Dagur - 20.02.1965, Blaðsíða 7
7
r- ÞAÐ ER EKKI SAMA JÓN OG SÉRA JÓN
| (Framhald af bls. 8.)
aðrar verksmiðjur sunnanlands
og vestan ráðgera að leygja þrjú
| tankskip í sama skyni.
Hér nyrðra er málið í athug-
un. Um þetta segir greinarhöf-
undur: „Eg tel, að ekki sé enn
fengin næg reynzla hvorki um
kostnað né notagildi tankskip-
anna til síldarflutninga til þess
að unnt sé að kveða upp endan
legan úrskurð um þýðingu
þeirra í framtíðinni fyrir síldar
útveginn.“
Ekki telur hann þó líklegt, að
nyrðra „leysi afgreiðsluörðug-
leika síldveiðiflotans til fulls.
Sagt er í nefndri greinargerð,
að stjórn S. R. hafi viljað auka
vinnslu- eða afkastagetu ríkis-
verksmiðjanna á Seyðisfirði og
Reyðarfirði og Raufarhöfn og
hafi ráðherra veitt leyfi til fram
kvæmda á Seyðisfirði og Reyð
arfirði fyrir 55 millj. kr., en
aukningin á Raufarhöfn virðist
ekki hafa verið leyfð, enda hef
ur einkafyrirtæki óskað eftir
að reisa þar verksmiðju og mun
hafa fengið loforð fyrir landi hj á
hlutaðeigandi sveitarstjórn. Hef
ur stjórp S. R. mælt með þe.irri
framkvæmd, og þá að því er
virðist hugsað sér hvorttveggja
samtímis, nýja einkaverksmiðju
og stækkun ríkisverksmiðjanna.
En helzt lítur nú út fyrir, að
hvorugt komist í framkvæmd
að þessu sinni. Auk þess hefur
stjórn S. R. mælt með því, að
komið verði upp minni verk-
smiðjum á vegum annarra á
Þórshöfn, Stöðvarfirði og Djúpa
vogi. í þessu sambandi minnast
menn þess, að á Alþingi fyrir
jólin beitti ríkisstjórnin sér fyr-
ir því, að samþykkt var ríkis-
ábyrgð fyrir Klett til kaupa á
síldarflutningaskipi til að flytja
síld til Reykjavíkur, allt að 80%
af skipsverðinu. En þegar flutt
var tillaga um samskonar ríkis
ábyrgð fyrir síldarverksmiðjur
á Norðurlandi, var hún felld af
þingmeirihlutanum. „Það er
ekki sama Jón og séra Jón,“
segir einhversstaðar og það á
við hér.
Samanburður á hæsta og lægsta verði
á ýmsum nauðsynjavörum á Akureyri 1. febrúar 1965
Hæsta Lægsta
Vörutegund: verð: verð:
(krónur) (krónur)
Hveiti í 5 lbs. pokum........................ 28,80 25,00
Hveiti í lausri vigt......................... 10,95 9,40
Haframjöl í lausri vigt ...................... 9,95 8,25
Sólgrjón í 1 kg. pk......................... 15,25 14,50
Sólgrjón í V2 kg. pk.......................... 7,75 7,15
Strásykur pr. kg.............................. 8,80 7,65
Meíís pr. kg. (grófur) ...................... 18,15 17,00
Melís pr. kg. (fínn) ........................ 11,70 11,20
Flórsykur pr. kg. ........................... 26,65 17,00
Púðursykur pr. kg............................ 18,30 16,80
Kartöflumjöl pr. kg.......................... 16,40 11,00
Rúgmjöl pr. kg. .............................. 9,00 7,60
Sagógrjón pr. pk. (Lion) .................... 11,10 8,90
Sagógrjó pr. pk. (Perla) .................... 11,70 9,45
Hrísgrjón pr. pk. (River Rice)................ 8,50 8,00
Kakó 1/2 lbs. (22/24%) ...................... 25,00 19,00
Plastbón (Mjöll) ............................ 21,25 15,00
Toiletpappír ................................. 8,80 6,90
Handsápa (Lux)............................... 10,70 9,50
Þvottaduft (Omo) ............................ 15,75 14,30
Ræstiduft (Vim) ............................. 11,60 11,00
Kaffi (hámarksverð) pr. pk................... 21,30 21,00
Borðsalt pr. 1 kg. pokar...................... 6,65 4,50
Royallyftiduft pr. 1 lbs. dósir.............. 37,70 31,65
Vinnuvettlingar (gulir) ..................... 37,55 35,00
Blautsápa (hámarksverð) pr. kg............... 24,50 23,00
Egg pr. kg................................... 81,60 70,00
Rúsínur pr. kg............................. 47,00 39,00
Sveskjur pr. kg.............................. 47,00 39,00
Þurrkaðir ávextir (blandaðir) pr. kg........ 115,00 94,00
Epli fersk pr. kg. ........................ 32,50 27,00
Appelsínur ................................... 27,50 24,00
Bánanar ...................................... 44,00 43,00
Eiginmaður minn,
SIGFÚS KRISTJÁNSSON,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu-
daginn 18. þ. m. — Jarðarförin fer fram frá Akureyr-
arkirkju miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 2 e. h.
