Dagur - 20.02.1965, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
UM VERKASKIPTINGU
í landafræðinni stóð fyrir 50 árum,
að landbúnaður og fiskvciðar væru
aðal atvinnuvegir íslendinga. Með
þessu var átt við það, að mestur hluti
starfandi fólks ynni við þessa atvinnu
vegi, og að af þeim hefði þorri þjóð
arinnar framfæri sitt. Vinnu við fisk
í landi töldu menn þá almennt til
fiskveiðanna og heimilisiðnað í sveit
um, sem raunar var orðinn miklu
minni en fyir, til landbúnaðar.
En hvemig er verkaskiptingin nú
og að hverju starfar vinnandi fólk á
Islandi á því hemans ári 1965, og á
hverju lifir þjóðin? Hún er nú orð-
in meira en helmingi f jölmennari en
hér var fyrir 50 árum, og það vita
allir, að bændum og fiskimönnum
hefur ekki f jölgað að sama skapi. Þar
er meira að segja um beina fækkun
að ræða. En er þá ekki hægt að fá að
vita, hvað fólkið í landinu hefur fyr-
ir stafni um þessar mundir? Þetta
ætti Hagstofan að vita, segja menn
sjálfsagt, og það er þá líka ómaksins
vert að kynna sér það, sem Hagstof-
an veit.
Því miður getur Hagstofan víst
ekki gefið meiri upplýsingar um
verkaskiptinguna í landinu á þessu
ári eða í fyrra en manntalið frá 1960
gefur til kynna. En í aðalmanntalinu
þá, var atvinna og framfæri manna
skráð í manntalsskýrslu. Þó að fjögur
ár séu liðin síðan, liggja niðurstöður
ekki opinberlega fyrir ennþá, en hins
vegar bráðabirgðatölur, sem ýmsum
eru kunnar. Það liggur í augum uppi
að talsverð breyting hefur orðið síð-
an í árslok 1960. í stórum dráttum
virðist hún vera á þá leið, að fólki,
sem stundar líkamlegt erfiði á landi
og á sjó hafi fækkað, en fólki, sem
vinnur við þjónustu (opinberir starfs
menn o.fl.) og verzlun f jölgað. En um
tilfærslur í heild á þessum fjórum
árum liggja ekki annað fyrir en á-
gizkanir einar.
En samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Dagur hefur aflað sér, eru bráða
birgðatölumar um atvinnuskipting-
una 1960 þessar, ef miðað er við 100
manns við störf: Landbúnaður 16,9,
fiskveiðar 7,4, fiskiðnaður 9,7, bygg
ingastarfsemi 11,5 ýmiskonar iðnað-
url6,3, verzlun 12,5, þjónusta 16,4,
flutningar 8,1 og rafmagns- og hita-
veitur 1,2.
Talið er, að framfærsla þjóðarinn-
ar skiptist á atvinnugreinar í svipuð-
um hlutföllum og vinnuaflið, hvort
sem þessi verkaskipting er hagkvæm.
Talið er líklegt, að þeir sem nú vinna
við landbúnað, fiskveiðar og fiskiðn
að samtals, séu ekki meira en 30 af
hverjum hundrað eða innan við
þriðjung starfandi fólks.
Gera má fiskveg upp fyrir Lax-
árvirkjanir með ýtu
segir Þorgeir Jakobsson bóndi og rafvirki
á Brúum í Aðaldal
í FYRRADAG mættum við Þor
geiri Jakobssyni bónda og raf-
virkja ó Brúnum í Aðaldal á
götu á Akureyri og spurðum
frétta að austan.
Hve lengi verður því unað,
Þorgeir, að laxinn komizt ekki
upp fyrir virkjanimar lijá Brú-
um?
Rætt hefur verið um, að taka
iaxinn neðan við virkjanir í sér
stakar kistur og flytja hann síð-
an upp fyrir. Þetta er kunn að-
ferð og getur gefizt allvel. Hins
vegar hef ég og fleiri athugað
Þorgeir Jakobsson
aðstöðu til að gera laxaveg fram
hjá virkjununum og sýnist okk
ur vel framkværiianlegt. Hæð
armismunurinn er rúmlega 100
metrar, miðað við fullnaðarvirkj
un, sem gerð hefur verið áætl-
un um. Laxavegur, sem gera
mætti að mestu með jarðýtu,
yrði hátt á annan km. að lengd
og mætti loka honum á vetrum.
