Dagur - 19.02.1964, Page 7
7
Jósafat hér - og Jósafat þar
EYFIRÐINGAR hafa síðustu
vikurnar horft á hinn harðvít-
uga fjármálamann, Jósafat, í
samnefndum sjónleik, sem sýnd
ur var af íbúum Hrafnagils-
hrepps af miklum myndarskap.
Sagan, sem leikurinn er byggð-
ur á, er Sambýlið eftir Einar H.
Kvaran.
En sá Jósafat hefur nú eign-
ast skæða keppinauta í Stór-
Reykjvík, bæði nafna sinn og
aðra, sem mjög eru á dagskrá
síðustu dagana vegna fjársvika.
Sú saga er sögð fyrir sunnan,
að einn slíkur hafi fyrir stuttu
boðið til drykkjuveizlu í tilefni
þess, að eitt fyrirtækja hans af
- STÓRVIRKJUN
(Framhald af blaðsíðu 4).
„Annars vegar eru tækni-
legar athuganir á möguleilt-
um til stórvirkjunar hér á
landi og kostnaði við hana
og tækniSeg atriði varðandi
staðsetningu alúminíum-
bræðslu. Hins vegar eru at-
liuganir á því, hvort unnt
verði að semja við erlend al-
úminíumfyrirtæki um bygg-
ingu og rekstur alúminíum-
bræðslu hér á landi með
kjörum sem Islendingum
væru aðgengileg.“
Að „aíhugunum“ þessum
Iiafa stóriðjunefnd og raf-
orkumálastjórnin unnið „fyr
ir hönd ríkisstjórnarinnar og
á hennar vegum,“ sagði ráð-
herrann í skvrslu sinni.
Hann sagði enn fremur:
„Þær athuganir, sem gerð-
ar hafa verið til þessa, benda
til þess, að 105 þús. kw. orku
ver við Búrfell muni vera
liagkvæmasta lausnin. — —
Um staðsetningu alúminíum
verksmiðju er það að segja,
að athuganir hafa leitt í
ljós, að ódýrast og hagkvæm-
ast sé að staðsetja hana við
suiinanverðan Faxaflóa. —
Hins veirar er einniar verið
að atliuga möguleika á því,
að alúminíumbræðslan yrði
staðsett við Eyjafjörð, ef há-
spennulína yrðt'fögð frá Búr
felli til Akureyrar.“
Ráðherrann gaf einnig
upplýsingar um athuganir,
sem fram hefðu farið í sam-
bandi við möguleika til að
koma upp olíuhreinsunar-
stöð hér á landi. Um þetta
kvað hann hafa verið rætt
við erlenda aðila og fengnar
hjá þeim tillögur og áætlan-
ir. Þetta mál hefði einnig
verið til meðferðar í stór-
iðjunefnd. Hann kvað stofn-
kostnað áætlaðan 300—350
millj. kr. og sagði, að kom-
ið hefði til greina, að erlend-
ir aðilar yrðu meðeigendur i
fyrirtækinu.
Oll eru þessi mál nú sýni-
lega á því stigi, að brýna
nauðsyn ber til, að Alþingi
taki þau til meðferðar, og þá
taki þau til meðferðar, og þá
verði með þeim hætti, sem
gert er ráð fyrir í þáltill.
þessari." □
mörgum átti að taka til starfa.
Boðskortin voru send út á
fimmtudegi. Tveim dögum síð-
ar, á tilsettum tíma, mátti sjá
marga fyrirmenn í stjórnmál-
um og bankamálum aka bifreið
um sínum til veizlunnar. Þar
flóði vín, og borð svignuðu und-
an öði-um veizluföngum, en enn
vantaði húsbóndann. Einn við-
staddur bankastjóri vildi ekki
hreyfa við glasi sínu fyrr en
hann mætti skála við gestgjafa
sinn og drekka heillaskál hans
og hins nýja fyrirtækis. Hann
var engu að síður fjarverandi,
en kona hans bað bankastjór-
ann að afsaka: Maðurinn minn
er forfallaður sagði, hún. Hon-
um hafði daginn áður verið
stungið í steininn og hefur nú
leyst vel frá skjóðunni.
