Dagur - 23.05.1964, Page 2
2
Frá Oddeyrarskólanum
KEPPA I
REYKJAVÍK
Á MORGUN verð
ur háður í Reykja
vík afmælisleikur
KR í knattspyrnu
milli KR og úr-
vals af öllu land-
inu. Þrír Akureyr
ingar hafa verið
valdir þar með,
þeir Jón Stefáns-
son, Kári Ámason
og Skúli Ágústs-
Frá vinsrti: Jón,
Kári og Skúli. □
Þór sigraði í V. fl. í knattspyrnu
VORMÓT Akureyrar í knatt-
spymu hófst s.l. miðvikudag.
Áttust þá við V. flokkar Þórs og
KA. Var gaman að sjá hvað
þessir ungu knattspyrnumenn
léku oft vel saman og voru
hreyfanlegir á vellinum. Margir
þeirra höfðu góða knattmeðferð
og lögðu sig fram um að gera
sitt bezta, svo sem íþróttamönn-
um ber að gera í keppnum. —
Segja má að liðin hafi verið
nokkuð jöfn, þó átti miðjutríó
'Þórs' jafriastan leik. Einnig
stóðu markmenn beggja liða sig
vel. Leiknum lauk með sigri
Þórs með 1:0.
Daginn eftir léku svo IV. ald-
ursflokkar sömu félaga. Leikur
KYLFINGAR
þeirra var ekki eins skemmtileg
ur og yngri drengjanna, þeir
virtust oft svifaseinir og náðu
ekki skipulegu samspili. Þórsar
ar áttu fleiri markskot, þó ekki
hættuleg, og varði markvörður
KA þau örugglega. Jafntefli
varð 0:0 og voru það sanngjörn
úrslit.
N. k. sunnudag heldur mótið
áfram (samkvæmt mótaskrá)
og.verður þá keppt í meistara-
flokki. . □
KNATTSPYRNUMOT
ÍSLANDS HAFIÐ
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu
1. deild, hófst 20. þ. m. Fóru þá
fram þrír leikir. Úrslit leikjanna
urðu þessi: KR vann Val 2:1;
Keflavík vann Fram 6:5 og
Akranes vann Þrótt 3:1. — Leik
irnir fóru fram, í sömu röð, á
Laugadralsvelli, Njarðvík og
Akranesi. □
Keppt um Gunnars-
bikarinn hjá G. A.
LAU GARD AGINN 23. maí
hefst á golfvellinum keppni um
Gunnarsbikarinn hjá Golfklúbbi
Akureyrar. — Bikar þessi er
gefinn til minningar um Gunn-
ar Hallgrímsson tannlækni, sem
lengi bjó hér í bæ og var með
betri golfleikurum, sem hér
hafa sézt leika. — Gunnar fórst
í flugslysinu mikla í Héðinsfirði
29. maí 1947, og hefur keppni
þessi ætíð síðan farið fram sem
næst dánardægri hans.
Leiknar verða í keppninni 72
holur með fullri forgjöf. — 18
holur á laugard. 23. maí, 18
sunnud. 24. maí, 18 laugard. 3Ö.
maí og 18 sunnud. 31. maí. —
Keppni nú á laugardag hefst kl.
1,30 e. h. □
ODDEYRARSKOLANUM var
slitið þann 15. þ. m. Skólastjór-
inn, Eiríkur Sigurðsson, afhenti
brautskráðum nemendum próf-
skírteini og gerði grein fyrir
störfum skólans á árinu. í skól-
anum voru í vetur 350 börn í
14 deildum. Fasth’ kennarar eru
10 með skólastjóra og 2 stunda-
kennarar. — Barnaprófi luku 51
barn og gaf Kvöldvökuútgáfan
bækur til verðlauna fyrir góðan
námsárangur. UM 80 sjö ára
börn innrituðust í skólann í vor.
Af gjöfum, sem skólanum bár
ust á árinu má nefna sjónpróf-
unartæki, sem Lionsklúbbur Ak
ureyrar gaf barnaskólum bæj-
arins. Þá gaf Vilhelm Þorsteins-
son skipstjóri 3 verðlaunabikara
til að keppa um í íþróttum.
Krabbameinsfélag íslands gaf
skólanum kvikmyndina „Að
reykja eða reykja ekki.“ Þá gaf
Geidionsfélagið öllum börnum í
6. bekk Nýja testamentið eins
og jafnan áður. Nokkrar fleiri
gjafir bárust.
Sýning á skólavinnu barn-
anna var haldin í skólanum
þann 3. maí s.l.
