Dagur - 19.02.1964, Blaðsíða 5

Dagur - 19.02.1964, Blaðsíða 5
4 5 Dagur Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1166 og 1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Stórvirkjun NÝLEGA flutti Eysteinn Jónsson og fleiri þingmenn Framsóknarflokks- ins á Alþingi tillögu til þingsályktun ar um að Alþingi kjósi 7 manna nefnd til að kynna sér niðurstöður þeirra rannsókna á stórvirkjunar- möguleikum hér á landi, sem fram hafa farið. Hlutaðeigandi ríkisstofn- un veiti nefndinni allar umbeðnar upplýsingar. í greinargerð með þessari þings- ályktunartillögu segir m. a. svo: „Hinn 5. febrúar s.l. svaraði iðn- aðarmálaráðherra fyrirspurn á Al- þingi varðandi undirbúningsathug- anir á möguleikum til stórvirkjana og stóriðju á íslandi. Flm. þessarar tillögu eru þeirrar skoðunar, að stórvirkjunar- og stór- iðjumálin séu nú, eftir skýrslu iðn- aðarmálaráðherra, komin á það stig, að skylt sé og óhjákvæmilegt, að um þau verða fjallað á Alþingi á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í þessari þáltill., og að ríkisstjórnin eða starfs- menn hennar eigi ekki héðan af að hafast neitt að, sem miklu skiptir, í þeim málum, fyrr en Alþingi hefur ált þess kost að kynnast þeim nánar og marka þar stefnu, þegar nefnd sú hefur lokið störfum, sem kjósa skal samkvæmt tillögunni. Það er með öllu óeðlilegt, að ríkis- stjórnin ákveði virkjunarstað eða staði fyrir stórvirkjun, stofni til ákveðinnar tegundar af stóriðju og ákveði staðsetningu hennar eða haldi nú áfram viðræðum við erlend stór- iðjufyrirtæki og fjármálastofnanir um stóriðjurekstur liér á landi, án þess að Alþingi liafi þar hönd í bagga. Hinn 22. marz 1961 samþykkti Alþingi þingsályktun um að undir- búa virkjun Jökulsár á Fjöllum til stóriðju, svo liljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjórnina að láta hraða gerð fullnað- aráætlunar um virkjun Jökulsár á Fjöllum og athugun á hagnýtingu orkunnar til framleiðslu á útflutn- ingsvörum og úrræðum til f járöflun- ar í því sambandi.“ Síðan þessi ályktun var afgreidd til ríkisstjórnarinnar, eru nál. 3 ár lið- in. Engin skýrsla hefur verið gefin á Alþingi eða þingnefndum um, að lokið sé því verki, sem skorað var á stjórnina að framkvæma. Iðnaðarmálaráðherra gaf á hinn bóginn 5. febr s.l. í fyrirspurnatíma á Alþingi lauslega skýrslu um „at- huganir“ svonefndrar stóriðjunefnd- ar, sem skipuð var af ríkisstjórninni án samráðs við Aljjingi vorið 1961, og „raforkumálastjórnar ríkisins,“ en athuganir Jressar eru samkvæmt skýrslu ráðherrans sem hér segir: (Framhald á blaðsíðu 7). Olympíudómarinn á Akureyri Höskuldur Markússon, segir hér frá Þýzkalandi Hitlers, athurðum á knattspyrnuvellinum o. fl. MARGA ókunnuga menn, bæði innlenda og erlenda bar að garði í gróðurhúsum, sem ég vann við fyrir um það bil aldar- fjórðungi síðan, og man ég fæsta af þeim, nema vegna ein- hverra sérstakra atvika, er þá komu fyrir. Glöggt man ég eft- ir erlendu kærustupari, er þangað kom, myndarlegum manni og fallegri konu, þau voru svo yfir sig ástfangin. Þetta var Höskuldur Markús- son og