Dagur - 23.03.1964, Síða 7
Áskorun til Alþingís
(Framhald af blaðsíðu 5).
Hörgárdal byggðu ungmenna-
félögin sundlaug, sem þau létu
heit Jónasarlaug, eftir lista-
skáldinu góða, Jónasi Hallgríms
syni, að vísu ekki eins rismikill
xninnisvai'ði, eins og hinna skáld
anna, en minnisvarði engu að
síðui'. Nú vil ég skora á hátt-
virt Alþingi og ríkisstjórn, að
leggja drög að því á þessu þingi,
sem nú situr, að gamli Möðru-
vallaskólinn verði endurreistur,
eins fljótt og tök eru á, og hann
verði reistur til minningar skáld
anna okkar þriggja. Tilvalinn
staður fyrir slíkan skóla væri á
Laugalandi í Hörgárdal, við
hliðina á Jónasarlaug, og mætti
þá heita Davíðsskóli. í slíkum
skóla yrði bragfræði að vera
skyldunámsgrein.
í reglugerð skólans ætti að
vera ákveðin fyrirmæli um að
kynna sérstaklega verk þessara
þriggja skálda. Hvern vetur
ætti að halda upp á afmælis-
daga þeiri'a, með því að lesa
upp úr verkum þeirra, og bjóða
sveitafólkinu hér í byggðinni á
að hlýða. Ég ætlast til þess að
allir þingmenn kjördæmisins
beiti sér sameiginlega fyrir máli
þessu og það verði hafið yfir
flokkadeilur og sýndarmennsku.
Ég vona að ritsnillíngar og að-
dáendur skáldanna vinni að
þessu máli, svo það megi verða
sem fyrst að veruleika, að virðu
legt menntasetur rísi hér Uþp á
æskuslóðum skáldanna, og þáð
verði talið maklegt fyrir byggð-
ina, sem fóstraði þau og mótaði,
að slíkt verði gert af hendi sam
félagsins. Og ég vil ekki ætla
að óreyndu áð ráðamenn þjóð-
félagsins verði með nokkra
tregðu, að láta reisa slíkan
minnisvai'ða. „Að vérða skáld,
hóðan úr-.byggðinni hafi náð, ef
þeir fá menntnu, til að verða
skáld eða eitthvað annað, þjóð-
inni til álitsauka og blessunar.
Og eitt er víst, að ekkert mundi
verða frekar að skapi skáldsins
frá Fagraskógi, en að minnis-
varði um hann, ef reistur yrði,
væri þess umkominn að þroska
og göfga æskufólkið í átthög-
um hans sjálfs, það sézt bezt á
verkum hans. Hinn mikli þjóð-
arleiðtogi og skólamaður, Jónas
Jónsson frá Hriflu, skyldi það
öllum öðrum fremur, að ef
lyfta ætti þjóðinni, yrði það
ekki gert án menntunar. f hans
ráðherratíð risu upp héraðsskól-
ar í hinum dreifðu byggðum,
þó þjóðin væri margfalt fátæk-
eri þá en nú.
Æskan í þessu landi getur
aldrei fullþakkað honum fyrir
það.
En þrátt fyrir hið mikla
brautryðjandastarf og framsýni
Jónasai', er skólamálum dreif-
býlisins komið eins og áður er
lýst, vegna þess að eftirmenn
hans höfðu ekld sömu framsýni
og hann og skilning á þörfum
dreifbýlisins í þessum málum.
Ef sveitirnar standa ekki jafn-
fætis við þéttbýlið hvað mennt-
un snertir, mun það verka á
bændastéttina í heild sem skort
ur á sjálfstrausti, eins og, því
miður, er nú þegar farið að bera
á, en án sjálfstrausts sveitafólks
ins, getur það aldrei varðveitt
rétt sinn um sömu lífskjör, og
stéttir þéttbýlisinns hafa á
hverjum tíma. Ef hlutur dreif-
býlisins verður fyrir borð bor-
inn, eins og nú hefur verið um
allmörg ár, og fer alltaf versn-
andi, þá mun þjóðarheildin við
það bíða alvarlegan hnekki,
menningarlegan og fjárhagsleg-
an, hvað sem skýjaglópar og
talnafalsarar segja. Sú virkjun,
sem dreifbýlinu og allri þjóð-
inni er lífsnauðsyn að gerð sé,
er virkjun manngildisins.