Hinn gamli og harðdrægi
Jósafat, sem Eyfirðingar settu
á svið, hverfur alveg í skuggann
af hinum nýju Jósafötum á
okkar dögum. Mælt er, að heil-
ir bófaflokkar standi á bak við
(Framhald af blaðsíðu 1).
um viðræðufundum með stjórn
Loftleiða og lögfræðilegum
ráðunautum. Af hálfu Loftleiða
er kaupsamningurinn gerður
með skilyrðum, sem nánar verð
ur samið um síðar í þessum
mánuði.
Verð beggja flugvélanna er
sem fyrr segir 400 milljónir ís-
lenzkra króna með fylgifé.
Skrúfuþotur af gerðinni CL-
44 komu fyrst á markaðinn fyr-
ir þrem árum og eru nú 40 slík-
ar vélar í notkun, þar af 20 í
eigu bandarískra flugfélaga, en
Kanadiski flugherinn á og all-
margar flugvélar af þessari
gerð. Bandarísku flugfelögin
sem eiga samskonar vélar og
Loftleiðir hafa nú fest kaup á,
eru Seaboard-Western, Flying
Tiger og Slick. Hafa vélar þess-
ar flogið samtals 80 milljónir
kílómetra, þar af um hálfa aðra
jnilljón farþegakílórilétrá.
í í fréttatilkynningu frá Loft-
leiðum segir að þægilegt og
auðvelt verði að koma 160 far-
þegum fyrir í farþegasal, en
með innréttingabreytingum er
hægt að auka þá tölu nokkuð.
í flugi milli Evrópu og Am-
eríku verður 9—10 manna
áhöfn á CL 44, flugstjóri aðstoð
arflugmaður, flugvélstjóri, flug-
leiðsögumaður og 5—6 flugfreyj
ur.
Vélarnar vega tómar nákvæm
lega jafnmikið og Cloudmaster
vélamar fullhlaðnar. Þurfa þær
því lengri brautir til flugtaks og
lendingar en fyrir hendi eru á
Reykjavíkurflugvelli. Verða
þær því að lenda á Keflavíkur-
flugvelli, ag flytur félagið allan
flugrekstur sinn þangað í maí.
í hinar nýju vélar Loftleiða
verða sett fullkomin og þægi-
leg sæti af nýrri gerð. Þá verð-
ur sú nýjung innleidd að á öll-
um flugleiðum þar sem þessar
nýju vélar verða notaðar munu
hin nýju fjársvikamál og að
ekki dugi minna en erlendir sér
fræðingar til að hafa hendur í
hári þeirra. Á meðan það er
ekki gert leikur almenningur í
þessu landi hlutverk Grímu
gömlu þvottakonu og verður að
þola raunir hennar. □
Körfuknattleiksmót
Norðurlands
MÓTIÐ hófst á Akureyri s.l.
sunnudag. Fjögur lið frá Akur-
eyri taka þátt í því, KA, A- og
B-lið Þórs og ÍMA (Menntaskól
inn). Mikill áhugi er fyrir körfu
knattleik hér í bænum, enda er
þetta skemmtileg íþrótt. Eins og
fleiri inniíþróttir á hún erfitt
uppdráttar vegna hins þrönga
húsnæðis. Þrír leikir hafa farið
fram og urðu úrslit þessi: KA
vann B-lið Þórs 60:19. A-lið
Þórs vann ÍMA 94:33 og A-lið
Þórs vann B-lið Þórs.
Mótið heldur áfram. □
heitir réttir framreiddir handa
farþegum.
Ekkert hefur enn verið ákveð
ið hvar viðhald hinna nýju flug
véla muni fara fram, en til þessa
hefur viðhald flugvéla Loftleiða
farið fram á Sola flugvelli í Nor
egi. □
- FJÁRSVÍKAMÁLIN
(Framhald af blaðsíðu 8).
erfiðleikum vegna fjárskorts og
er það allt önnur saga og fjár-
svikúm óskyld.
