Dagur - 22.12.1963, Síða 5

Dagur - 22.12.1963, Síða 5
JÓLABLAÐ D AGS 5 BERGUR í DAL: Ast á jólanótt ég hefði farið þarna fram af, verð- ur ekki fullyrt, en líklegast er, að annað hvort hefði ég stórslasast eða það hefði riðið mér að fullu. Frá þessu segir svo í rímunni: Þarf á landi þessu hug að þræða granda ljalla, og beggja handa hengiflug og hvergi vandi að falla. Hætta er mörg á hálli leið, hretin örg ei lýsa. Fyrir björgum fremja seið flögð í hörgum ísa. Fjalls í þrenging helzt er hlíf, að huldir strengir dugi. Þriggja drengja lengi líf lafði á hengiflugi. Nú þegar við vissum um hættuna höfðum við betri gát á. Fjallið fór nú líka ört breikkandi. Við kom- umst suður að mælingarvörðunni meðan ennþá var fulldimmt, en ekki urðum við varir við nein elds- upptök eða neitt, er beirti til elds- uppkomu. Við dvöldum við vörð- una þar til ljóst var af degi, en hurfum þá aftur sömu leið. og við komum. Ekki bar þá neitt til tíð- inda annað en það, að við lentum á hörðurn hjarnfönnum norðan í fjallinu, en björguðumst slysalaust í tjaldstað. Biðum við þá ekki boðanna, en tókum upp tjaldið, týndum saman dót okkar og héldum til byggða. Bifreið sótti okkur suður undir fjallið, og komum við heim um kvöldið. Þá var Þorláksmessa 23. desember. Frá þessu segir svo í rímunni: Hirtu tól og brutu upp ból, — buldi í hólum gjóla —. Runnu á hjólum heim í stól að hringasóli jóla. ÞAÐ ER aðfangadagur jóla. Hrein mjöllin þekur svæðið umhverfis sjúkrahúsið. Marglitar ljósaperur bærast í vindinum utan við glugg- ana. Yfirlæknirinn og kandidatinn koma út úr skurðstofunni til að þvo sér og hafa fataskipti. Aðgerðinni er lokið. Það er komið fram yfir miðnætti. Þegar þeir eru að ljúka við að þvo sér, segir yfirlæknirinn: — Svo legg ég blátt bann við því, að fleiri beinbrjóti sig í nótt. — Hvert á að skila því, yfirlækn- ir? —r- Til máttarvaldanna. — Ég er ekki viss um, að ég nái sambandi þangað. — Biddu þá Rósu að skila því. Hún er mild og kærleiksrík og hlýt- ur að hafa samband við himnaföð- urinn. — Það skal gert. — Og skilaðu einnig til hennar, að hún rnegi ekki gleyma að hugsa um þennan síðasta sjúkling fyrir neinu andskotans ,,keleríi“ í nótt. — Því skila ég ekki. —■ Hvers vegna ekki? — Af því að það væri móðgandi fyrir Rósu. — Þér er óhætt að skila því. Þær eru ekki neinir englar, blessaðar hjúkrunarkonurnar, þó að þær svífi um sakleysislegar í snjóhvítum skrúða. — Góða nótt og gleðileg jól. Hairn té)k í hendina á kandidat- inutn og þar með var hann rokinn á dyr. Rósa hjúkrunarkona gekk létt- fætt milli herbergjanna, til að grennslast eftir, hvort sjúklingarnir væru sofnaðir. Allir gangar voru skreyttir og lýstir. Ljós loguðu í öll- um sjúkrastofum eins og vant er á jólanótt og jólakarfa var við hlið hverrar rekkju. Jólatré voru í öll- um sjúkrastofum. Að þessu hafði starfsfólkið unnið af kappi undan- farna daga. Komið var frarn yfir miðnætti og flestir solnaðir. í einni sjúkrastof- unni sat gamall maður upp í rúm- inu og las í bók. Það var bóndi úr f jarlægri sveit. — Hvaða aðgerð fór fram á skurð stofunni í nótt?

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.