frú, þýzkir Gyðingar, ný- lega sloppin undan ógnarstjórn Hitlers. Þau settust síðan að á Akur- eyri og eiga hér heima, eru ís- lenzkir í-íkisborgarar og eign- uðust íslenzk nöfn. Um helgina lagði blaðið nokkrar spurningar fyrir Hösk- uld, sem hann svaraði góðfús- lega. Hvað liefurðu starfað hér á landi? Fyrst gerði ég ekki neitt, á meðan ég hafði aðeins dvalar- leyfi en ekki atvinnuréttindi. Síðan hefi ég stjórnað sauma- stofum og síðustu 18 árin hef ég verið skrifstofustjóri í Amaro, hér á Akureyri. En hversvegna komstu til ís- lands. Því er ekki eins fljótsvarað. En allur heimurinn veit hvers- vegna Gyðingar flúðu Þýzka- land Hitlers. Ég ætlaði til Amer íku en ekki hingað. Það gekk erfiðlega að fá nauðsynleg leyfi. Systir mín var þá komin til Reykjavíkur og farin að vinna þar og móðir okkar var þang- að komin. Þær vildu að ég kæmi. Og hvers vegna ekki? Ég var þá a. m. k. kominn nær Ameríku og það sem var enn betra, ég var þá kominn frá Þýzklandi. Svo fór ég til Reykja víkur. Þá voru Gyðingaofsóknimar byrjaðar? Já, og þótt þær væru bara barnaleikur hjá því sem síðar varð, var Þýzkaland orðinn hreinn kvalastaður fyrir mig og mína líka. Er það eittlivað orðum aukið, sem skrifað hefur verið og skraf að um ógnarstjóm Hitlers? Nei, ég hef aldrei lesið neitt um þessi mál, sem nálgast sann- leikann. Og ég held að íslend- ingum sé um megn að skilja það. íslendingar skilja grimmd, bardaga og blóðsúthellingar af sínum gömlu bókmenntum. En það er allt annað en að gera sér grein fyrir, að hægt sé að myrða sálina, brjóta menn niður and- lega eins og Hitler gerði — að afmá sjálfsvirðingu manna og allt það, sem gerir manninn að manni. Það skilja ekki aðrir en þeir, sem reyna. Ég fæ ennþá hálfgerða martröð, þegar ég minnist þeirra tíma, og slapp ég þó tiltölulega vel. Og hvemig var þetta gert? Gyðingar voru alveg rétt- lausir og farið með þá eins og óæðri verur. í passann okkar var sett Gyðingamerki, á bílinn okkar var máluð gul rönd til að sýna hver ætti hann og sjálfir urðum við að bera áber- andi merki kynþáttar okkar, hvar sem við fórum. Allt þetta var gert til að auðmýkja okkur. Ef Gyðingi og Aría lenti saman, létu yfirvöldin sér nægja að yf- irheyra Aríann. Ef einhver sagði við mig, að þarna mætti bíllinn minn ekki standa, því sig vantaði bílastæði, varð ég að víkja. Þannig var þetta úti á götu og þannig var það hvar sem maður var staddur. Ef ég svaraði nasistakveðju var ég helvítis Gyðingahundur að heilsa eins og siðaður maður. Ef ég heilsaði ekki nasista- kveðju, var ég ennþá verri Gyðingahundur. Lentirðu nokkum tíma í yf- irheyrslu hjá Gestapo? Já, og það var slík andleg áreynsla, að enginn trúir því. Að vera yfirheyrður af djöful- legu hugviti í heilan dag, tekur á taugarnar, skal ég segja þér. Og vei þeim sem verður tvísaga. Ég var ekki kjarklaus maður. Var vanur að stjórna mörgu fólki, var forstjóri stórs fyrirtækis, sem hafði 45 útibú víðsvegar var auk þess á bezta starfsaldri, bjartsýnn og djarf- ur. Samt var ég brotinn niður. Ég var farinn að óttast alla menn, þorði ekki að tala