Dagur - 15.04.1964, Qupperneq 8
REGLUGEKÐ UM MINNINGARSJÓÐ
Þrem milljónum úlhluiað
til 129 lislamanna
TILKYNNT hefur verið um
úthlutun listamannalauna fyrir
yfirstandandi ár. Breytingar eru
þær helztar, að þrír menn eru
færðir upp í efsta flokkinn,
þeir Finnur Jónsson málari,
Guðmundur Daníelsson rithöf-
undur og Jakob Thorarensen
skáld. Fá þeir, ásamt Ásmundi
Sveinssyni, Guðmundi Hagalín,
Gunnlaugi Scheving, Jóhannesi
Kjarval, Jóhannesi úr Kötlum,
Kristmanni Guðmundssyni,
Páli ísólfssyni, Tómasi Guð-
mundssyni og Þórbergi Þórðar-
syni, 50 þúsund krónur.
Þeir Halldór Laxness og
Gunnar Gunnarsson eru í sér-
flokki, því að Alþingi hefur
veitt þeim 75 þúsund krónur,
en ekki úthlutunarnefndin.
í þrjátíu þúsund króna flokkn
um er Guðmundur Frímann
skáld á Akureyri og í átján þús
und króna flokknum, Ágúst
Kvaran, Bragi Sigurjónsson,
Guðm. L. Friðfinnsson, Guðrún
frá Lundi, Guðrún Kristinsdótt-
ir, Heiðrekur Guðmundsson,
Jóhann O. Haraldsson og
Kristján frá Djúpalæk.
í tólf þúsund króna flokknum
eru m. a. Árni Jónsson Akur-
eyri, Egill Jónasson Húsavík,
Eyþór Stefánsson Sauðárkróki,
Helgi Valtýsson og Rósberg G.
Snædal. □
Aðalfundar Framsókn-
arfélags Akureyrar
ER I KVÖLD kl. 8,30 í húsnæði
flokksins í Hafnarstræti 95. —
Félagar fjölmennið. □
Frá Surfsey verður stutt á djúpmið
EYJAN er um 700 m á lengd
og hraunflóðið, sem runnið hef-
ur nú síðast, hefur myndað var-
anlega vörn að sunnan og vest-
an. Hraungígurinn er orðinn 50
m hár og hraunlækirnir falla í
sjó fram og stækka hina nýju
eyju jafnt og þétt. Haldi hraun-
gos áfram, má búast við, að
hraunið renni í fleiri áttir til
sjávar og verði landvörn á alla
vegu.
Farið er að tala um, bæði í
gamni og alvöru, að frá Surts-
ey verði styttra á djúpmið sunn
an við land en frá nokkrum
öðrum stað. Svo eru menn að
geta sér til um hafnarstæði, en
það er nú heldur snemmt á
meðan eyjan tekur breytingum
á hverjum degi!
Enginn veit ennþá hvernig
náttúruöflunum þóknast að
skilja við eyjuna nýju, sem ris-
in er úr hafi og hefur verið
undrunarefni heimsins síðustu
mánuði. Verði hraungos enn um
sinn, „kviknar“ þráðlega líf á
þessu litla eylandi, fyrst skófir
og mosi, síðan fjölskrúðugri
gróður, þá munu fuglar taka sér
þar bólfestu og síðan mun
„herra jarðarinnar“ stíga þar á
land með búslóð sína. □
Jakobs Jakobssonar
af ÍBA, Haukur Jakobsson, til-
nefndur af ættingjum Jakobs
heitins og Knútur Otterstedt,
tilnefndur af KA.
Framlög þau sem berast kunna
í sjóðinn fyrir 20. þ. m. munu
reiknast sem stofnframlög í
hann, en þann dag mun hann
verða stofnaður, og mun Björn
Baldursson Herradéild KEA
veita þeim móttöku.
Tekjur sjóðsins verða ágóði
af sölu minningarspjalda, sem
fást í verzluninni Ásbyrgi og
bókabúð Jóhanns Valdimarsson-
ar, og tekjur af kappleikjum,
en ráðgert er að einn kappleik-
ur á sumri hverju verði háður
til ágóða fyrir sjóðinn, og önn-
ur framlög sem sjóðnum kunna
að berast.
