Dagur - 16.10.1963, Page 1
------------------------------\
Málgagn Fr.\msóknarmanna
Ritstjóri: Erlingur Davíðsson
Skrifstofa í. Haknarstræti 90
Símar: Ritstjóri 1166. Aucl.
oc afcr. 1167. Prentverk Odds
Björnssonar h.k., Akurf.vri
i._______—____________________<
—
Augi.ýsingastjóri Jón Sam-
ÚF.LSSON . ArGANGURINN KOSTAR
kr. 150.00. Gjalddagi KR 1. JÚLÍ
Blaðið KEML’R út á miðvikudög-
UM OC Á LAUCARDÖGUM,
ÞEC.AR ÁST.KÐA I'YKIR TIL
__________________
Fjórir sjoppueigendur voru
kærðir af lögreglunni
HINN fyrsta október s.l. kærði
lögreglan á Akureyri 4 af 8 svo-
kölluðum sjoppueigendum, sem
kvöldsöluleyfi hafa. En þeir
Vildu ekki hlýta reglum um lok
unartíma. Þeir máttu hafa opið
FULLT AÐ GERA!
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
tók lögreglan tvo ökumenn
fasta fyrir meinta ölvun við
akstur og kærði aðra fyrir
glannalegan akstur um helgina.
Nú mun lögreglan hafa haft
hendur í hári 50 ölvaðra öku-
manna, það sem af er árinu.
Ölvun er töluvert mikil og
fer vaxandi, segir lögreglan, og
„fullt að gera“. □
til kl. 22 í sumar, en aðeins til
kl. 18 virka daga frá og með 1.
október.
Sjoppueigendur gera nú harða
hríð að bæjarstjórn og fara fram
á lengri sölutíma. Eru þeir hin-
ir skeleggustu í baráttu sinni
og beita ýmsum ráðum. Verður
fróðlegt að sjá hversu bæjarfull-
trúar bregðast við á næstu
fundum sínum og jafnframt
fróðlegt fyrir almenning, sem
vissulega hefur látið sig mál
þetta nokkru skipta.
Auk hinna 8, sem kvöldsölu-
leyfi hafa, _hafa bensínsölurnar
Veganesti, Ferðanesti, Þórsham
ar og BSO kvöldsöluleyfi, og
undir kirkjutröppunum rekur
bæjarfélagið kvöldsölu á breið-
ari grundvelli. □
Fyrsla lilraun með olíumöl á Akureyri
Reynslan ein sker úr um slitþol olíumalarinnar
Skyítur með nesti og nýja skó
í GÆRMORGUN mátti heyra,
að rjúpnaskyttur voru komnar
á kreik. En hvoi't vel hefur
veiðzt þennan fyrsta dag, var
iblaðinu ekki kunnugt.
Samkvæmt reynzlunni um 10
ára sveiflur rjúpnastofnsins
undanfarna áratugi, mun tölu-
vert vera af rjúpum og á þeim
að fara fjölgandi allra næstu
ár, en verða í lágmarki 1968.
Dr. Finnur Guðmundsson hef
ur beðið allar rjúpnaskyttur
landsins að fylla út eyðublöð,
sem fást í skotfæraverzlunum
og hjá yfirvöldum á hverjum
stað. Verða upplýsingar, sem
þarna fást, liður í þeirri alls-
herjarrannsókn, sem nú fer
fram á íslenzku rjúpunum. □
UM síðustu helgi var fyrsta olíu
mölin lögð á götur Akureyrar-
kaupstaðar. Fyrir valinu varð
stuttur vegarkafli neðan við
Samkomuhús bæjarins, við sjó-
inn. Enn liggur kostnaðarhlið
verksins ekki fyrir, enda mun
hún ekki aðalatriði í þessari til-
raun, heldur það, hvernig hinn
olíumalarborni kafli reynist.
Reynist olíumölin svo vel, að
hún yfirleitt komi til greina sem
slitlag á götur bæjarins, kemur
kostnaðarhliðin til athugunar.
Stefán Stefánsson bæjarverk-
fræðingur hefur stjórnað þessu
verki og bíða margir óþreyju-
fullir eftir því, hvaða vísdóm
reynslan muni færa okkur um
þetta efni.
Á myndinni er verið að leggja
út olíumölina á veginn austan
við Samkomuhúsið. (Ljósmynd:
E. D.). □
Býður liún útlend-
um Búrfellsvirkjun?
KJARABARÁTTA LAUNÞEGANNA FER
Á FJÖLMENNUM fundi í Verkalýðsfélaginu Einingu, Ak-
ureyri, sem haldinn var 14. þ. m., voru eftirfarandi tillögur
einróma samþykktar:
I. Fundur Verkalýðsfélags-
ins Einingar, haldinn 14. októ-
ber 1063, telur, að eins og nú er
komið þróun verðlags og launa
í þjóðfélaginu, sé ólijákvæmi-
legt að meginkröfur af hálfu fé-
lagsins og annarra félaga al-
menns verksfólks við gerð nýrra
kjarasamninga verði þessar:
1. Kauphækkun í kr. 40.00 á
klst. fyrir almenna vinnu
Hver ók á folaldið?
Á LAUGARDAGINN fannst ný
dautt folald skammt frá þjóð-
vegi í Kræklingahlíð. Það var
beinbrotið og með áverka á
hausnum. Eigandi er Sigurður
bóndi á Ásláksstöðum.