nema í hálfum hljóðum, kveið fyrir því að vera kallaður til yfir- heyrslu. Ég sá marga fara þang- að og koma ekki aftur. Það fer um mig hrollur þegar ég hugsa um þessi ár, áður en ég komst úr landi. Hvenær komstu svo til ís- lands? Árið 1938. Þú getur nærri, að mér var vel fagnað af móður og systur. Hún móðir mín neri saman höndum og skellti á lær sér og bað mig nú að segja eitt- hvað að heiman. Ég færði stól- inn minn til hennar og hvíslaði hinn voðalega sannleika í eyra henni. En bæði hún og systir mín voru farnar að hlægja, áð- ur en ég gæti mikið sagt, og spurðu hvort mér væri illt í hálsinum, hvort ég gæti ekki talað svo að heyrðist. Ég var enn svo hræddur, að ég þorði ekki að tala upphátt. Það var opinn hleri inn í eldhúsið og einhver var þar inni. Njósnari, hugsaði ég og bað að loka hler- anum. Þegar maður er hættur að þora að tala, jafnvel við móð ur og systur, hræddur við alla, jafnvel sjálfan sig, er lífið orð- ið dapurt, og búið að kviksetja mann. Jæja, ég fékk loks- ins „alla pappíra klára“ til Am- eríkuferðarinnar. Þá geymi ég sem minjagripi. Vildurðu heldur setjast að hér? Já, einmitt. Ég var ekki búinn að vera hér á landi nema fáar vikur, þegar ég sór þess dýran eið með sjálfum mér, að verða íslenzkur þegn. Sannast að segja fannst mér það líkast að vera kominn til himnaríkis að koma hingað. Ég á ekki betri samlíkingu. Allir voru mér góð- ir, enginn spurði mig hvar ég væri í trúmálum eða pólitík. Hér náði ég andlegri heilsu á skömmum tíma, hér hef ég dvalið síðan og hef aldrei eitt augnablik iðrast þess að verða íslendingur. Ég held meira að segja að ég skilji það betur en margir þeir, sem hér dvelja alla sína ævi, hve dásamlegt land Island er. Þú getur víst ímynd- að þér hvað mér brá fyrst í Reykjavík, þegar ég heyrði menn tala illa um stjórnina full- um hálsi og í margra manna áheyrn, af ekki meiri aðgætni en að biðja að rétta sér sykur- mola. Þetta frelsi til að tala, hugsa og skrifa og lifa lífi sínu óþvingað, eins og hér, er ómet- anlegt. Ef borið er saman dag- legt líf venjulegs fólks, t. d. hér á Akureyri, og fólks í þéttbýlum iðnaðarlöndum, verður munur- inn svo mikill að menn ættu að geta lifað hér 10—20 árum leng- ur. Og þeir sem vilja lifa hér skynsamlegu og heilbrigðu lífi, hafa svo fjölmörg tækifæri til að njóta lífsins. Hugsaðu þér aðeins það að anda að sér eins hreinu og heilnæmu lofti og við gerum hér, í stað ryks og verk- smiðjureyks. Mannlífið í þétt- býlinu er svo rykugt. Þessvegna er ég líka undrandi að lesa um ávísanafals á íslandi og aðra slíka hluti. Ég get tæplega trú- að því, að þetta geti yfirleitt gerzt hér á landi, nema fyrir hreina slysni. Svo maður vaði úr einu í ann- að, Höskuldur, lentirðu ekki einu sinni í flugslysi? Jú, þá eignaðist ég annan af- mælisdag, sem ég held líka upp á. Samkvæmt öllu venjulegu, átti ég að deyja eins og hinir farþegarnir, enda munaði víst ekki miklu. En ég lifði, var lengi ófær til gangs, enga marg brotinn og knúsaður. En nú fæ ég mér langar gönguferðir til heilsubótar. En ég get ekki hlaupið. Eiginlega