Dagur - 08.02.1964, Blaðsíða 4

Dagur - 08.02.1964, Blaðsíða 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1166 og 1167 Ritstjóri og ábyrgðannaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Hið mikla „sigurverk” HIÐ MIKLA „sigurverk“ þeirra sjálfstæðismanna og krata, sem þeir sjálfir nefndu „viðreisn“ og nú er orðið með verri skammaryrðum, sem íslenzk tunga á, er alltaf að bila. Þetta átti að vera einskonar sjálf- trekkjandi verkfæri, sem fæli í sér Iausn allra meiriháttar meinsemda í efnahagslífi þjóðarinnar. Það átti að koma helztu atvinnuvegum lands- manna, svo sem landbúnaði og fiski- veiðum á traustan efnahagslegan grundvöll. Það átti að gera uppbæt- ur, niðurgreiðslur og hverskonar styrki og mismunun í sambandi við tímabundna erfiðleika, óþarfa með öllu. Það átti að gera álögur á al- menning til hins opinbera hóflegar. Það átti að tryggja verðgildi krón- unnar, svo maður ekki tali uin — kaupmátt launa, einkum liinna lág- launuðu í þjóðfélaginu. Það átti, með sínum undramætti, að drepa verðbólgudrauginn fyrir fullt og allt. Hið mikla „viðreisnar-sigurverk“, einskonar óskasteinn íslendinga, var loksins fundinn og í höndum þeirra manna, sem kunnu með að fara, enda var þá „leiðin til bættra lífs- kjara“ letruð yfir þverar síður blaða, strengd yfir þverar götur og jafnvel fest á bíla! Nú, eftir tæplega fjögurra ára stjórn íhaldsins, eru nokkrar þær staðreyndir öllum ljósar, sem vilja sjá. Þær eru m. a. þessar: Bændur fá í sinn hlut nokkrum tugþúsundum króna lægri tekjur, en þeim ber, samkvæmt landslögum, og eyðingarhætta heilla byggðarlaga dylst engum. Eftir metafla síðustu ára og hækkandi verðlags á sjávaraf- urðum erlendis, er sjávarútvegurinn á heljarþröm. Nýju söluskattslögin, sem í gildi gengu fyrir skömmu og hækka vöruverð, sem nemur 6—7000 kr. á hverja meðal fjölskyldu í land- inu, ættu að vera nægileg sönnun um það. I stað þess að afnema styrki og uppbætur, hafa niðurgreiðslur inn- anlands stórlega aukizt. Byrjað er að greiða uppbætur á allan fiskala lands manna. Alögur á almenning áttu að vera hóflegar mjög. Þær hafa til ríkissjóðs aukizt úr u. þ. b. 800 millj. í 3000 millj. króna á valdatíma nú- verandi stjómar, og íslenzka krónan er nú aðeins fárra aura virði. Verðbólgunni þreifa allir á og er það atriði þess eðlis, að ekki verður um deilt. Kaupmáttur launa er minni en hann var. Lífskjörin hafa verznað. „Sigurverkið“ liefur alltaf verið að bila, enda óskapnaður frá upphafi. Viðgerðakostnaðurinn er mikill, það sýna fjárlögin, (Framh. á bls. 7) ii 1111111 ■ 11111111 ■ ■ 1111 < 111 111111111 JÓNAS JÓNSSON ERÁ HRIFLU: . Molar um málefni sveitanna ÍSLENZKIR bændur hafa ár- um saman búið við hallæris kost hliðstæðan þeim sem launa menn ríkisins og útvegsmenn hafa nú fengið bætt úr um sinn. Bændur hafa ekki átt kost á að fá kaupafólk. I. Vel hirtar jarðir með mikilli túnrækt eru nær óseljanlegar. Bankalán eru í senn torfengin fyrir sveitamenn og vextir ris- háir. Verð búvörunnar er of lágt enda tengt böndum við verkamannastéttina sem semur eftir sínum þörfum og reglum um kaup við atvinnurekendur í þéttbýlinu og styður kaupkröf- ur sínar með vinnustöðvun þeg- ar henta þykir. Bæjarmenn hafa í bili tryggt fjárhagsafkomu sína með