Dagur - 20.02.1965, Síða 2
2
leisfaramó! Norðurlands
Átta leikir fara fram um helgma
FJÖGUR félög taka þátt í meist
aramóti Norðurlands í hand-
knattleik sem hefst á Akureyri
í dag kl. 2 e.h. og heldur áfram
á sama tíma á morgun. Leikirn
ir fara allir fram í Rafveitu
skemmunni. Félögin sem taka
þátt í mótinu að þessu sinni eru:
KA, Þór, ÍMA og Völsungar
Húsavík.
MÖRG skíðamót eru framund-
an á Akureyri, og einnig rriunu
skíðamenn bæjarins fara í
keppnisferðir til Ólafsfjarðar og
ísafjarðar. En mótaskráin er
þannig:
21. febrúar. Akureyrarmót í
stórsvigi. Keppt verður í öllum
flokkum karla, kvenna og
drengja.
28. febrúar. Bæjarkeppni
Ólafsfjörður—Akureyri. Keppn-
in fer fram í Ólafsfirði og verð-
ur képpt a. m. k. í alpagreinum.
6. og 7. marz. Norðurlands-
meistaramót. Fyrri daginn fer
fram keppni í stórsvigi, karla og
kvennaflokki, 16 ára og eldri,
og göngu karla 17 ára og eldri.
Seinni daginn verður keppt í
svigi, karla og kvennaflokkum,
16 ára og eldri og stökk karla
17 ára og eldri.
14. marz. Skíðamót á ísafirði,
með þátttöku Akureyringa.
21. marz. Akureyrarmót í
svigi. Keppt í öllum flokkum.
28. marz. Hermannsmótið.
Svig karla og kvenna, án flokka
EFTIR fjögurra ára starfsemi
eru lán Alþjóðlega þróunar
sjóðsins komin yfir einn miilj-
arð dollara. Nákvæmlega tiltek
ið hafa 27 löndum verið veitt 70
þróunarián sem samtals nema
1.002.240.000 dollurum. Hæsta
fjárhæðin, 435,9 milljónir doll-
ara, hefur gengið til samgöngu
mála, þ.e.a.s. járnbrauta, vega,
hafna og innanlandssiglinga, og
af heimsálfunum hefur Asía
fengið ríflegt lán eða samtais
777,5 milljónir doilara.
Alþjóðlegi þróunarsjóðurinn
er ein af sérstofnunum samein-
uðu þjóðanna og var komið á
fót árið 1960. Hann er í tengsl-
um við Alþjóðabankann og
gegnir því meginhlutverki að
útvega vanþróuðum löndum fjár
magn til þróunarframkvæmda
með kjörum sem séu betri en
venja er um slík lán. Hingað
til hafa öll lán sjóðsins verið
veitt til 50 ára og eru vaxtalaus.
Þessir leikir verða í dag:
II. fl. karla: Þór-Völsungar.
m. fl. karla: Þór-KA.
Msistarafl. kv.: KA-Völsungar
Á morgun, sunnudag:
Meistarfl karla: KA-ÍMA.
II. fl. karla: KA-Völsungar.
III. .fl. karla Þór-Völsungar.
III. fl. karla: KA-Völsungar.
Meistarafl. kv. ÍMA-Völsung.
skiptingar. Opið mót.
13.—18. apríl. íslandsmótið.
Eins og sést af framanskráðu
eru næg verkefni á dagskrá hjá
skíðamönnunum. Gaman er að
Norðurlandsmótið skuli vera
fyrirhugað nú í vetur, en all-
mörg ár eru síðan Norðurlands-
mót á skíðum hefir farið fram.
Munu þau hafa fallið niður
vegna og lítillar þátttöku. Er
vonandi að slíkt endurtaki sig
ekki í framtíðinni. Stærsta verk
efnið er að sjálfsögðu íslands-
mótið, einn mesti íþróttaviðburð
ur ársins.
Ak.mól í stórsvigi
EINS og getið er um á öðrum
stað í blaðinu fer Akureyrar-
mótið í stórsvigi fram á morg-
un (laugardag). Fer keppnin
fram við Strompinn og hefst kl.
11 f. h. Keppt verður í öllum
karla- og drengj aflokkum og
einnig kvennaflokki.
Ferðir verða frá Ferðaskrif-
stofunnni Lönd og Leiðir kl. 10,
12.30 og 13.30. □
94 ríki eiga aðild að sjóðnum.
Alþjóðlegi þróunarsjóðurinn
setur sömu skilyrði og Alþjóða-
bankinn varðandi áætlanir, fram
kvæmd og útgjöld af þeim verk
efnum, sem hann styrkir. Sjóð
urinn hefur hins vegar veitt
mun meiri hjálp en banki.nn til
verkefna eins og skólabygginga
og vatnsveituframkvæmda. Að
öðru leyti eru lánin fyrst og
fremst veitt til landbúnaðar,
iðnaðar, raforkuframleiðslu og
fjarskiptatækja.
