarri hæð. Þar er samkomu-
salur er rúmar yfir 300 manns
í sæti, rúmgott leiksvið, setu-
stofa og bar. Þar er að sjálf-
sögðu eldhús, enda heitur og
kaldur matur á boðstólum allan
daginn.
Þessi samkomu- og veitinga-
hæð Sjálfstæðishússins er
smekkleg og líkleg til að geta
veitt hina beztu þjónustu.
Eyþór H. Tómasson, form. Ak
urs h.f., Gísli Jónsson, Magnús
Jónsson, Jónas Rafnar og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson
fluttu ræður við þetta tækifæri.
Framkvæmdastjóri hússins er
Þórður Gunnarsson en veitinga
maður Sigurður Sigurðsson.
Hljómsveit Ingimars Eydal leik-
ur í húsinu.
Dagur ári\ar Sjálfstæðismönn
um og bæjarbúum allra heilla
með hið nýja samkomu- og veit-
ingahús á Akureyri. □
SUMARLEYFIN eru hafin og
brátt munu allar samgönguleið-
ir Evrópu fyllast af hundruðum
þúsunda ferðamanna á leið til
skóga, fjalla, stranda og vatna.
Svo til allir launþegar í þeim
löndum, sem lengra eru á veg
komin, njóta sumarleyfa í ein-
hverri mynd á fullum launum,
en því fer fjarri að allir fái jafn
löng leyfi og almennt tíðkast nú
á Norðurlöndum. Þessar stað-
reyndir komu fram í rannsókn
sem Alþjóðavinnumálastöfnun-
in (ILO) lét gera, og hafa niður-
stöður hennar verið dregnar
saman í tímariti stofnunarinnar,
„ILO News“.
ILO hefur rannsakað ástand
og þróun síðustu ára í 77 lönd-
um. í flestum þessara landa, eða
47, höfðu menn almennt aðeins
tveggja vikna sumarleyfi. í 18
löndum, þ. á. m. Kanada, Banda
ríkjunum, Japan og Spáni, eru
sumarleyfin yfirleitt styttri en
á sama stað, þriggja vikna leyfi
tvær vikur. A. m. k. á það við
um fyrstu starfsárin. Það er
mjög algengt að sumarleyfi leng
ist eftir að menn hafa starfað
nokkur ár hjá sama atvinnuveit
anda. í Bandaríkjunum og Kan-
ada fá menn t. d. tveggja vikna
sumarleyfi eftir 2—3 ára störf
eftir 15 ára starf og mánaðar-
leyfi eftir enn lengri starfstíma.
Norðurlönd hafa öll þriggja
vikna sumarleyfi, en víða í þeim
(Framhald á bls. 5.)
Konur í Öskju
UM SÍÐUSTU helgi gistu yfir
40 konur frá Slysavarnadeild
kvenna á Akureyri í Þorsteins-
skála. Þaðan fóru þær á gos-
stöðvar Öskju, fengu hið bezta
veður og láta vel yfir ferðinni.
Sennilega hafa ekki áður jafn
margar konur lagt leið sína í
Öskju í einum hóp. Fimm karl-
menn voru með í för, þar með
taldir ökumenn, og voru þeir
hinu veikara kyni til halds og
trausts. □
Fréttabréf úr Reykjadal
ílfsvörin í Húsavík 1963
JAFNAÐ var niður kr. 6.100. við kr. 15.000.00 sem hámark.
500.00 á 529 einstaklinga og 18 Undanþegnar útsvarsálagn-
félög á móti kr. 4.884.900.00 á ingu voru þessar bætur: Elli- og
490 einstaklinga og 17 félög ár- örorkulífeyrir, sjúkrabætur,
ið 1962. mæðralaun og fjölskyldubætur,
sem greiddar eru með fleiri en
Við útsvaarsálagningu nú þrem börnum hjá hverjum ein-
voru útsvör fyrra árs, er greidd stökum gjaldanda. Auk þess
voru fyrir árslok 1962, dregin voru útsvör elli- og örorkulífeyr
frá álagningartekjum áður en isþega lækkuð verulega, eða frá
útsvar var lagt á. Vikið var frá einum þriðja og allt að helmingi
framtölum um sérstakan frá- hvert útsvar. Hjá einstaka gjald
drátt sjómanna, svo og tapsfrá- anda var tekið tillit til sjúkra-
drátt milli ára, samkvæmt heim kostnaðar, menntunarkostnaðar
ild í lögum um tekjustofna o. fl. Að lokum voru öll útsvör
sveitafélaga. Frádráttur vegna lækkuð um 18% og færð þann-
tekna eiginkonu var bundinn ig á útsvarsskrá.