Hesfamannamót í Húnaveri
Hvítasunnumót K. A.
KEPPA
LAUGARDAGINN 9. maí var
háð bikarkeppni á golfvellinum
á Akureyri. — Leiknar voru 18
holur með fullri forgjöf. Sem
gestir kepptu fjórir golfleikarar
af Keflavíkurflugvelli, sem
komu hingað til bæjarins ein-
göngu til að kynnast golfleikur-
um hér og aðstæðum þeirra. —
Var heimsókn þeirra fjórmenn-
inganna hin ánægjulegasta, og
fóru þeir héðan með skemmti-
legar minningar.
Úrslit urðu sem hér segir:
' högg
1. Þórarinn B. Jónsson 71
2.—6. Gestur Magnússon 77
2.—6. Gunnar Konráðsson 77
2.—6. Hörður Steinbergsson 77
2.—6. Ragnar Steinbergsson 77
2:—6. Svavar Haraldsson 77
Keppendur voru 24.
Sunnudaginn 18. maí hófst
keppni hjá GA um hina föstu
verðlaunagripi, og var byrjað í
Stigabikarnum. En það er 18
holu keppni, án forgjafar. —
Úrslit urðu sem hér segir:
1. Gunnar Sólnes 81 högg
2. Jakob Gíslason 85 högg
3. Gunnar Konráðsson 87 högg
Keppendur voru 18. □
HVÍTASUNNUMÓT KA varð
fremur sviplítið að þessu sinni.
Ráðgert var, að handknattleiks-
lið frá Hafnarfirði og Húsavík
kæmu til keppni, en af því varð
ekki svo aðeins þrír aðilar
mættu til leiks, Ármenningar,
ÍMA og Akureyringar. Fóru
sex leikir fram á hvítasunnudag
og einn á annan í hvítasunnu.
Veður var mjög gott og áhorf-
andur allmargir, einkum fyrri
daginn.
Eins og búist var við höfður
Ármenningar mikla yfirburði í
meistaraflokki og vakti Hörður
Kristinsson landsliðsmaður, sér-
staka athygli fyrir leik sinn.
Keppni fór aðeins fram í
Lagfærngar á íþrótta-
vellinum á Akurevri
j
VORMÓTI í frjálsum íþróttum,
sem fram átti að fara í dag, er
frestað um óákveðinn tíma, þar
sém íþróttavöllurinn er ekki til-
búinn undir mót.
Unnið er nú að krafti að ýms-
um endurbótum á vellinum. Er
það mest venjulegt viðhald, en
einnig verið að Ieggja gang-
braut frá aðalhliði að stúku og
fyrir framan hana og þekja
ýmsa ógróna fleti við völlinn.
Er lögð áhersla á að íþróttasvæð
ið vérði sem bezt úr garði gert
fyrir 17. júní-hátíðahöldin sem
að venju fara þar fram. Q
karlaflokkum. — Úrslit ein-
stakra leikja:
ÍBA:Ármann 6:12. Ármann:
ÍBA 10:7. Ármann(A):Ármann
(B) 15:6. ÍBAríMA 16:11. ÍMA:
Ármann(B) 12:19. ÍBA:Ármann
(A) 9:16. Ármann(A):ÍBA 34:
20. □
Á VEGUM Landssambands
hestamannafélaga og Búnaðar-
félags íslands verður haldið
Fjórðungsmót norðanlands í
sumar.
Hestamannaféjögin norðan-
lands sjá um mótið og allan
undirbúning. — Undirbúnings-
nefnd skipa Guðmundur Sigfús-
son Eiríksstöðum formaður,
Haraldur Þórarinsson Lauga-
landi, Bóas Magnússon Bólstaða
hlíð, Friðrik Margeirsson Sauð-
árkróki og Þorkell Einarsson
Hvammstanga. Nefndin hefur
ráðið frarnkvæmdastjóra móts-
ins Sigfús Þorsteinsson Blöndu-
ósi.
Nú hefur verið ákveðið að
halda mótið að Húnaveri í A.-
Hún. dagana 27. og 28. júní n.
k. Þar verður sýning á kynbóta-
hrossum, góðhestasýning og
kappreiðar. -Keppt verður í 250
m folahlaupi, 300 m hlaupi, 800
m hlaupi og skeiði. Há verðlaun
verða greidd á kappreiðahross-
in, t. d. verða I. verðlaun í
skeiði kr. 5000,00.