Alþjóðlegi þróunarsjóðurinn
ræður yfir fjármagni sem nem
ur 1.595.569.000 dollurum og er
í ýmiss konar frjálsum gjald-
eyri. Eru þar teknar með í
reikninginn þær 744,7 milljónir
aollara, sem bætast við sjóðinn
með framlögum 18 ríkja. Fram
lag Danmerkur er þá 16,2 millj
ónir dollara, Finnlands 6,1 millj.
Noregs 13.3 milljónir og Sví-
þjóðar 40,2 milljónir dollara.
í handknaíf-
Frjálsíþróttamenn æfa
FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN á Ak-
ureyri hafa nú hafið útiæfingar.
Eru æfingar fjórum sinnum í
viku, þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 8 e. h. og laugardaga og
sunnudaga kl. 2.30 e. h. íþrótta-
mennirnir mæta fyrst í íþrótta-
vallarhúsinu, en taka svo til við
útiæfingarnar. Einnig æfa þeir
lyftingar innanhúss, en þær eru
taldar mjög gagnlegar fyrir iðk-
un flestra íþróttagreina.
Æfingar þessar hafa verið
sæmilega sóttar, sérstaklega af
yngri piltunum. E. t. v. verður
þessi áhugi undirrót þess að
komið verði á Akureyrarmóti í
frjálsum íþróttum á þessu ári,
en þau hafa fallið niður tvö s.l.
ár, og er það vægast sagt bág-
borin frammistaða í nær 10 þús.
manna bæ. □
SKÁKÞING
NORÐLENÐINGA
Úrslit í fjórðu umferð,
meistaraflokki:
Hjörleifur Halldórsson vann
Kristinn Jónsson.
Margeir Steingrímsson vann
Jón Ingimarsson.
Benedikt Jónsson vann Hauk
Jónsson (Haukur mætti
ekki til leiks).
Jón Björgvinsson vann Rafn
Einarsson.
Hjálmar Theodórsson sat hjá.
Úrslit í fimmtu umferð,
meistaraflokki:
Kristinn vann Rafn.
Hjörleifur vann Hauk. (Haukur
mætti ekki).
Hjálmar og Benedikt gerðu jafn
tefli.
Skák Jóns Björgvinssonar og
Jóns Ingimarssonar fór í bið.
Margeir sat hjá.
BRIDGEMÓTIÐ
FIMMTA umferð var spiluð sl.
þriðjudag. Úrslit urðu þessi:
Sveit Mikaels vann sveit
Knúts 6—0. Sveit Óðins vann
sveit Halldórs 5—1. Sveit Soffíu
vann sveit Ólafs 5—1. Sveit
Baldvins vann sveit Ragnars
5—1.
Sveit MikaeLs hefir þá hlotið
25 stig og tekið forystu í mót-
inu. □
Innanhússmót í frjáls-
iim íþróttum
KA gengst fyrir innanhússmóti
í frjálsum íþróttum á morgun í
íþróttahúsinu á Akureyri og
hefst keppnin klukltan 10 f.h.
Keppt verður í síökkum án at
remiu.
Hélaskrá Skíðaráðs Akureyrar
ALÞJÓÐLEGI ÞRÓUNARSjÓÐURINN
Bílstjórasögur j
Framhald
Drauga hefi ég aldrei séð,
eins og ýmsir þykjast sjá þegar
skyggja fer á hinum ýmsu stöð
um á fjölförnum leiðum og yf-
irleitt ekkert dularfullt. En þó
hef ég orðið var við það, sem
kalla mætti óeðlilegt, og ég hef
enga skýringu á, og ég held að
ég sé aldrei einn á ferð.
Einu sinni fór ég til Reykja-
víkur á fimm manna fólksbíl.
Með mér var Snorri Hallgríms-
son, síðar prófessor, Sigríður
Baldvinsdóttir héðan frá Akur-
eyri og maður að nafni Einar
Sveinsson. Þá voru margir læk-
ir og smá-ár óbrúaðar, enda
varð bíllinn fljótlega bremsu-
laus með öllu og lagaðist ekki
þótt bremsurnar þornuðu. Svo
hætti hann að draga svo að af
urðu vandræði í hverri brekku.
Svona gekk alla leið suður í
Hvalfjörð. Þar mætti ég tveim
mönnum á sams konar bíl, og
þekkti þá vel, því þeir voru frá
Akureyri. Ég bar upp vandræði
mín við þá og þeir fóru að
skoða bílinn en fundu ekkert
athugavert. Þarna voru menn,
sem vildu ekki hætta við hálfn-
að verk. Þeir skiptu á ýmsu í
bílum okkar. En það var sama.
Þeirra bíll gekk eins og klukka
en minn ekki. Varð við það að
sitja. Þegar kom að Reynivalla-
hálsi hugsaði ég með mér, að
þar færi bíllinn aldrei upp. Sig-
ríður gekk upp brekkuna en
piltarnir tóku sér steina í hönd,
viðbúnir, ef bíllinn stoppaði í
miðri brekku, að setja steinana
aftan við hjólin. Svo .spýtti ég
í, komst á töluverða ferð — og
marði það.
