Dagur - 16.10.1963, Síða 8
8
Fundargerð um heymjölsverk-
og
Baldur Halldórsson, bóndi og
bátasmiður, á Hlíðarenda og
nýjasti trillubáturinn hans, ný-
sjósettur. (Ljósmynd: E. D.)
Béiidi og báiasmiður á Hlíðarenda
Byggir bátana lieima
hjá
a ser 1
tómstundum
EKKI telst það til stórra tíð-
inda í höfuðstað Norðurlands,
þótt nýr trillubátur sé sjósettur
eða fari í sinn fyrsta róður, því
mönnum er gjarnt að horfa
fremur til þess, sem hærra ber
í flotanum.
Hinsvegar mun það sjaldgæft
orðið, að bændur smíði báta
heima hjá sér, langt uppi í sveit,
og selji sjómönnum. Þessvegna
má það fréttnæmt teljast, að
bóndinn á Hlíðarenda í Glæsi-
bæjarhreppi, Baldur Halldórs-
son, smíðar árlega góða trillu-
báta, allt að sex tonn að stærð,
a. m. k. þau ár, sem hann sjálf-
ur stendur ekki í byggingafram
kvæmdum heima fyrir.
Baldur er skipasmíðameistari
að iðn og stundaði skipasmíðar
þar til hann hóf búskap á Hlíð-
arenda fyrir 12 árum.
Um helgina var einn trillubát
ur Baldurs sjósettur hér á Ak-
ureyri, og er hann um 3 tonn
að stærð. Eigandi er Bjarni Þor
valdsson sjómaður, og fór hann
í sinn fyrsta róður á þessum bát
í gær, að því er blaðinu var
tjáð.
Mikil eftirspurn er eftir minni
og stærri tril! rbátum á Akur-
eyri, xví furðu margir bæjarbú-
ar stunda sjóróðra í hjáverkum
í þessum trillum og aðrir hafa
af >ví sínar. aðaltekjur. Um þá
sjómennsku má segja, að afli
þessara báta er oft drýgri, en í
fljótu bragði virðist.
Afi Baldurs bónda og skipa-
smiðameistara á Hlíðarenda, Ol-
afur Olafsson í Pálmholti, smíð-
aði einnig báta, meðal annars
smíðaði hann lítinn trillubát
uppi á lofti heima í Pálmholti
og var báturinn skírður Loftur.
Faðir Baldur, Halldór Ólafs-
son oddviti, smíðaði litlu eftir
1930, heima á Búlandi, 18 feta
árabát. Efnið í hann kostaði 100
krónur og vinnan jafn mikið.
Nú kostar álíka bátur um 9 þús.
krónur. □
ÁR 1963, föstudaginn 11. okt.
kom bæjai'ráð Húsavíkur ásamt
hreppsnefnd Reykjahrepps sam
an til fundar á skrifstofu bæjar
stjóra Húsavíkur.
Á fundi voru: bæjarstj. Ás-
kell Einarsson, Ásgeir Kristjáns
son, Páll Kristjánsson (í fjar-
veru Jóhanns Hermannssonar),
Ingimundur Jónsson, Atli Bald-
vinsson, Jón Þórarinsson og Vig
fús Jónsson, þrír þeir síðast-
töldu í hreppsnefnd Reykja-
hrepps.
Þetta gerðist á fundinum:
Bæjarstjóri, Áskell Einarsson,
gerði grein fyrir því í hvaða
tilgangi hann hefði boðað til
fundarins, en fundinn hafði
hann boðað til umræðu um
möguleika á heymjöls- og fóð-
urkögglaframleiðslu í sambandi
við ræktunar- og hitavatnsskil-
yrði í Reykjahverfi (þar með
Hvammsheiði).
Eftir umræður um málið var
svofelld ályktun samþykkt ein-
í'óma:
Grímseyingar öfluðu 700 fonn af ufsa
Unnið cr að margs konar framkvæmdum í landi
FRÉTTARITARI Dags í Gríms-
ey, frú Steinunn Sigurbjarnar-
dóttir, sagði blaðinu eftirfarandi
í símtali á mánudaginn:
f haust hefur fiskazt töluvert
þegar á sjó hefur gefið, en tíð
er fremur óstillt.