Tilgangur sjóðsins er að vera
til styrktar efnilegum íþrótta-
mönnum á Akureyri. Er það
mjög í anda hins látna íþrótta-
manns, sem sjóðurinn er helgað-
ur- .■ □
REGLUGERÐ um minningar-
sjóð Jakobs Jakobssonar hefur
nú hlotið staðfestingu stjórnar-
valda og hefur stjórn hans nú
verið skipuð eftirtöldum mönn-
um: Björn Bldursson, tilnefndur
Bæjarstjórn bauð starfsfólki o£ fréttamönnum til kaffidrykkju á Hótel KEA að lokinni starfs-
fræðslu. Frá vinstri: Ólafur Gunnarsson sálfræðingur, Magnús E. Guðjóns'son bæjarstjóri, Eirik-
ur Sigurðsson skólastjóri, Brynjólfur Sveinsson formaður fræðsluráðs og Ingibjörg Magnúsdótt-
ir yfirhjúkrunarkona. (Ljósmynd: E. D.)
Ilrafnhildur flugfreyja — og e. t. v. tvær verðandi flugfreyjur.
(Ljósmynd: E. D.)
Ýmsir góðborgarar og leiðbeinendur starfsfræðslunnar.
(Ljósmynd: E. D.)
eyri síðastliðinn sunnudag
Þangað sóttu á 5. liundrað unglingar fræðslu
Á SUNNUDAGINN efndu
templarar á Akureyri til fjórða
starfsfræðsludagsins, og var
hann til húsa í Oddeyrarskólan-
um. Fór þar vel um leiðbeinend
ur og nemendur, enda öll hin
miklu og vönduðu húsakynni
skólans undir þessa starfsemi
lögð.
í undirbúningsnefndinni voru:
Adolf Ingimarsson, Eiríkur Sig-
urðsson, Guðmundur Magnús-
son, Gústaf Júlíusson og Hörð-
ur Adolfsson.
Brynjólfur Sveinsson formað-
ur fræðsluráðs Akureyrar og
Olafur Gunnarsson sálfræðing-
ur, sem var leiðbeinandi starfs-
fræðsludagsins, fluttu í upphafi
starfsfræðslunnar stutt ávörp
til leiðbeinenda og barnakór
Oddeyrarskólans söng undir
stjórn Jóhanns Daníelssonar
kennara.
Leiðbeinendur, utanbæjar,
voru sjö: Hrafnhildur Schram
flugfreyja, Björn Th. Björnsson
listfræðingur, Geirharður Þor-
steinsson arkitekt, Guðmundur
Snorrason yfirmaður flugum-
sjónar F. f., Jón Hannibalsson
hagfræðingur, Ólafur Gunnars-
son sálfræðingur og Vilhjálmur
Einarsson kennari Bifröst.
Meðal gesta voru 27 unglingar
frá Dalvík og 65 frá Ólafsfirði.
Leiðbeinendur voru 75 og
kynntu þeir 125 starfsgreinar
og stofnanir. Yms fyrirtæki í
bænum voru opin og var ung-
mennum gefinn kostur á að
skoða þau. Alls komu 470
manns til að leita fræðslu.
Fræðsludeild SÍS sýndi tvö
skipslíkön og stóra mynd af
skipi. Nokkrir munir voru
sýndir úr járniðnaðinum, þ. á.
m. bobbingur (botnvaltra) og
ný kryddhrærivél, sem nota á
við síldarsöltun.
UM HVAÐ VAR MEST
SPURT?
Hér verður skýrt frá nokkr-
um greinum, sem mest var
spurt eftir: Nefndar verða fyrst
nokkrar þær greinar, sem eink-
um voru fyrir stúlkur: Hjúkrun
arkona 62, ljósmóðir 12, flug-
freyja 66, hárgreiðsla 39, fóstra
20, húsmæðrafræðsla 28, talsíma
kona 4.
Minna var spúrt um iðngrein-
er en vænta mátti. Hér eru
(Framh. á bls. 7).