ætlaði ég að tala við þig um knattspyrnuna. Ég er líka til viðtals um knatt spyrnu. Hún er mér alltaf jafn hjartfólgin. Ég var ekki gamall þegar ég fór að stunda hana. Ég og félagar mínir stofnuðum lít- ið knattspyrnufélag, sem byrj- aði að keppa í lægsta flokki en vann sig upp. En þá var nú lit- ið skrítilega á knattspyrnu í Þýzkalandi. Þegar ég var í menntaskóla fékk pabbi minn einu sinni bréf frá skólameistar- anum. Þar var m. a. fram tekið, að skólinn teldi fyrir neðan virð ingu sína að nemendur stund- uðu knattspyrnu Þá var knatt- spyrnan aðeins fyrir „lægstu stéttirnar.“ Þetta var 1910. Pabbi brenndi knattspyrnu- skóna mína og búninginn. Fé- lagar mínir lánuðu mér skó í staðinn. Ég hætti aldrei að æfa. Síðan gekk ég á dómaranám- skeið og hækkaði í þeim stiga, þar til ég varð knattspyrnu- dómari á Olympíuleikunum 1928. Eg sat í íþróttaráði mörg ár, allt til 1933. Þegar nasist- ar komu til valda, var það auð- vitað ekki sæmandi að ég héldi áfram að dæma leiki eða vera framámaður í íþróttum! Ég fékk kurteislegt bréf, þar sem mér var þakkað starf í þágu íþrótt- anna, en jafnframt óskað að ég legði slík mál á hilluna, hvað ég gerði, enda hafði sá valdið er talaði. Ég gæti sagt þér margt um knattspyrnu frá þeim dög- um. Eri það sem ég vil leggja áherzlu á, er þetta: Gömul vin- áttubönd frá knattspyrunárun- um slitnuðu aldrei, þótt öll önn- ur bönd slitnuðu. Nasistarnir rifu og slitu allt sundur, auð- vitað líka íþróttahreyfinguna og hreinsuðu til þar, eins og annars staðar. En þeir gátu aldrei slitið þau vináttubönd, sem bundin voru á knattspyrnuvellinum. Að því komst ég oft síðar. Viltu segja eitthvað um þýzka knattspyrnu og dómarastörf þín þar? í stuttu máli vil ég segja það um þýzku knattspyruur.a, að hún stóð með miklum blóma og stendur enn. Baráttan milli fé- laganna var hörð og það þótti t. d. miklu meira um það vert þar fyrir knattspyrnulið að vinna sig upp, en hér. Piltarnir tóku íþróttina alvar'iega og æfðu vel og reglulega. Að öðr- um kosti næst heldur ekki mik- ill árangur. Hvar voru flestir áhorfendur þar sem þú dæmdir leik? Þá var keppt til úrslita um Þýzkalandsmeistaratitilinn í knattspyrnu. Það var fyrir 1930. Áhorfendur voru 86 þúsundir. Ég man vel hin sterku áhrif, sem ég varð fyrir þegar ég gekk inn á völlinn og myndin er skýr frá þeirri stund, í huga mínum. Fánar blöktu, himininn var heiður og blár, knattspyrnuvöll urinn flosgrænn, með hvítum strikum, og áhorfendurnir voru allt í kring, hálfgert yfir manni og biðu óþreyjufullir, tilbúnir að taka sinn þátt í leiknum. Það er mikið hljóðfæri, 86 þúsund mannsbarkar, og stundum ná áhorfendurnir valdi á leiknum að nokkru. En þessi stund, og myndirnar, sem ég áðan nefndi, gaf mér mikinn styrk og jók á ábyrgðartilfinningu mína að dæma rétt og dæma vel. Þessi leikur fór vel fram. Einhverntíma dæmdirðu Ol- impíuleik, Höskuldur? Já, það var í Hollandi 1928. Við vorum 4 frá Þýzkalandi, sem valdir vorum til að dæma og síðan dregið á milli okkar og kom minn hlutur upp. Það gerðist ekkert sérstakt á vellin- um í það sinn. Leikurinn