Sjómenn keyptu nót og báta
Snæfells á Akureyri í vor og
flestir trillueigendur unnu að
ufsaveiðum í sumar með ágæt-
um árangri. Þeir öfluðu um 700
tonn af ufsa og lögðu aflann
upp á ýmsum stöðum norðan-
lands, en lítilsháttar var saltað
í heimahöfn. Þessar veiðar hafa
því gefið mjög góða raun og til-
raunin heppnazt betur en flestir
þorðu að vona í upphafi. Ufsa-
veiðunum lauk í ágústlok og vax'
þá farið að róa á trillunum.
Auk framangreinds aflamagns
létu þeir oft aðra hafa ufsa, ef
þeir fengu meira en þeir megn-
uðu að flytja til lands.
Að ýmsum fi'amkvæmdum er
unnið í landi. Má þar fyrst
nefna viðgerð hafnargai'ðsins,
sem skemmdist í vetur. Þá hef-
ur grunnur nýja félagslieimils-
ins verið tekinn og á að fara að
steypa í rásir. Og verið er að
ljúka byggingu þriggja íbúðar-
húsa. Fiskvinnsluhús Haraldar
Jóhannssonar er langt komið.
Sauðfé var smalað s.l. þriðju-
dag og heimtist vel, enda ekki
mikið víðlendi hjá okkui'. 8—
900 fjár voi’u á fjalli og féð
gengur allt á eyjunni, enda nóg
gras og langt frá því að vera
bitið upp. Menn leggja vel til
búa sinna og útibú KEA tekur
einnig kjöt til söltunar. Eyja-
búar eru sjálfum sér nógir hvað
mjólk snertir og eiga nú um 20
nautgripi.
Fólki fækkar ekki. En það
hefur staðið í vegi fyrir innflutn
ingi fólks, að húsnæði hefur
vantað. □
Aðeins 4 arnarhjón verpiu
í FRÉTTATILKYNNINGU frá
Fuglaverndarfélagi íslands seg-
ir, að á þessu ári hafi aðeins
fjögur arnarhjón vei'pt og kom
Skólinn á Hrafnagili
BARNASKÓLINN í Hrafnagils
hreppi tók nýlega til stai'fa. —
Kennsla fer fram í gamla fund-
ai'- og samkomuhúsinu á Hrafna
gili og hefur það verið endur-
bætt. Laugai-vatn er notað til
upphitunar.
Skólabörnin eru 53 talsins.
Skólastjóri er frú Edda Eiríks-
dóttir og einnig kennir við skól-
ann Aðalgeir Aðalsteinsson
kennari frá
Reykjadal.
Stóru-Laugum í
□
ið upp samtals 6 ungum. Árið
1959 hafi ai’narhjón verið 8 og
ungai', er komust á legg, 12.
Á þessu ári fundust 4 full-
orðnir ernir dauðir, þar af einn
við eitrað hræ. Áður voru aðal-
varpstaðir arnanna á Vestfjarða
kjálkanum. Á því svæði komst
aðeins einn ungi úr hreiðri nú
í vor.
Eitrun var lögboðin á Alþingi
1957. Hún leiðir til algerrar út-
rýmingar þessa fugls.
Þegar fiskiöi’ninn tók sér ból-
festu á Bretlandseyjum fyrir
nokkrum árum, þótti svo mikið
við liggja, að þar voru settir
varðmenn allt árið til þess að
búa fuglum þessum frið.
(Framhald á blaðsíðu 5.)
ALÞINGI var sett 10. þ. m. eftir
að alþingismenn höfðu hlýtt
messu í Dómkirkjunni, er séra
Óskar Þorláksson flutti.
