Dagur - 19.02.1964, Page 1
NÝIR KAUPENDUR
fá framlialdssöguna,
„GULLNA BORGIN“
frá byrjun.
Hringið í síma
1166 eða 1167.
VINSAMLEGA LÁT-
IÐ VITA EF VAN-
SKIL VERÐA Á
BLAÐINU.
Símar 1166 og 1167.
ilgftg
Sinubrenna í Arnarneshreppi á þorranum,
(Ljósmynd: E. D.)
Síminn á Hófel KEA í lagi
í GÆR hringdi blaðið á Hótel
KEA og fékk svar. Síminn, sem
opinberar umræður urðu um í
þessu blaði, milli símastjóra og
hótélstjóra, var kominn í lag.
Ber að fagna því, að stærsta
hótel landsins, utan Reykjavík-
ur, er ekki lengur án síma.
Átta klukkustunda viðgerð.
Símastúlkan á hótelinu sagði
aðspurð, að það hefði tekið tvo
viðgerðarmenn 8 klst. að gera
við símann, þ. e. hið umtalaða
skiptiborð, og nú ætti síma-
þjónusta á hótelinu að geta ver-
ið með eðlilegum hætti. □
STÁLU BÍL ÖLVAÐER
UM síðustu helgi bar það við á
Akureyri, að tveir ungir bæjar-
VEIÐIMANNAHÚS
EÐA FÉLAGSHEIMILI
BÆNDUR í Vatnsdal og Þingi,
þ. e. Sveinsstaðahreppi og Ás-
hreppi eru nú að undirbúa
byggingu félagsheimilis. Hinir
miklu laxveiðisamningar, sem
nýlega voru gerðir þar vestur
frá og Dagur hefur sagt frá, og
gilda í 10 ár, eru að nokkru á-
stæðan fyrir væntanlegri bygg-
ingu.
í nefndum samningum, sem
hljóða upp á milljónir, er
ákvæði um, að bændur byggi
veiðimannahús en leigutaki
greiði fyrirfram upp í þann
(Framhald á blaðsíðu 2).
menn, báðir við skál og próflaus
ir, stálu fólksbifreið á bílastæð-
inu norðan við POB. Inn í bíl-
inn komust þeir með því að
sprengja upp rúðu. Lögregl-
unni var þegar tilkynnt um
hvarf bílsins. Litlu síðar náði
lögreglan bílnum og hlupu hin-
ir ólánsömu ökumenn þá sem
fætur toguðu. Var annar hand-
samaður hjá Timburhúsi KEA
en hinn var sóttur heim til sín
árla næsta morguns. Játuðu
þeir báðir brot sitt, svo og ölvun
og að hafa báðir ekið bílnum.
Um helgina voru svo tveir
menn til viðbótar teknir fastir
fyrir meinta ölvun við akst-
ur.
Bílveltur, árekstur og ölvun
við akstur.
Þá valt fólksbifreið við Brag-
holt í Arnarneshreppi og árekst
ur varð milli jeppa og vörubíls
hjá Litla Hvammi í Hrafnagils-
hreppi. Valt jeppinn út af veg-
inum. Engan mann sakaði. □
AÐALFUNDUR Akureyrar-
deildar KEA var haldinn að
Hótel KEA s.l. mánudagskvöld.
M. a. kom það fram í skýrslu
deildarstjórnar, að mjólkurinn-
legg í Mjólkursamlagið á veg-
Loftleiðir kanpa tvær Canadair-
flugvélar fyrir 400 millj. ísl. kr.
LOFLEIÐIR hafa nú fest
kaup á tveim skrúfuþotum
af gerðinni GL 44 og er kaup
verðið 400 milljónir króna.
Hvor vélin getur flutt um
180 farþega. Loftleiðir eiga
5 Cloudmastervélar og hefur
engin ákvörðun verið tekin
um, hvort þær verða seldar.
Talið er að hér sé um einn
stærsta kaupsamning að
ræða, sem íslenzkt fyrirtæki
hefur gert. Loftleiðir munu
flytja rekstur sinn til Kefla-
víkurflugvallar.
Fyrri vélina fá Loftleiðir af-
henta í maí, en hina síðar á ár-
inu. Ekki hefur enn verið á-
kveðið hvar flugliðar Loftleiða
verða þjálfaðir í meðferð nýju
vélanna eða hvort félagið mun
ráða til sín erlendar áhafnir til
að annast þjálfunina.
Loftleiðir hafa ekki sótt um
ábyrgð frá ríki eða íslenzkum
lánastofnunum vegna þessara
kaupa, en hafa fengið leyfi rík-
isstjórnarinnar til ráðstöfunar
eigin gjaldeyris til kaupanna.
Hér er um að ræða stærsta
átak Loftleiða til þessa.og eru
þessi flugvélakaup merkur á-
fangi í sögu félagsins.
Tilkynning um flugvélakaup
Loftleiða var gefin út samtímis
á íslandi og í Kanada.
Undanfarna daga hafa full-
trúar Canadair verið á stöðug-
(Framhald á blaðsíðu 7).
Aðalfundur Akureyrardeildar K. E. A.
Kaupfélagið tekur aftur við rekstri hótels síns
um deildarinnar s.l. ár var
712.482 1. og hafði aukist um
5% frá fyrra ári. Slátrað hafði
verið frá deildarmönnum 1294
kindum og var meðalfallþungi
dilka 13,01 kg. Uppskera garð-
ávaxta var mjög misjöfn og í
heild með lakara móti.
Deildin átti í sjóði um s.l. ára-
mót um 140 þús. kr. Lagt var
fram af tekjum deildarinnar á
s.l. ári kr. 5.000,00 í Minningar-
sjóð Þorstéins Þorsteinssonar.
Framkvæmdastjóri KEA,
Jakob Frímannsson, flutti ítar-
lega skýrslu um rekstur félags-
ins 1963. Hefur hennar verið
getið áður hér í blaðinu, eftir
að framkvæmdastj órinn flutti
hana á Félagsráðsfundi.
í sambandi við fyrirspurn
varðandi rekstur Hótel KEA
kom fram eindreginn vilji
margra félagsmanna um, að fé-
lagið tæki á ný við rekstri hót-
elsins.
(Framhald á blaðsíðu 7).
L
skylda í vor?
UNDANFARIN missiri hefur
þess verið óskað mjög eindreg
ið víða um land, að tekin verði
upp almenn vegabréfaskylda
hér á landi. Nú er talið að mál-
ið sé komið á það stig hjá yf-
irvöldunum, að vænta megi
vegabréfanna í vor.
Samkvæmt lögum frá 1942
er hægt að gefa út reglugerð
um vegabréfaskyldu unglinga
á aldrinum 12—22 ára aldurs.
En sú vegabréfaskylda nægir
engan veginn og hefur ríkis-
stjórnin nýlega rætt málið.
Lagaheimild er talið þurfa til
vegabréfaskyldu frá 12 ára
aldri og þar til ævi lýkur. Sú
málsmeðferð kynni að draga
málið eitthvað, en við annað
er ekki unandi. □