Dagur - 01.02.1964, Blaðsíða 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1166 og 1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Upplðusn í
efnahagslífinu
Leiðari: Upplausn í efnahagslífinu.
VIÐ. aðra umraeðu á Alþingi um
hækkun söluskattsins, sem nú er lög-
festur og eykur útgjöld fjögurra
manna fjölskyldu á íslandi um 6400
krónur á ári, sagði Helgi Bergs m. a.:
Viðreisnarstefnan hefur nú leitt til
upplausnar í islenzku efnahagslífi
svo að varla dylst neinum lengur, að
veruleg stefnubreyting hlýtur að
vera skammt undan. Með frumvarpi
þessu er gerð tilraun tif að smíða þá
hækju, sem núverandi stjómarstefna
geti stuðst við seinasta spölinn.
Viðreisnin var byggð á þeirri
grundvallarkenningu, að þjóðin
hefði lifað um efni fram og því væri
nauðsynlegt að takmarka kaupget-
una og það skyldi gert með því að
iryggja það, að verðlagshækkanir
yrðu meiri en kauphækkanir. Og
þó að mörg atriði stjórnarstefnunnar
hafi verið framkvæmd á aðra lund
en boðað var í upphafi, hefur ríkis-
stjómin jafnan verið þessu stefnu-
miði sínu trú. Dýrtíðarstefnan hef-
ur.ætíð verið höfð í hásæti hjá núver-
andi ríkisstjórn.
Með gengislækkuninni 1960 var
fyrsta stóra skrefið stigið á þessari
braut. Allt verðlag var stórlega hækk
að, og um leið var kaupgjaldið slit-
ið úr tengslum við verðlagsþróun-
ina. í meira en heilt ár hélzt óbreytt
kaupgjald þrátt fyrir verðhækkanir.
Þá tókust samningar um hóflegar
kauphækkanir í mesta aflagóðæri í
manna minnum, en jjeim svaraði
ríkisstjórnin með nýrri gengislækk-
un. Kaupgetan skyldi hlífðarlaust
takmörkuð með aukinni dýrtíð.
Ríkisstjórninni hefði raunar mátt
vera það fjóst, að faunjiegar mundu
ekki láta leika sig jjannig. Þegar
þeim var bannað með lögum að
tryggja kaupgetu fauna sinna með
því að tengja kaupgjald verðfagsvísi-
töfu, þá hlutu þeir að leita annarra
leiða til þess að reyna að tryggja
kjör sín í dýrtíðarflóðinu. Þetta gerð
ist með þeim hætti, að gifdistími
kjarasamninga varð mjög stuttur, og
feiddi það fljótt til gfundroða á
vinnumarkaðinum. Á árinu 1963
voru almennir kjarasamningar verka
lýðsstéttanna aðeins í gildi Wi mán-
uð, en TVz mánuð var samningslaust
og almennar kauphækkanir urðu
þrívegis á þessu eina ári. Þannig
lýstu afleiðingar dýrtíðarstefnunnar
sér á þeim vettvangi. □
Úr afmæli Bernharðs Stefánssonar.
Hrunið á íslenzka gjaldmiðk
i u u m verður að stöðva strax,
segir Bernharð Stefánsson, fyrrv.
alþingismaður, í viðtali við blaðið
HINN þjóðkunni þingmaður Eyfirðinga og fyrrum þingforseti,
Bemharð Stefánsson, átti 75 ára afmæli hinn 8. janúar sl. Margir
heimsóttu hann, endumýjuðu gömul kynni, færðu honum gjafir,
fluttu ræður og þágu veitingar á heimUi hans og frú Hrefnu Guð-
mundsdóttur, konu hans.
Nokkru síðar leit Bemharð
Stefánsson inn á skrifstofur
blaðsins, og voru þá lagðar fyrir
hann nokkrar spurningar, sem
hann svaraði góðfúslega.
Viltu leggja orð í belg um
„Uppkastið", bækumar Hannes
Hafstein eftir Kristján Alberts-
son?
