Dagur - 18.04.1964, Page 8

Dagur - 18.04.1964, Page 8
8 SMÁTT OG STÓRT VARÐBERG á Akureyri hélt kvöldverðaríund í Sjálfstæðis húsinu á fininitudagskvöldið. Ambassador Bandaríkjanna hér á landi, herra J. K. Pen- field, mætti á fundinum og flutti erindi um þróun vest- rænnar samvinnu, og að því loknu hófust umræður. Var mörgum fyrirspurnum beint til frummælanda, sem hann svaraði. Ljósmynd: G. P. K. Aðallundur Framsóknarfélags Akureyrar Björn Guðmundsson endurkjörinn formaður AÐALFUNDUR Framsóknar- félags Akureyrar var haldinn s.l. miðvikudagskvöld. — Fundinn setti Björn Guðmundsson form. félagsins og gaf skýrslu um starfsemina. Hefur starfsemin á s.l. ári verið mjög mikil. Fjölda- margir fundir hafa verið haldn- ir og verið vel sóttir. Sérlega vinsælir hafa verið svonefndir „klúbbfundir.11 Að öðru leyti settu alþingiskosningarnar veru legan svip á starfið. Urslit kosninganna sýndu vax andi fylgi Framsóknarflokksins hér í kjördæminu og bendir flest til þess að þar sé hlutur Akureyringa verulegur í aukn- ingunni. Á fundinum var lesið upp bréf frá Ingvari Gíslasyni alþingis- manni, þar sem hann m. a. þalck aði félagsmönnum vel unnin störf í þágu Framsóknarflokks- ins og hvatti menn til að vinna ötullega að gengi hans. Stjórn félagsins var endur- kjörin, nær óbreytt, og skipa hana nú: Björn Guðmundsson formaður, Sigurður Oli Brynj- ólfsson ritari, Jón Samúelsson gjaldkeri og Sigurður Karlsson og Sigmundur Björnsson með- stjórnendur. I blaðstjórn voru kosnir: Arn- þór Þorsteinsson og Haraldur M. Sigurðsson. í fulltrúaráð voru kjörnir: Arnþór Þorsteinsson, Bernharð Stefánsson, Erlingur Davíðsson, Guðmundur Blöndal, Hallur Sigurbjörnsson, Ingvar Gísla- son, Jakob Frímannsson, Olafur Magnússon, Pétur Gunnlaugs- son, Stefán Reykjalín, Torfi Guðlaugsson og Þorleifur Ág- ústsson. □ Frá vinstri: Haraldur Sigurgeirsson, Þórður Gunnarsson, frú Alda Bjarnadóttir, Magnús E. Guðjónsson og Halldór Helgason. LIONSKLÚBBURINN HUGINN Á AKUREYRI gefur Skíðahófelinu píanó HINN 15. marz s.l. hélt Lions- klúbburinn Huginn fund í Skíða hótelinu og var bæjarstjóra, Magnúsi E. Guðjónssyni og frú boðið á fundinn, ennfremur Har F ramsóknarf élag Svarfaðardals 30 ára i Formaður þess er Hjörtur E. Þórarinsson aldi Sigurgeirssyni gjaldkera og Þórði Gunnarssyni umdæmisstj. Lions og frú. Formaður Hugins, Halldór Helgason, flutti stutt ávarp og tilkynnti að Lionsklúbburinn Huginn hefði ákveðið að færa Skíðahótelinu að gjöf píanó, Östlind & Almquist tegund, að verðmæti um kr. 36.000,00 og hefði því verið komið fyrir í setustofu hótelsins, og bar fram (Framhald á blaðsíðu 7). SÁ ÓTTI VAR EKKI ASTÆÐULAUS I útvarpsumræðunum á dög- unum reyndu stjórnarliðar enn að þvo hendur sínar í landhelg- ismálinu. En allir landsmenn vita um hinn óheppilega og nið- urlægjandi samning, sem gerð- ur var við Breta og gildir um langa framtíð, þar sem íslend- ingar hafa afsalað sér einhliða útfærslurétti sínum yfir land- grunninu — þrátt fyrir óum- deilanlegan sigur í deilunni við Breta um 12 mílurnar frægu. — Ýmsir segja, að ótti manna um það, að Bretar færu fram á framlengingu veiðileyfisins eft- ir 3 ár innan 12 mílna mark- anna, hafi reynst ástæðulaus. Þar hafi verið um tilefnislausa hrakspá að ræða. Rétt er, að leyfið hefur ekki verið fram- lengt. En óttinn var síður en svo ástæðulaus. íslendingar væru nú áreiðanlega ver á vegi staddir í þessu máli, ef ekki hefði verið til staðar einbeitt og hiklaus afstaða almennings og gagnrýni stjórnarandstöðunnar í sambandi við samningagerð- ina 1961. Ríkisstjórnin hlaut þar þá leiðsögn og það aðhald, sem henni kom að nokkru gagni — en þó ekki sem skyldi — og átti hún þar sök á. VAKNINGARALDA UM LANDSBYGGÐINA Um landsbyggðina fer ný vakningaralda. Þeim fer nú óð- um fjölgandi, sem gera sér