kjaradómum og 20 þúsund manna vinnustöðvun. II. Bændur standa nú með eign- ir og atvinnu mjög varnarvana í greipum dýrtíðar og verð- bólgu. Þeir hafa ekki beitt verð- stöðvunar tækninni og hafa þó ti! þess góða aðstóðu. En bænda stéttin hefur áður fyrr bjargast úr miklum háska með frartisýni og drengilegum úrræðum. Fyr- ir 40 árum var karakulpestin á góðri leið að leggja byggðirnar í auðn. Ovætturinn mætti eng- um vörnum sem að haldi komu. Þannig liðu 10 ár, þá svarf hall- ærið að allri bændastéttinni. Þá var tækifæri til að sýna alvöru í verki. Þá var í Degi borinn fram lífvænleg bjargráðstillaga til útrýmingar pestinni, fjár- skiptin. Norðlenzkir samvinnu- menn mynduðu heimastjórn í héruðunum og stýrðu bjarg- ráðunum með vaskleik. Dug- andi menn í stjórn og á þingi studdu málið og útveguðu ríkis- fé til fjárskiptanna. Þar voru í fremstu röð Vilhjálmur Þór, Bjarni Ólafsson, Pétur Magnús- son og Jón á Akri. Þessa sögu má endurtaka i nýrri og sigur- sælli útgáfu. Um nokkur undanfarin ár hefur bændastétt landsins búið við þau ókjör að geta ekki keppt um vinnuaflið við aðrar atvinnugreinar. Síðan það tíma- bil hófst hafa sveitaheimili næstum eingöngu orðið að byggja framleiðslustörfin á hjónunum, börnum þeirra og öðru nánasta vandafólki Þetta fyrirbæri var svo nýstárlegt að þjóðinni var lengi vel ekki ljóst hvert komið var.. Ennfrem ur hafa valdamenn þjóðfélags- ins síðustu mánuðina staðið fyr- ir óvenjulegum nýjungum. Sam tök launamanna í landinu höfðu undirbúið harðsnúna kjarabóta- og launahækkunarsókn. Gamla kerfið var vissulega úrelt og þarfnaðist umbóta, en það var bein skylda Alþingis og lands- stjórnarinnar að ráða fram úr þessum vanda með launalögum samþykktum af Alþingi, svo sem jafnan hafði verið. En nú gafst þjóðfélagið upp í þessu mikla máli. Svokölluðum kjara- dómi var falið úrskurðarvald um kjör og kaup starfsmanna ríkisins. Bæjarfélögin hafa fylgt í slóðina. Síðan hefur hvei' stéttin af annari í bæjunum gengið inn i fylkinguna, þar á meðal starfsmenn kaupmanna og kaupfélaga, þó að þeirri sögu sé nú ekki að fullu lokið. Næst gerðu samtök verka- manna allsherjar verkföll fyrir jólin. Tuttugu þúsund lögðu nið- ur vinnu. Að lokum létu stjórn- arvöldin og atvinnurekendur í bæjunum undan. Samið var um 15% launahækkun og vopna- hlé í 6 mánuði. Þegar hér var komið sögu töldu útvegsmenn og eigendur frystihúsanna, að atvinna þeirra gæti ekki borið kauphækkunina. Þeir voru skyndilega komnir í sömu að- stöðu og bændurnir hafa búið við í mörg undanfarin ár. III. Atvinnurekendur sneru sér nú til ríkisstjórnarinnar og Al- þingis og sögðu, það sem bænd- ur hefðu átt að vera búnir að segja fyrir mörgum árum, að þeir gætu ekki starfað undir þeim kringumstæðum að fram- leiðslan væri rekin með tekju- halla. Ríkisstjórnin og meiri- hluti Alþingis hugðust nú bæta úr þessu misrétti og hækkuðu söluskattinn þannig að sá tekju- stofn gæfi ríkissjóði 250—300 milljónir króna. Þá tóku útvegs menn og frystihúsaeigendur aft- ur til máls og sögðu að þetta væri ekki nóg hjálp. Togara- eigendur báru sig mjög illa, enda hafði Emil Jónsson sjávar- útvegsmálaráðherra viðurkennt á þingi nokkru fyrr að tekju- halli hvers togara á íslandi væri til jafnaðar 3!4 milljón króna á