var léttur og skemmtilegur. Að sumu leyti var erfitt að dæma hann, því annað liðið var skip- að kunnáttumönnum í því að brjóta reglurnar án þess auðvelt væri að refsa. Nokkurntíma komizt í lífs- háska í dómaTastarfinu? Einu sinni dæmdi ég þýðing- armikinn úrslitaleik í Stettin. Harka var í leiknum frá byrj- un. Appelsínum o. fl. var kast- að í leikmenn og dómarinn átti Höskuldur Markússon. auðvitað að fá sinn hluta. Þá stöðvaði ég leikinn, kallaði til mín fyrirliðana á vellinum og krafðist lögregluverndar. I leiks lok kom í Ijós, að lögregluvernd in var ekki óþörf. Þegar ég flautaði leikinn af, ruddust 50—60 ungir menn fram á völl- inn og ógnuðu mér. En um leið og þeir ætluðu að grípa til mín, og hamingjan má vita hvað þeir hefðu við mig gert, skarst lög- reglan í málið og fylgdi mér til búningsherbergja. Þar var ég a. m. k. hálfa klukkustund. En unglingarnir, sem létu mjög ófriðlega, biðu eftir mér. Á síðustu stundu fylgdu lögreglu- þjónarnir mér á brautarstöðina. Um svipað leyti höfðu ungir menn kastað dómara í síki, einmitt á svipuðum slóðum, í hefndarskyni fyrir knattspyrnu dóm. Þann leik horfði ég á, og var sá leikur vel og réttilega dæmdur. Og í annað skipti sló leikmaður mig í andlitið. Hann hafði af ásettu ráði hagað sér mjög ókurteislega, til að valda vandræðum og ég vísaði hon- um útaf, en hann gaf mér kinn- hest um leið. Fyrirliðinn í hans liði kom þá til mín og krafðist þess að ég stöðvaði leikinn alveg vegna þessa atburðar. Ég svaraði honum því einu, að ég myndi gera það eftir 10 slíka kinnhesta. Hann varð hinn lúpulegasti. Þannig stóð á, að einmitt þetta knattspyrnulið vantaði að þessu sinni 3 af sín- um beztu mönnum og vildi fyrir alla muni finna ráð til þess, að leikurinn félli niður og yrði endurtekinn. Hvað finnst þér um knatt- spyrnumennina hér á Akur- eyri? Þeir voru fremur skammt á veg komnir, þegar ég kynntist þeim fyrst, en knattspyrnunni fleygði fram. Ég kom í knatt- spyrnuráðið 1956 og gat útveg- að ágætan, þýzkan þjálfara, Marotzke, sem æfði úrvalsliðið hér tvisvar sinnum. — Hann gerði ómetanlegt gagn, einkum meðal hinna yngri. Akureyring- ar eiga möi'g góð efni, jafnvel líka svo gott lið, að það gat alveg eins komizt á toppinn hér á landi eins og falla niður í aðra deild nú í sumar. Ilvers vegna féll þá liðið nið- ur? Þetta er erfið spurning, sem ég leiði hjá mér að svara. En þó vil ég segja, að það er ekki einungis sök hinna 15—16 manna, sem í þessu liði eru. Segja má, að liðið sem heild vanti taktik eða leikkunnáttu. Það hefur líka mikið að segja að æfa reglulega og samvizku- samlega. Menn komast ekki mjög langt án þess. En þeir sem komnir eru í fremstu röð, bera nokkra ábyrgð, bæði gagnvart sjálfum sér og öðrum, og mega ekki vanrækja æfingar eða sýna of mikið kæruleysi. Svo vantar æfingavöll og það stendur knattspyrnunni á Akur- eyri e. t. v. mest fyrir þrifum. Knattspyrnumennirnir okkar áttu að vera búnir að fá völlinn s.l. vor, en hann er ekki enn til. Ég vil því að lokum mega beina orðum mínum til Magnús- ar E. Guðjónssonar bæjarstjóra, bæjarráðs