Það hefur vakið nokkra
furðu, hve Mbl. gerir lítið úr
fjársvikamálum þeim, sem þó
eru opinberlega á dagskrá síð-
ustu daga og vikur, og Vísir hef
ur látið í Ijósi álit sitt á frétta-
þjónustu um þau. Slík mál hafa
þó ekki verið feimnismál í
þessum blöðum, þegar pólitískir
andstæðingar áttu hlut að máli,
svo sem í olíumálinu fræga.
Einu sómasamlegu viðbrögð
einstaklinga, flokka og stétta,
gagnvart þeim hættum fjármála
lífsins, sem hér hafa verið gerð
að umtalsefni, er rækileg rann-
sókn og réttlátir dómar, hver
sem hlut á að máli. Á þann eina
hátt er von um endurreisn ís-
lenzks fjármálalífs. □
- Akureyrardeild KEA
(Framhald af blaðsíðu 1).
Kosningar fóru þannig, að
Ármann Dalmannsson var end-
urkosinn deildarstjóri og einn-
ig voru þeir endurkosnir í
stjórn deildarinnar, Sigurður
O. Björnsson og Jón Kristins-
son.
Félagsráðsmaður var kosinn
Erlingur Davíðsson og til vara
Þorsteinn Jónatansson.
Þá voru kosnir fulltrúar á
aðalfund KEA. Aðeins einn
listi hafði borist og var hann
því sjálfkjörinn.
(F réttatilkynning).
lofileiffir kaupa nýjar fiugvélar
□ RÚN 59642197 — I Atkv.-.
FÖSTUMESSA í Akureyrar-
kirkju í kvöld, miðvikudag.
Sungið úr Passíusálmunum.
Fólk er vinsamlega beðið að
taka sálmana með í kirkjuna.
MESSAÐ í Akureyrarkirkju kl.
2 á sunnudaginn kemur. Sálm
ar nr. 5, 58, 130, 346 og 684.
P S.
SUNNUDAGASKÓLI AKUR-
EYRARKIRKJU er á sunnu-
daginn kemur kl. 10,30 árdeg-
is. 5 og 6 ára börn í kapell-
unni og 7—13 ára börn í
kirkjunni. Mætið stundvís-
lega.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. Messað í
Glæsibæ sunnud. 23. febrúar,
kl. 2 e. h. (Séra Stefán V.
Snævarr). — Sama dag kl. 2
e. h. á Bakka og kl. 4,00 e. h.
á Bægisá. (Séra Birgir Snæ-
björnsson). — Sóknarprestur.
DRENGJADEILD.
Fundur kl. 8,30 e. h.
fimmtudaginn 20. þ.
m.
LÁTIÐ SÖGU annast ferðaþjón
ustuna. — Ferðaskrifstofan
Saga. — Sími 2950.
NÁMSKEIÐ KNATTSPYRNU-
DÓMARA hefst miðvikudag
26. febr. kl. 8,30 e. h. í fund-
arsal Hótel Varðborg. Allir
þátttakendur mæti stundvís-
lega. Enn er hægt að bæta við
nýjum nemendum, þó aðeins
í þetta sinn.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 23. febr. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. f. h. Fundur
í Kristniboðsfélagi kvenna kl.
4 e. h. Allar konur velkomn-
ar. Samkoma kl. 8,30 e. h. All
ir velkomnir.
GJÖF frá Öskudagsflokki Jónu
og Rósu, Glerárhvefi til
barna á Kristneshæli kr. 250.
Öskudagspeningar Ármanns
Jónssonar kr. 8,00, gjöf til
Rauða Kross íslands. Hjartan-
legustu þakkir. Birgir Snæ-
Björnsson.
ÞORRABLÓT. Karlakór Akur-
eyrar efnir til Þorrablóts í
Alþýðuhúsinu 29. þ. m. Söng-
ur o. fl. skemmtiatriði. Vel-
komnir kórmenn, styrktarfé-
lagár, og - (ý^lpnftarar > méðan
1 húsrúfn leyfir. — Karlakór
Akureyrar.
flSJALFSBJÖRG. Al-
mennur fundur verður
haldinn að Bjargi, mið
vikudaginn 19. febrúar
kl. 8,30 e. h. Áríðandi
félagsmál og skemmtiatriði.