ári. Nú var fylgt svo fast eftir með hina nýju kröfu að stjórnin og þingið hækkar enn söluskattinn um 30—40 milljónir. Að líkindum verður látið hér við sitja og freistað að léiða sjávarútveginn gegnum erfiðleika hins nýbyrjaða árs með þessum gýfurlegu endur- borgunum. IV. Fram að þessu hafa valda- menn landsins talað líkt og Gylfi Gíslason landbúnaðarráð- herra að landbúnaðurinn væri rekinn með tekjuhalla og að hann væri ómagi á þjóðarbú- inu. Litlu síðar kom kunnáttu- maður í landbúnaði, Gunnar Bjarnason frá Hvanneyri, og taldi landbúnaðinn svo óverk- hæfan að ekki mundi veita af að fælika bændastéttinni um fimm þúsund, ef starf þeirra ætti að geta borgað sig. Gunnar Bjarnason álítur að eitt þúsund bændur sé nógu sterkur liðs- kostur til að framleiða búvöru handa öllu landsfólkinu bæði til sjávar og sveita og að stunda ennfremur svína að alifugla- rækt miðað við útflutning til annara landa. Ekki hafa forráða menn og trúnaðarmenn bænda- stéttarinnar krafist þess af höfundinum að hann skýrði mál sitt betur. Framsláttur hans í þessu efni er aðeins ein af sönnunum fyrir því að mjög muni skorta heilbrigða yfir- stjórn á framleiðslumálum sveitabænda, verzlun þeirra og þátttöku í arðskiptingu í þjóð- arbúinu. Eins og málum er nú komið er annað hvort fyrir ís- lenzka bændur og trúnaðar- menn þeirra að duga eða drep- ast. V. Bændastéttinni hlýtur að vera Ijóst að ef henni á að verða lífs auðið verður hún að gera kröfur hliðstæðar bæjar- flokkunum. Nú þýðir ekki leng- ur fyrir menntamálaráðherran að fjölyrða um að bændur séu byrði þjóðarbúsins. Alþingi hef- ur í skyndi orðið að leggja gíf- urlega skatta á landsfólkið, allt að 300 milljónir króna til þess að geta haldið fiskibátum þjóð- arinnar og togurunum að verki á vertíðinni. í raun og rétti hafa þessi mál verið hulin í þoku. Síðan friði var slitið 1914 hafa íslenzkir togarar sjaldan borið sig nema á stríðsárunum eða þegar óvenjuleg spenna var í fjárhagslífi þjóðanna. Síð- an síðara stríðinu lauk hafa skipakaupin, togaraútgerðin og reksturinn ár eftir ár hvílt á ríkissjóði og bönkunum. Nú þykist ég vita að glöggir og greindir menn spyiýa hvert á íslenzka þjóðin að sækja þá fjármuni sem útvegur, verzlun og búnaður þurfa með til að geta goldið lífvænlegt kaup fyr- ir dagleg vinnubrögð. Því er til að svara, að sú eina fram- tíðar úrlausn sem til greina kemur innan tíðar er að gjalda hverjum þegni landsins, við búnað, útveg, verzlun og iðnað réttlátt kaup eftir þjóðarfram- leiðslu hvert ár. Hafa samvinnu bændur gert fullkomnustu til- rauninni sem hefur verið fram- kvæmd hér á landi í þessum efnum með því að gera full reikningsskil um sölu afurðar- innar ár hvert, þegar sölu er lokið og forráðamenn samvinnu félaganna sjá úr hverju er að spila í hvert sinn. í ár er þróun- in komin á það stig að ríkis- stjórnin og Alþingi geta ekki lokað augunum fyrir þeirri staðreynd að allir atvinnuvegir þjóðarinnar eru starfræktir með tekjuhalla. Hér verður þjóðin öll að rannsaka málið gaumgæfilega og taka síðan höndum saman um bjargráðin. Það hefur fyrr verið gert á hættustund. (Meira.) Slökkviliðið kallað út í FYRRINÓTT var slökkviliðið kallað að Strandgötu 13. Þar hafði kviknað í andyri. Fljótt og vel gékk að slökkva