Fyrir hönd barna okkar, tengdasonar og dótturbarna.
Guðrún Gísladóttir.
Faðir minn og fósturfaðir,
SIGTRYGGUR JÓHANNESSON frá Torfum,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
23. febrúar kl. 13.30. — Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Rósfríður Sigtryggsdóttir, Sigurjón Rist.
Drenginiir sváfu . . .
(Framhald af blaðsíðu 1).
ið áfram og áður en langt leið
fundust drengirnir sofandi und-
ir stórum steini skammt frá
Heljartröð. Voru þeir eftir
ástæðum hressir. En geta má
nærri hversu farið hefði, ef kalt
hefði verið í veðri. Er drengirn-
ir fundust var kl. tæplega 5 um
morguninn.
Meðan á þessu gekk fór stór
leitarflokkur af stað frá Siglu-
firði á mótorskipinu Hjalta og
stefndu í Hraunakrók. En um
það leiti að þangað kom, voru
drengirnir fundnir. Hélt svo all-
ur hópurinn heimleiðis á skip-
inu og kom til Siglufjarðar kl.
7 þennan morgun. Engum
drengjanna varð meint af volk-
inu. Þess ber að geta, að fólk
frá Sauðanesi, þar sem Trausti
Magnússon vitavörður býr, og
Pétur bóndi Guðmundsson á
Hraunum tóku þátt í leitinni.
En alls munu leitarmenn hafa
verið á sjötta tug.
Nú er tunnuverksmiðjan í
fullum gangi og starfa við hana
40 manns. Ula gengur með
frystihúsin, því Hringur einn
stundar veiðar til að leggja hér
upp. B..J.
- ÞAÐ ER HÆGT . .
(Framhald af blaðsíðu 8)7
stjóra Búnaðarblaðsins að taka
þeta til birtingar fyrst hann
tók hitt.
10. febrúar, fannst grá ær-4rá
Aðalbóli og var hún með ómark
aðan hrút og fylgdi henni mó-
rauð mörkuð gimbur frá sama
bæ. Ærin hefur ekki sézt frá
því fé var sleppt í fyrravor.
Kindurnar voru vel á sig komn
ar. Komu sjálfar í heimaland.
G. A.
FRÁ KRISTNIBOÐSHÚSINU
ZION. Tvær samkomur verða í
næstu viku, þar sem Halla
Bachmann kristniboði mun
sýna skuggamyndir frá kristni
boðsstarfinu á Fílabeins-
ströndinni í Afríku. Fyrri
samkoman verður n. k. sunnu
dag kl. 8,30 e. h. en hin seinni
n. k. þriðjudag á sama tíma,
en þá mun Halla Bachmann
sýna myndir frá barnaheimil-
inu, sem hún hefur starfað
við á Fílabeinsströndinni.
M E I R A PRÓFSNAMSKEIÐ
ökumanna er auglýst á öðr-
um stað í blaðinu í dag.
SL Y S AV ARN ARKONUR Ak-
ureyri. Aðalfundurinn verður
í Alþýðuhúsinu mánudaginn
1. marz kl. 8.30 e. h. Venjuleg
aðalfundarstörf. Mætið vel og
stundvíslega og takið með
ykkur kaffi, en deildin veitir
bollur. Stjórnin.
GÓUGLEÐI Húnvetningafél-
agsins verður í Landsbanka-
salnum laugardaginn 27. þ.m.
Nánara auglýst í næsta blaði.
Stjómin.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG
Föndurvinna verður
mánudagskvöldið kl.
8 að BjargL
Föndurnefndin.
ARSHÁTÍÐ Iðju, félags verk-
smiðjufólks <á Akureyri, verð
ur haldin í Alþýðuhúsinu á
laugardaginn 27. febrúar n.k.
LITSKUGGAMYNDIR frá Af-
ríku verða sýndar á drengja
fundinum að Sjónarhæð n.k.
mánudagskvöld kl. 6. — Allir
drengir velkomnir.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Ágúst Þor-
leifsson, sími 11563.
MATTHÍASARSAFN. Opið á
sunnudögum kl. 2—4 e. h.
Skógafoss hleypur af stokkunum
HIÐ nýja vöruflutningaskip H.f.
Eimskipafélags fslands hljóp
nýlega af stokkunum í Álbbrg-
Værft í Álaborg og var gefið
nafnið Skógafoss.
Viðstaddir voru af hálfu Eim
skipafélagsins Óttarr Möller
forstjóri, Einar B. Guðmunds-
son hrl. og Viggo E. Mááck
skipaverkfræðingur og konur
þeirra. Einnig voru viðstödd
Stefán Jóh. Stefánsson ambassa
dor og kona hans, og fleiri gést-
ir, íslenzkir og danskir. Það var
frú Arnþrúður Möller, kona
Óttars Möllers forstjóra Eim-
skipafélagsins, sem gaf skipinu
nafn.
