Dagur - 03.06.1964, Síða 1
Dagur
fcemur út tvisvar í vifcu
og kostar 20 krónur á
mánuði.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
LÁ MEÐVITUNDARLAUS
í FLÆÐARMÁLINU
SAMKV. upplýsingum lög-
'reglunnar á Akureyri, hefir
verið mikil ölvun í bænum
að undanförnu, sérstaklega
um síðustu helgi. Þá voru 11
kærðir fyrir ölvun á almanna
færi. Var það bæði bæjar-
fólk og aðkomumenn, sem í
hlut átti. Þá voru unnin
skemmdarverk á þrem bif-
reiðum, sem stóðu á bifreiða-
stæðum í miðbænum. Brotin
var rúða í einum þeirra,
handföng brotin og loftnet
skemmd. Biður lögreglan þá,
sem geta gefið upplýsingar
um þessi skemmdarverk, að
láta sig vita. Nokkrir bif-
reiðaárekstrar hafa orðið, en
ekki slys á mönnum í sam-
bandi við þá.
Á laugardagskvöldið lagð-
ist 17 ára aðkomustúlka, al-
klædd, til sunds við Torfu-
nefsbryggju. Svamlaði liún
þar í sjónum Um stund, en
komst síðan upp í flæðarmál-
ið og var þá orðin meðvitund
arlaus. Lögreglunni var til-
k.vnnt um atburðinn, og kom
hún á staðinn, og hóf þegar
Iíígunartilraunir, sem háru
fljótt árangur. Stúlkan var
flutt í sjúkrahús. í ljós kom,
að hún var mjög ölvuð. □
Frá Aðalfundi KEA. — Neðri niyndin sýnir stjór.i félagsins og starfsmenn fundarins. (Ljósm.: E. D.)
Frá aðalfundi Kaupfélags Eyfirðinga, sem haldinn var á Akureyri i gær og fyrradag:
Laimagreiáslur KEA 60 millj.
JAKOB FRÍMANNSSON
kaupfélagsstjóri.
BRYNJÓLFUR SVEINSSON
stjórarformaður.
250 þús. króna framlag til efnarannsóknarstofu
landbúnaðarins. Heildarsala 550 milljónir kr.
AÐALFUNDUR Kaupfélags Eyfirðinga var haldinn í Samkomu-
liúsi Akureyrarbæjar dagana 1. og 2. júní. Rétt til fundarsetu höfðu
189 fulltrúar, en mættir voru 183 úr 22 deildum félagsins auk
stjórnar þess, kaupfélagsstjóra og endurskoðenda ásamt ýmsum
starfsmönnum kaupfélagsins og gestum.
Fundarstjórar voru kjörnir
Ólafur Magnússon, Akureyri og
Stefán Halldórsson, Hlöðum og
fundarritarar Rósberg G. Snæ-
dal, Akureyri og Jónas Hall-
dórsson, Rifkelsstöðum.
í upphafi fundarins minntist
Brynjólfur Sveinsson, formaður
kaupfélagsins, Sigurðar Krist-
inssonar, fyrrv. framkvæmda-
stjóra SÍS, Ingimundar Árna-
sonar, fulltrúa, Arnheiðar
Skaptadóttur og Valdimars
Haraldssonar, er öll höfðu lát-
ist frá síðasta aðalfundi, og öll
gegnt mikilvægum störfum fyr-
ir Kaupfélag Eyfirðinga með
trúnaði og dugnaði. Risu fundar
menn úr sætum í virðingarskyni
við hina látnu.
Formaður fluttj skýrslu
stjórnarinnar og greindi einkum
frá verklegum framkvæmdum
á s.l. ári.
Kaupfélagsstjórinn, Jakob
Frímannsson, skýrði frá rekstri
félagsins og las reikninga þess
fyrir árið 1963. Heildarvörusala
félagsins í innlendum og erlend-
um vörum, þegar með eru tald-
ar útflutningsvörur, verksmiðju
framleiðsla og sala þjónustu-
fyrirtækja, hefur aukizt á árinu
um 15—20% og mun nema alls
um 550 milljónum króna.
Fundurinn ákvað að verja
tekjuafganginum, um 4% millj.
króna, til endurgreiðslu á 4%
af ágóðaskyldri vöruúttekt fé-
lagsmanna og leggist upphæðin
í stofnsjóði þeirra.
Ennfremur ákvað fundurinn
að greiða í reikninga félags-
manna 6% af úttekt þeirra í
Stjörnu Apóteki, sem þeir höfðu
sjálfir greitt.
Ur menningarsjóði KEA hafði
verið úthlutað 60 þús. kr. og
samþykkti fundurinn að leggja
100 þús. kr. til sjóðsins.
Samþykkt var einróma tillaga
stjórnar kaupfélagsins um 250
þús. kr. framlag til að koma upp
á Akureyri efnarannsóknar-
stofu í þágu landbúnaðarins.
Að lokum fóru fram kosning-
ar.
Jón Jónsson, kennari og Sig-
urður O. Björnsson, forstjóri
voru endurkjörnir í stjórn fé-
lagsins til þriggja ára. — Guð-
mundur Eiðsson, bóndi var
endurkosinn endurskoðandi til
(Framhald á blaðsíðu 2).
Sláttur hefst semi
GRASSPRE-TTAN er víðast góð
miðað við árstima. í Eyjafirði
verður farið að slá fyrstu skák-
irnar, sem snemma fengu áburð
og búpeningur gekk ekki á. Er
það nokkru fyrr en venja er
til. □
a
r
Þorskaflinn nægir varla í soðninguna handa Olafsfirðingum
Ólafsfirði, 2. júní. Ólafur
Bekkur er farinn á síldveið-
ar og verið er að undirbúa
aðra báta hér til síldveið-
anna. Þessir bátar stunda
síldveiðarnar fyrir Norður-
og Austurlandi í sumar: Ól-
afur Bekkur, Sæþór, Guð-
björg, Stígandi og Þorleifur
Rögnvaldsson. — Munu þeir
brátt halda á miðin.
í nótt kom dekkbáturinn
Anna, sem er á ufsaveiðum,
með 28 tunnur af síld, ásamt
ofurlitlu af ufsa, sem veitt
var á Flateyjarsundi. Síldin,
sem er fremur smá og mis-
jöfn, var sett í frystingu.
Minni dekkbátar eru nú á
ufsaveiðum og kom einn
þeirra með 12 tonn í gær.
Þorskveiði er engin, svo að
jafnvel gengur erfiðlega að
fá í soðið. B. S.