Dagur - 19.08.1964, Blaðsíða 8
8
Landlega í Neskaupstað. (Ljósmynd: J. I.)
Gjörbreyting á samgöngum við
Neskaupstað í sumar
Milli 70 og 80 skip liggja nú inni vegna brælu
SMÁTT OG STÓRT
BLAÐIÐ leitaði í gær frétta frá
Neskaupstað, og átti af því til-
efni stutt viðtal við Bjarna
Þórðarson bæjarstjóra.
Hann sagði, að búið væri að
salta um 25 þúsund tunnur síld-
ar og bræða rúmlega 240 þús-
und mál. Bræðslu er ekki lokið
ennþá, þótt uppihald sé nú á
veiðunum, síðan fyrir helgi.
Mjög hefur verið erfitt með
söltunina, sagði bæjarstjóri, því
síldin hefur verið svo blönduð,
eða oft aðeins 25—30% af henni
söltunarhæf. Nú er talin mikil
síld úti fyrir og vona menn að
enn geti góð veiði orðið, þegar
veður batnar. En síldarskip
munu flest í vari og hér liggja
inni um 70 skip.
Aðspurður um framkomu að-
komumanna í landlegum, segir
bæjarstjórinn, að því sé fljót-
svarað og að engin vandræði
SNJOR I FJOLLUM
Ólafsfirði 18. ágúst. Hér er mjög
kalt, norðan stormur og rigning.
S.l. nótt snjóaði niður í miðjar
hlíðar. Lágheiði tepptist þó
ekki og er fær öllum bifreiðum.
Siglufjarðarskarð er mjög þung
fært. — Landlega er hjá trillu-
bátum. B. S.
FRÉTTIR herma, að nýstofnað
einkafyrirtæki í Reykjavík sé
búið að fá land á Raufarhöfn,
sem ætlað er til að byggja á
því nýja síldarverksmiðju.
Máttarstólpi hins nýja fyrir-
tækis er sagður vera Sveinn
Benediktsson, stjómarformaður
síldarverksmiðja ríkisins. Hann
virðist, eftir þessu að dæma,
njóta sín betur í einkaframtak-
inu en í verksmiðjustjórninni.
Til Raufarhafnar kemur alltaf
síld, bæði til söltunar og í
bræðslu, hvort sem hún veiðist
fyrir norðan eða austan.
hafi af þeim hlotist. Nú væru
t.d. fjölsóttir dansleikir á hverju
kvöldi og færu þeir vel fram.
í sambandi við samgöngur gat
bæjarstjóri þess, að Flugsýn
hefði haldið uppi áætlunarferð-
um frá því í apríl í vor, daglega
SÍÐAN skattaskrá Reykjavíkur
var birt, hafa skattamálin verið
mjög á dagskrá í blöðum syðra.
Ríkisstjórnin má sjálfri sér um
kenna, en almenningi koma háu
skattarnir á óvart. Ríkisstjórnin
hefur sjálf í tíma og ótíma aug-
lýst, að hún væri búin að lækka
alla beina skatta stórlega. En þó
að álagningarreglum hafi verið
breytt, kemur það nú að litlu
haldi, því að viðreisnardýrtíðin
hefur gert breytingarnar að litlu
eða engu, eins og menn raunar
gátu sagt sér sjálfir, að hún
myndi gera. Þetta er eins og
þegar stjórnin þóttist vera að
lækka innflutningstolla, — en
hækkaði þá miklu meira með
því að breyta genginu.
Að söluskattinum viðbættum
Sagt er, að síldarverksmiðjan
á Raufarhöfn hafi æfinlega bor-
ið sig vel fjárhagslega og stund-
um orðið af henni mikill hagn-
aður. En afköst hennar eru ekki
nema 5000 mál á sólarhring.
Stjórn síldarverksmiðjanna
telur sig víst ekki hafa haft
efni á því að stækka hana. Það
virðist þó hafa legið beinna við.