Eg hef sent Tímanum grein
um bækur Kristjáns Albertsson
ar, sem bera nafnið Hannes Haf
stein, ævisaga, og hef ekki
miklu þar við að bæta. Eg var
nú ekki með uppkastinu, strák-
urinn, 19 ára. Eg trúði á skiln-
að. Þegar Norðmenn skildu við
Svía hafði það ekki alvarleg eft
irköst. Eg vildi að íslendingar
færu eins að. Eg hélt, að fyrst
Svíar réðust ekki á Norðmenn,
mundu Danir heldur ekki beita
okkur öfbeldi. En við vorum nú
bara alls ekki færir um skilnað
þá, en það vissi ég nú ekki„
strákurinn. Eg var með Hannesi
Hafstein, en ekki með uppkast-
inu.
Var Hannes eins mikið glæsi-
menni og af var látið?
Já, hann var það. Náttúrlega
þekkti ég hann ekki mikið, en
sá hann oft og heyrði, t. d. á
kjörfundinum, þegar hann var
kosinn. Þá byrjaði mín hrifn-
ing af honum. Nútímamenn
geta ekki gert sér hugmynd
um, hvers konar persóna þetta
var. Hann bar svo af öllum, sem
ég hef séð. Ég hef engan mann
séð, sem að í sjón jafnast á við
hann, bæði að tíguleik og fríð-
leik og hef ég nú eins og þú
veizt, séð margt af stjórnmála-
mönnum t. d. á Norðurlöndum,
þetta var 1903 og hann upp á
sitt bezta, e. t. v. aðeins of feitur,
og karlmenni var hann, það
sýndi hann þegar Englendingar
ætluðu að drepa hann.
Hannes var um tíma á Akur-
eyri?
Hannes var hér á Akupreyri
mikinn part úr ári 1910, tók þá
við bankastjóm hér, þá sá ég
hann næstum daglega. Seinast
sá ég hann á fundi í Staðar-
tungu 10 árum eftir að ég sá
hann fyrst, 1913. Þá var hann
enn sama glæsimennið, en svo
féll hann saman, einmitt það ár.
Hann missti þá konuna.
Ég hef ekki trú á, að gömlu
Valtýingarnir hafi í raun og
veru verið miklar frelsishetj-
ur, 1908. Hinsvegar efast ég
ekkert um landvarnarmennina.
Valtýingarnir gengu 4 árum
seinna í flokk, sem hét Sam-
bandsflokkur og vildu þá styðja
„uppkastið", með örlitlum
breytingum. Ég var við nám í
Reykjavík vorið 1912. Þá var
ég á fundi, þar sem Einar Hjör-
leifsson Kvaran hélt langa og
mikla ræðu um sambandsmál-
ið og var þá að mæla með
„bræðingnum", sem var í raun
og veru „uppkastið“, með ör-
litlum breytingum. Hann var
búinn að tala nokkuð lengi og
talaði um, hvað þetta væri
ágætt, með breytingunum, þá
hrópaði Sigurður Guðmunds-
son, síðar skólameistari: „Það
hefði nú mátt sjá þetta fyrr.“
„Það er alveg rétt,“ sagði Einar,
„það hefði mátt sjá það fyrr.
Það má segja það um svo margt.
Það má segja, að guð hefði get-
að skapað heiminn fyrr en hann
gerði. Það hefði mátt segja, að
ísland hefði átt að byggjast fyrr
en það gerði. Og það má
kannske ímynda sér, að Sigurð-
ur Guðmundsson hefði getað
orðið magister fyrr en hann
gerði“.
Ég geri mikinn greinarmun á
Valtýingunum gömlu, sem lét-
ust vera frelsishetjur 1908, og
landvarnarmönnunum, sem
meintu það, sem þeir héldu
fram. Ég var nánast landvarn-
armaður á þeim árum, þó ég
dáði Hannes Hafstein. Ég gerði
auðvitað aldrei neitt með ríkis-
ráðsákvæðið, enda sýndi það
sig að vera skaðlaust. Ég er viss
um, að þótt „uppkastið“ hefði
verið samþykkt, væri ísland
lýðveldi nú.
Hvemig lízt þér á stjómniál-
in nú?
Illa.
Á hvað lízt þér verzt?
Þetta sífellda hrun á íslenzk-
um gjaldmiðli. Ég vann við
banka í 30 ár, eins og þú veizt.