Búist er við að mikill fjöldi SÓgn kennaranna
fólks sæki mót þetta, aðstaðan skeið var síðasta
í Húnaveri fyrir mótið er mjög
góð, þar er nýtt sýningarsvæði,
fþróttamál rædd á fundi F. U. F.
Byggja þarf stórt íþróttahús á Akureyri
S.L. LAUGARDAG var fundur
haldinn í F.U.F., Akureyri, á
Hótel KEA.
Haraldur M. Sigurðsson í-
þróttakennari flutti framsöguer-
indi um íþróttir og íþróttamann-
virki hér í bænum. Haraldur
kom víða við í ræðu sinni. Hann
kvað margt hafa verið vel gert
í íþróttamálum bæjarins, en
VORMÓT U.M.S.E.
VORMÓT Ungmennasambands
Eyjafjarðar í frjálsum íþróttum
verður haldið á íþróttavellinum
Laugalandi, fimmtuadginn 28.
maí n. k. kl. 8,30 e. h. Keppnis-
greinar verða: Karlar. 100 m hl.,
800 m hl., langstökk, þrístökk,
hástökk, kúluvarp, kringlukast
og spjótkast. — Konur: 100 m
hl., langstökk og kúluvarp. □
sýndi þó fram á, að í heild hef-
ur Akureyri dregizt aftur úr á
þessum sviðum. Nefndi hann
sérstaklega íþróttahúsið, sem
fullnægði ekki nærri því hlut-
verki, sem það ætti að gegna.
Skapa yrði öfluga hreyfingu
meðal almennings og ráða-
manna bæjarins, til að hefjast
nú þegar handa um byggingu
fullkomins íþróttahúss, sem
væri sniðið eftir kröfum nútím-
ans, bæði hvað snerti æfingaað-
stöðu og keppnir, svo og áhorf-
endasvæði.
Umræður hófust svo á eftir
og voru fundarmenn einhuga
um að vinna bæri markvisst að
eflingu íþróttanna, svo Akur-
eyri stæði að minnsta kosti jafn-
fætis öðrum stöðum á þessu
sviði sem öðrum. „■— Þess má
geta, að á Húsavík er mjög full-
komið íþróttahús og á Dalvík er
byrjað á öðru. □
stórar hestagirðingar með á-
gætu haglendi, góð tjaldstæði á
bökkum Svartár og Hlíðarár.
Rúmgott félagsheimili sem verð
ur notað til veitinga og dansleik
ir verða þar einnig, munu Gaut-
ar leika fyrir dansi. \J
ÞELAMERKURSKÓLA
SLITIÐ
ÞELAMERKURSKÓLA var slit
ið föstudaginn 15. maí s.l. Próf-
um var þá nýlokið, en það sóttu
öll prófskyld börn, 92 að tölu,
þar af 7 fullnaðarprófsbörn og
8 lestrarprófsbörn. Skólinn hef-
ur starfað aðeins síðan 5. des.
í vetur,' og lengi framan af við
nokkra örðugleika vegna yfir-
standandi byggingarframkv. í
húsinu. Sex árgangar barna úr
Glæsibæjar-, Skriðu- og Öxna-
dalshreppum stunduðu nám í
skólanum og skiptust í tvær að-
aldeildir. Var hvor deild eina
viku í senn í skólanum, en lærði
heima hina vikuna eftir fyrir-
■ Sundnárhj
mánuðinn í
Jónásarláug.
Skólaslitadaginn var sýning á
handavinnu og teikningum nem
enda. f ræðu skólastjórans kom
fram, að sterkur áhugi er fyrir
því, að þarna verði I. bekkur
framhaldsdeildar sem allra
fyrst, en ekki er enn fullráðið,
hvernig kennsluskipanin verður
næsta vetur. Mikið er eftir að
byggja af því húsnæði, sem
skólanum er ætlað, en fjárhags-
örðugleikar hindra frekari fram
kvæmdir a. m. k. þetta árið.
Almenn ánægja er ríkjandi yfir
skólahaldsbreytingunni.
Tveir kennarar voru við skól-
ann, auk skólastjórans og tvær
starfsstúlkur, auk skólaráðskon-
unnar. Sérstakur sundkennari
var þann mánuð, sem sund-
kennslan stóð yfir. Q
„SUMARFARG JÖLD44
(Framhald af blaðsíðu 8).
kaupa tvímiða og nota hann
báðar leiðir. Gildistími farseðils
ins er einn mánuður frá því lagt
er af stað.
Sumarfargjöldin gilda á flug-
leiðum miíli ofangreindra staða
án tillits til þess hvar ferð er
hafin. Q