Hæstu útsvör emstaklinga grei'ða:
Hreiðar Bjamason, skipstjóri...................... kr. 72.300.00
Gunnar Hvanndal, stýrimaður ........................— 49.300.00
Helgi Hálfdánarson, lyfsali........................— 48.300.00
Bjarni Þráinsson, sjómaður .........................— 45.800.00
Kristján Óskarsson, vélstjóri .....................— 42.800.00
Daníel Daníelsson, héraðslæknir ...................— 38.400.00
Sigurður Sigurðsson, skipstjóri .................. — 37.800.00
Sigtryggur Albertsson, veitingamaður...............— 35.900.00
Stefán Pétursson, skipstjóri ......................— 33.400.00
Dagbjartur Sigtryggsson, vélstjóri................ — 32.600.00
Hæstu útsvör félaga greiða;
Útgerðarfélagið Barðinn h.f.......................kr. 111.400.00
Síldarsöltun K. Þ.................................— 85.600.00
Hreifi h.f....................................... — 77.400.00
Vísir h.f..........................................— 51.500.00
Hæstu aðstöðugjöld bera þessi fyrirtæki:
Kaupfélag Þingeyinga ............................ kr. 671.600.00
Fiskiðjusamlag Húsavíkur h.f.......................— 218.900.00
Útgerðarfélagið Barðinn h.f........................— 73.000.00
Fataverksmiðjan Fífa ............................. — 66.900.00
Trésmiðjan Fjalar h.f.............................— 42.600.00
Vélaverkstæðið Foss h.f............................— 42.500.00
(Fréttatilkynning frá skrifstofu Húsavíkurbæjar).
Laugum 2. júlí. Sendi þér hér
með úrslit í héraðskeppni í
frjálsum íþróttum milli Eyfirð-
inga og Þingeyinga. Óska ég, að
þau birtist í „Degi“.
Fréttir héðan úr Reykjadal
eru þær helztar, að sláttur er
hafinn á mörgum bæjum. Munu
þurrkar og góðviðri undanfar-
inna daga heldur hafa flýtt fyr-
ir því, að bændur byrjuðu slátt-
inn. Framkvæmdir eru hafnar
við endurbyggingu þjóðvegar-
ins til Húsavíkur á ca 5 km
kafla hér í dalnum frá Einars-
stöðum norður að Helgastöðum.
Eldri vegurinn var snjóþungur
sums staðar á þessum kafla
vegna þess, hve lágur hann var
og girðingar nærri honum.
Þótti því nauðsyn vegna mjólk-
urflutninga að vetrarlagi, að
hefjast handa um verk þetta.
Raunar virðist þeim, sem ferð
ast að ráði um þóðvegi nú, að
allvíða séu eldri vegir — e. t. v.
lagðir upphaflega fyrir hest-
vagna — hættir að þola sívax-
andi fjölda og þunga þeirra öku
tæka, sem um þá fara. Virðist
bráðra aðgerða þörf, ef ekki á
að verða vandræðaástand í þess
um efnum.
Stórir vörubílar þurfa að
gæta ýtrustu varúðar, þegar
þeir mæta öðrum farartækjum,
því að sökum þyngdar sinnar,
ef þeir eru hlaðnir, eíga þeir
Kappreiðar Féttis
HINAR árlegu kappreiðar
hestamannafélagsins „Léttis“
voru háðar á skeiðvelli félags-
ins sunnudaginn 30. júní sl. í
blíðskaparveðri og við allgóða
aðsókn.
Alhliða góðhross voru skráð
14 og 6 klárhross með tölt.
Af alhliða góðhestum varð nr.
I „Draumur" Magna Kjartans-
sonar, er hlaut í einkunn 8,58
og farandbikarinn. Nx-. II var
„Stjarna" Sigurbjargar Jóhanns
dóttur, er hlaut í einkunn 8,38,
nr. III „Ljótur“ Gests Jónsson-
ar, einkunn 8,17.
Hinum góðhrossunum raðaði
dómnefnd eftir stafrofi án til-
lits til gæða þeirra.
Af klárhestum með tölti
mættu aðeins 4 af 6 sem skráð-
ir voru.
Nr. I varð Glæsir Hreins
Tómassonar og hlaut hann bik-
ar í verðlaun. Nr. II Sörli Helga
Hálfdánarsonar.
Til keppni í hlaupum voru
skráðir 18 hestar. í skeiði sigr-
aði Jarpstjarni eigandí Gestur
Jónsson og hlaut hann II. verð-
laun. Tími 26.5 sek. (lágmarks-
hraði til I. verðl. eru 25 sek.).
í 250 m. stökki (folahlaupi)
vann Bleikskjóni Gests Jóns-
sonar I. verðlaun á ágætum
(Framh. á bls. 5)
stöðugt á hættu að sökkva og
festa sig í vegarköntum. T. d.
eru slík óhöpp alls ekki fátíð á
þeim hluta Austurlandsvegar,
sem liggur hér um sunnanverð-
an Reykadal og Mývatnsheiði,
en vöruflutningar með bílum til
Austfjarða virðast hafa marg-
faldazt á örfáum árum og gætir
þar sennilega áhrifa síldarinnar.
Fréttaritari, Laugum, S.-Þing.
MIKIÐ AÐ GERA í
ÓLAFSFIRÐI
Ólafsfirði 9. júlí. Fjögur síldar-
skip nýkomin: Sigurpáll með
2000 tunnur, Guðrún Þorkels-
dóttir með 4—500, Seley með 5
—600 og Steinunn með 700
tunnur. Saltað á þrem plönum.
Mikið að gera. Margt aðkomu-
fólk í vinnu.
Við rúning bar það nýlega
við, að sauðai'klippur stungust
á hol kindar einnar, svo að garn
ir sigu niður. Héraðslæknirinn
gerði að sárunum og mun að-
gerðin hafa heppnast vel. Sum-
ir bændur langt komnir með
fyrri slátt
Lionsklúbburinn Huginn, Akurcyri, afhenti á fundi þann 3. maí
s.l. Styrktarfélagi vangefinna 25 þús. kr. að gjöf. (Ljm.: G. P. K.)