Síðan er mér vel kunnugt um,
hverjir eiga spariféð. Það eru
ekki ríku mennirnir. Þeir hafa
ekki sína peninga í bönkum,
nema rétt í hlaupareikningum,
til daglegra nota. Nei, það er
sparsamt, bjargálna fólk, sem er
að safna sér til einhvers ákveð-
ins, svo sem til elliáranna, eða
til að byggja hús. En pening-
arnir rýi-na og rýrna.
Hvað er til ráða, Bemharð?
Ég held að þjóðin þyrfti að
fara að eitthvað svipað og Hall-
dór Snorrason. Það var gengis-
lækkun líka, þegar Haraldur
Sigurðsson blandaði peningana
með tini og var kölluð Haralds-
slátta. Þegar Halldór fékk sinn
mála, þá kastaði hann málan-
um í hálminn og vildi ekki
þiggja. Hann kúgaði síðan
hring af drottningunni, ekta
gullhring.
Það, sem gerst hefur hér á
landi, er beint rán á ■ vissum
hluta landsmanna, og engir
aðrir verða fyrir. Fólkið, sem
lagði peninga í banka fyrir
nokkrum árum, í einhverju sér-
stöku augnamiði, hefur verið
rænt stórkostlega. Þetta lízt
mér verzt á. Núverandi stjórn
stendur vitanlega fyrir þessu,
hvorí sem hún hefur ætlað að
vinna svo illt verk eða ekki.
Nú er svo komið, að allt
bankakerfið er orðið að einum
banka, með útibúum, sem verða
að hlýða. Bankinn, sem ræður,
er Seðlabankinn. Lántakendur
fá neitun í peningastofnunum,
en ganga í þess stað fyrir dyr
vina og ættingja, sem einhverj-
ar krónur eiga, til að fá þær lán-
aðar. En það eru ekki allir svo
gæfusamir að geta fengið fé hjá
vinum og kunningjum. Þeir
fara þá, t. d. í Reykjavik, til
okraranna. Þar verða þeir að
skrifa undir skuldabréf á miklu
hærri upphæð, en út er greidd.
Ég held að liggi lífið á að stöðva
þessa þróun, og það verður ekki
gert með söluskatti Því sölu-
skattur á allar vörur verkar
eins og gengisfelling.
Þú fæst við ritstörf?
Já, ég er búinn að skrifa síð-
ara bindi endurminninga minna,
hvenær sem það kemur nú út.
Ég ætlaði helzt ekki að láta
þetta bindi koma út fyrr en eft-
ir minn dag. En þó er pressað
á mig. Svo er ég að reyna að
rannsaka sögu Eyjafjarðar, en
sáralítið hefi ég skrifað, og það
gengur mér illa vegna heimild-
arskorts, einkum frá lokum
þjóðveldisins og allt fram á 18.
öld. Ég geri þetta mér til af-
þreyingar, en býzt ekki við að
það verði öðrum að gagni. Ann-
ars skil ég það svo, að ég eigi
að hvíla mig, samkvæmt ríkis-
boði og áf öðrum ástæðum eft-
ir sjötugt.
Hvð finnst þér um að flytja
Alþingi til Þingvalla?
Mér fannst allan minn þing-
tíma að Reykjavíkingar rækja
þingstörfin illa vegna þess að
þeir gengu að sínum störfum
ásamt þingmennskunni. Ég var
oft nefndarformaður, og þegar
maður hafði Reykvíkinga með í
nefnd, var næstum ómögulegt
að koma á fundi. Einn gat ekki
mætt á þessum tíma, annar
ekki á hinum. Þetta voru vand-
ræði. Ég leit svo á, þegar ég
var meðflutningsmaður að til-
ögu um að flytja þingið til Þing-
valla, að þar sem allir yrðu að
búa þar, yrði þingið miklu
styttra. Nú er þetta á þann veg
breytt, að samgöngur hafa batn-
að. Þingmenn úr Reykjavík
færu sennilaga heiman og heim
á bílum eða í þyrlum. Á Þing-
völlum yrði Alþingi ekki eins
truflað af áróðri höfuðstáðar-
búa, svo sem raun ber vitni.
Þingið hefur ekki alltaf starfs-
frið í Reykjavík, og því hefur
■ verið ógnað þar. Það er sv’o
sem ekkert sjálfsagt, að Alþingi
og ríkisstjórn sé endilega í
fjölmennasta stað landsins.
