Dagur - 23.03.1964, Síða 1
,»— .............- ?
NÝIR KAUPENDUR
fá framlialdssöguna,
„GULLNA BORGIN“
frá byrjun.
Hringið í síma
1166 eða 1167.
VINSAMLEGA LÁT-
IÐ VITA EF VAN-
SKIL VERÐA Á
BLAÐINU.
Símar 1166 og 1167.
FLUGKAFFIÁ FLUGVELLINUM
í GÆR var opnu'ð veitinga-
stofa í flugstöðinni á Akur-
eyrarflugvelli. Hún heitir
Flugkaffi og er á vegum
Varðborgar. Þar fæst kaffi,
kaldir drykkir, brauð, sæl-
gæti og tóbak.
Þegar sumaráætlun F.f.
hefst, verður veitingastafan
opin allan daginn, en þangað
til verður hún aðeins opin
þegar flugumferð er um völl-
inn.
Slippstöðin sá um innrétt-
ingar. Stefán Ág. Kristjáns-
son hefur séð um fram-
kvæmdir f. h. templara og
samningagerð við flugmála-
stjórnina um innréttingar og
rekstur til næstu 5 ára.
Flugkaffi verður vel þeg-
ið, og hefði átt að vera kom-
ið þar fyrir löngu. □
Fyrsti starfsfræðsludagurinn
á Blönduósi í gær
þótti takast mjög vel og var hann fjölsóttur
FYRSTI starfsfræðsludagurinn
sem haldinn hefur verið á
Blönduósi, var haldinn þar í
gær, 22. marz, í hinu mikla
og vistlega félagsheimili. Það
voru skólastjórarnir Þorsteinn
Matthíasson á Blönduósi og
Páll Jónsson í Höfðakaupstað,
sem hrundu málinu fram og
stjórnuðu kynningu 50 starfs-
Lítt sæmileg tramkoma ferðafótks aS
Saurum á Skagasfrönd
NAFNIÐ Saurar á Skagaströnd og fólkið á bænum, Guðniundur
Einarsson, Margrét Benediktsdóttir kona hans, og börn þeirra,
komu mjög óvænt á dagskrá útvarps og blaða. Um þennan stað
og fólkið þar var talað um allt land manna á milli, og er enn.
Ástæðan er sú, að þar tóku að gerast litt skiljanlegir atburðir s.l.
þriðjudagskvöld og hafa staðið síðan. Hlutir hafa verið færðir úr
stað og leirtau brotið á óvenjulcgan hátt og fleira hefur verið
brotið og skemmt.
FÓLK streymir að úr öllum átt-
um. Það vildi ræða við heimilis
fólkið, fá sem öruggastar frétt-
ir, sjá með eigin augum, að
þetta allt gæti, eða gæti ekki,
gerst af manna völdum, já, vildi
fá að sjá borð og stóla fljúga,
leirtau þjóta niður á gólf, án
þess nokkur kæmi við það
minnsta fingri og svo vildi það
líka sjá hinn dularfulla.
Um helgina var svo komið,
að heimilisfólkið var orðið úr-
vinda af þreytu og svefnleysi,
ekki af hinu „yfirnáttúrulega,“
heldur af átroðningi gesta.
Fréttamaður Dags kom þang-
að síðdegir í gær og ræddi stund
arkorn við heimafólk. Varð þá
ljóst, að það hefur orðið fyrir
slíkri yfirþyrmandi frekju og
yfirgangi, að með ólíkindum má
telja. T. d. var margt aðkomu-
fólk þar alla sunnudagsnóttina,
fyllti lítil húsakynni, lá á glugg-
um, tók jafnvel „blossa“-myndir
inn um gluggana. Neitaði að
fara út eða yfirgefa staðinn fyrr
en „eitthvað gerðist.“ Þetta að-
komufólk brýtur allar viðtekn-
ar siðvenjur í umgengni og ríð-
ur húsum dag og nótt — miklu
meira og af enn meiri ókurteisi
en sá „óþekkti," og lætur hann
þó illa. □
greina. En studdir voru þeir af
mörgum áhugamönnum, sem
sjá það betur og betur, hve nauð
synlegt það er, að ungt fólk
eigi þess kost að kynnast, eftir
því sem kostur er, hinum mörgu
starfsgreinum, sem því standa
til boða í þjóðfélaginu. Meðal
þeirra sem sóttu starfsfræðsluna
voru að sjálfsögðu nemendúr
skólanna á Skagaströnd og
Blönduósi, ennfremur nemend-
ur Reykjaskóla í Hrútafirði.
Kaupfélagið stuðlaði að því
fyrir sitt leyti, að starfsfræðslu-
dagurinn gæti orðið sem fjöl-
breyttastur og hafði af því til-
efni opið og til sýnis mjólkur-
samlagið og vélsmiðjuna.
Þótt blaðið hafi ekki fengið
nákvæmar fregnir af fræðsl-
unni, er það víst, að unga fólk-
ið hafði þarna mjög mikinn
áhuga á tæknifræðum.
Á Blönduósi eru 650 íbúar og
fer heldur fjölgandi. Byggingar
íbúða, verzlana, verkstæða og
byggingar til félagslegra afnota
eru töluverðar á ári hverju.
Engin útgerð er á staðnum,
enda staðurinn hafnlaus að
kalla. Þar tapar enginn á út-
gerð.
Margs konar iðnaður og verzl
ur er aðalatvinna þorpsbúa.
Margt er þar fleira, sem styður
(Framhald á blaðsíðu 2).
Um nolkun stefnuljósanna
Orðsending lögreglunnar til ökumanna
SAMKVÆMT 52. gr. umferð-
arlaga nr. 26 1958 er skylt að
gefa merki um breytta aksturs-
Iljónín á Sauruni, Guðmundur Einarsson og Margrét Benediktsdóttir. í miðjunni er Björgvin sonur
þeirra bjónanna. Ilann er heima við lirognkelsaveiðar ásamt föður sínum og Benedikt bróður sínum
nú um tíma, en búsettur er hann í Höfðakaupstað. (Ljósmynd: E. D.)
stefnu, þegar þörf er á, til leið-
beiningar fyrir aðra umferð.
Merki þessi skal gefa með
stefnuljósum á bifreiðum. —
Stefnuljós eru mjög þýðingar-
mikil tæki til þess að greiða fyr-
ir umferð og draga úr slysa-
hættu. Stefnuljósin koma því
aðeins að gagni, að þau séu
(Framhald á blaðsíðu 7).
SfLDARFLOTVARPA
SAGT ER, að nýi skuttogai'inn
þeirra Siglfirðinga, sem áður
vai' frá sagt, geti veitt með hriftg
nót, flotvörpu og botnvörpu í
sömu veiðiferð.
Flotvarpa sú, er skuttogarinn
hyggst nota, er af nýrri gerð.
Þjóðverjar hafa nýlega endur-
bætt flotvörpuna með ágætum
árangri á veiðum í Norðursjó,
og munu Siglfirðingar háfa
fylgst vel með þróun þeiri'a
mála. □