Sýnt er, að folaldið hefur orðið
fyrir bifreið og komizt lítið eitt
frá slysstað.
Lögreglan biður þá, sem
kynnu að geta gefið upplýsing-
ar um slysið, að gera aðvart. □
verksfólks og hliðstæð hækk-
un á öðrum kaupgjaldsliðum.
2. Sanmingsbiindnar ráðstafanir
til styttingar vinnutíma.
3. Verðtrygging á almenn laun
verði heimiluð og fcst í næstu
samningum.
Fundurinn felur stjórn félags-
ins að hefja svo fljótt sem auð-
ið er, samninga við atvinnurek-
endur um þcssar meginkröfur.
Jafnframt er stjórninni falið að
ganga í einstökuni atriðum frá
öðrum breytingakröfum í eðli-
legu samráði við einstaka starfs
greinshópa innan félagsins og
trúnaðarmannaráð þess.
Þá samþykkir fundurinn einn
ig að sem nánast samstarf verði
liaft við önnur verkalýðsfélög
í sambandi við samningsgerð og
allar aðgerðir er að henni lúía.
II. Fundur Verkalýðsfélags-
ins Einingar, haldinn 14. októ-
ber 1963, samþykkir að beita
sér fyrir því, ásamt Verka-
mannafélaginu Dagsbrún og
Verkamannafélaginu Hlíf að
stofnað verði landssamband al-
mennra verkalýðsfélaga innan
Alþýðusambands íslands og
jafnframt að gerast stofnfélag
(Framh. á bls. 5)
ÞAÐ vekur athygli um þessar
mundir, að Eiríkur Briem for-
stjóri Rafveitna ríkisins og Jó-
hannes Nordal form. stóriðju
nefndar eru nýlega komnir heim
úr ferðalagi suður um lönd, og
samtímis berst sá orðrómur út,
að svissneskt fjármagnsfyrir-
tæki sé fáanlegt til að reisa
alúminiumverksmiðju, sem noti
raforku frá Búrfellsvirkjun í
Þjórsá.
Hinn 22. marz 1961 sam-
þykkti Alþingi að skora á ríkis-
stjórnin að láta hraða gerð fulln
aðaráætlunar um virkjun Jök-
ulsár á Fjöllum og athugun á
hagnýtingu orkunnar til fram-
leiðslu á útflutningsvöru. Tillag
HÆKKUN 1700 MILUÓHIR
FJÁRLAGAFRUMVARP ríkisstjórnarinnar fyrir árið 1964
var lagt fram á Alþingi á mánudaginn. Á sjóðsyfirliti frum-
varpsins eru niðurstöðutölur tæpl. 2.540.000 þús. kr. Hafa
fjárlög því hækkað um 1700 milljónir undir stjórn núver-
andi stjórnarflokka og með þessu frumvarpi hækka fjárlög-
in um 415 millj. kr, frá fjárlagafrumvarpi því, sem upphaf-
lega var lagt fyrir Alþingi í fyrra, eða 340 millj. miðað við
afgreiðslu fjárlaganna í fyrra, en þau hækkuðu mjög í með-
ferðinni.
Verklegar framkvæmdir munu, samkvæmt frumvarpinu,
ekki njóta hlutfallslegs framlags og í fyrra, því mörg fram-
lög eru óbreytt þótt dvrtíð hafi vaxið.
Þá eru niðurgreiðslur lækkaðar í fjárlagafrumvarpinu um
92 milljónir króna og hækkar vöruverð sem því nemur.
Engar álögur eru niður felldar í frumvarpi þessu — ekki
heldur þær, sem fyrr voru lagðar á til bráðabirgða og lofað
að fella niður. □
an var flutt af þingmönnum
í Norðurlandskjördæmi eystra.
Þessa ályktun þingsins byrj-
aði ríkisstjórnin að framkvæma
með þeim einkennilega hætti,
að leggja fram, án sérstakrar
heimildar eða áskorunar Alþing
is, stórfé til rannsókna á virkj-
unarskilyrðum Þjórsár við Búr
fell, alls 18 millj. kr. árið 1961—
1962.
Þegar Norður- og Austurland
tók að ókyrrast út af þessu, var
einnig látin fara fram athugun
við Jökulsá, en til þess aðeins
varið broti að þeim milljónatug
um, sem búið er að nota síðan
tillagan var samþykkt.
Enn hefur Alþingi ekki verið
gefin nein fullnaðarskýrsla um
það, hversu háttað sé fram-
kvæmd þingsályktunar frá 22.
marz 1961 um Jökulsárvirkjun-
ina.
Við fyrirspurn á Alþingi í
fyrra fékkst ekkert upplýst um
niðurstöðu. En ætla má, að Al-
þingi, en ekki útlent fjármagns-
fyrirtæki, eigi að taka ákvörðun
um val stórvirkjunarstaða hér á
landi. □
OPNAÐ A NÝ
RAFTKJAVERZLUNIN Raf er
opin á ný, í Geislagötu 12. Þar
hafa húsakynni verið lagfærð
og breytingar gerðar á verzlun-
inni. Gústav Jónasson rafvirkja
meistari rekur nú verzlun þessa
einn eftirleiðis. Q