Að hver og einn fái tækifæri
til að njóta sinna hæfileika, að
það sé laðað fram, sem hann af
náð, kann að hafa fengið í
vöggugjöf, og þjóðfélagið fái not
ið þess. Slík virkjun verður að
vísu ekki fyrir erlend auðfélög,
en stórvirkjun getur það orðið
engu að síður, til að tryggja
áframhaldandi hagsæld sjálfri
þjóðinni til handa, og til að
auka andlega reisn hennar og
trú á sjálfa sig. Hinir raunveru-
legu uppalendur í Davíðsskóla
yrðu skáldin þrjú, Jónas Hann-
es og Davíð, og það ætti að vera
næg trygging fyrir þjóðfélagið,
að úr slíkum skóla hlytu að
koma margir áhrifamenn á ís-
lenzkt þjóðlíf. Þeir yrðu tengd-
ir fortíðinni og því færari en
aðrir til að vísa þjóðinni veginn
á komandi tímum. Og nemend-
ur, sem mótast í slíkum skóla,
og tileinka sér lífsviðhorf meist
ara sinna, hljóta að verða trúir
landi sínu og þjóð, hvað sem í
skerst. Eins og áður er sagt,
komu ráðherrar og alþingis-
menn um langan veg til að votta
Æskubyggð ,h'3ns- væntir þess,
að það líði ekki langur tími þar
til þeir koma aftur til að leggja
hornstein að Davíðsskóla, horn-
stein að því, að andi hans vaki
yfir byggð hans um ókomna tíð.
Skrifað um miðjan marz 1964.
Stefán Valgeirssón,
Auðbrekku.
- STEFNULJÓSIN
(Framhald af blaðsíðu 1).
réttilega notuð. Vanræksla á
notkun getur valdið slysi og
röng stefnubending býður hætt-
unni beinlínis heim.
Skylt er að gefa merki í tæka
tíð um fyrirhugaða stefnubreyt-
ingu, t. d. þegar beygt er á
gatnamótum og þegar ekið er
af stað frá brún akbrautar, og
þegar skipt er um akrein. Gæta
ber þess sérstaklega að hætta
merkabendingum þegar þær
eiga ekki lengur við.
í sambandi við orðsendingu
lögreglunnar um stöður bif-
reiða, lætur hún þess getið, að
orðsendingin hafi borið mjög
góðan árangur. Hér eftir mun
lögreglan beita sektarákvæðum
við brot á reglum um stöður
bifreiða, svo sem um önnur brot
á umferðarlögunum. □
FERMINGARBORN
i A k ureyrarkirkju 2. pnskadág, 30.
marz, kl. 10.30 árdegis.
DRENGIR:
Ásgeir Geirdal Guðmundsson, Ham-
arsstíg 4.
Birgir Pctursson, Hrafnabjörgum.
Bjarni Jensson, Munkaþverárstr. 8.
Brynjólfur Snorrason, Gránufól.g. 48
Egill Tómas Jóltannsson, Byggðavegi
120.
Eðvald Sigtirbjörn Geirsson, Grund-
argötu 4.
Finnbogi Jónsson, Álfabyggð 18.
Guðjón Smári Valgeirsson, Berglandi
Gltnnar Viðar Geirsson, Aðalstr. 23.
Gunnar Kristdórsson, Aðalstræti 7.
Gttnnar Þorsteinssón, Hamarsstíg 27.
Helgi Þorvalds Gunnarsson, Gils-
bakkaveg 5.
Ingimunduf Fliðriksson, Þórunnar-
stræti 113.
Ingólfur Hrafnkell Ingólfsson,
Slfandgotu 33.
ísak Jóhann ólafsson, Álfabyggð 18.
Kristinn örn Jónsson, Oddeyrarg. 23
Kristján Halldórsson, V'anabyggð 6C.
Kristján Jónsson, Löngumýri 1.
Ólafur Tryggvi Kjartansson, Spítala-
veg 9.