Þetta yrði svipað því sem ýms-
ir ferðamenn hafa séð í Skot-
landi og víðar, þar sem skurðir
eru búnir til í brattlendi, fyrir
laxinn.
En hvemig fer þá um niður-
gönguseyðin?
Þau komast óskemmd gegn-
um vatnsvélarnar, þar sem fall
hæðin er ekki mjög mikil og
snúningshraði túrbínanna ekki
því meiri, það hefur reynzlan
sýnt. Eg tel, að þetta gæti e.t.v.
verið heppileg lausn í því máli
að koma laxinum fram í Laxár
dal.
Gætirðu hugsað þér nokkurt
fegurra laxveiðisvæði en í Lax-
árdalnum sjálfum, allt upp til
Mývatns?
Sá staður yrði eflaust vand-
fundinn og Laxárdalur yrði á-
kaflega eftirsóttur af veiðimönn
um. Gætu það orðið miklar sára
bætur fyrir það tjón, sem stór
uppistaða ofan mikillar stýflu
myndi valda í neðanverðum
dalnum. Á fiskiveginum þurfa
auðvitað að fara fram rannsókn
ir og velja síðan þá leið, sem hag
kvæmust þætti, en aðalatriðið
er, að unnt sé að nýta Laxá í
Laxárdal sem laxveiðiá. Þar,
eins og víðar, mun fjársjóður
falinn.
En er ekki Laxárvirkjun skylt
að leggja eitthvað fram til þessa
máls?
Svo mun það vera, samkvæmt
gömlu ákvæði þar um, segir Þor
geir.
Hvemig Iýst þér á þá liug-
mynd að veita Svartá og Suðurá
í Laxá?
í Aðaldal mun litið svo á, að
það gæti valdið miklu tjóni ef
vatnsborð árinnar verður hækk
að til muna. En úr því má bæta
með því að taka hluta árinnar
úr farvegi sínum fyrir sunnan
Hólmavað og leiða hann í Skjálf
andafljót skammt frá Hellna-
seli. Sú leið er einmitt gamall
farvegur Laxár, eftir að seinna
hraunið rann um Aðaldal fyrir
2000 árum. í allra mestu hlaup
um hefur áin leitað á þessar
gömlu slóðir. Að sjálfsögðu
þyrfti að lagfæra farveginn.
Það mætti hugsa sér í þessu
sambandi, að þarna bættust
nokkrir veiðistaðir við þá, sem
fyrir eru í Aðaldal og vissulega
eru verðmætir. En þetta eru nú
aðeins hugleiðingar um vatns-
rennslið í sveitinni, ef tveim ám
verður bætt í Laxá. En það mál
allt er að sjálfsögðu fyrst og
fremst á dagskrá vegna virkj-
ana og er það stærra mál en svo
að það verði rætt á hlaupum.
Hvemig ætlið þið að nota
hinn nýfengna jarðhita í Aðal-
dal?
Búið er að ákveða, að nálægt
þeim stað, sem heita vatnið
rennur upp á yfirborðið úr bor
holunni frá í sumar, í landi
Hafralækjar, verði heimavistar
barnaskóli reistur fyrir Aðal-
dælahrepp, Tjörneshrepp og
kannski Reykjahverfi einnig, a.
m. k. hafa Reykhverfingar lát-
ið í ljós þann vilja sinn að fá
að njóta góðs af væntanlegu
skólasetri.
Er ekki víðar jarðhiti á þess-
um slóðum?
Sennilegt er það, að undir
hinu 20 m. hraunlagi í Aðal-
dal kunni jarðhiti að vera. Og
nú í vetur hefur því m.a. verið
veitt athygli, að ekki langt frá
þeim stað, sem borað var eftir
vatninu sl. sumar, eru örlitlar
volgrur. Rannsókn kynni að
leiða ýmislegt í ljós á þessu
sviði. Annars erum við nú þeg
ar vel settir með heita vatnið.
Það er 8—9 lítrar á sek. og 78
stiga heitt. Það nægir því til
margra hluta, enda er ráðgert
að reisa einnig félagsheimili í
nágrenni hins heita staðar.