Nýlega var eftir þér haft, að
hvort tveggja væri hálf-bölvað,
að vera kvæntur og vera
ókvæntur?
Mér hefur alltaf þótt gott að
vera giftur, svo ég gat aldrei
hafa sagt það, sem í þessu til-
felli er eftir mér haft. Hinsveg-
ar hefur einhver, mér vel kunn-
ugur, búið þetta til, því orða-
lagið er ekki ólíkt mínu.
Blaðið þakkar viðtalið.
Meira en helmingur sjávarafians
norðanlands og ausfan 1962
í NÝTJ TKOMNUM Hagtíðind-
indum er birt skýrsla um sjáv-
arafla íslendinga á árinu 1962,
sundurliðuð eftir fiskihöfnum
(vinnsluhöfnum), sem þarna
eru taldar sextíu á árinu
1961—1962.
Það er stórathyglisvert, sem
þarna kemur fram, að meira en
helmingur landsaflans kemur í
höfn á Norður- og Austurlandi.
Landsaflinn, sem unnið var úr
hér á landi var rúmlega 711 þús.
tonn, en aflinn norðanlands og
austan, milli 373 þús. og 374
þús. tonna. Þarna er þorskafl-
inn talinn „slægður með haus“,
en síld, karfi o. fl. upp úr sjó,
óslægður. Hér er nokkur mun-
ur á, sbr. grein Gísla Guðmunds
sonar „Sjávarútvegurinn um
áramót“ í Degi 18. jan. í þess-
um landshlutum er líka helm-
ingur fiskihafnanna.
Sjávaraflinn norðan og aust-
an 1962, sem unnið var úr hér
á landi, að meðtalinni síld,
skiptist þannig milli (30) hafna
á Norður- og Austurlandi:
Tonn
Skagaströnd ............ 5.883
Sauðárkrókur............ 3.279
Hofsós.................... 603
Haganesvík................. 43
Siglufjörður ..........114.396
Ólafsfjörður ........... 9.503
Akureyri............... 16.927
Grínisey ................. 525
Dalvík .............. 5.267
Hrísey................. 3.245
Hjalteyri............. 14.103
Árskógsströnd ........... 910
Húsavík ............... 8.488
Grenivík (talið annars staðar)
Flatey ................. .211
Kópasker ................ 380
Rauíarhöfn............ 59.143
Þórshöfn .............. 3.100
Seyðisfjörður ........ 20.563
Bakkafjörður .......... 1.670
Vopnfjörður .......... 32.129
Borgarfjörður............ 636
Neskaupsstaður ........ 35.613
Eskifjörður............ 12.038
Reyðarfjörður .......... 4.035
Fáskrúðsfjörður (Búðir) 11.759
Síöðvarfjörður ......... 1.829
Breiðdalsvík ............. 923
Djúpivogur.............. 1.241
Homafjörður (Höfn) .. 4.977
Á nokkrum stöðum er mikill
meirihluti aflans eða jafnvel
mestallur aflinn síld, á mörgum
stöðum blandaður afli og á
nokkrum stöðum eingöngu eða
mestmegnis þorskafli, svo sem
kunnugt er.
Hér að framan..vantar þann
afla, sem fluttur var til útlanda
óunninn með fiskiskipum (ís-
fiskur), en hann var á árinu
1962 rúml. 38 þús. tonn. Þessi
afli skiptist á skýrslunum milli
26 hafna, eftir skráningarstað
skipa, og kom mjög lítið af hon-
um af Norður- og Austurlandi
(um 15%), mest frá Akureyri,
3192 tonn og frá Siglufirði 1748
tonn. Að meðtöldum útfluttum
fiski, óunnum, var landsaflinn
nálega 750 þús. tonn (samkv.
alþjóðaskýrslum 832 þús. tonn
upp úr sjó). Þrátt fyrir það er
meirihluti alls landsaflans, eft-
ir því sem skýrslur Hagstofunn-
ar segja, norðanlands og austan.