og bæjarstjórnar Ak- ureyrarkaupstaðar og segja við þá: Sjáið þið um að efna loforð ykkar um æfingavöll, því eftir því bíða knattspyrnumennirnir. Síðan munu drengirnir sýna hvað þeir geta eða geta ekki. Dagur þakkar Höskuldi Mark ússyni fyrir hin fróðlegu og skemmtilegu svör. E. D. Til Þelamerkur- skófans | Nú fagnar s'jgri sveitin öll. Hún sér hét risna fagra höll, i sem á að verða æskuból og allti menntun skjól. Og hér skal þjálfa hönd og hug, svo hljóti æskan dáö og dug að verða samstilít, vökul þjóð, svo vönduð sterk og fróð. Við óskum hverri ungri sál hún eignist hér sín hugðarmál, sem endist langa ævibraut og efli í hverri þraut. Og allt, sem gott og göfugt er, skal glæðast bezt og þroskast hér, svo berist héðan bróðurþel sem byggðin fagni vel. Og heill þér, skóli, byggðin ber. Þér blessun færi nemi hver. Þá alla að þroska auðnist þér í öllu, er manndóm lér. Þín yfirstjórn og öll þín hjú \ séu ávallt þinni hugsjón trú. Og um þótt leiki veðrin vönd, Þig verndi alvalds hönd. Guðfinna Bjarnadóttir. MÚRIHN Á MÖRKUM Austur- og Vest- ur-Berlínar er nú verið að rífa niður mörg hús sum 4—5 hæða þau er standa við hinn illræmda Berlínarmúr. Hún sá ekkert svar við þessu og getur engu svarað. Nei, það er ómögulegt! Henni finnst sem öllum tilfinningum sínum sé sópað á brott. Hún finnur aðeins til þreytu, þyngjandi þreytu og óþæg- inda. En Lárus liggur þarna við hlið hennar og bíður eftir svari. Hún tekur hann um hálsinn og beygir höfuð hans að sér. Han felur andlit sitt undir vanga hennar, og hún finnur brennandi varir hans þrýsta kossi á háls sinn hvað eftir annað. Hún starir galopnum augum út í myrkrið, og hugsun hennar er róleg og skýr. Þetta verður að vera í síðast sainn, sem hún fer út með Lárusi. Hún má ekki leika þannig á hann, hvað eftir annað. Hann hlýtur að halda að henni þyki vænt um hann, fyrst hún tekur þannig við ástleitni hans og atlotum án mótþróa. En nú verður þessu að vera lokið. Þetta hefir nú staðið yfir í nærri tvö ár. En samt finnur hún skyndi- lega á sér þetta einkennilega aðdráttarafl hans. Hún elskar hann samt ekki. Nei, — en hann er svo sterkur! — Nei, Lárus segir hún. — Nú verð ég að fara heim aftur. Hann heldur enn utan um hana. — Þú svaraðir ekki því, sem við vorum að tala um áðan, segir hann. — Nei, Lárus, segir hún. — Og ég get heldur ekki svarað því. Ég býst ekki við, að ég geti nokkurn tíma fellt mig við að búa í sveit, skilurðu. Til þess þrái ég of mikið borgina og lífið þar. — Það er þá borgarpiltur? segir hann kuldalega og tekur pípuna upp aftur. -— Mér lízt vel á marga, skilurðu, segir hún með uppgerðar- glensi. En henni tekst samt ekki að gera sér upp kátínu og kæru- leysi. Þau fara út úr gömlustofu. Lárus heldur aðeins lauslega undir handlegg Sigríðar á heimleiðinni. Nú er ofurlítið lygnra. Sigríður reynir að' halda uppi smávegis rabbi. En kveljandi þögnin vill ekki sleppa takinu. — Lárus, segir hún, er þau nema staðar heima hjá henni. — Vertu ekki reiður við mig! — Reiður? endurtekur hann. — Nei! — Verðurðu heima í sum- ar? Hún strýkur