eldinn og urðu ekki miklar skemmdir. í FYRRADAG slasaðist kven- farþegi í jeppabíl, sem valt út af vegi í Glerárhyerfi. □ Frá vinstri: Guðríður Þórhallsdóttir, Birgir Ásgeirsson, Ilelga B. Jónsdóttir og Vilhjálmur Vil- lijálmsson í hlutverkum sinum. (Ljósmynd: Eðvarð Sigurgeirsson.) MENNTASKÓLALEIKURINN: ER Á MEÐAN ER Leikstjóri: Jónas Jónasson SKÓLALEIKUR M.A. 1964 var frumsýndur í Samkomuhúsinu á Akureyri s.l. miðvikudag. Hann heitir „Er á meðan er,“ gaman- leikur í þrem þáttum eftir Kaufman og Hart, þýddur af Sverri Thoroddsen. Leikstjóri er Jónas Jónasson og er þetta fjórði sjón- leikurinn, sem hann sviðsetur fyrir Leikfélag Menntaskólans á Akureyri. Bókin Dæfur Fjallkonunnar fékk góða dóma, nema einn, segir Hgrún skáldkona, er hér var nýlega á ferð Menntaskólanemendur eru auðvitað engir leikarar, í þess orðs merkingu. Þeir hafa fæstir stigið á „fjalirnar“ fyrr og svo hefur það jafnan verið um leik- endur skólaleikjanna, og þeir stunda erfitt nám. En skólafólk á þessum aldri hefur mikla starfsorku, ævintýraþráin býr því í brjósti og það á ríkan metnað fyrir hönd skóla síns. Og menntaskólanemendur eru flestir svo blessunarlega ósnortnir og fordómalausir á leiklistarsviðinu, að þeir eru auðveldir til mótunar í höndum leikstjóranna. Leikgleði þeirra er slík, að hún smitar jafnan hvern leikhúsgest. Að þessum orðum töluðum er svo rétt að bæta því við, að bæði nú, í skólaleik M.A. 1964, og áður, hafa engum dulizt ótvíræðir hæfileikar fleiri eða færri leik- enda, í hvert sinn. En M.A. er ekki leikskóli. Leikstarfsemin þar, er tómstundagaman nem- endanna, sem kennarar taka velviðjaða afstöðu til. Á frumsýningunni á miðviku daginn, var skólasöngurinn sunginn áður en sýningin hófst. Og í lok sýningar ávarpaði formaður Leikfélags M.A., Jó- hann H. Jóhannsson, alla við- stadda og beindi þakkar orð- um til skólameistara, Þórar- ins Björnssonar, og Árna Kristjánssonar kennara, fyrir góðvilja þeirra og aðstoð. Skóla meistari tók því næst til máls og þakkaði leikstjóra, nemend- um sínum, svo og öðrum, fyrir vinsemd í garð skólans og fyr- ir komuna í leikhúsið. Jónas Jónasson leikstjóri hef- ur sýnilega ekki legið á liði sínu og gert mikið á skömmum tima — mótað „leirinn* af smekkvísi og með æfðum hönd- um. Það yrði of langt mál að ræða um öll 19 hlutverkin í sjónleikn um „Er á meðan er.“ En minn- isstæðastur er mér leikur Helgu B. Jónsdóttur í hlutverki Alice, svo sterk og áhrifamikil var túlkun hennar. Þá var dans mærin Essie mjög skemmtileg í meðferð Guðríðar Þórhallsdótt- ur og húsmóðirin Penelope, leik in af Margréti Aðalsteinsdóttur sagði margt vel og skemmtilega. Af piltahlutverkunum má nefna Vanderhof í höndum Birg is Ásgeirssonar, sem gerði hlut- verkinu hin ágætustu skil á hógværan og smekklegan hátt, og Tony Kirkby í góðum hönd- um Vilhjálms Vilhjálmssonar. Einar Haraldsson lék Paul, Gissur Kristjánsson rússann Kalenkhov, Jóhann H. Jólianns- son Antony Kirkby, allir mjög sómasamlega. Einnig léku Leif- ur Ragnarsson, Steindór Gíslas., Jón Hihnar Jónsson og Valgarð- ur Sigurðsson, sem höfðu minni hlutverk, og Kolbrún Jóhannes- dóttir, Nanna Jónsdóttir, Ragna Kemp og Auður Mattliíasdóttir, sem allar skiluðu sínum litlu hlutverkum snoturlega. E. D. HÉR