ljóst, að það er lífsnauðsyn þjóð arinnar og frumskylda, að hyggja land sitt, og að hér hef- ur ríkt öfugþróun í þessum efn- um að undanförnu, sem boðar bráða liættu. Erlent fólk, sem býr við landþrengsli og tak- markaða atvinnumöguleika er farið að líta hýru auga til fram- tíðarlandsins, sem fávísir menn töldu fyrr á árum „á takmörk- um liins byggilega heims,“ eins og það var stundum orðað — og enn heyrist öðru hverju. Hin Stór-reykvíska ríkisstjórn, og liðsmenn hennar, hafa ekki kom izt hjá því, að verða varir við þá hreyfingu, sem nú fer vax- andi. í blöðum sínum hefur rík- isstjórnin hvað eftir annað í vet- ur tekið undir það, að nauðsyn beri til að stuðla að jafnvægi í h.vggð landsins. Þeir láta sér vel líka, að landinu sé skipt í „þró- unarsvæði“ og þau teiknuð á kort, þar sem stór punktur á að merkja borg á Norðurlandi. Ríkisstjórnin sýnir áhuga á fleiru, því hún fær jafnvel sér- fræðinga frá París til að gera skyndiáætlun um stöðvun fólks flutnings frá Vestfjörðum. EN ÞEGAR TIL KASTANNA KEMUR En þcgar til kastanna kemur verður annað uppi á teningn- um. Stjórnarmeirihlutinn í þing nefnd yfirlýsti vilja sinn á þing skjali um hollustu sína við landsbyggðastefnuna á þann hátt, að „óþarft“ væri að verja tilteknum hluta af tekjum rík- isins til jafnvægisstarfseini. Annar nefndanneirihluti neitar að mæla með tillögu Framsókn- armanna um athugun á skóla- málum dreifbýlisins. í stórvirkj unarmálum situr allt við hið sama. Sagt er, að menn hafi verið sendir suður til að líta á línustæði á hálendinu vegna Eyjafjarðarlínu frá Búrfelli. Ekki ber að lasta slíkt. En ein hvern tíma þarf sú stund að renna upp, að skoðunarmenn ljúki verki sínu og ráðamenn hætti að tala í hálfyrðum. „HEILDARSKIPULAG STÓR- REYKJAVÍKUR“ Hinn 10. apríl s.l. var mikið um að vera í höfuðborginni syðra. Bargarstjórinn í Reykja- vík og „forráðamenn skipulags- mála“ kölluðu blaðamenn á sinn fund til að birta fyrir þeim fyr- irætlanir um „heildarskipulag Stór-Reykjavíkur,“ eins og það var kallað á fundinum, og í Mbl. daginn eftir. Það kom jafn framt í ljós, að landssvæði það, sem forráðamenn kalla Stór- Reykjavík, tekur yfir Reykja- vík, Kópavog, Hafnarfjörð, Garðahrepp, Bessastaðahrepp, Seltjarnarneshrepp og Mosfells- hrepp, eða a. m. k. liluta hans. íbúar þessa svæðis voru um 95 þúsundir í árslok 1963, en þarna er gert ráð fyrir að þeir verði 150 þúsundir í árslok 1982. Þetta þýðir, að nálega tveir þriðju af fólksfjölgun þjóðarinn- ar á tveim næstu áratugum staðnæmist í Stór-Reykjavík. Skipulagsáformin eru þó miðuð við það, að Stór-Reykjavík geti tekið við nokkru fleira fólki á tímabilinu, ef þess gerist þörf. Nú er að verða búið að út- hluta byggingarlóðum í nýju borgarhverfi austan við Elliða- ár. Og nú segja skipulagsmenn- irnir, að uppi séu hjá þeim hug- myndir um nýjan „miðbæ“ á óbyggðu svæði austan Öskju- hlíðar. Dagur hefur haft tal af Reykvíkingum, sem segja, að (Framhald á blaðsíðu 2). FRAMSÓKNARFÉLAG Svarf- aðardals hélt árshátíð sína sl. laugardagskvöld og minntist um leið 30 ára afmælis síns. Gestur Vilhjálmsson bóndi í Bakkagerði. rakti sögu félagsins, og kom þar fram, sem áður var raunar vitað, að á þessu 30 ára tímabili hefur enginn bláþráður verið á starfsemi félagsins. Fyi sti formaðurinn og aðalstofn andi félagsins var Ármann Sig- urðsson þá bóndi á Urðum og með honum voru kosnir í fyrstu stjórnina þeir Halldór Hall- grímsson bóndi á Melum og Ingimar Guttormsson nú bóndi á Skeggstöðum. Núverandi stjórn skipa: Hjört ur E. Þórarinssoh bóndi á Tjörn formaður og með honum Júlíus Friðriksson bóndi í Gröf og Þór- arinn Jónsson bóndi á Bakka. Félagsmenn eru 52 og hefur fé- lagið aldrei verið öflugra en nú. ÆRNAIÍ kroppa nýgræðinginn á túnunum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.