Dagur - 13.11.1963, Qupperneq 8
Bændaklúbbiirinn fór vel af stað
A fyrsta fundi hans mættu um 180 manns
MÁNUDAGINN 4. nóvember
fjölmenntu eyfirzkir bændur
svo á fyrsta Bændaklúbbsfund
sinn á Hótel KEA, að aðalsalur
hótelsins var þéttsetinn og
margir urðu að standa.
Frummælandi var dr. Hall-
dór Pálsson búnaðarmálastjóri.
En Ármann Dalmannson stjórn
aði fundi og gat þess í upphafi,
sem Eyfirðingum er kunnugt en
mörgum þykir með ólíkindum,
að Bændaklúbbur Eyfirðinga á
sér enga stjórn, engin lög, eng-
án skráðan félaga, enga pen-
inga, enga fundargerðabók, en
er þó svo vel sóttur af bændum
héraðsins, sem raun ber vitni.
Á þessum fyrsta fundi voru 180
manns.
Dr. Halldór Pálsson flutti
þarna athyglisvert erindi. Vék
hann fyrst að því, að bændur
ættu í vök að verjast vegna þess
að þjóðfélagið skildi ekki gildi
bændastéttarinnar. — Jafnvel
væri svo langt gengið í þéttbýl-
inu, að bændur væru ásakaðir
um lítil afköst. Væri þetta hinn
fáránlegasti misskilningur, því
að framfarir og uppbygging, svo
og framleiðsluaukning landbún-
aðarvaranna, vitnuðu um þetta
svo ekki þyrfti um að villast.
Nefndi hann tölur í því sam-
bandi, bæði í byggingum, rækt-
un og framleiðslu. En framfarir
bænda væri því athyglisverð-
ari, sem hagur þeirra hefði jafn-
an verið þröngur og væri enn.
En stéttin, sem heild, hefði jafn-
an verið spai'neytin og bændur
hefðu árlega lagt mikið 1 fjár-
festingu, þótt meðaltekjurnar
væru lágar.
En íslenzkir bændur eru ekki
nógu miklir jarðræktarmenn,
sagði búnaðármálastjóri. Þrátt
fyrir alla ræktunina og hina
miklu möguleika til ræktunar,
Þeir, sem eru að byggja
í ÁRSLOK 1958 var bygg-
ingarkostnaður íbúðarhúsa
hér á Akureyri talinn sem
næst 850 kr. á rúmmetra. í
dag er hann talinn vera ná-
lægt 1600 kr., og nemur
hækkunin rúmlega 88%. í
árslok 1958 kostaði því 360
rúmmetra íbúð 306 þúsund
krónur. íbúð af sömu stærð
kostar í dag 576 þúsund
krónur.
Árið 1958 var hámarkslán
til íbúðarhúsa frá Húsnæðis-
málastjórn kr. 100 þús. á
íbúð, og þurfti því húsbyggj-
andi að eiga eða fá til láns
annarsstaðar 206 þús. krón-
ur. Þetta var mjög óhagstætt,
og þeir sem byggðu sér hús
á þeim tímum þurftu að
leggja sig alla fram til að
geta haldið íbúðum sínum,
og sumir urðu að gefast upp.
Nú er hámarkslán frá Hús-
næðismálastjórn til íbúða 150
þús. kr. á íbúð, og þarf því
húsbyggjandi að útvega sér
að láni eða eiga sjálfur 426
þúsund krónur. Þeir, sem
eru að byggja núna, vita bezt
hvernig gengur að fá pen-
inga að láni, og tíminn mun
skera úr um það, hvernig
mönnum gengur að halda
íbúðunum, enda þótt þeim
takizt að koma þeim upp.
í árslok 1958 voru verka-
mannalaun kr. 21.85, en eru
í dag kr. 28.00, og hafa á
þessu tímabili hækkað um
rúmlega 28%. Má því fara
nærri um, að þeir hafi ekki
safnáð digrum sjóðum til
húsbygginga, og sízt þegar
einnig er athugað, að dýr-
tíðin hefur vaxið langtum
meira en kaupgjaldið.
Þeir, sem um þessar mund-
ir standa í húsbyggingu, reka
sig hvarvetna á „viðreisnar11-
hindranir. Núverandi stjórn-
arstefna í efnahagsmálum er
alls ekki við það miðuð, að
ungt fólk geti stofnað heim-
ili í sæmilegu húsnæði, af
venjulegum láglaunatekjum.
