Dagur - 28.04.1965, Blaðsíða 1
ÍS •“
wt
Fóðurvörur eru fluffar á bílum
Sfór skuffogari fyrir 32 miilj. kr.
FYRIR skömmu kom rússnesk
ur skuttogari til Reykjavíkur
og fengu menn að skoða hann
að vild. Togarinn er 3170 lestir
að stærð með 2 þús. hestafla að-
alvél. Um borð er fiskurinn heil-
frystur og þar er fiskimjöls- og
niðursuðuverksmiðja. Áhöfn er
um 100 manns, þar af 6 konur.
Uthaldstími í veiðiferð er venju
lega 135—140 dagar og mest
veitt við strendur Kanada og
einnig Afríku.
Verzlunarfulltrúi Sovétríkj-
anna í Reykjavík tjáði frétta-
Utvarpsleikrit um
Bólu-Hjálmar
GUNNAR M. Magnús hefur sam
ið tíu þátta framhaldsleikrit fyr
ir útvarpið um skáldið og bónd-
ann Bólu-Hjálmar, og nefnist
leikritið „Herrans hjörð“. Átti
að flytja fyrsta þáttinn í gær-
kveldi, með Róbert Arnfinnsson
í hlutverki hins skagfirska
skáldbónda. Ævar Kvaran er
leikstjóri.
mönnum og útvegsmönnum, að
togara af þessari stærð gætu
Rússar smíðar fyrir íslendinga
fyrir ca. 32 milljónir ísl. króna.
— Ýmsum var boðið að fara
stutta veiðiferð með skipinu. □
Fremsta röð frá vinstri: Viking Kondrup, Nils Gíslason, Brynjar Skaftason, Gísli H. Sigurðsson,
Stefán Stefánsson og Óli Þ. Ragnarsson. — Önnur röð: Pétur Torfason, Sigurður Ingi Skarphéðins-
son, Guðmundur P. Jóhannesson, Ólafur Ásgeirsson, Hallgrímur Indriðason og Ólafur Ólafsson. —
Aftast: Halldór Pétursson, Einar Haraldsson, Bjarni Axelsson ur Kópavogi, Kristján Jóhannesson,
Viðar Aðalsteinsson, Tryggvi Árnason, Gumiar Helgason, Páll A. Páisson og Þorsteinn Péturson.
Tuffugu skáfum frá Ákureyri og einum
frá Kópavogi afhenf „forsefamerki"
í Bessasfaðakirkju
Mesta viðorkemiing, sem dróttskáti «etur fensið
Tryggvi Þorsteinsson hefur hlot
ið tvö æðstu heiðursmerki, sem
veitt eru fyrir skátastörf.
FORSETI ÍSLANDS, herra Ás-
geir Ásgeirsson, verndari ís-
lenzkra skáta afhenti í fyrsta
sinn „Forsetamerkið" í Bessa-
staðakirkju 24. apríl sl. Þetta
er mesta viðurkenning sem
dróttskáti getur hlotið fyrir
störf sín.
Merkið hlutu 20 skátar frá Ak
Islenzkf lilraunasjónvarp á næsfa vefri?
Fyrsti starfsliópurinn, 30 manns, bráðlega ráð-
inn. - 40% af sjónvarpsefninu verður innlent
SÚ hörmulega aðstaða að liggja
undir erlendu hermannasjón-
varpi hefur rekið á eftir undir-
búningi íslenzkt sjónvarps, sem
sýnist eina úrræðið. — Fyrir
nokkru var skrifstofustjóri þeirr
ar stofnunar ráðinn, Pétur Vil-
mundarson, og nú er fyrirhugað
að auglýsa eftir 30 manna starfs
liði við væntanlegt innlent sjón-
ÍSREK A EYJAFIRÐI
UH helgina rak nokkurt hafís-
hrafl inn Eyjafjörð og allt að
Oddeyri. Margir jakar sitja
fastir á Hörgárgrunni og Lauf-
ásgrunni, því þeir rista djúpt,
þótt fæstir rísi hátt úr sjó. □
varp, sem verður fyrst einskon-
ar tilraunasjónvarp og þarf að
þjálfa þetta starfslið við hin
nýju störf. En ríkistjórnin fól á
sínum tíma útvarpsráði að ann
ast allan undirbúning að ís-
lenzku sjónvarpi.
Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri skýrði mál þetta fyr-
ir hlustendum fyrir fáum dög-
um. Sagði hann, að verkfræðing
ar frá sjónvarpsstöðvum Norður
landa ynnu nú að lokarannsókn
um, og væri sjónvarpsmálið því
að komast á framkvæmdastig.
En samkomulag hefði náðst við
hin Norðurlöndin um starfsþjálf
un og framkvæmdir. Hann
skýrði einnig frá því, að fyrir
lægju mörg tilboð um hin nauð
synlegu tæki í sjónvarpsstöðina,
sem verið væri að athuga. Kom
ið hefði einnig til mála, að ná-
grannasjónvörpin lánuðu tæki
á meðan íslenzka sjónvarpið
væri á tilraunasiigi.