var í vikunni á ferð Hug- rún skáldkona. Blaðið náði sem snöggvast tali af henni og lagði þá fyrir hana nokkrar spurning ar. Frú Filippía Kristjánsdóttir. Hvar í röðinni er nýja bókin þín, sem út kom fyrir jólin? Hún er sú 16. Þar af eru 4 Ijóðabækur, nokkrar bækur fyr ir börn og unglinga og svo skáld sögur. Bókin Fanney á Furu- völlum, sem út kom í fyrra, fékk ágætar viðtökur og það ár kom líka út ævintýrabók fyrir börn, sem seldist upp á skömm- um tíma. En um hvað fjallar nýja bók- in þín, Ðætur Fjallkonunnar? Þetta er ævisaga tveggja kvenna, þeirra Sigríðar Svems- dóttur klæðskerameistara, sem er listakona á mörgum sviðum og Onnu Margrétar Björnsdótt- ur, sem var austfirzk. Hún fór á yjigri árum til Danmerkur, lærði þar hjúkrun og var mjög fjölhæf kona og merk. Hjúkr- unarstörf vann hún m. a. í Reykjavík þegar spánska veik- in geysaði 1918. Sigríður Sveins dóttir er á lífi og á heima í Reykjavík. Myndir í bókinni af listaverkum hennar, hafa vak- ið athygli. Hefði hún notið betri menntunar væri hún efalaust meðal okkar fremstu lista- manna. Hvaða dóma hefur sú bók fengið? Henni var vel tekið og er ég ánægð með viðtökurnar. Þó fékk bókin harðan dóm eins gagnrýnanda, og við því mega höfundar alltaf búast. Heldurðu áfram að skrifa? Það er ástríða og ég verð að halda áfram. Nú er ég með handrit í tvær bækur, annað er barnasaga, áður flutt sem leik- rit í útvarpstíma barnanna. Um (Framhald á blaðsíðu 7). — Þú finnur þú finnur þá enga gleði ánægju í starfi þínu. Þess vegna gengur þetta svo erfiðlega og baslsamt hjá þér. Pabbi þinn gamli fann hlutverk sitt og tilgang lífsins í búnaðarstörfunum hérna á bænum. Þess vegna fannst honum víst alls ekki störfin og erfiðið leggjast þungt á sig. En þetta var hann faðir þinn gamli, Þorgils. Þú ættir einnig að minnast þess, þegar þú yfirgefur ættaróðal þitt. Sigríður man enn þessi orð afa gamla, því henni fannst þá, að hann væri ósanngjarn við pabba hennar, og að hún yrði að vera sammála föður sínum. Afi væri orðinn svo gamall og hefði svo skrítnar skoðanir og hugmyndir um starfsgleði og þess háttar. Nei, hvorki hún né Farteinn gat þá verið sammála afa gamla. — Þetta er ekki rétt gagnvart ætt þinni, hefði mamma hennar sagt, þegar fyrst kom til mála að selja Stóra-Ás, — og víst heldur ekki gegn afa, hefði hún bætt við stillilega. — Og afi mun eflaust átta sig og kunna vel við sig þar, sem við setjumst nú að, hefði faðir hennar svarað konu sinni. — Já, það heldur þú nú, hefði mamma hennar svarað og gengið hratt út úr eldhúsinu, þar sem þau höfðu setið og spjallað um þetta. Sigríður man dagana næst é eftir. Þeir voru þrungnir spanandi óróleika og eftirvæntingu. Enginn eirði við vinnu sína. Var sem allir biðu þess, að nú væri lokið öllu stritinu á Stóra-Ási. Senn ætti að flytjast þaðan búferlum. Öllum heima var ljóst, að faðir þeirra var sjúklega þungt hugsi um að ná í nýja jörð sem næst borginni. Og er loks kom að því, að hann hefði keypt jörð á þeim slóðum, var sem öllum létti fyrir brjósti. En Sigríður minntist þess, að afi gamli hafði hrist höfuðið, er hann heyrði þetta, og hún man, að hann hefði þá sagt stillilega í hljóði: — Guð hefir sennilega ein- hvern tilgang með öllu. Já, hugsaði hún með sér, afi myndi trúa