Ekki byggist það á sjávarafl-
anum, að mikill meirihluti þjóð
arinnar hafi bólfestu suður við
Faxaflóa. □
AÐ GEFNU TILEFNI,
vinsamlegu samtali hr. Stein-
gríms Sigursteinssonar við mig
út af grein minni, sem birtist í
síðustu fokdreifum „Dags“, vil
ég taka fram og lýsa yfir: Ég
tel, að miðill í dásvefni (trance)
beri enga ábyrgð á þeim boð-
skap, sem þá er fluttur í gegn-
um hann, ekki fremur en sof-
andi maður á draumum sínum
eða símþráður á skeytinu, sem
mennirnir senda eftir honum
með krafti rafmagnsins. Ég tel
hið sama gilda um vitund
mannsins í vöku, ef dulin öfl
taka þá af honum ráðin, svo að
hann sér sýnir eða spáir.
Hins vegar tek ég fram, að
ég tel það ábyrgð mannsins,
hvort hann gerir miðilsstarf að
atvinnu sinni eða ekki eða
hvort hann trúir eða trúir ekki
þeim boðskap, sem fluttur er
handan yfir gegnum miðla eða
frá Guði fyrir spámannlegar
ritningar og son hans Jesúm
Krist. Grein mín var ekki hugs-
uð sem árás á nokkurn mann,
heldur kenningar, sem eru óvið-
komandi samtalinu í „Degi“ s.l.
vor.
S. G. J.
í 8. TÖLUBLAÐI Dags birtist
grein eftir S. G. J. um skeikula
spádóma frú Láru Ágústsdóttur
frá í vor, samanber viðtal, sem
birtist þá hér í blaðinu. Flest
hefur nú fram komið, er þar
var spáð. Til viðbótar skal þess
getið, að frúin sagði einnig frá
Surtseyjargosinu, mjög skil-
merkilega, en þeim kafla og
fleiru, sem síðar hefur komið
fram, var kippt út úr viðtalinu,
til að valda ekki hræðslu meðal
fólks. Þetta var skjalfest þá og
er enn til.
Þetta er sagt af framan-
greindu tilefni, þótt blaðið
blandi sér ekki að öðru leyti
í rökræður um dulræn efni eða
trúarbrögð.
Ritstjóri.
Hið eina af því tagi, sem hann gat liðið og talað um, var orgelspil.
Allt annað af listrænu tagi var bannfært og bannlýst á okkar heimili.
Eg lét undan vegna mömmu — til þess að forðast erjur og ófrið
heima.
Þetta féll niður af sjálfu sér, þegar við faðir þinn kynntumst og
giftum okkur. En þegar þú komst til sögunnar og fórst að stálpast,
blossaði leikhússáhuginn upp í mér á ný. Og síðan hafði ég á þér
vakandi auga, Iðunn. Ég sá að þú lékst sjónleiki þegar í bernsku
með jafnmikilli alvöru og móðir þín. Og ég sá þig leita uppi lýrisk
ljóð í bókaskápunum og lesa með sömu hrifni og tilfinninganæmi og
ég á þínum aldri. Hér var aðeins sá munurinn, að faðir þinn hafði
ekkert á móti þessum áhuga þínum. Hefir líka sennilega haldið, að
þetta væri vist aðeins æsku-hughrif hjá þér. Þú fékkst líka að reyna
þig á marga vegu. Við létum þig fá bæði danskennslu og músík-
kenslu. Og þú varst jafn áhugasöm um allt þetta. Það er satt. —
Æjá. Iðunn man vel, hve áhugasöm hún hafði verið um allt þetta,
sem hún fékkst við um þessar mundir. Og hún man líka, hve hana
Iangaði til að sýna og birta það, sem hún hefði lært. Henni datt ekki
í hug að læra þetta aðeins til eigin skemmtunar. Hún bauð sig óðar
fram til að skemmta öðrum. Og nú verður Iðunni hugsað til síðasta
kvöldsins heima. Þá hafði móðir hennar sagt henni frá listamanns-
draumunum sínum.
— En svo slóstu slöku við bæði dansi og músík, þegar þú fórst
fyrir alvöru að fást við lýriskan skáldskap, hafði móðir hennar sagt.
Þú varst svo sólgin í að læra raunverulega upplestrarlist. Og þegar
þú hófst upplestur í sumarfríinu hjá gömlu leikkonunni, sem dvaldi
á Hellulandi, þá vonaði ég að sjá framtíðarvonir mínar rætast hjá
þér.