Hvað finnst þér um Hafra-
læk, sem skólasetur?
Þeir Konráð Vilhjálmsson og
Jóhannes Friðlaugsson, sem
voru hér barnakennarar eftir
síðustu aldamót og lengi síðan,
báðir merkir menn, eru fæddir
og fóstraðir á þessum slóðum:
Konráð ólst upp á Hafralæk og
kenndi sig jafnan við þann stað,
en Jóhannes er frá Hafralækjar
gerði. Það er því verðug minning
um þá, að skólinn rísi á æsku-
stöðvum þeirra beggja, sagði
Þorgeir Jakobsson að lokum og
þakkar Dagur viðtalið.
JÓNAS JQNSSON FRÁ HRIFLU:
Febrúarbréf til Dags
ÞAÐ vantar neista í þjóðlífið
til að lýsa og hita eða til að vara
við hættu. Eg vil minna á nokk
ur eftirminnileg fyrirbæri. Þau
geta lýst langar leiðir. Ein setn
ing getur lyft eða lamað heila
stétt eða heila þjóð. Kunnir
menn hafa markað stefnu og við
horf með fáum orðum.
HVAR ER BÆNDAVALDIÐ?
Bændu hafa skapað og skrifað
sögu í aldir. En nú er að þeim
þrengt. Merkur og lífsreyndur
þingfulltrúi, gróinn í sæti í blóm
legri byggð fékk heimsókn ó-
viðkomandi manns úr Reykja-
vík, er sagði við hann: Þú mátt
bjóða þig fram til þings í haust,
en ekki við kosningar næsta vor.
Tæplega mundu þeir frændur
Einar á Þverá og Guðmundur á
Möðruvöllum hafa tekið vel slík
um orðsendingum, en nú er
skjalfest raunaleg frásögn um
þetta efni í mikilli bók, nýlega
út kominni.
KOMA A VEG LÍFSINS
Jón Þorbergsson hefur skrifað
bók frá sjónarmiði stórbænda.
Hann hefur með vissum hætti
unnið eftirminnilega sigra.
Hann hefur orðið stórbóndi á
Bessastöðum og Laxamýri.
Um skeið hugsaði hann mjög
landnám en missti marks. Stór
bændadýrkendur villtust í þok
unni en aðrir byggðu býlin. En
í vertíðarlok kom stórbóndinn
á veg lífsins.
Bændastéttin þarf að lesa
þessa samíðarsögu og læra af
henni lífsvisku. Einstáklingar
og stéttir, sem verja ekki sæmd
FRAMKVÆMDASJÓÐUR S. Þ.
í SKÝRSLU frá Framkvæmda-
sjóði Sameinuðu þjóðanna er
frá því skýrt, að rannsóknir á
auðlindum og aðstæðum í van
þróuðum löndum, sem samtals
kostuðu 16 milljón dollara (688
millj. ísl. kr.) hafi lokkað fram
innlendar og erlendar fjárfest-
ingar sem námu 780 milljón
dollurum (33,5 milljarðar ísl.
kr.). Árangurinn hefur orðið
aukin raforkuframleiðsla, hag-
nýting jarðmálma, betri og greið
ari flutningar og stórauknar iðn
aðarframkvæmdir í þessum
löndum.
Framkvæmdasjóðurinn leit-
ast við að hjálpa vanþróuðu
löndunum til þess að fá fram ná
kvæma og áreiðanlega vitneskju
um náttúruauðlindir og aðrar
auðlindir, til þess að tileinka
sér vísindalegar og tæknilegar
aðferðir og nýjungar, og til að
hagnýta sér þessar aðferðir í
eign þágu jafnframt því sem
ÞRÍR SÓTTU
EIN lögregluþjónsstaða á Akur-
eyri var auglýst laus til umsókn
ar. Frestur er útrunninn, og
sóttu eftirtaldir menn um stöð-
una: Ólafur Ásgeirsson, Óskar
Alfreðsson og Sigfús Sigfússon
allir frá Akureyri.
þær þjálfa menn til að tryggja
sér nægan faglærðan mannafla.
Forstjóri Framkvæmdasjóðsins
er Paul G. Hoffman.
