Dagur - 09.05.1964, Page 8

Dagur - 09.05.1964, Page 8
8 7 SÍÐASTA STJNNUDAG voru sýningar haldnar í barnaskólum bæjarins á handavinnu og tpikninguni nemenda, einnig í Gagnfræðaskólanum. Aðstandendur nemenda og fjöldi ann- arra bæjarbúa lagði leið sýna á sýningar þessar. Og þar var margt að sjá, enda margar hend- ur, sem að unnu í vetur. Þessar myndir eru úr Gagnfræðaskólanum, og sitja hér tvær „um- sjónarkonur“ og einn gestanna snýr sér við og stingur upp í sig puttanum. Á neðri myndinni er fjöldi muna úr horni og beini, seni ungir menn eru að skoða. (Ljósmyndir: E. D.) Athyglisverð samþykkt á aðalfundi Mjólkursamlags K.E.A. sl. þriðjudag í SÍÐASTA BLAÐI var sagt frá ársfundi Mjólkursamlags KEA, en þar sem honum var ekki lok- ið, þegar blaðið fór í prentun, verður nú skýrt frá nokkrum SKAUT ALIGÆS S.L. laugardagskvöld kærði Snorri bóndi Pétursson á Lóni til lögreglunnar á Akureyri tvo menn, sem komið höfðu heim- undir bæ sinn, skotið þar ali- gæs og ekið síðan burt. Lýsti Snorri bílnum og sat lögreglan fyrir „veiðimönnunum“ þegar þeir komu í bæinn með feng sinn. Viðurkenndi annar þeirra að hafa skotið gæsina. Snorri bóndi á Skipalóni verður árlega fyrir leiðum Nlieimsóknum óþroskaðra bæjarbúa, sem ým- ist ræna eggjum, drepa fugla í varplöndum, fara gálauglega með skotvopn og skjóta jafnvel aligæsir á eggjum heima við bæ. Það er engu líkara en að sumir bæjarbúar líti svo á, að þeim sé leyfilegt að nota skotvopn leyfislaust í löndum bænda — og að friðunarlögin þurfi ekki að taka hátíðlega. □ þeim samþykktum, sem gerðar voru. Á fundinum voru rædd ýmis mál er mjólkurframleiðendur varða, þar á meðal um starf Búfjárræktarstöðvarinnar í Lundi og var einróma ákveðið að veita 150 þús. kr. til styrktar þeirri starfsemi. Þá var mikið rætt um verð- jöfnun á flutningsgjaldi mjólkur á samlagssvæðinu og að lokum var eftirfarandi tillaga sam- þykkt: „Ársfundur Mjólkursam- lags KEA 1964 samþykkir að greiða %% af endanlegu mjólk- urverði, sem greitt er í reikn- inga framleiðenda, í jöfnunar- sjóð mjólkurflutninga á sam- lagssvæðinu. Gjaldið greiðist í fyrsta sinni af framleiðslu árs- ins 1964 og þar til öðru vísi verð- ur ákveðið. Til þess að úthluta úr sjóðnum kýs fundurinn þrjá menn og jafn marga varamcnn til þriggja ára, og úthluta þeir úr sjóðnum, til þeirra deilda, er lengst eru frá mjólkursamlag- inu og eiga við mesta flutnings- örðugleika að stríða.“ Önnur tillaga, svohljóðandi, var samþykkt samhljóða: „Árs- fundur Mjólkursamlags KEA 1964, beinir því til stjórnar og framkvæmdastjóra samlagsins, að ráða sem fyrst sérstakan mann til þess að leiðbeina mjólkurframleiðendum um með ferð mjólkur á heimilum, og verði með þessum hætti unnið að bættri flokkun mjólkurinnar á samlagssvæðinu.“ í fr'étt í síðasta blaði féll nið- ur að geta um fitumagn innveg- innar mjólkur til mjólkursam- lagsins, en það var 3,824% á síðasta ári. □ KARLAKÓR AKUREYRAR efnir til samsöngs í Samkomu- húsi bæjarins n. k. laugardag og sunnudag kl. 5, báða dagana. Þessar fyrstu söngskemmtanir kórsins eru fyrst og fremst fyr- ir styrktarfélaga kórsins og gesti. Söngstjóri Karlakórs Akur- eyrar er Áskell Jónsson. Ein- söngvari Jóhann Daníelsson, og SMÁTT OG STÓRT VANDI ER AÐ SKIPTA VEGAFÉNU Hin fyrirhugaða vegaáætlun fyrir yfirstandandi ár verður mörgum umhugsunarefni —og áhyggjuefni einnig — hér um slóðir. Til sumra vega hér í kjördæminu hafa verið tekin innanhéraðslán, sem standa vaxtalaus, og fjárveitingar í ár hrökkva jafnvel ekki til að greiða skuldirnar, hvað þá meira. En segja má, að hagnað- ur sé að því fyrir byggðarlögin, að hafa, vegna þessara lána, fengið vegaframkvæmdir á með an framkvæmdakostnaður var lægri en nú. Þegar nýbygginga- fé er takmarkað, og ekki fæst