Dagur - 27.03.1965, Page 7
7
SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu S).
á dögunum, að kenning Marx
og Leníns kynni á komandi
tímum að virðast „fjarstæðu-
kennd eða jafnvel hlægileg.“
Sjálfur sagðist hann þá vera í
þann veginn að „ganga á guðs
síns fund.“ Kannski er þá eftir
allt saman „vinstri stefnan“
ekkert „óljósari“ en hið sósíal-
iska mistur.
HVERS VEGNA ÞÖGÐU
j ÞEIR?
Það vakti mikla athygli í söl-
um Alþingis og er nú óspart
rætt manna á milli, að Alþýðu-
bandalagsmenn sátu að mestu
hjá við tveggja daga umræður
í neðri deild um 20% niður-
skurð til verklegra fram-
kvæmda víða um land. Lúðvík
Jósefsson tók að vísu til máls
einu sinni, en ræddi þá aðallega
um verðuppbætumar til sjávar
útvegsins, en tilkynningin um
niðurskurðinn var birt í grein-
argerð með frumvarpi um þær
ráðstafanir.
Ýmsir setja þessa hjásetu Al-
þýðubandalagsmanna í sam-
band við viðtöl Bjama Bene-
diktssonar við forystumenn
þeirra nú undanfarið.
ÍSINN ER VIÐSJALL
ísinn er þegar órðinn alltraust-
ur á Pollinum. En þar sem skip
hafa brotizt í gegn er ísinn
sprunginn og að sjálfsögðu
mjög ótraustur þótt fljótt skæni
yfir. Þar er hann mjög hættu-
legur þehn börnum, sem skauta
eða hjóla á ísbreiðunni. Er for-
eldrum ráðlagt að leggja börn-
um sínum ríkt á niinni, hvar á
ísnum þau megi vera og hvar
ekki. Reynslan í þessum efnum
ætti að vera mönnum umhugs-
unarefni.
FÆREYINGAR KOMA UM
PÁSKANA
Þegar Kronprins Olav kemur
hingað til lands í jómfrúarferð
sinni um páskana, ætla 150
Færeyingar að koma hingað til
lands og eyða hér nokkrum
dögum í páskaleyfinu. Ferða-
skrifstofan Lönd & Leiðir hafa
skipulagt ferðir fyrir þá hér-
Iendis.
ÞRÁSETA ÍHALDSINS
Nýlega sagði Morgunblaðið
landsfólkinu þann vísdóm, að
vinstri stjórnin hefði spmngið
á verðbólgunni. Mbl. viJI e. t. v.
bera saman verðbólguþróunina
á vinstri stjórnarárum og þeim
fimm árum, sem íhaldið hefur
setið við völd. Það er rétt hjá
Mbl. að vinstri stjórnin „sprakk
á verðbólgunni“ því í hennar
tíð hafði vísitalan hækkað um
17 stig eða svo. Það þótti Her-
manni Jónassyni forsætisráð-
herra meira en nóg. Hins vegar
situr íhaidið sem fastast þótt
vísitalan hafi í stiórnartíð þess
síðustu árin hækkað um 200
stig (sams konar vísitölustig)!
Þessa þrásetu undrast marg-
ir. Q
Maðurinn minn og faðir okkar,
JÓN KRISTINN SIGTRYGGSSON,
Byggðavcg 140, Akureyri,
andaðist aðfaranótt þriðjudagsins 23. marz á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu. — Jarðarförin fer fram frá Akur-
eyrarkirkju þriðjudaginn 30. rnarz kl. 2 e. h.
Sigrún Gunnarsdóttir og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
ODDGEIRS GUÐNASONAR,
Melum, Akureyri.
María Jóhannsdóttir, Guðni Oddgeirsson.
Hjartanlega þökkum við öllum, sem hlynntu að
föður okkar,
ZÓPHUSI S. GISSURARSYNI
í veikindum hans. Einnig ]>ökkum við auðsýnda samúð
við andlát hans og jarðarför.
Dætur hins látna.
Innilega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okk-
ur samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður
okkar og afa,
HALLGRÍMS JÓNSSONAR, járnsmiðs.
Helena Hallgrímsdóttir, María Hallgrímsdóttir,
Astrid Jensdóttir.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför
ÓLÍNU TRYGGVADÓTTUR, Gilsá.
Aðstandendur.
LEIGUÍBÚÐ ÓSKAST
næsta vor, 2—3 herbergi
og eldhús. Fyrirfram-
greiðsla kæmi til mála.