Síðan sjóðurinn var stofnaður
fyrir sex; árum, hefur stjórn
hans tekið ákvarðanir um 421
verkefni í 130 löndum. 34 þess-
ara verkefna er lokið, 255 þeirra
eru í framkvæmd, en á hinum
verður byrjað innan skamms.
Sjóðurinn og löndin, sem þiggja
hjálp hans, deila með sér kostn
aði af framkvæmd umræddra
verkefna. Fram til 30. júní 1964
var búið að leggja fram 233,3
milljónir dollara til þessara verk
efna, og af þeirri upphæð höfðu
móttökulöndin greitt 149 milljón
ir, en sjóðurinn 84,3 milljónir
fyrir milligöngu Sameinuðu
þjóðanna og níu sérstofnana
þeirra.
í skýrslunni kemur fram, að
56.000 manns hafa fengið eða
eru að fá aukna skólun og tækni
þjálfun í 124 stofnunum, sem
Framkvæmdasjóðurinn styður.
Yfir 1500 alþjóðlegir sérfræð-
ingar starfa að verkefnum sjóðs
ins ásamt 17,000 manns frá mót
tökulöndunum. Af sérfræðing-
unum eru 13 frá Danmörku 10
frá Finnlandi, 2 frá íslandi, 25
frá Noregi og 31 frá Svíþjóð.
MANNEKLA
í skýrslunni er lögð áherzla á
hinn tilfinnanlega skort sér-
fræðinga, sem starfað geti fyrir
sjóðinn. Níu verkefni hafa orð-
ið fyrir alvarlegum skakkaföll
um af þessari ástæðu. Einkan-
lega hefur reynzt torvelt að út
vega sérfræðinga í greinum eins
og fiskveiðum, skógrækt, vatna
jarðfræði og landbúnaði. 1 ein-
um tuttugu löndum hefur ver-
ið leitað til stórra verktaka, en
það hefur ekki bætt úr skák
þar sem þessi fyrirtæki verða
að útvega sér sérfræðinga á
sömu stöðum og stofnanir Sam
einuðu þjóðanna.
AUKIN INNKAUP A
NORÐURLÖNDUM
Til hinna ýmsu verkefna sjóðs-
ins hafa verið keypt áhöld og
annar útbúnaður í 75 löndum
fyrir upphæð sem nemur 37
milljónum dollara. í skýrslunni
segir, að á liðnu ári hafi inn-
kaup á Norðurlöndum aukizt
verulega. Fram til 30. júní 1964
námu innkaup sjóðsins í Dan-
mörku 290.000 dollurum, í
Finnlandi 5800 dollurum, í Nor
egi 236.700 dollurum og í Sví-
þjóð 857.000 dollurum.
sína, verða fórnarlömd nútíma
ræningja í vegi lífsins.
Jón á Laxamýri lagði nýlega
fram í stuttri blaðagrein þau
einföldu rök, að landið hefur
ekki eingöngu fætt þjóðina og
klætt í þúsund ár, í byggðum
landsins, heldur fæðir það dag
hvern sem líður allan borgarlýð.
Verðgildi búvöru og sjávarafla
er jafnt að krónutölu. Nú er op
in leið fyrir búfræðinga og hag
spekinga að endurtaka og berg
mála yfir allt landið boðskap
Jóns á Laxamýri.
„FRIÐUM LANDHELGINA“
Á Akranesi er ötull, djarfur og
framsýnn útvegsbóndi. Hús
hans og iðjuver bera af flestum
samskonar mannvirkjum ann-
arsstaðar á landinu. Haraldur á
Akranesi kann að gera út og
ávaxta pundið fyrir landið og
fólkið. Þegar grunnhyggnir
menn æða eins og víkingar um
landhelgina til að sópa upp
skyndigróða og gera beztu mið-
in að eyðimörk, segir þessi for-
sjáli Akurnesingur: Friðum land
helgina bæði fyrir erlendum og
innlendum ræningjum. Dáðrík-
ir íslendingar ættu að fylkja liði
undir þessum einkunnarorðum.
Ef til vill verða unnin mörg
skemmdarverk áður en friðunin
verður alger.