Útvarpsstjóri sagði,' að fyrst
yrði reist fimm hundruð watta
stöð í Reykjavík og myndi hún
ná yfir Suðvesturland en send-
ingar takmarkast af fjallahringn
um umhverfis höfuðborgina. Síð
an yrði viðstöðulaust haldið 'á-
fram og byggð fimm þús. watta
endurvarpsstöð á Skálafeli en
aI3s yrðu endurvarpsslöðvar yílt
og breitt um landið 60 tálsins.
Myndi dreiíikerfið út um land
kosta þrisvar sinnum meira en
fyrsti áfangínn. Þá sagði útvarps
stjóri, að rætt hefði verið um
1500 króna afnotagjald af sjón-
varpi, en sérstakur auglýsinga-
tími yrði einnig í sjónvarpinu.
ureyri og 1 frá Kópavogi.
Blaðið hafði íal af Tryggva
Þorsteinssyni, sem verið hefur
félagsforingi á Akureyri síðan
1940 og jafnframt er foringi
dróttskátasveitarinnar hér. Við
lögðum fyrir hann nokkrar
spurningar varðandi starfsemi
dróttskátanna.
Hvað er dróttskáti, og hver
eru dróítskátastörf?
Piltar á aldrinum 15 ára og eldri
sem lokið hafa a.m.k. II. fl. skáta
prófi geta orðið dróttskátar. —
Það er herðandi útilíf í anda
skátalaganna. Fjölbreytt og al-
hliða viðfangsefni fyrir hug og
hönd. Náin kynning og leiðbein
ingar um samfélagið. Efling vin-
áttu og samstarfs á breiðum
grundvelli. Þjálfun til lýðræðis .
og þjónustu.
Fyrír hvað er Forsetamerkið
veitt?
Sá dróttskáti fær „Forseta-
merkið“ sem hlotið hefir 40 stig
fyrir dróttskátastarf, náð hefur
I fl. skátapréfi og er „riddari“.
Eg’veit að þeir, sem lítið þekkja
til skátareglunnar átta sig tæp-
lega á þessari skilgreiningu, en
í stuttu blaðaviðtali get ég ekki
gert grein fyrir þessu eins og
þarf.
Fyrir hvað hljóta drótískátar
stig?
Viðfangsefnin geta skipt
hundruðum og þau velja piltarn
ir eftir eigin geðþótta en þó
þannig að tómstundastörf,
skemmti og fræðslustörf, útilíf
og þjónusta séu í sem jöfnustum
hlutföllum. Dómbær maður
verður að staðfesta að úrlausn
yerkefnisins sá samvizkusam-
lega gert, miðað við getu þess,
sem hana ynnir af hendi. Til
dæmis um viðfangsefnin má
nefna eftirfarandi:
TÓMSTUNDIR:
Dróttskátinn fær eitt stig fyrir
að taka þátt í námskeiði í ljós-
myndun og framköllun, eða
teikningu og litun eða vefnaði
o. þ. h. á vegum sveitarinnar,
félagsins. Bandalags íslenzkra
skáta eða annarra hliðstæðra
aðila.
SKEMMTI- OG
FRÆÐSLU STÖRF
Dróttskátinn skal taka þátt í
heimsókn sveitarinnar á eitt-
hvert safn. Eftir á skal drótt-
(Framhald á blaðsíðu 5).
TVÖ DAUÐASLYS
Á SUNNUDAGINN drukknaði
nær fjögurra ára stúlkubarn frá
Vaínshlíð í Bólstaðahlíðar-
hreppi í vatni skammt frá bæn-
um. Kafari frá Akureyri fann
hkið. Foreldrar bamsins eru
Haukur Ingvarsson og Valdís
Gissurardóttir.
Þá varð það slys í Lamba-
nesi í Fljóíum hhin fyrsta sum-
ardag, að Valgarður Kristjáns-
son, aldraður maður, varð und-
ir drátíarvél og beið bana. —
Hann var ókvæntur. □
Blönduósi 27. apríl. Jökulfellið,
sem á sínum tíma ætlaði með
1000 tonn af fóðurvörum til
hafna norðanlands, varð frá að
hverfa vegna íss. Vörunum var
skipað á land í Hvalfirði, en
þaðan eru þær fluttar norður á
bifreiðum.
Sýnist víða vá fyrir dyrum, ef
skipaleiðir opnast ekki, einnig
í sambandi við áburðinn, sem
enn vantar að nokkrum hluta.
Vegir eru ennþá sæmilegir og
hafa þolað hina miklu flutninga.
En hve lengi verður það?
Helvízkur ísinn lónar hér fyr-
ir framan. Húnaflói er ófær
skipum. Og enn hefur ekki tek-
izt að koma vörum þeim á
Strandir, sem lengi eru búnar
að bíða á Hvammstanga, og síð-
an á Skagaströnd. Á Ströndum
er að verða hið versta ástand,
og má segja, að neyðarástand
sé í Árneshreppi vegna sam-
gönguerfiðleikanna. Ó. S.