Dagur - 23.05.1964, Blaðsíða 7
7
Á GÓLF, VÉLAR, LESTAR, SKIP
Fróbær liarka, veðrunar- og
slitþol. G o 11 viðnóm gegn
kemikalium. Þornar á IV2—2
tímum. Má lita og blanda
með venjulegum olíulitum og
lökkum og þynna með terp-
entínu. - Úretan lakkið hefur
alla kosti góðrar gólí-, véla-.
lesta- og skipamálningar.
SJÖFN EFNAVERKSMIÐJA . AKUREYRI
„FOLBATE” garðslátfuvéSar
kr. 740.0«.
VÉLA- 0G BÚSÁHALDADEILD
AUCLÝSINCASÍMI DAGS ER 1167
FRÁ HÆNSNABÚINU LÓNI S.F.
Heildsöluverð á eggjum er kr. 60.00 pr. kg. — Smá-
söluverð kr. 70.00 pr. kg. — Sendum heim.
HÆNSNABÚIÐ LÓN S.F. - SÍMI 2948.
F erðamannastraumur
(Framhald af blaðsíðu 8).
hvort æskilegt sé að aulia sölu
á vöru og þjónustu til þessara
sumargesta eða ekki.
Benda má á, að Akureyri hef-
ur nokkra sérstöðu meðal ís-
lenzkra kaupstaða og mjög
æskilega, til að laða að sér ferða
fólk. Auðvitað þyrfti þá einnig
að kynna þá þætti, sem girnileg
astir þættu til fróðleiks. Þeir
ferðamannabæir, sem byggja af-
komu sína að nokkru á ferða-
mönnum, gefa árlega út ferða-
mannabæklinga um staðinn og
nágrennið, sem hver ferðamað-
ur er þangað kemur færi í hend-
ur. Og þessum upplýsingabækl-
ingum er dreift um allt. Þá eru
stuttar kvikmyndir áhrifaríkar
í áróðursskyni, þar sem brugð-
ið er upp svipmyndum af stað-
areinkennum, náttúrufegurð,
sögu og aðstöðu þeirri, sem
ferðamenn mega vænta. Hótel,
veitingahús, minjagripaverzlan-
ir, skemmtistaðir, öruggar ferð-
ir um nágrennið, m. a. til fjalla,
siglingar, sportveiðar o. m. fl. er
rækilega auglýst. Þessi atriði,
eða önnur, sem hér eiga við,
þarf að kynna, ef mönnum sýn-
ist til einhvers að vinna að Ak-
ureyri verði eftirsóttur áfanga-
staður hins vaxandi fjölda ferða
manna. □
Vandaður þrísettur
KLÆÐASKÁPUR
til sölu.
Uppl. í síma 2441.
STÚLKA
óskar eftir atvinnu, helzt
við skrifstofustörf eða þess
háttar.
Uppl. í síma 2235
um helgina og eftir kl. 6
e. h. virka daga.
STÚLKA
vön afgreiðslu- og skrif-
stofustörfum óskar eftir
atvinnu.
Uppl. í síma 1507.
MESSAÐ í Akureyrarkirkju á
sunnudaginn kemur kl. 2 e. h.
Mæðradagurinn. Sálmar nr.
4, 29,109, 511 og 678.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld- og næturvakt
næstu viku: Gudmund Knut-
sen, sími 1724.
LEIÐRÉTTING. í skrá ferming-
arbarna, sem fermd verða á
Möðruvöllum í Hörgárdal á
morgun, misritaðist föður-
nafn Baldurs H. á Hellulandi.
Baldur er Sigþórsson, og leið-
réttist það hér með.
LEIÐRÉTTIN G. í frétt frá
Barnaskóla Hríseyjar í síð-
asta blaði misritaðist einkunn
Pálínu Björnsdóttur. Hún
hlaut 9,39 í aðaleinkunn.
- NÝ VINNUBRÖGÐ
(Framhald af blaðsíðu 1).
frystihússins og er vonandi að
þau beri tilætlaðan árangur.
Fjórtán ára piltur, sem vann
við flökun í hraðfrystihúsinu í
gær og athuguð voru afköst hjá,
hefði fengið 50 kr. á tímann
með væntanlegu fyrirkomulagi,
að því er blaðið hefur heyrt.
í fyrradag voru um 90 manns
í vinnu í Hraðfrystihúsi ÚA,
þar af 20 karlar. Á biðlista hjá
verkstjóranum eru nöfn 100
unglinga, sem sótt hafa um
vinnu. „Við tökum fyrst,“ segir
Karl Friðriksson verkstjóri, „15
ára stúlkur. Allt niður í 13 ára
aldur reynum við líka að taka
í hálfs dags vöktum. Yngri
krakka tökum við ekki í
vinnu.“ □
HJÓNAEFNI. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú
Birna Egilsdóttir starfsstúlka
á Gefjun og Sigurður Sigmars
son verzlunarmaður hjá KEA.
BRÚÐKAUP. í gær voru gefin
saman í hjónaband brúðhjón-
in Klara Valdína Guðmunds-
dóttir og Ketill Pétursson
skipstjóri. Heimili þeirra er
að Fróðasundi 4 Akureyri.
FJOLSKYLDUNA #
Munið mæðrðdaginn
á sunnudagiun.
OPIÐ KL. 10-2.
BLÓMABÚÐ
ÚTLENDU ULLARGÓLFTEPPIN
em komin, seljast þessa daga.
NÝKOMIÐ MIKIÐ ÚRVAL AF
BEDOLA TEPPUM og DREGLUM
(LINOLEUM)
Verðið hagstætt, gjörið svo vel og lítið inn.
TEPPAHREINSILÖGURINN er kominn