Dagur - 15.04.1964, Qupperneq 1
f— -..... ...........
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
■ ---------— ------------
(Ljósmynd: Viktor Guðlaugsson)
Fulltrúar á ársþingi UMSE um síðustu helgi í Sólgarði í Saurbæjarlirepþi skruppu út í kaffihléi.
Minnisvarði um
Davíð Stefánsson
EFTIRFARANDI tillaga var
samþykkt samhljóða á árs-
þingi Ungmennasambands
Eyjafjarðar:
„43. þing UMSE að Sól-
garði 11. og 12. apríl 1964,
sendir þá áskorun til allra
félagasamtaka í héraðinu, að
taka höndum saman og beita
sér fyrir, að Davíð Stefáns-
syni skáldi frá Fagraskógi
verði reistur veglegur minn-
isvarði á æskustöðvum hans
að Fagraskógi. “ □
NÆR 900 UNGMENNAFUAGAR
VIÐ EYJAFJORD
í 15 félögum. Ársþing U.M.S.E lialdið í Sól-
garði í Saurbæjarhreppi um síðustu helgi
ÁRSÞING Ungmennasambands Eyjafjarðar var haldið í Sólgarði
um s.l. helgi. Mættu alls 55 fulltrúar frá öllum sambandsfélögun-
um, 15 að tölu.
Samningar standa nú ytir um hús
þjóðskáldsins og aðrar eignir
ÞESSA DAGA fara fram viðræður milli bæjarstjórnar Ak-
ureyrar og ættingja Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, um
hús skáldsins og aðrar eignir þar, sem bærinn og væntanlega
þjóðin (ill mun vilja láta varðveita til minningar um þjóð-
skálclið.
Þessum viðræðum er ekki lokið og verður fram haldið.
Er það mikið gleðiefni, að málið hefur tekið þessa stefnu,
og má vænta nánari frétta af máli þessu áður en langir
tímar líða. □
Umf. Narfi í Hrísey átti nú í
fyrsta sinni fulltrúa á þinginu,
en félagið var formlega tekið í
sambandið í upphafi þingsins.
Forsetar voru kjörnir Hjalti
Haraldsson, Eggert Jónsson og
Sveinn Jónsson, en ritarar
Haukur Steindórsson, Viktor
Guðlaugsson og Kristján Jóns-
son.
Formaður sambandsins, Þór-
oddur Jóhannsson, flutti starfs-
skýrslu stjórnarinnar. í ljós
kom, að starfið á s.l. ári hafði
verið öflugt og umfangsmikið.
Tveir íþróttakennarar störfuðu
yfir sumarmánuðina, sambandið
stóð að fjölda íþróttamóta í
III IIIIMnillllllllUIIIII 1111111IIIIII It III lllllll
IMMMMMMI
lllllllllllllllllll
Hólel KEA lekur nú ellur á móti gestum
ÞANN 15. febrúar s.l. tók
Kaupfélag Eyfirðinga aftur við
rekstri á Hótel KEA af Brynj-
ólfi Ðrynjólfssyni, veitinga-
manni, sem hafði haft það á
leigu í tæp 2 ár.
Undanfarið hafa farið fram
gagngerðar endurbætur á húsa-
kynnum hótelsins, svo sem sett
nýtt dansgólf í aðalveitingasal,
gangar og herbergi máluð. —
Dofri h.f. sá um alla trésmíði,
en Jón A. Jónsson málarameist)
ari um málningu. — Á s.l. hausti
var lokið við að skipta um alla
(Framhald á blaðsíðu 2).
héraðinu svo sem í frjálsum
íþróttum, sundi og knattspyrnu.
Einnig í bridge og skák. Bind-
indisfræðsla var aukin, m. a.
heimsóttir allir barna- og ung-
lingaskólar í héraðinu og rætt
við börnin um skaðsemi áfeng-
is. Bændahátíð var haldið í
samvinnu við búnaðarsamtök
héraðsins.. Unnið var að skóg-
rækt og örnefnasöfnun. Fjár-
hagur sambandsins er fremur
slæmur og höfðu skuldir safn-
ast á árinu, vegna mikils kostn-
aðar við framkvæmt starfsem-
innar og þess utan brugðust
áætlaðir tekjuliðar.
Ársrit sambandsins var gefið
út og er þar m. a.' minningar-
grein um Davíð Stefánsson
skáld frá Fagraskógi, svo og
greinar og kvæði, auk ársskýrsl
unnar. Þrátt fyrir þröngan hag
sambandsins, ríkti mikill áhugi
| NORÐURLANDS-
BORINN
j ÁKVEÐIÐ ER að Norðurlands-
= borinn, sem nú er í Vestmanna-
I eyjum, og ljúka mun sínum
[ verkefnum þar um miðjan
| næsta mánuð, verði fluttur norð
I ur að Laugalandi á Þelamörk og
\ liefji þar borun fyrir Akureyr-
| arkaupstað um mánaðamótin
i maí—júní. Þá mun minni bor
| verða að störfum í bæjarland-
i inu á næstunni — í tilrauna- og
| rannsóknarskyni. □
og eining á þinginu, til eflingar
félagsskapnum.
Gerðar voru margar ályktan-
ir og samþykktir viðvíkjandi
bindindismálum, samkomuhaldi
skógrækt, íþróttum, starfsíþrótt
um o. fl. Skorað var á viðkom-
andi aðila, að beita sér fyrir,
að reistur yrði sem allra fyrst
héraðsskóli í sýslunni. Miklar
vonir voru bundnar við ráðn-
ingu framkvæmdastjóra, sem
ætti að geta aukið starfsemi
sambandsins og félaga þess.
Hermann Guðmundsson fram
kvæmdastjóri ÍSÍ var gestur
þingsins og flutti UMSE þakkir
fyrir ötult starf á sviði íþrótta-
mála og gat þess, að meira væri
(Framhald á blaðsíðu 2).
0 M U R L E G
BYLTA
JOHN GLENN, sem var
frægur orrustuflugmaður og
flugstjóri á þotum, sem geyst
ust hraðar en hljóðið og síð-
an geimfari, sem sló frægðar
Ijóma á Bandaríkin, lenti
fyrir nokkru í óvenjulegu
slysi. Hann datt í baðkerinu
heima hjá sér, fékk höfuð-
högg svo illt, að hann tapaði
jafnvægisskyni og getur ekki
gengið óstuddur.
AFLAMET
SÍD AST A laugardagskvöld
kom aflakóngurinn Eggert Gísla
son til Sandgerðis með 96,3 tonn
af þorski á skipi sínu, Sigurpáli.
Afla þennan, sem var vænn
þorskur, fékk hann í nót á laug-
ardaginn, þar af 60 tonn fyrir
hádegi, og er þetta talið afla-
met. □