GREINARGERÐ frá Eiríki
Briem, samanburður á orku-
verði, áætlaðra virkjana við
Brúar og Búrfell kemur í næsta
blaði. '□
og stundum farið fleiri ferðir á
dag. Væru því samgöngurnar
ólíkt betri en áður. Auk áætl-
Unarflugsins hefði Flugsýn litla
vél eystra og væri hennar mik-
il not yfir síldartímann.
Þá sagði bæjarstjórinn, að
lokum, að nokkrar trillur og
tveir þilfarsbátar stunduðu
þorskveiðar og sæktu stundum
allt norður að Langanesi, en
afli hefði verið fremur tregur. □
er útkoman sú, að ríkisálögur á
þjóðina hafa meira en þrefald-
ast síðan núverandi stjórnar-
flokkar komu til valda. Það er
til marks um rökvísi stjórnar-
blaða um þessar mundir, að
þeim sýnist stjórnarandstæðing-
ar standa illa að vígi, að hafa
greitt atkvæði með skattalaga-
breytingum stjórnarinnar s.l.
vetur. Þessar breytingar höfðu
út af fyrir sig skattalækkanir í
för með sér, og voru því til
bóta fyrir skattgreiðendur, en
viðreisnardýrtíðin mátti sín
meira. Þessvegna eru skattarn-
ir svona háir — og útsvörin
líka. □
AÐ FARA f BERJAMÓ
Nú eru blessuð berin komin
og margir fara í berjamó, bæði
til að vera úti í nátíúrunni og til
að safna hinum ljúffengu ávöxt-
um.
En hvert á að fara? Svo virð-
ist, sem margir álíti berjalönd-
in einskis manns land og öllum
heimil. Þetta er þó ekki svo og
þurfa bæjarbúar að virða eigna-
og umráðarétt þess fólks, sem
berjalönd hafa óvéfengjanlega
til umráða. Leyfi fyrir berja-
tínslu, fyrir lítið gjald, eða e. t.
v. ekkert, >fæst víðast,-en hins
vegar er það mikil ókurteysi ef
menn virða ekki eignaréttinn
og taka það sem þeir ekki eiga,
hvort heldur um ber er að ræða
eða aðra hluti.
ERFIÐLEIKAR FISK-
VINNSLUSTÖÐVANNA
Erfiðleikar fiskvinnslustöðv-
anna eru af ýmsum toga hér
norðanlands og austan. Afla-
magnið hefur verið of lítið of
mikinn hluta ársins.. Og fiskur-
inn er smár. Sumsstaðar truflar
blessuð síldin rekstur fisk-
vinnslustöðvanna tíma á sumr-
in. Frystihúsin eiga við fjárhags-
örðugleika að stríða og eiga í
erfiðleikum með að koma á
nauðsynlegri hagkvæmni í
rekstrinum, ef liún kostar fé.
Nefna má eitt enn: Það hefur á
sumurn stöðum reynst erfitt að
fá liæfa kunnáttumenn til að
stjórna verki í frystihúsunum.
Allt of fátt er af kunnáttumönn-
um á þessu sviði og þetta hefur
að sjálfsögðu áhrif á öll vinnu-
brögð og þjálfun starfsfólks. í
þessu sambandi er vert að
minna á baráttu Framsóknar-
manna fyrir stofnun fiskiðn-
skóla, sem Alþingi tregðaðist
við að sinna, þar til nú í vetur,
að stjómarflokkunum þótti ekki
á því stætt lengur að svæfa mál-
ið.
GOTT ÁRFERÐI TIL
LANDSINS
Það sem af er þessu ári, lief-
ur árferði verið gott frá náttúr-
unnar liendi. Veturinn var mild-
ur eftir áramót, vorið hagstætt,
heyskapartíð góð og spretta víða
mikil, a. m. k. á Norðurlandi.