Iðunn hafði bæði hitnað og kólnað við það, sem móðir hennar
hafði sagt henni þetta kvöld. Hún vissi, að þetta var satt, að hún
bar leiklistaráhugann leyndan í brjósti. Hún hafði því haldið upp-
lestrinum áfram hingað og þangað um sveitirnar. Áheyrendafjöldann
skeytti hún lítið um. Aðalatriðið var, að fólkið hlustaði á hana og
fylgdist með efni ljóðsins, sem hún kepptist við að gæða lífi og birta
hugsun skáldsins sjálfs. Hún minntist þess, er hún fór með karlakór
sveitarinnar á stórt bændamót í höfuðstaðnum og var beðin að lesa
upp í sönghléunum. Slíka gleði hafði hún aldrei áður lifað.
Eftir þetta var föður hennar víst ljóst, í hverja átt hugur hennar
myndi leita. Hann leyfði henni því að fara til höfuðstaðarins, en þar
átti hann góðan vin, sem var leikhúsmaður. Nú voru því heldur en
ekki góðar horfur fyrir henni átján ára stúlku með kollinn fullan
af leikhúss-heilabrotum. En um þetta leyti hafði hún orðið góð-
kunningi Jörundar frá Hellulandi. En hann hafði verið á bændamót-
inu mikla í höfuðstaðnum. Þau höfðu skemmt sér vel saman, spjall-
að og hlegið og ferðast með járnbrautalestinni bæði fram og aftur.
Og nú vildi svo vel til, að leikkonan gamla, sem dvalið hafði á Hellu-
landi um sumarið, vildi einnig fá að dveljast þar vetrarlangt.
Höfuðborgaráhuginn hvarf nú algerlega frá Iðunni í svipinn, fyrst
um sinn að minnsta kosti. I þess stað fór hún að Hellulandi tvisvar-
þrisvar í viku og las hjá leikkonunni. Og nú fékk hún gott tækifæri
AUÐHILDUR FRÁ VOGI:
| GULLNA BORGIN j
til að hitta Jörund. Og þeim tímum mun hún aldrei gleyma. Þá
hafði hún líka fengið að kynnast, hve sveitin og umhverfi Randar-
fjarðar er dásamlega fagurt. Þau Jörundur fóru oft um fjöll og
fimindi nágrennisins. Og kvöld eftir kvöld höfðu þau farið víða
og séð hundruð vatna blikandi í ljóma kvöldsólarinnar. Þá gengu
þau og héldust í hendur eins og börn og voru glöð og sæl. Á sunnu-
dögum fóru þau í langar göngur, og einu sinni alla leið upp að Ver-
mundarvatni, fengu þar bát að láni og reru út á vatnið og skemmtu
sér vel.
En hvernig fór nú með lýrisku ljóðin um þessar mundir? Urðu
þau aðeins eins konar átylla til þess að fara sem oftast yfir að
Hellulandi? Já, víst var það svo. Jörundur tók allan heimsóknar-
tíma hennar, og bæði hönd hennar og huga. Og nú þurfti hún ekki
að hafa neinar áhyggjur fyrir umönnun daglegs lífs. Foreldramir
vildu meira en gjama hafa hana heima, því annars varð heimilis-
lífið fremur einmanalegt, sérstaklega fyrir móðurina.
Iðunn undi sér vel í samvistum við Jörund og var mjög ham-
ingjusöm. Það var henni sælurík hugsun að geta hitt hann nærfellt
á hverju kvöldi við gömlu smiðjuna í hjáleigunni fyrir neðan Hellu-
land, finna hann taka utan um sig, smeygja sér síðan inn um lágar
smiðjudyrnar og finna hann kyssa sig svo fast, svo fast, og hendur
hans strjúka létt og þýðlega um hana, eins og hún væri dýrmætt
blóm, sem varla mætti snerta. Og svo að vita, að hér voru þau að-
eins tvö í gömlu smiðjunni, dimmri og hrörlegri. Aðeins ofurlitla
ljósskímu lagði ínn í gegnum gisna bjálkaveggina, — fara síðan
út í milt kvöldrökkrið og finna órólega spennu innra með sér, var-
irnar enn eldheitar eftir kossa Jörundar og finna blóðið hamra í
öllum æðum!