M.s. Skógafoss er opið hlífð-
arþilfarsskip, 2670 D. W. tonn
að stærð. Lengd milli lóðlína
verður 280,2 fet og breidd 44,3
fet. Aðalaflvél skipsins, smíðuð
Áætlað er að smíði þess skips
verði lokið um næstu áramót.
- BÍLSTJÓRASÖGUR
(Framhald af blaðsíðu 2).
Að kveldi dags komum við
norður í Húnavatnssýslu. Far-
þeginn vildi taka gistingu á
ákveðnum bæ, en við vildum
heldur flytja hana heim til sín,
sem við gerðum. Þar gistum
við. Ekki var langt milli þess-
ara staða og gældi ég við þá
hugmynd , að kannske hefði
stúlkunni litist vel á mig og
dottið ævintýri í hug, er hún
mælti með gististað, sem ekki
var langt frá heimili hennar
sjálfrar. En skýringin mun ef-
laust hafa verið sú, að heima
hjá henni voru hús hrörleg og
GÓÐAR GJAFIR: — Magnús
Gunnlaugsson, verkamaður á
Akureyri, kom til mín nýlega
og afhenti mér kr. 2000,00 —
tvö þúsund krónur — sem
skiptast skyldu milli Dalv. —
Urða — og Vallakirkju. Áður
hafði hann gefið Tjarnar-
kirkju kr. 1000,00. Magnús er
Svarfdælingur að ætt og upp
runa. Og með þessum gjöfum
og því er hann áður hefur
gefið hingað hefur hann fagur
lega sýnt hug sinn í verki.
Gjafir þessar eru gefnar til
minningar um foreldra hans,
hjónin: Ágústu Sigurðardótt
ur og Gunnlaug Jónsson, sem
bæði voru fædd og uppalin í
Svarfaðardal. Eg þakka Magn
úsi gjafir þessar. Það er gott
hverju byggðarlagi að eiga
slíka að. St. Sn.
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
lagsins Hlífar. Öllum ágóða
varið til fegrunar við barna-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í bókabúð Jóhanns Valde
marssonar og hjá Laufeyju
Sigurðardóttur Hlíðargötu 3.
MINJASAFNH): — Opið á
sunnudögum kl. 2—5 e.h.
LESSTOFA ísl.-ameríska félags
ins, Geislagötu 5: Mánudaga
og föstudaga kl. 4—6, þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 7.30
—10, laugardaga kl. 4—7.
NÁTTÚRU GRIP AS AFNIÐ er
opið á fimmtudögum kl. 4—6
síðdegis og sunnudögum kl.
2—4 síðdegis.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
Margir þingmenn úr öllum flokk
um fluttu tillögu um, að bisk-
upsstóllinn yrði fluttur í Skál-
holt. En biskup virðist ekki vilja
sitja þennan helga stað og skoð
anir skiptar innan prestastéttar
innar um það mál. Þeirri hug-
mynd skaut upp til samkomu-
lags, að biskupar skyldu vera
þrír og Reykjavíkurbiskup yf-
irbiskup eða erkibiskup. Nóg
ætti að vera, að hafa tvo bisk-
upa, annan í Skálholti og hinn
á Hólum eins og fyrrum, en
vandséð er hversvegna biskup
þarf að sitja í Reykjavík. Jafn-
vægið í byggð landsins verður
að vera meira en orðin tóm.
ÚTV ARPSTRUFL ANIR
OG SJÓNVARP
Um útvarpstruflanir og sjón-<
varp urðu talsverðar umræður
á Alþingi nú nýverið. Tóku þrír
af þingmönnum Norðurlands-
kjördæmis eystra til máls í þeim
umræðum. Menn hafa látið á
sér skilja, að meira aðkallandi
væri, að tryggia viðunandi af-
not af útvarpi en að koma upp
sjónvarpi, sem fyrst um sinn a.
m. k. yrði aðeins fyrir suðvestur
land. Gylfi menntamálaráðherra
Benedikt Gröndal og Sigurður
hjá Burmeister & Wain, verður
3000 hestöfl. Ganghraði er áætl-
aður 13,9 sjómílur.
Smíði skipsins verður lokið í
maí n. k. og þá afhent Eimskipa
félaginu.
Þegar verður hafist handa að
leggja kjölinn að systurskipi
m.s. Skógafoss sem smíðað
verður í sömu skipasmíðastöð.
ekki vel til gestamóttöku fall-
in. En þar var þó gott að vera
og virðist æfinlega vera nægi-
legt húsrúm og flestum bjóð-
andi, ‘ þar sem gott fólk býr,
hversu sem húsakynnum er far
ið .
Að lokum biður Sigurgeir
Jónsson fyrir kærar kveðjur í
Bárðardal og Fnjóskadal. □
Bjamason, en tveir hinir síðar
nefndu sitja í útvarpsráði, sóru
og sárt við lögðu, að sjónvarp-
ið yrði fyrir alla fslendinga og
myndi alls ekki tefja fyrir úr-
bótum hlustunarskilyrða. Aðr-
ir litu svo á, að eitthvað myndi
sitja á hakanum, ef ekki fengist
fé til alls og fer það naumast
milli mála, að svo sé.