Ólafur Thorarensen, Hafnarstr. 6.
Pctur Pétursson, Hamarsstíg 24.
Theodór Hallsson, Þingvallastr. 44.
Tryggvi Rafn Gunnarsson, Ásveg 30.
Tryggvi Kristinn Jakobsson, Byggða-
veg 101A.
Stefán Birgir Sigtryggsson, Ásveg 20.
Svanberg Árnason, Þingvallastr. 38.
Sveinbjörn Björnsson, Hafnarstr. 88.
Sveinn Þórðarson, Munkaþv.str. 34.
Þorvaldur Kristinsson, Munkaþver-
árstræti 15.
STÚLKUR:
Aðalbjörg SVanhvít Kristjánsdóttir,
Bjarmaslíg 9.
Anna Lilja Sigurðardóttir, Hafnar-
stræti 85.
Dófa Nikolína Gunnarsdóttir, N.orð-
urbyggð 2.
Erla ólafsdóttir, Hafnarstræti 67.
Erna óladóttir, Löngumýri 4.
Gtiðrún Viglundsdóttir, Lækjarg. 6.
Gyða Sólrtin Leósdóttir, Aðalstr. 14.
Helga Jónsdóttir, Hamarsstíg 26.
Hildur Benjatnínsdóttir, Hrafnagils-
stræti 33.
Hildur Káradóttir, Þórunnarstr. 106.
Hulda Kristjánsdóttir, Grænumýri 7.
Lena Margareta Otterstedt, Hamars-
stíg 35.
Ólöf .Dóra Kondrttp, Hafnarstr.,88.'
Sigríður Árnadóttir, Hrafnagilsstr. 4.
Þórunn Anna Sigurðardótlir, Þing-
vallastræti 8.
Viiiiiiiigar í Akureyr-
arumboði H. í.
10.000 króna vinning híutu:
12203 og 33163
5.000 króna vinning lilutu:
1605 1622 11183 12435 12570
15551 18042 36486
1.000 króna vinning hlutu:
1550 2149 3270 3580 3589
3600 4652 5215 5381 5668
6015 6016 6881 7014 8230
8231 8987 10097 11192 11301
11305 11893 12053 12068 12264
12556 13379 13627 13635 13649
13796 13901 13912 13962 14398
14444 14926 15015 15995 16000
16584 16592 17058 17463 17856
17862 17928 17932 18459 19600
21684 21946 22419 22740 23230
23551 25589 25597 25942 25963
25970 26323 29001 30537 30588
31182 31196 31590 31594 36459
37008 37012 40593 41783 41790
42012 42819 42835 42837 43097
44736 44875 46820 47451 48285
49093 49156 49166 49175 49203
50451 52468 53205 53827 53973
54055 54061 54100 55798 58009
59753 (Birt án ábyrgðar).
GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundai-
þingarprestakalli. — Grund,
föstudaginn langa kl. 1,30 e.
h. Kaupangi páskadag kl. 2
e. h. Munkaþverá annan
páskadag kl. 1,30 e. h.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Almennár samkomur verða á
föstudaginn langa og páska-
dag kl. 20,30. Benedikt Arn-
kelsson stud. theol. talar. —
Allir velkomnir. — Sunnu-
dagaskóli á páskadag kl. 11.
Oll börn velkomin.
FÍLADELFfA, Grundargötu 12,
tilkynnir: Hátíða-samkomur
verða þannig: Skírdag kl.
8,30 e. h. og föstudaginn
langa kl. 8,30 e. h. Páskadag
kl. 8,30 e. h. og annan páska-
dag kl. 8,30 e. h. Væntanlegir
þátttakéndur og ræðumenn
verða: Ásgrímur Stefánsson,
Reykjavík, Glúmur Gylfason,
Reykjavík og Anne Marie
Nygren frá Finnlandi. Söng-
ur og hljóðfæraleikur. Allir
hjartanlega velkomnir.
MINNINGARSPJÖLD kristni-
boðsins í Konsó fást hjá Sig-
ríði Zakaríasdóttur Gránufé-
lagsgötu 6.
PÁSKAEGG
í góðu úrvali.