Björn Halldórsson,
sími 1-11-09.
B A Z A R
Rvennadeild Einingar
O
heliur bazar og kaffisölu í
Alþýðuliúsinu sunnudag-
inn 28. rnarz kl. 3 e. h.
Agóðinn rennur til
barnaheimilisins.
Styðjið gott málefni!
Nefndin.
NÝIÍOMIÐ:
FRÆ handa páfagaukum
kanaríufuglum og
finkum.
Enn fremur:
Vítamínbjöllur, hringir
o. m. 11.
Tómstundaverzlunin
STRANDGÖTU 17 • PÖSTHÖLF 63
AKUREYRI
GRÓFUR
MOLASYKUR
KAUPFÉLAG
VERKAMANNA
KJÖRBÚÐ OG ÚTIBÚ
AUGLÝSIÐ í DEGI
MESSAÐ f LÖGMANNSHLÍÐ-
ARKIRKJU n. k. sunnudag kl.
2 e. h. — Miðfasta. — Sálmar
nr. 148, 658, 203, 374 og 232.
Bílferð að kirkjunni frá gatna
mótum í Glerárhvérfi kl. 1,30
e. h. — P. S.
KVENNADEILD Verkalýðsfé-
lagsins Einingar hefur bazar
og kaffisölu í Alþýðuhúsinu
á morgun (sunnudag 28.) til
ágóða fyrir barnaheimilis-
rekstur sinn. — Sjáið nánar
auglýsingu.
NOKKRIR fleiri þátttakendur
geta komizt að í námsflokki,
sem sameinar enskulestur og
bibh'ulestur á laugardags-
kvöldum kl. 8,30 að Sjónar-
hæð. Uppl. gefur Sæmundur
G. Jóhannesson, sími 11050.
VESTFIRÐINGAR á Akureyri
og í Nágrenni! — Munið á-
skriftalistana í Markaðinum
og Vísi. Árshátíðin verður
laugardaginn 3. apríl.
ALLIR EITT KLÚBBURINN
efnir til dansleiks í Alþýðu-
húsinu í kvöld (laugardaginn
27.) kl. 21. Aðgöngumiðá má
vitja frá kl. 7 e. h. — Stjórnin.
HJÓNAEFNI. Þann 19. þ. m.
opinberuðu trúlofun sína ung
frú Guðrún Haraldsdóttir,
Langholtsvegi 116b, Reykja-
vik og Vilhjálmur Baldurs-
son, flugvélavirki, Skipagötu
7, Akureyri.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Guðmund
Knutsen, sími 11724.
MINJASAFNIÐ: Opið á sunnu
dögum kl. 2—5 e.h.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ er
opið á fimmtudögum kl. 4—6
síðdegis og sunnudögum kl.
2—4 síðdegis.
GAMANLEIKURINN
„Ást og niisskilningur“
verður sýndur í Sól-
garði í kvöld (laugar-
dag) kl. 21, (dansað á eftir
sýningu) og á Grenivík, á
sunnudag kl. 21.
ATHYGLI SKAL VAKIN á, að
póststofan á Akureyri á eitt-
hvað óleigt af hólfum. Sjáið
nánar augl.
AÐALFUNDUR FRAMSÓKN-
ARFÉLAGS AKUREYRAR
verður n. k. fhnmtiidags-
kvöld í skrifstofu flokksins.
Nánar auglýst í næsta blaði.
Ákureyringar! Akureyringar!
Efnt verður til VEIÐIKEPPNI upp um ísinn á poll-
inum sunnudaginn 28. marz, afmarkað veiðisvæði. —
Verðlaun veitt. — Þátttökugjald 150.00 kr.
Veiðarfæri til kaups úti á ísnum. — Veitingasala.
Allur ágóði rennur tíl líknarmála.
Fjölmennið til heilbrigðrar og góðrar skemmtunar.
Keppni hefst kl. 14.00.
LIONSKLÚBBURINN HUGINN.
Ákureyringar - Nærsveitafólk
Höfum mikið úrval af
FERMINGARKÁP UM
verðið rnjög hagstætt.
Einnig
VETRAR-OG VORKÁPUR
í öllum venjulegum stærðum með og án loðkraga.
Ýmislegt til fermingargjafa.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Bændur!
Eigum fyrirliggjandi takmarkað magn af
rafknúnum LJÁBRÝNSLUVÉLUM
FYRIR SLÁTTUVÉLALJÁI
á sérlega hagstæðu verði.
VÉLADEILD