Þeir, sem óska eftír að verða
sóttir heim, hringi í síma
2672 kl. 6,30—7,30 síðdegis. —
Þorrablót félagsins er ákveð-
ið 22. febr. kl. 7,30. Fél. skrifi
sig á lista í Véla- og Raftækja
sölunni í Hafnarstræti 100,
fyrir miðvikudagskvöld. —
Stjórnin.
SKÓGRÆKTARFÉLAG Tjam-
argerðis heldur aðalfund á
Stefni fimmtudaginn 20 febr.
kl. 8,30 e. h. Venjuleg aðal-
fundarstörf. — Stjórnin.
AKUREYRARDEILD Menning
ar- og friðarsamtaka íslenzkra
kvenna heldur aðalfund mið-
vikudaginn 19. febrúar kl.
8,30 að Hótel Varðborg. —
Dagskrá: Venjuleg aðalfund-
arstörf. 2. Erindi (Þórir Dan-
íelsson). Önnur mál. — Kaffi
drykkja. — Stjórnin.
HJÓNAEFNI. S.l. laugardag
opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Kristín S. Ragnarsdóttir
Skjóldal og Jakob Jóhannes-
son Gilsbakka Hrafnagils-
hreppi. Heimili þeirra er
Helgamagrastræti 6 Akur-
eyri.
■A, LIONSKLUBBUR AK-
UREYRAR. — Fund-
ur í Sjálfstæðishúsinu
fimmtudaginn 20.
12,15. — Stjórnin.
þ. m. kl.
VEKJUM ATHYGLI á því, að
panta þarf mat fyrir hópa
með dags fyrirvara. Hringið'í
síma 02 og biðjið um hótelið.
Leigjum út herbergi og svefn
pokarúm. Verið velkomin í
Hlíðarfjall.
SJÁ auglýsingu í blaðinu í dag
um Daf-bílinn, sem verður til
sýnis á laugardaginn.
I.O.G.T. Stúkan Ísafold-Fjall-
konan nr. 1 heldur Þorrablót
að Bjargi laugardaginn 29.
febrúar Áskriftalisti liggur
frammi hjá Sveini Kristjáns-
syni í Amaro, sími 2833 og
Rakarastofu Jóns Kristinsson
ar, sími 2131, til laugardags
22. febrúar. Félagar skrifið
ykkur sem fyrst.
I.O.G.T. Stúkan Ísafold-Fjall-
konan nr. 1 heldur fund oð
Bjargi fimmtudaginn 20. þ.
m. kl. 8,30. Fundarefni: Vígsla
nýliða. Skýrsla frá Þorra-
blótsnefnd. Rætt um út-
breiðslukvöld o. fl. — Eftir
fund: Kaffi og dans. — Æ. T.
AUSTFIRÐINRAR athugið! —
Árshátíð félagsins verður
frestað til 13. marz n. k. —
Austfirðingafélagið á Akur-
eyri.
- FRÁ BÆJARSTJÓRN
(Framhald af blaðsíðu 8).
austan Haga h.f. sunnan
ónefndrar götu, er liggur norð-
ur í Sandgerðisbót. Lóðin er
fyrirhuguð fyrir verkstæðis-
byggingu og þungavinnuvélar.
Nefndin leggur til að umsækj-
endum verði veitt lóðin. Lóðar-
stærð ca. 3500 fermetrar, en
ákveðist nánar samkv. útmæl-
. inguv Lóðarleig^i kr. ,2,00 á fer-
mietra, meðan ekki er gerð brú
á Glerá um Krossanesbraut.
Lóðarleiga endurskoðist á heil-
um og hálfum tug ára. Lóðar-
leiga verði greidd frá þeim
tíma er lóðin verður byggingar-
hæf. Fyrirvari er gerður um
hvenær lóðin verður byggingar-
hæf og um útmælingu hennar.
í lóðasamning verði settar kvað
ir um bílastæði, samkv. reglum
skipulagsins. Byggingafrestur
eitt ár, frá þeim tíma er lóðin
verður byggingarhæf. Fyrirvari
er gerður um umferðarrétt um
lóðina, vegna gerðar Glerárfar-
vegs. □
NÝKOMNAR:
PEYSUR með nillukraga
10 litir.
Verzlunin HEBA
Sími 2772