meira, er vandi að skipta milli landshluta og byggðarlaga. VEGUNUM ÁBÓTAVANT Fyrir byggðarlögin innbyrðis er það undirstöðuatriði á þessu sviði, að vegir milli verzlunar- eða markaðsstaða og þau lands- svæði, sem þessi „þéttbýlis- kjarni“ hefur samskipti við, séu sæmilega greiðfærir allt árið, eftir því sem veðrátta og tækni leyfir. En vegna umferðar milli byggðarlaga og um landið, en sú umferð er einkum á sumrin, er einnig mikil þörf á vegum um óbyggðir, „millibyggðaveg- um,“ fjallvegum o. s. frv. Sum- um byggðarlögum er nauðsyn á slíkum vegi til að rjúfa einangr- un eða stytta leiðir. Ástand hinna svonefndu akfæru vega er mjög misjafnt. Sumir gaml- ir vegir eru „sokknir“ og gerð þeirra úrelt. Á nálega 200 km „þjóðbrautarkafla“ í austur- hluta þessa kjördæmis er ná- lega helmingur vegarins ennþá aðeins „ruddur“ vegur. En á þessum vegum þramma nú áætlunarbílar, sumir komnir alla leið frá Reykjavík og hafa áætlun austur á Iand. Ýmsar sögur voru Degi sagðar af ástandi þessara vega í fyrravor, af þeim, sem þá voru í kosn- ingaferðum, og sumir frambjóð- endur treystu sér ekki þá nema flugleiðina. □ STRÁKAVEGUR Strákavegur og jarðgöngin í gegn um Stráka við Siglufjörð er enn á dagskrá, en því miður er ekki hægt að segja fréttir af stórstígum áföngum í fram- kvæmdum. Hitt sýnist aftur á móti augljóst, að þessum vegi verður ekki lokið í sumar, eins og lofað var fyrir kosningar. Því (Framhald á blaðsíðu 7). Yerkamannasamband sfofnað STOFNÞING Verkamannasam- bands íslands verður sett í fé- lagsheimili Dagsbrúnar og Sjó- mannafélags Reykjavíkur, að Lindargötu 9, nk. laugardag 9. maí kl. 2 e. h. Til stofnþingsins er boðað af Verkamannafélaginu Dagsbrún, Verkamannafélaginu Hlíf og Verkalýðsfélaginu Einingu,, en sameiginleg nefnd þessara fé- laga hefur annazt undirbúning stofnþingsins og sent þátttöku- boð öllum almennu verkalýðs- félögunum innan Alþýðusam- bands íslands. Ekki er enn vitað að fullu um hve þátttaka verkalýðsfélag- anna í stofnun hins nýja sam- bands verður víðtæk, en þau hafa mörg hver að undanförnu rætt málið á fundum sínum og kosið fulltrúa á stofnþingið. Aðalviðfangsefni stofnþings- ins verða umræður um hlutverk og starfsemi sambandsins, sam- þykkt laga og fjárhagsáætlunar og að sjálfsögðu umræður og ákvarðanir varðandi kjaramál verkafólks eins og þau liggja nú fyrir. undirleikari Hlöðver Áskelsson. Söngmenn eru 35. Á söngskrá eru 14 lög eftir innlend og erlend tónskáld. Á skömmum tím er reynt að koma miðum til allra styrktar- félaga, en ef út af ber — að miðar komi — eru viðkomandi. beðnir að hafa samband við J. J. í síma 2138. □ Fyrirhugað er að stofnþing- inu ljúki á sunnudag. (Fréttatilkynning frá Verka- mannafélaginu Dagsbrún, Verkamannafélaginu Hlíf og Verkalýðsfélaginu Einingu). ############################## ÞRYMUR Á HÚSAVÍK SYNGUR I Húsavík 8. maí. Karlakórinn Þrymur efnir til jconserts í sam komuhúsinu á Húsavík n. k. laugardagskvöld. — Stjórnandi kórsins er Sigurður Sigurjóns- son. Undirleik annast Reynir Jónasson. Þrír einsöngvarar syngja með kórnum, Eysteinn Sigurjónsson, Guðmundur Gunnarsson og Ingvar Þórar- inssön. Þ. J. ##############################■ Aðalfundur Mjólkur- mjólkrsamlags K. Þ. Húsavík 8. maí. Aðalfundur Mjólkursamlags Kaupfélags Þingeyinga var haldinn á Húsa- vík 6. þ. m. Mættir voru 24 full- trúar frá 10 deildum auk stjórn- ar, framkvæmdastjóra og endur skoðenda. Mjólkurinnlegg á reikningsár- inu var 5.401.596 kg. og hafði aukizt um 14% frá árinu áður. Fitumagn mjólkur var 3,7109%. Aðeins 13,5% af innveginni mjólk var.selt sem neyzlumjólk en 86,5% fór í vinnslu á skyri, smjöri, ostum og kaseini. End- anlegt verð til bænda er krónur 5,545. Þ. J.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.