Daginn eftir fóru venjulegar
kosningar fram á Alþingi. For-
seti sameinaðs þings var kosinn
Birgir Finnsson, Sigurður Óli
Ólafsson forseti efri deildar og
Jóhann Hafstein forseti neðxú
deildar.
Sú heildarbreyting er á Al-
þingi nú, að aðalstjórnai'and-
stæðingurinn, Framsóknai’flokk
urinn, telur 19 þingmenn í stað
17 áður. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur sömu þingmannatölu og
áður, en Alþýðuflokkur og Al-
þýðubandalag hafa einum færri
en áður. Stjórnarliðið hefur 32
af 60 þingsætum og heldur því
meirihluta, þótt veikari sé en á
síðasta þingi. □
ÚTVEGSMANNAFÉLAG EYJAFJARÐAR VAR
STOFNAÐ SL. LAUGARDAG Á AKUREYRI
Á LAUGARDAGINN stofnuðu
útvegsmenn við Eyjafjörð deild
í Landssambandi íslenzkra út-
vegsmanna, Utvegsmannafélag
Eyjafjarðar. Áður höfðu flestir
útvegsmenn á þessu svæði ver-
ið í LÍU, en sumir þeirra sem
einstaklingai’.
Með félagsstofnun þessari
s'tyrkja útgex’ðarmenn aðstöðu
sína til sameiginlegra hagsmuna
mála, svo sem til kjarasamn-
inga.
í stjórn Útvegsmannafélags
Eyjafjarðar voru þessir menn
kosnir: Valtýr Þorsteinsson út-
Stofnfundui’inn var haldinn
að Hótel KEA.
gerðarmaður á Akureyri, for-
maðux’, Bjarni Jóhannesson
skipstjóri Akureyri, Leo Sig-
urðsson útgerðarrrjaður á Akur-
eyri, Magnús Gamalíelsson út-
gerðai-maður í Ólafsfirði og
Kári Sigfússon útgei’ðarmaður á
Dalvík. □
18!
„Bæjai-ráð Húsavíkur og
hx-eppsnefnd Reykjahrepps
beina því til alþingismanna úr
Norðui’landskjördæmi eysti’a,
að hlutast til um að athugaðir
séu möguleikar til þess að koma
upp fóðuriðnaði í sambandi við
nýtingu jarðhitans í Reykja-
hverfi.
Bæjarráð og hreppsnefndin
leyfa sér að benda á að í Reykja
hvei’fi og á Hvammsheiði eru
óvenjulega góð skilyi’ði til stór-
felldrar og samfelldi’ar í-æktun-
(Fi-amhald á blaðsíðu 4).
EYJAR VIÐ ISLAND
KJARTAN Ó. BJARNASON
sýnir kvikmyndir í Nýja Bíói á
Akux’eyi’i á fimmtudag og föstu
dag með ofanskráðu heiti. En
myndii’nar eru margs konar,
svo sem af fegui’ðarsamkeppni
kvenna 1963, hindiunarhlaupi
hesta í Berlín, þar sem m. a. ey-
firzkir hestar spi’eyta sig. Aðal-
efnið í sýningu Kjai’tans er þó
frá eyjum við ísland, svo sem
Viðey, Vigur, Æðey, Grímsey,
Hrísey, Drangey, Skrúð o. fl. □
Níræður
kvenskörungur
HALLDORA BJARNADOTT-
IR, sú eina og saxxna með því
nafni og allir landsmenn
þekkja, varð niræð mánudag-
inn 14. október sl. Hennar hef-
ur verið minnzt rækilega í blöð-
um, svo sem vera ber. Dagur
sendir liinni níræðu sónxa- og
merkiskonu beztu afnxælis-
kveðjur og þakkir fyrir ágæt
kynni í áratugi. □
TVEIR NYIR
GUÐFRÆÐINGAR
FYRRA mánudag fluttu tveir
guðfræðikandidatar prófprédik-
anir sínar í kapellu Háskóla ís-
lands, þeir Bolli Gústavsson frá
Akureyri og Lárus Guðmunds-
son. □