Bændur munu því eiga mikinn
og góðan vetrarforða í hlöðum
í þessum landshluta. Um væn-
leik dilka verður engu spáð, en
fallþungi licfur farið minnkandi
undanfarin ár. Vonandi heldur
sú þróun ekki áfram, a. m. k.
ekki umfram það, sem eðlilegt
má telja vcgna aukins fjölda
tvílembinga. Annars eru menn
ekki á eitt sáttir, hvað veldur
breytingum á vænleika fjárins.
Mjólkurframleiðslan eykst, og
gefur mjólkursamlagið á Akur-
eyri góða hgmynd um það. Á
sviði þeirrar framleiðslu er
þetta sumar hagstætt, það sem
af er.
SÍLDARSÖLTUN OF LÍTIL
Við sjávarsíðuna er „árgæzk-
an“ misjöfn. Mikið hefur veiðst
af síld austan við land, mest á
hafi úti. En þó aflamagnið sé
mikið, er tiltölulega lítið saltað.
Lengi sumars voru hlutföllin á
þá leið, miðað við s.l. ár, að
helmingi meira veiddist af síld
nú en þá. Og, að helmingi
minna var saltað í sumar en
gert var á sama tíma í fyrra.
Mikið af síldinni, sem nú veiðist,
er ekki liæft til söltunar, auk
langræðisins. Dregur þetta úr
gjaldeyrisverðmætum aflans, og
er illt, ef ekki er hægt að salta
upp í samninga við erlenda að-
ila. Fram á þennan dag hefur
víst fáum dottið síldarsöltun í
hug án síldarstúlkna. Nú berast
fréttir um það, að einnig á þessu
sviði líti út fyrir þá breytingu,
að vélar komi í kvenna stað.
„VIÐREISNIN“ SÁLUGA
OG ÞORSKURINN
Útgerð norðlenzkra fiskiskipa
á þorskveiðum hefur gengið illa
á árinu, afli mjög rýr fram á
mitt sumar, en eftir það eitthvað
skárri, a. m. k. í sumum ver-
stöðvum. Útgerðarmenn héldu-
fund um vandamál sín, og munu
Dalvíkingar hafa beitt sér fyrir
honum. Fulltrúar þess fundar
(Framhald á blaðsíðu 5).
Krapahríð á Möðru-
dalsöræfum
Vopnafirði 18. ágúst. Norðaust-
an kaldi og rigning gengur hér
yfir og hiti er aðeins 3—4 stig.
í nótt snjóaði í fjöll. Krapahríð
var á Möðrudalsöræfum síð-
degis í gær og í nótt.
Engin síld hefur komið hing-
að í um viku tíma og bræðslu
er að ljúka í síldarverksmiðj-
unni.
Línu- og handfærabátar hafa
veitt ýsu norður undan Langa-
nesi og lagt upp aflann hér.
Hér er minnkandi atvinna, en
aðkomufólk dvelur hér enn, í
von um að síldin láti sjá sig
aftur. K. W.
Bagur
Kemur ekki út á laugardaginn.
— Síðasta blað fyrir sumarfrí
kemur út n. k. miðvikudag. □
£<$xSxSxí><5><Sv*'^<íx»xíxíx$xí><í><fc<Sxíxfc<Sxí><$xSxíx?><Sx$><S><S><$><SxíxS><í><S>^<í^^
BÍLINN, sem valt á Öxnadalsheiði, er illa útleikinn, eins og
myndin sýnir. Er furðulegt talið, að nokkur, sem í honum
var er slysið bar að, skyldi komast lífs af. (Ljósmynd N. H.)
4x$k$x$>^*$x$x$x$x$x$k$x$x$~$x$x$:
Sveinn Ben. c. fl., æfla eð byggja
síldsrverksiniðju á Rauferhöfn
Ríkisálögur á þjóðina hafa þre-
faldazf undir „viðreisn"