hendi um stinnhærðan lubba hans nokkrum sinnum, áður en hún svarar. — Nei, ég verð ekki heima í sumar. Ég verð framvegis í borginni. Fyrir fullt og allt, býst ég við, segir hún og hleypur inn um dyrnar. En á leiðinni upp á loftið, hrynja tárin skyndilega af augum hennar. Hún veit ekki af hvers konar völdum. Ef til vill sökum þess, að hún sé ekki fyllilega ánægð með sjálfa sig. En eitt er henni samt ljóst. Það getur aldrei orðið neitt nánara milli þeirra Lárusar. Henni verður allt í einu hugsað til þess, að það var dálítill fjÓ9aþefur af honum, þegar þau lágu bæði á rúm- bekknum í gömlustofu Æjá. Og þannig myndi það ætíð verða. Þannig verður það ævinlega, þegar sýslað er í fjósi og gripahúsum á sveitabæ. Nei, fyrir henni er öllu slíku lokið. Guðisélof að leiðin liggur burt aftur annað kvöld. — Til borgarinnar! AUÐHILDUR FRÁ VOGI: GULLNA BORGIN 14 VII. Villi Rossí kemur inn í hörunds- og fótasnyrtingardeildina. Hann þarf að hafa tal af Iðunni Falk. Hún er að undirbúa móttöku nýs viðskiptanauts. Rossí dregur flauelstjaldið rækilega fyrir, áður en hann segir nokkuð frekar. Hann gengur fast að Iðunni og segir lágt: — Frú Gilda símaði áðan. — O-jæja? segir Iðunn með spurningarhreim. Það er svo sem ekkert nýstárlegt, þótt frú Gilde hefði hringt. Hún er hér fatsur viðskiptanautur og fær andlitssnyrtingu vikulega. En Iðunn hefir haft frú Gilde í huga síðan í gær, er hún hafði ásett sér að fá upp- lestraræfingar hjá henni. — Frú Gilde vill sina venjulegu andlitssnyrtingu, segir Rossí. — Hvenær kemur hún þá? Iðunn veitir því eftirtekt, að Rossí virðist vera í einhverjum vandræðum. — Heyrið þér mig, ungfrú Falk, segir hann í stað þess að svara blátt áfram. — Frú Gilde kemur ekki hingað í dag. Hann segir þetta hálf hvíslandi. — Hún er í því ástandi, að ég get ekki látið hana koma hingað í stofnunina. — Jæja? Og hvernig þá? — Hún er veik. En snyrtinguna vill hún fá, engu að síður. Hún yrði að fá hana sem allra fyrst! Ég varð að lofa henni þessu. Þér vitið, að hún er ágætur viðskiptanautur stofnunarinnar. Og auk þess höfum við haft dálítil einka-viðskipti. — Jæja? Iðunni er ekki fyllilega ljóst, hvað vakir fyrir Rossí. — Ég skal segja yður, eins og er, segir Rossí skyndilega, ósköp lágt. Aumingja frú Gilde fær öðru hverju afar leið drykkjuköst. Hún er of veik til að standast þessa ástríðu sína. Nú hefur hún einmitt haft eitt slíkt kast. En samt get ég ekki neitað henni um snyrti- aðgerðina. Hún myndi taka þvi mjög illa. Þér verðið því að vera svo væn að skreppa heim til hennar eftir lokunartíma. Ég vona að þér látið ekki á neinu bera og takið öllu, eins og ekkert væri at- hugavert. — Já, auðvitað, segir Iðunn rólega. Hún ætlar ekki að segja Rossí, að hún hefði einmitt sjálf ætlað að heimsækja frú Gilde í dag í einkaerindum. — Þökk fyrir, þér hugsið þá um þetta! segir Rossí og fer út úr deildinni. Iðunn opnar fyrir nýjum viðskiptanaut, og meðan hún er að leiðbeina henni í fótalauginni, verður henni hugsað til Rossí. Þegar hann talaði við hana áðan, var engu líkara, en að kona stæði hjá henni. Er