FERÐANESTI
við Eyjafjarðarbraut.
(Opið framvegis frá
kl. 10—23.30)
GÓB STOFA
til leigu fyrir einhlevpan
reglumann.
Sími 2331.
HÚSEIGENDUR!
Geymslupláss óskast til
leigu.
Sími 1796.
DRÁTTARVÉL
Til sölu er Diesel-traktor-
inn „Honnó-mag“ með
sláttuvél og moksturstækj-
um, árgerð 1955 (R 12.).
Semja ber við undirritað-
an fyrir 20. apríl 1964.
Sigurður Haraldsson,
Ingjaldsstöðum.
Sími um Fosshól.
TIL SÖLU:
Kýr og hestar.
Hreinn Jósavinsson,
Auðnum.
TIL SÖLU
með vægu verði:
AGA-ELDAVÉL
í góðu ásigkomulagi.
Jónas Helgason,
Grænavatni.
Sími um Skútustaði.
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
opið á sunnudögum kl. 2—5
e. h.
J\mtshnkasafittö er opið
alla virka daga kl. 2—7 e. h.
ORÐSENDING
ÉG vildi mega vekja ‘ athygli
félaga minna í Þingeyingafélag-
inu á Akureyri, á því, að ef á
að verða samheldni í félaginu,
líf og fjör, og nokkur starfsemi,
þá verða félagar þess að hafa
hugfast að sækja skemmtanir
þess. Það er ekki nóg að nokkr-
ir félagar þess sæki skemmtan-
irnar, æfinlega, heldur eiga
menn, konur og karlar, að
koma sem flest á samkomur fé-
lagsins.
Næsta skemmtun verður 4.
apríl n. k. í litla sal Sjálfstæðis-
hússins (uppi), verður þá spil-
uð félagsvist, sýnd kvikmynd
og dans.
Svo hafa konur í félaginu,
sem kosnar voru í bazarnefnd,
óskað eftir að félagar styrki þá
viðleitni, og bregðast félagar að
sjálfsögðu vel við ósk kvenn-
anna, um gjafir til bazarsins.
Þá ættu allir Þingeyingar hér
á Akureyri að ganga í félagið,
því margir eiga eftir að gerast
félagar. Skemmtunin og bazar-
inn nánar auglýst síðar, veitið
því athygli. Félagi.
- Verkefni framtíð-
. >
armnar
(Framhald af blaðsíðu 5).
þarfir þjóðfélagsins.
Málefnaaðstaða Framsóknar-
flokksins í dægurmálabarátt-
unni er álveg övenjulega góð.
Gagnrýni hans, sem stjórnar-
andstöðuflokks, hefur í nær
öllum atriðum reynst fullkom-
lega réttmæt. En slík málefna-
aðstaða er ekki nóg. Við vitum
það öll, að stjórnarflokkarnir
eru að tapa trausti meðal þjóð-
arinnar. Við þurfum að vinna
það traust, sem stjórnarflokk-
arnir tapa. Nýskeðir atburðir í
stjórnmálum eru grundvöllur
umræðnanna. Þá atburði þekk-
ir fólkið og getur túlkað það
sjálft, svo menntaður er almenn
ingur og svo vel fylgist hann
með. Þessvegna eru slíkar um-
ræður til ávinnings fyrir þá
málefnasnauðu, en tefja mál-
flutning hinna, sem nýjan og
hollari boðskap hafa að flytja.
Við Framsóknarmenn höfum í
höfuðatriðum upp á aðra stjórn
málasteín að bjóða en þá, sem
farin hefur verið um sinn og
leitt til þess ófarnaðar, sem við
blasir og engum á að geta dul-
ist. Við boðum okkar stefnu,
þar sem við skilgreinum okkar
markmið og nú nýlega hefur
verið birt í blöðun. Þjóðinni
mun hagkvæmt, að stefna Fram
sóknarflokksins verði kynnt
sem mest og að hún drukkni
ekki í orðaflaumi dægurþras-
ins. □
þarf menntun og náð‘‘og hver JQatáS, Stefánssyni
veitfó&na -émhverjir 'æ'skiináenn b-.StMÞardaginn.