Þegar á Kjalarnesið kom ger-
breyttist bíllinn í einni svipan,
gekk eins og vera bar og skorti
nú ekki kraftinn. Mér létti, en
hins vegar fann ég enga skýr-
ingú á breytingunni. Ég gisti í
Gróðrarstöðinni um nóttina. —
Morguninn eftir tók ég svo bíl-
inn og var þá skrattinn hlaup-
inn í hann aftur. Ég fór nú með
hann á verkstæði. Þar fundu
viðgerðarmennirnir ekkert að
honum, enda gekk hann eins
vel og nokkur bíll gat gert, —
meðan hann var á verkstæðinu.
Ég tók svo bílinn og var hann
í ágætu lagi, svo og á heimleið-
inni. En mér fannst eitthvað
óeðlilegt við bílinn, meira jafn-
vel en bremsuleysið og kraft-
leysið. Þetta var að haustlagi.
Á hejmleiðinni komum við í
Fornahvamm. Þar man ég að
verið var að sjóða slátur. Ilm-
andi sláturlyktina lagði út á
hlað. Þá langaði mig mikið til
að biðja að gefa mér eitthvað í
svanginn, helzt slátur, því þann
ig stóð á í það sinn, að ég gat
ekki keypt eitt eða neitt utan
benzín, því peningar höfðu
brugðist mér í ferðinni, svo ég
var auralaus. Mér þótti skömm
að segja eins og var og bað því
hvorki að gefa mér eða selja.
En þetta var auðvitað heimsku-
legt, því fólkið í Fornahvammi
hefði eflaust skilið mig og satt
hungur mitt með ánægju.
Jæja, einu sinni fórum við 4
saman í þessum bíl og var þá
einhver gleðskapur. Einn félagl
minn var eitthvað skyggn. Nú
brá svo við, að hann segist allt
í einu þurfa að fara heim. Kom
okkur þetta mjög á óvart því
maðurinn var óvanur því að
slíta gleðskap. Jafnframt sagði
hann tveimur okkar að við
mættum fá sinn bíl það kvöldið.
Það var líka óvenjulegt, því að
hann var ekkert fyrir það, að
lána bílinn sinn. Hann fór svo,
en við tókum bíl hans og fórum
að rúnta. Um nóttina fór hinn.
bíllinn fram af bryggju og létu
þar líf sitt karl og kona. Eftirá
sagði maður sá, sem um kvöldið
hafði slitið félagsskapinn, að
spákona hefði varað sig við, orð
hennar hefðu gripið sig skyndi-
lega og þess vegna hefði hann
farið heim þetta slysakvöld.
En gagnstætt gleðskap og fé-
lagsskap yfirleitt kann ég bezt
við að vera einn og þá gengur
mér yfirleitt bezt. Og hvergl
kann ég betur við mig en uppi
á fjöllum. Þess nýt ég bezt einn.
í gamla daga voru boddíbílar
í tízku og flutti maður margt
fólk í þe'im, bæði heldri menrr
og aðra. En stundum gengu
ferðalögin skrykkjótt vegna
þess hve vegirnir voru vondir.
En þá æðraðist fólk ekki þótt
tafir yrðu og seinna komið
á áfangastað en ráðgert hafði
verið. Ég man t. d. eftir því að
einu sinni fórum við Unnsteinn.
Stefánsson með síldarsjómenn
suður til Reykjavíkur. Ég var
með boddíbíl en Unnsteinn ók
fólksbíl. Við fórum Kaldadal.
Við vorum ekki mjög langt
komnir þegar bera tók á
drykkuskap farþeganna og síð-
an hófust hörku slagsmál með-
al þeirra. Það voru nokkrar
konur og veit ég ekki hvort um
þær eða annað var barizt, nema
skipstjórinn þurfti að stiUa til
friðar. Mig minnir að hópurinn
teldi 17 manns. Sjómennirnir
voru allir af sama skipi. Hjá
Húsafelli festist fólksbíllinn svo
heiftarlega, að við urðum að
ganga frá honum. Þá fór nú að
þrengjast í boddíinu hjá mér.
En þetta gekk og við skiluðum
folkinu omeiddu i Reykjavík.
Á norðurleið tókum við bílinn
hjá Húsafelli og þar kom far-
þegi til okkar, sem komast vildi
norður í Húnavatnssýslu. Var
þetta ung og falleg stúlka og
buðum við henni að velja milli
bílanna. Hún vildi vera í boddí
bílnum og þótti mér það ekki
lítill uppsláttur fyrir mig og
bílinn. Þá var farið margoft yf-
ir Reykholtsdalsá og festi Unn-
steinn bíl sinn þrisvar en ég dró
hann upp úr. Og einhvers stað-
ar nálægt, þar sem nú er Bif-
rastarskóli varð hann benzín-
laus. Dró ég hann þá. En engan
hafði ég hliðarspegilinn. Gekk
svo um hríð, þar til mér fannst
bíllinn vera farinn að þyngjast
ótrúlega. Ég nam staðar og sá
hvað gerzt hafði. Dráttartaugin
harui farið undir hjólið, svo að
bíllinn drógst skakkt og var nú
kominn út af veginum.
(Framhald á blaðsíðu 7).