Svo mjög hefur þjóðfélagið
brugðizt þeim fjölda karla og
kvenna, sem stofna vilja
heimili.
hefði mátt búast við enn meiri
afköstum á því sviði. Ræktun-
arframkvæmdir væru auðveld-
ari en byggingaframkvæmdir,
en ræktunin þyrfti að aukast
um helming á næstu 10 árum.
í búfjárræktinni væri um
greinilega framför að ræða og
stefni þar í rétta átt. Um fóðr-
un búfjár sagði dr. Halldór
Pálsson, að nokkuð skorti enn
á, að rétt væri fóðrað. Þó stæðu
kúabændur þar framar en sauð
fjárbændur. Því miður væri
fóðri stundum eytt til ónýtis, en
um of væri sparað á stundum.
Hann nefndi sem dæmi, að á
sumrin væri oft um vanfóðrun
að ræða, þ. e. kúnum væri ekki
alltaf látið í té nægilega gott
beitiland, miðað við hámarks-
afurðir. Hinn mikli árangur
kynbótastarfsins notaðist ekki,
ef fóðrun væri ekki í fyllsta
lagi bæði vetur og sumar. Bún-
aðarmálastjórúm sagðist sam-
gleðjast bændum með það, að
þeir ættu nú betri búpening en
áður, — búpening, sem skilað
gæti miklum og' góðum afurð-
um, svo sem sjá mætti.
Síðan vék búnaðarmálastjór-
inn að því, að bændastéttin
hefði of litlar tekjur, vegna þess
að störf hennar væru ekki rétt
metin. Hið takmarkaða kaup
bóndans yrði að nokkru að
verja til fjárfestingar ár hvert
og lánsfjárskorturinn væri til-
finnanlegur.
Ræðumaður benti ennfremur
(Framh. á bls. 2)
Land í
PÁLL H. JÓNSSON, formaður
Fræðsludeildar SÍS hefur und-
anfarið ferðazt á vegum Kaup-
félags Þingeyinga um félags-
svæðið, ásamt Finni Kristjáns-
syni kaupfélagsstjóra.
Þeir hafa boðað til funda á
mörgum stöðum og fengið á-
gæta aðsókn. Kaupfélagsstjór-
inn hefur flutt erindi, formaður
Fræðsludeildar ávarp og sýnt
auk þess fræðslukvikmyndir.
Fréttamyndir þær, er sýndar
voru, eru í sama flokki og „Vilj-
ans merki" og nefnast: „Land í
norðri“, sem er frá Norður-
FRÁ BÆJARSTJÓRN
FUNDUR bæjarstjórnar hald-
inn þriðjudaginn 5. nóv.1963.
Fyrst voru teknar fyrir tvær
fundargerðir bæjarráðs, frá 24.
og 31. okt.
Sjúkrahús. Á fundi bæjarráðs
þann 24. okt. mættu stjórnar-
formaður og framkvæmdastjóri
Fjórðungssjúkrahússins ásamt
Guðmundi Karli Péturssyni yf-
irlækni. Gerðu þeir grein fyrir
fjárhagsástandi og horfum
sjúkrahússins nú, svo og fram-
tíðaráformum, m. a. stækkun
sjúkrahússins. En sumar deild-
ir sjúkrahússins eru orðnar of
litlar, einkum röntgendeild,
sem brýn nauðsyn er að búa
nýjum tækjum. Einnig þyrfti að
koma upp sérstöku þvottahúsi
í sambandi við. sjúkrahúsið, og
gera uppdrætti og tillögur þar
að lútandi.
Nú er svo komið, að útgjöld
sjúkrahússins hafa hækkað mik
ið með vaxandi dýrtíð, en dag-
gjöld ekki hækkað að sama
skapi. Ef daggjöld hækka ekki,
mun hallinn á þessu ári verða
um 2V-í milljón krónur, og á
næsta ári um 4V2 milljón.
Bílastyrkir. Vegna hinna
nýju launasamninga, lagði bæj-
arráð til, að frá og með 1. nóv.
yrðu engir bifreiðastyrkir hjá
Akureyrarbæ og stofnunum
hans hærri en kr. 1500 á mán-
uði, fyrir notkun eigin bifreiða
í þágu starfs síns. Bæjarráð
setji nánari reglur um bifreiða-
styrki þessa.
Allmiklar umræður urðu um
þetta má á fundi bæjarstjórnar,
en bréf hafði borizt frá rafveitu
stjóra og bæjarverkfræðing, þar
sem athygli var vakin á að telja
megi tillögu bæjarráðs vafa-
sama, þar sem bifreið verði
ekki rekin fyrir minna en kr.