öllu þess háttar. Hún minntist einnig þess, sem afi sagði einu sinni, er hann stóð úti við fjalhöggið og klauf viðarskíði: — Æjá og jæja, Guð heyrir allt og sér allt. Og einmitt það, að ég skuli þurfa að flytjast frá Stóra-Ási. — Og afi hefði horft upp til skógarhlíðarinnar fyrir of- an bæinn. Sigriður hafði staðið skammt frá honum, án þess hann virtist veita henni eftirtekt. Hann sagði þetta víst aðeins við sjálf- an sig. Afi gat stundum sagt nokkur alvöruorð, hljóðlátlega en þó þungt. Sigríður gat aldrei gleymt deginum þeim, er þau fluttu frá Stóra- Ási. Og það var fyrst núna, nokkrum árum síðar, að henni er fylli- lega ljós alvara þess dags. Hún minntist íbúðarhússins galtóma, er þau fóru þaðan. Þau höfðu öll staðið úti á hlaðinu og litast um á alla vegu í síðasta sinn. Hér áttu þau ekki framar heima. Engar eignir né réttindi. Faðir þeirra hafði afsalað sér óðalsréttinum. Og elzti erfinginn, Farteinn, var nægilega fullorðinn til að skrifa undir sjálfur. Nýi eigandinn var kominn í hlaðið. Það var úrhellisrigninging um daginn. — Himininn grætur vegna burtfarar okkar, hefði Farteinn sagt í spaugi. Já, allt hefði grátið þann dag. Regntárin blikuðu á laufi trjánna. Skógurinn og fjallshlíðarnar og snarbröttu fjöllin, allt var blautt og blikandi. Já, Farteinn hafði satt að mæla. Við syst- AUÐHILDUR FRÁ VOGI: | GULLNA BORGIN | kinin hlógum þó víst að ummælum hans, en vorkenndum þó mömmu og afa gamla. Þau grétu bæði öðru hverju, þegar brúnka gamla labbaði út eftir póstveginum með síðasta flutninginn. — Æjá og jæja, er ég þá raunverulega að flytja frá Stóra-Ási núna! hefði afi sagt, þegar útsýnið heim til bæjarins hvarf að fullu. — Guð hefir sennilega sinn tilgang með þessu.Iíka.--- Sigríður hrökk upp úr þessum löngu hugarórum sínum, er eim- reiðin blés fyrir hennar brautarstöð. Hún stendur upp af bekknum og mjakar sér framhjá samferðafólkinu fram að dyrunum. Hvernig skyldi þá helgin sú arna verða? hugsar hún. Hún gengur út á stöðv- arpallinn og síðan út á veginn. Hér er koldimmt. Snarpur vindur þyrlast um hana úr öllum áttum. Skyldi nokkurn tíma vera logn é þessari ægissiðu? — Hu-ú, nei! Þýtur í vindinum í eyrum hennar er hún hefur göngu sína tuttugu minútna leiðina frá stöðinni og heim til bæjarins hennar. Sigríður hraðar sér heimleiðis. Napur og kaldur útsynningurinn næðir um hana. Hér er enginn á ferli. En þarna grillir í mann- skapnað við fyrsta hliðið fram undan. Hún finnur að andardráttur hennar verður örari. Er hún kanski smeyk? Nei, eigilega ekki. — Guðisélof! Það er eflaust hann Lárus, sem stendur þarna og býður eftir henni. Og nú finnur hún, að hún hefði orðið illilega hrædd, ef einhver ókunnugur hefði staðið þarna við hliðið. En auðvitað er það hann Lárus. Hann kemur á móti henni. O.sei-sei-já. Hann er auðþekktur, berhöfðaður með stinnan lubbann upp í loftið, dálítið slingrandi í gangi, og pípan dinglandi muni hans. — Sæl og blessuð! Þarna kemurðu þá, segir hann lágt og tekur litlu handtöskuna hennar. — Já, svarar hún fegin. Nú var hún ekki lengur alein í myrkr- inu. — Eftir hverju varstu annars að býða? Hún lýtur skáhallt upp til hans. — Eftir lestinni, auðvitað! segir hann og hlær við. — Ojæja, segir hún. Þau halda svo af stað og spjalla