„ENGAR EYÐIJARÐIR“
Sýslumaður Þingeyinga gaf ný-
lega lausnarorðið í dálítilli
glaðagrein. í þúsund ár hefur
íslenzka þjóðin verið að byggja
og rækta landið. í þrjá áratugi
hefur verið sótt fast fram. Mik
il lönd eru brotin. Dýrar vélar
styðja mannshöndina drengi-
lega. Með hverju ári verður
ræktunin stærri og heimilin vist
legri.
Síðan kom engill dauðans og
blés banvænum orðum yfir hin
ar blómlegu byggðir. Fólkið
hvarf með lifandi pening og
lausamuni. Bæjarhurð var hall
að að stöfum. Mannvirki, lífs-
björg og saga var lögð í rústir.
En stefnuorð sýslumannsins á
Húsavík, „Engar eyðijarðir“
eru full af gróðrarmætti og fyr
irheitum, eins og jörðin sjálf.
Undir þau orð þarf hraustlega
að taka, enda er til nóg fé og
líklega nóg fólk og vélakostur.
Mannkynið vantar land, sem
fætt geti hundruð milljóna
manna. íslendingar munu aftur
fylkja liði til ræktunar lands
síns, lífs og manndóms.
Blómasala á sunnud.
NÆSTKOMANDI sunnudag (s
konudaginn) munu félagar úi
Lionsklúbb Akureyrar fara urr
nokkur hverfi bæjarins meí
blóm til sölu. Er hér tilvali?
tækifæri fyrir húsbændur af
gleðja sinn betri helming í til
efni dagsins, um leið og þeii
styrkja gott málefni.
Vonast félagar til að vel verð:
við þeim tekið, þar sem þen
kveðja dyra. Allur ágóði af söl
unni mun renna til góðgerða
starfsemi, eins og aðrar fjár
aflanir Lionsklúbbs Akureyrar
tttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttt
RONALD FANGEN
EIRÍKUR HAMAR
Skáldsaga
-ttttttttttttttttttttttttíHK
14
tttttttttttttttttttttttttttttt
Hann bjó sig til varnar: — Ekki hafði hann gert neitt
rangt, og faðir hans hafði enga ástæðu til að ásaka hann
fyrir eitt eða neitt, hvorki opinberlega né í hljóði. Líf hans
hefði gengið sína ákveðnu braut, hann var menntaður lög-
fræðingur, — og hann heyrði engar ávítanir, er hann hafði
lokið sínu glæsilega prófi, síður en svo: hvílík gleði og
hrifni þá! — Jæja, hefði hann enga sérstaka hæfileika, yrði
hann að halda sömu slóðina og allir hinir, og það hefði
hann gert, og gengið vel, enginn gat ásakað hann eða brigzl-
að honurn um leti. Hann get ekki afla ðsér annarrar vinnu
en þeirrar, sem að garði bar, og hann gat heldur ekki breytt
mannkindinni, hann var enginn siðbótamaður, hann neydd-
ist til að haga sér samkvæmt raunveruleikanum og sækja á
brattann.
Og nú var það Bjartur, — það var meðal annars talsvert
spennandi.
Eiríkur sat og hugsaði sig um dálitla stund. Síðan leitaði
hann viðtals við Fylki og fékk þegar áheyrn.
Fylkir var fram tir hófi elskulegur.
Hann reis úr sæti og brosti, er Eiríkur kom inn, sagðist
vera þreyttur og langa til að sþjalla stundarkorn, og hann
ætlaði að þessu sinni að brjóta gegn föstum venjum og fá
sér vindil, — sko, hérna hefi ég.lítinn og mildan hollenzkan!
Hann kom með nýopnaðan kassa. Þeir kveiktu í og reyktu
og hófu spjallið.
Fylkir var í ljósgráum fötum, nýrakaður og gljáði á and-
litið, hann virtist óvenju glaður og reifur. Þessi geðprýði
Fylkis var Eiríki hreinasta goðagjöf. Hann hafði að vísu
hugsað sér, hvernig hann skyldi víkja máli sínu í vissa átt,
þegar samræða væri hafin, en vildi ekki þegar í upphafi
drepa á tilkynningu bankans. Var því erfitt að hefja um-
ræður, þar eð hann gat ekki fundið sér neitt annað beint
erindi.