það blaðrið um Rossí á þessum vettvangi, sem beinir hugsunum hennar í þessa átt? Nei, það er víst annars ekki, því eiginlega er ekki hægt að nálgast Rossí án þess að verða var kven- legra eiginda hans, bæði í hreyfingum og málrómi. Aðeins klæðn- aður hans ber þess vott, að hann sé karlmaður. En samt eru buxur ekki framar neitt sönnunargagn í þá átt. Iðunn vísar þessum hugsunum hörkulega á bug og fer að sinna vanhirtu tánum í fótalauginni. Stúlkan sem fæturna á, starir forviða á spegilvegginn. Hún andar sterkt að sér frískum, sætkenndum ilmi baðsaltsins. Iðunn minnist þess ekki að hafa séð þessa stúlku hér áður. Og það er sennilega þess vegna, sem hún virðist algerlega heilluð af dýrðar-dásemdinni umhverfis sig. Hún er ekki af þeirri venjulegu kventegund, sem daglega sækir stofnunina. Iðunn lítur með athygli á hendur stúlkunnar. Stórar og slitnar liggja þær í fangi hennar með opin kuldasár hér og þar á fingr- unum. Á nöglum eru þykkar klessur ~aí rauðfjólubláu lakki. Á frost- bólgnum græðifingri er silfurhringur með stórri gulri glerperlu, sem glottir svikabrosi sínu við Iðunni. Iðunn verður að athuga þessa stúlku nánar, sjá beint framan í hana. Hún er hvorki lagleg né ljót. Eins konar mæðublær hvílir yfir augum hennar, eins konar þreytusvipur, sem hún reynir þó að leyna, því hún brosir oft með sterkt rauðmáluðum munni. Ætli þú sért ekki sveitastúlka, flögrar um huga Iðunnar. Sveita- stúlka með atvinnu í borginni. Já, atvinnu! Skyldi sú vinna vera svo miklu betri en sú, sem þú hafðir heima í sveitinni þinni? Iðunn brosir lítið eitt til stúukunnar. Það gæti verið nógu gaman að fitja upp á tali við hana og grennslast eftir, hvort hún væri raunverulega úr sveit. En henni virðist fremur stirt um mál. Hún reynir að tala borgarmál, en ferst það svo klaufalega, að Iðunni verður þegar ljóst, að hún er ekki borgarstúlka. Hún reynir því ekki frekar að halda áfram neinu samtali. Iðunn finnur spretta upp í sér meðaumkun og samúð með þessari ungu stúlku með frostbólgnar vinnuhendur og gervihring á fingri. Allt sem stúlka þessi ber með sér, vekur meðaumkun hjá Iðunni. Hún sárkennir í brjóst um hana. Og þó virðist stúlkan ekki vera af því tagi, sem telur sig hafa þörf fyrir þess háttar. Iðunn flýti sér ekkert með fótasnyrtingu stúlkunnar Það er henni samvizkusök að gera þetta vel. Og samtímis flæða hugsanirnar inn á hana: — En ef hún segði nú við stúlkuna: Farðu nú heldur heim aftur í sveitina þína. Litastu þar vel um, og þú munt brátt sjá þar margs konar dýrð og dásemdir, sem þú varðst ekki vör áður. Það mun auðga líf þitt og öryggi, gerir þú þér þetta ljóst í tíma. Farðu sem fyrst úr borginni. Þar áttu ekki heima! Hér ertu utangátta og —ófrjáls og ókunnug hegðun og háttum borgarinnar, sem þú reynir þó að apa eftir og nota fegrunartækni, sem þú hefur ekki lært að nota á réttan hátt. Hér verðurðu bara eins og skrautmálað auglýs- ingaspjald. Farðu heim áður en borgin hefir reytt þig og rúið heil- brigðu yfirbragði þínu og vonum! Framhald. Á

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.