2000 á mánuði. Sjái þeir sér
ekki fært oð nota bifreiðir sín-
ar í þágu bæjarins fyrir þetta
gjald.
Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu
þessarar tillögu þar til reglu-
gerð hefði verið gerð.
Tilaga um að bærinn greiði
ekki bílastyi'ki fyrr en reglu-
gerð hefur verið samin.
Byggingalán. Um lán úr
byggingarsjóði sóttu alls 96, en
86 umsækjendum voru veitt
lán.
Til úthlutunar voru kr.
1.450.000.00, en úthlutað’ kr.
1.715.000.00, eða nokkru meira
fé en var í sjóði, vegna þess hve
margir húsbyggjendur eru
skammt á veg komnir. — Lánin
voru veitt í fjórum flokkum,
eða 10, 15, 20 og 25 þús. 25 þús.
hlutu þeir, sem eiga hús í bygg
ingu, alls 42, 20 þús. hlutu þeir,
er höfðu lokið byggingu á þessu
ári, en höfðu sótt í fyrra, alls
14. Út á gömul hús vóru veitt
10 og 15 þús., og höfðu um 30
umsóknir borizt.
Bæjarstjórn barst þakkarbréf
frá Agli Þórlákssyni.
Bæjarráð heimilar vatns-
veitustjóra að fá jarðfræðing til
athugunar á möguleikum til
vatnsöflunar, þar á meðal til að
framkvæma tilraunaboranir til
leitar að köldu vatni. — Vatns-
notkunin eykst ár frá ári, og
virkjanlegar uppsprettur í Hlíð
arfjalli eru nú að heita má full-
nýttar. Því þarf að leita nýrra
leiða til vatnsöflunar. Q
Fyrsta bílstjóranám-
skeiðið á Húsavík
Húsavík, 12. nóv. Hér er nokk-
ur snjór en lítið snjóaði fram
til dala. Samgöngur hafa enn
ekki truflazt. Óstillt tíð hefur
tafið byggingaframkvæmdir.
Hér stendur yfir námskeið bif-
reiðastjóra til meiraprófs. Nem-
endur eru um 40 talsins. Þetta
er fyrsta bifreiðastjóranám-
skeið á Húsavík.
Búið er að setja Norðurlands-
borinn upp við gömlu borhol-
una. En ennþá „vantar stykki“
í borinn.
Fara ógæfilep
Leifshúsum, Svalb.str. 4. nóv.
Sauðfjárslátrun lauk hjá Kaup-
félagi Svalbarðseyrar þann 11.
okt. Slátrað var rúmlega 12 þús
norðri
Noregi, og Þýtur í skógi, frá
Finnlandi.
Um 760 manns sóttu fundina.
Á því mun full þörf, að kynna
samvinnustefnuna í máli og
myndum. Þetta skilja Þingeying
ar manna bezt og láta sér annt
um alla samvinnufræðslu. Hið
mikla og margþætta hlutvei'k
samvinnufélaganna í landinu,
sem svara verður kalli tímans
á svjði viðskipta og menningar-
mála hverju sinni til hagsbóta
fyrir þorra landsfólksins — þarf
að kynna drengilega í hverri
sveit á íslandi og eins oft og
verða má. □
með skotvopn
und fjár, og er það á þriðja þús-
und færra en haustið 1962. Mis
munurinn liggur aðallega í því
hvað mikið fleiru fullorðnu fé
var slátrað í fyrra. Meðalvigt
dilkafalla var 14 kg. eða 400 gr.
minni en haustið 1962.
í fárviðrinu hinn 23. okt. sl.
fuku 12 plöntur af járni af ný-
byggðu fjósi á Svalbarði, og
hluti af fjárhúsþaki í Leifshús-
um. Heyvagnar fuku og brotn-
uðu á nokkrum bæjum. Annars
má segja að tjón af þessu ofsa-
veðri yrði vonum minna.
íbúar Svalbai'ðseyrar hafa
skýrt mér frá því, að áhafnir
sumra trillubáta, sem eiga leið
þar framhjá, fari í mesta máta
ógætilega með' skotvopn, jafn-
vel svo að tilviljun ein hefur
ráðið því að ekki hafa orðið
slys á mönnum eða búfé. Hér
munu þó ekki fiskimenn Akur-
eyrar vera að verki. S. V.