Eiríkur hafði þó í upphafi vikið að ungum viðskipta-
mönnum borgarinnar og spurði Fylki um allmarga þeirra.
Fylkir vissi að vanda allt um alla, og Eiríkur var of ákaf-
ur á sínum slóðum til þess að gefa fullan gaum að leiðum
Fylkis og vegamótum.
Fylkir sagði:
— í>að er svo sem ekkert furðulegt, neitt af þessu. Hér
hafa alls konar náungar grætt stórfé, bæjarsendlar, strák-
skussar og alls konar lýður, og að þessir peningar hverfa
jafnóðum út í bláinn er allt í lagi og ósköp eðlil.egt. Og
svo allir þessir viðskipta-burgeisar frá góðum heimilum,
drembilegir sjálfbirgingar, þeir telja sér trú um, að það
séu þeir, sem skapað hafi þessar glæsilegu viðskipta- að-
stæður, — hafið þér ekki séð hve margir slíkir burgeisar
hafa sprottið hér upp á fáeinum árum? Þeir halda því að
þetta muni vara um aldur og ævi. Og að þetta velti allt á
þeim! Og svo spila þeir út fullum fetum bæði peningum
sínum og fyrirtækjum. — Það er allt í þessu fína lagi!
— Virðist yður þetta vera í lagi?
— O-jæja. Ekki beinlínis bókstaflega. Ég er — ef svo má
að orði kveða — eins konar darwinisti viðskiptalífsins, ég
trúi á eðlilegt úrval, the survivel of the fittesð og tel engan
harmleik, þótt blöðrurnar springi.
— Er annars slík kolbrjáluð peningaeyðsla hinna ungu
viðskiptamanna?
— Hjá allri þjóðinni. Og allmargir — bæði ungir og
rosknir viðskiptamenn þjóðarinnar haga sér eins og fávitar.
— Þér nefnduð skipreiðara hér urn daginn, sem þér töld-
uð alveg vera að steypast. Var það Bjartur ungi, sem þér
höfðuð í huga?
Fylkir leit snöggvast launhæðinn á Eirík.
— Já, fyrst þér nefnið það. Ég veit annars að þér þekkið
hann. *■
— Jæja? Það er að minnsta mjög óverulega.
Fylkir saug fast vindlinginn.
— Þér kynntust Bjarti kvöld eitt á Bristol fyrir tveimur
árunr.
— Hvernig vitið þér það?
— Ég veit allt sem fram fer á hótelum og kaffihúsum hér
í borg.
Án þess að hafa áttað sig fyllilega, sagði Eiríkur:
— Hafið þér þá full-skipulagt njósnarakerfi, Fylkir?
Fylkir hikaði lítið eitt með svarið, og var allt í einu al-
varlegur, er hann svaraði:
— Ég þekki marga, og hlusta gjarna vel á það, sem þeir
segja.
Eiríkur varð sneyptur og flýtti sér að bera fram nýja
spurningu:
Peningaeyðsla unga Bjarts kvað vera alveg kolbrjáluð?
— Já, það getið þér reitt yður á.
— En hann græðir líka vel. Og er ekki heimskur, veit vel
livað hann hefst að.
— Jæja, viti hann það, er hann að minnsta kosti heimsk-
ur.
— Ég fer að verða forvitinn, — er það svo snarvitlaust?
Fylkir sneri sér frá honum og horfði snöggvast út um
gluggann. Síðan sneri hann sér snöggt við og hafði þá sett
upp sína venjulegu viðskiptagrímu, óræða og kuldalega og
sagði:
— Þér eruð mjög"gáfaður maður, Hamar, en þegar þér
ætlið að beita kænsku liggur við að þér séuð reglulega
grunnhygginn. Þér leikið að minnsta kosti ekki á mig. Mér
er vel kunnugt, að Bjartur hefir heimsótt yður í dag. Og
livert erindi þeirrar heimsóknar hefir verið er auðvelt að
gizka á. Hann hefir fengið vitneskju um, hvað í vændum
er. Hann vill fá yður til að annast málefni sín. Qg með nú-
verandi þekkingu minni á skapgerð yðar er mér ljóst, að
þér hafið heitið þessu. Og nú hafið þér ætlað að reyna að
veiða upp úr mér, hvernig í þessu liggur hans megin, svo
að þér getið vitað hvernig þér eigið að mæta árásinni.