um daginn og veginn. Hún segir honum frá skemmtunum og félagssamkomum í borginni, og hve vel hún uni sér þar meðal allra vinanna og góðkunningjanna, sem hún hafi eigast þar. Hún sinnir því ekki, þótt Lárus verði þögull og alvarlegri á svipinn, því meir sem hún segir honum frá öllu þessu. Hún heldur rabbi sínu áfram. Og sérstaklega um skemmti- samkomumar í félaginu, sem hún er í, og hún er ein af helztu skemmtikröftunum. Hún drepur á, hve skemmtilegir og blátt áfram borgarpiltarnir séu, kátir og félgaslyndir og ósparir á að bjóða henni á bíó. — Og hvað ætlast þeir til að fá í staðinn fyrir allan kostnaðinn? spyr Lárus allt í einu. — Svei þér nú! segir hún. — Nú ertu reglulega vondur. Hvað áttu annars við með þessu? — O, ætli þú finnir það ekki út sjálf, hugsa ég. Sigríður segir ekki fleira. Orð hans hittu að vissu leyti i mark, þegar henni verður hugsað til þess, sem borgarpiltarnir ætlast til af henni. Það er að segja þeir piltar, sem hún hefur kynnst og verið með á skemmtunum. — Jú, þeir eru allheimtufrekir. Það getur hún játað í hljóði. Og þeir slógu sjaldan af kröfum sínum. Og þegar þeir fengu ekki framgengt vilja sínum, urðu þeir gramir og stuttir í spuna, kölluðu hana stelpukrakka og skiptu sér síðan ekki meira af henni. Það var þess vegna sem hún hafði ekki orðið einkafélagi neins þeirra sérstaklega. Þegar kunningjakonur hennar furðuðu sig á þessu, svaraði hún þeim aðeins því, að þetta væri sér að kenna. Hún yrði svo fljótt skotin í nýjum kunningjum, að hún gæti ekki laðast að neinum sérstökum. En þetta var nú ekki alveg satt. Hún hefði sva gjarnan viljað eiga tryggan einkavin í hópi bæjarpiltanna, sem hún kynnt- ist. En þeir hefðu snúið baki við henni, þegar hún vildi ekki lúta vilja þeirra í einu og öllu. En á þem vettvangi var hún stöðug á svellinu. Hún ver ef til vill full fljót á sér að leyfa nýjum kunn- ingjum að kyssa sig. Og það er kannski snefill af sannleika í því, að það sé hérumbil jafngilt að kyssa pilt í fyrsta sinn sem þau hittast, og að kveðja hann samtimis. — Eg hefði nú annars eiginlega átt að vera í bænum í kvöld, segir Sigríður loksins. Hana langar til að erta Lárus ofurlítið. — Já, það er mjög sennilegt, segir hann og slær öskuna úr pípu sinni á grindarstöpli. — Já, það var piltur sem hringdi til mín, rétt áður en ég fór, skilurðu. Lárus setur skyndilega ferðatösku hennar frá sér. — Jæja, nú sérðu heim til þín. Góða nótt! segir hann hratt og gengur burt án þess að líta við. Þakka þér fyrir fylgdina! segir hún lágróma. En Lárus heyrir það víst ekki. Sigríður finnur blygðunarkennd smjúga gegnum sig. Hvers vegna var hún svona ertin, önuglynd og stutt í spuna við Lárus? Húa sársér eftir því, þegar hún kemur að heimahliðinu og gengur inn á túnið. Hvers vegna langar hana alltaf til að erta Lárus og særa tilfinningar hans? Henni er það vel ljóst, að hún getur sært hann svo miklu meir en nokkur annar. Og hún veit svo vel, hvers vegna hann þolir svo lítið af hennar hálfu. Hún verður heit í kinn- um. Hvað stoðar það, þótt Lárusi þyki vænt um hana, fyrst hún ber ekki í brjósti sömu tilfinningar til hans? En samt er eitthvað sem veldur því, að stundum þráir hún Lárus. Framhald.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.