Hvernig stendur á því, að Iðunni skuli koma þetta allt í hug
núna? I dag þegar hún er á göngu með Björgu um bæinn glóbjart-
an sunnudaginn árdegis. Jú, hún hafði séð aftur gamla heimilið sitt,
og þá flæddu inn yfir hana endurminningarnar um síðasta kvöldið
í stórustofu hjá móður sinni á fullorðinsheimilinu austur við Rand-
arfjörð á Upplöndum. Þar sem móðir hennar hafði sagt henni, hafði
í rauninni endurvakið svo margt og mikið. Allt þetta sem legið hafði
leynt og dulið í huga hennar í nærfellt tvö ár, gaus nú upp á ný í
dagsins ljós og raskaði friði hennar á hljóðlátan, en heimtufrekan
hátt. Hún stóð enn á ný á vandráðnum vegamótum.
Iðunn og Björg eru nú komnar upp úr miðbænum. Þær fara með-
fram girðingu sjúkrahússins og standa dálítið við í sjúkrahússgarð-
inum. Dauft seytl heyrist frá lækjarsprænunni fyrir neðan lík-
neskið af drengunm og hafmeyjunni. Nú er enginn kraftur í lækjar-
sprænunni. Vatnsbunurnar fjórar eru orðnar að litlum ístöppum.
Og senn lamast allur lækurinn af kuldanum og helzt þannig langt
fram eftir vetri.
Iðunni virðist sem hún sjái örlagasamræmi milli sín og vatns-
þróarinnar þarna. Á nú listaþráin, móðurarfurinn hennar, að kólna
í henni. Dofna og deyja í henni. Lamast af kuldanum í hversdags-
starfi, sem henni er í raun og veru alls ekki hugleikið, og langt úr-
leiðis frá lífsköllun hennar? Nei! Þetta síðasta uppátæki hennar
með starfið í fegrunarstofunni má aðeins verða stuttur bráðabirgða-
þáttur. Á morgun, — já, einmitt á morgun. Guði sé lof fyrir, að
það er nýr dagur á morgun! Þá ætlar hún að fara á fund einhverrar
leikkonunnar hérna í bænum, verða nemandi hennar og lesa lýrikk
eða læra eitthvert hlutverk í sjónleik. — Gæti hún þá ekki farið
til frú Gilde? Hún hafði verið kunn Ieikkona, áður en hún giftist
og varð skotskífa bæjar-slúðursins. — Já. Hún ætlar að fara til
frú Gilde. — Dásamlegur dagur á morgun!
Björg hefir ekki mælt orð af munni langa hríð.
— Þú hefur vxst lent út á víðavanginn í huganum, Iðunn, segir
hún loksins.
— Já, segir Iðunn. — Ég hefi farið víða. — Ég vildi nærri því
óska, að ég gæti stundum verið algerlega hugsunarlaus. Mér myndi
raunverulega vera mikil hvíld í því!
— Þú ert mér sannarlega ráðgáta! segir Björg og opnar útidyrn-
ar heima hjá þeim.
V.
Sigríður fer heim á Ægissíðu um hverja helgi. Þegar hún sezt í
járnbrautarklefann laugardagskvöldið, dettur henni ósjálfrátt í hug,
hversvegna hún sé annars ekki kyrr í bænum um helgina og noti
tækifærið til að skemmta sér í góðum félagsskap. Því það sé ein-
mitt ó laugardagskvöldin, sem tækifæri gefst til margvíslegra góðra
skemmtana. En hún verður samt að fara heim í hvert sinn, er helg-
in kemur, því annars er hún of óróleg og eyrðarlaus til þess að geta
notið helgarinnar í bænum.
Heima búast allir við henni um helgar, foreldrar og systkin, og
afi gamli. — Og það gerir víst Lárus líka! — Æ-svei! henni gremst
öll þessi margfalda bið þeirra heima. Henni leiðist að hugsa til þess.
Það er annars ljóti aumingjahátturinn að hafa ekkert annað að hlakka
til en heimkomu hennar um hverja helgi.
Framhald.
/