Fylkir saug vindiliUn ög varð nú öllu samræðuþýðari:
— Pilturinn er ef til vill geðfelldur, og það er að minnsta
kosti drengilegt áf 'yður að láta yðar góða hjarta ráða úr-
slitum hér.
Og allt í einu mjög bTí’ðmáll:
— Hamar minn góður., --- það er aðeins það, að hann, og
jrar með þér líka eruð svo alltof seint á ferðinni. Honum
verður ekki bjargað! Örlög hans verða ráðin eftir fáeina
daga. Og þgð spillir aðeins málsstað hans, ef þér veitið mót-
spyrnu.
Eiríkur snerist aðeins til varnar. Hér varð kylfa að ráða
kasti. Hann hafði engan umhugsunarfrest.
— Segið mér aðeins, mælti hann, er það sökum þess, hve
heimskulegá Bjartur hefur farið að ráði.sínu, — eða er það
sökurn þess, að hér séu á kreiki náungar sem telji, að nú
liggi vel við að bregða honum til falls — og hagnast laglega
á því sjálfir?
Fylkir í djúpri alvöru:
— Þessari spurningu ætti ég ekki að þurfa að svara.
(Blíður á ný og skrafhreifur). En fyrst það eruð þér sem
spyrjið, get ég alveg eins sagt yður, að engum myndi detta
neitt annað í hug en að lofa Bjarti að kollsigla sig sjálfur,
væri ekki um allnrikil viðskiptamál að ræða á þessum vett-
vangi. Viðskiptamenn mega ekki ‘beinlínis vera að því að
fást við að vera siðameistarar.
— Nei, mættu þeir. vera að því, myndu þeir sennilega láta
Bjarti í té enn ei.tt tækifæri, þrátt fyrir allar vitleysur hans.
— Jæja, kannski það, já, kannski það. Það er að segja
félli skírdagur á föstudaginn langa.
— 'Það skal nú samt rekast á ýmsa agnúa, sagði Eiríkur,
að bola Bjarti álgerlega úr leik á þennan hátt.
Fylkir:
— Eins og þér viljið, ITamar. Það er leiðinlegt að við
skulum vera svo ósammála, og á þessum vettvangi hreinir
andstæðingar. En. ura það er nú ekki að fást. Hitt er svo
annað mál, að þér Vjerðið að hafa hraðann á. Ég gef ykkur
Bjarti hrein spil — svo að þið hafið þá eitthvað á hendi.
Næstu dagana verður þessu öllu lokið.
— En hvernig er það hægt?
— Það er hægt að framkvæma blátt áfram með því að
gera hann gjaldþrota. Og, þegar öllu er á botninn hvolft.,
býst ég ekki við að pilturinn kæri sig um að æpa hátt út af:
því. — Því þögulla sem þetta verður, því betra fyrir hann.
— Jæja.þá, tautaði Eiríkur. — Ja-há: — Erindi mitt var
þá ekki annað. '
— Ég býgt við þvf, sagði Fylkir.
Hann stóð þarna gléiðglottandi, þegar Eiríkur fór, eins
og hann skemmti sér og væri stórkostlega dillað.
•' ; . í
1
Eiríkur fékk sannarlega í nógu að snúast.
— Hringið og segið að ég geti ekki sótt fundinn í „Sjáv-
arútvegi" klukkan hálf fjögur, sagði hann við símastúlkuna
um leið og hann gekk um forskrifstofuna.
Klukkan þrjú varð hann að ná í Bjart unga. En fyrst varð
hann samt að hugsa sig um sem snöggvast.
Hann þekkti nú allt nægilega vel til þess að gera sér ljóst,
að nú hefði hann átök í huga, — nú vildi hann berjast.
Þetta með bankann væri allt upp úr Fylki, og ráðstöfunin
á Bjarti hefði eflt og aukið áhuga hans, eftir að Eiríkur vai
þar orðinn málsaðili. Og þetta myndi eflaust færast í auk-
ana innan skamms? — En afleiðing alls þessa hlaut sennilega.
að verða sú, að Eiríkur sliti samstarfinu? Við sjáum nú til.,
Framhald.