Dagur - 28.04.1965, Qupperneq 8
8
►
Á SUNNUDAGINN slógu hestamenn á Akureyri, köttinn úr tunnunni á Oddeyri, og er það gamall siður hér í bæ. Knapar
ríða skrautklæddir og sumir skreyta einnig hesta sína við þá athöfn. Þykir þetta hin bezta skemmtun. Hér á myndinni eru
þrír knapar. Sá fyrsti hefur kastað frá sér kylfunni eftir högglð, sá næsti reiðir til höggs og sá þriðji bíður. (Ljósmynd: E. D.)
EAFORKA FYKIR SLIKK
Grískur forsætisráðherra er nú
fyrir dómstólum, borinn þeim
sökum að hafa selt raforku til
aluminíumbræðslu of lágu
verði, frönskum auðhring. —
„Áætlanir“ um kostnað við
orkuframleiðsluna liöfðu ekki
staðizt, franski auðhringurinn
fær orkuna á umsömdu verði,
en gríska ríkið verður árlega
að borga mismuninn, sem eru
millj. dollara á ári.
MARGIR ERU BÍLARNIR
í skýrslu vegamálaskrifstofunn-
ar er frá því greint, að íslend-
ingar eigi nú 32.232 bíla og hafði
þá bílafjöklinn aukizt um 9,1%
frá fyrra ári. Bifhjól eru hér
meðfalin. Bifreiðir með R-núm-
eri eru 13.890, með G-númeri
eru 2.921, Þá kemur Akureyri
og Eyjafjörður með 2.074, og
Árnessýsla með 1.568. — Bif-
reiðategundir í Iandinu eru 188.
Elzta bifreiðin er frá 1923.
SKATTAR OG MEIRI
SKATTAR
Það fylgist að hjá núverandi
ríkisstjórn nýir skattar og
skattaaukar, og fagnaðarsöngur
um skattalækkanir!
Á þessu yfírstandandi Alþingi
ef búið að auka söluskattinn og
eignaskattinn, ennfremur Ieggja
á launaskatt. Líklegt er, að
þessir skattar nemi 4—500
millj. kr. samanlagt. Jafnframt
þessu á að skera verklegar
framkvæmdir ríkisins niður um
20%.
HVAÐ ÞOLA VEGIRNIR?
Á meðan skipin gátu ekki flutt
vörur til Norðurlandshafna,
jukust fluíningar með vörubíl-
um að miklum mun, enda veg-
ir snjólausir og enn víðast
frosnir, a. m. k. hér norðanlands.
En brátt kemur sá tími, að
vegir þiðna og blotna. Hinir yf-
irhlöðnu vörubílar hafa á þeim
árstíma er senn fer í hönd und-
anfarin ár valdið vegaskemmd
um fyrir hundruð þúsunda kr.
í raun og veru þola hvorki veg
ir eða ræsi bíla með 8—12 tonna
flutning, þótt þeir séu þurrir,
livað þá á viðkvæmasta tíman-
um. Að sjálfsögðu er það krafa
okkar, að vera ekki afskiftir um
vegaíé og vegaframkvæmdir, en
við verðum einnig að forðast
eyðileggingu veganna og banna
þungaflutning á þegar þörf kref-
SLÖNGUEITUR LÆKNAR
HJARTASJÚKDÓMA
Frá hefur verið sagt í fréttum,
að fyrir tilviljun hafi læknar
komizt að því að eitur slöngunn
ar hafi í sér fólginn lækninga-
mátt gegn æðakölkun og ýmsum
hjarfasjúkdómum. Hefur nýtt
lyf, framleitt úr þessu efni, gef-
ið hjartasjúklingum liinn undra
verðasta baía. Að sjálfsögðu
munu menn taka frétt þessari
með nokkurri varúð þar til víð-
tækari rannsóknir liggja fyrir.
En heimild að frétt þessari er
„Ude og Hjemme“.
LÍFSHÆTTA ÞJÓÐRÍKISINS
Sú er mesta lífshætta hins ís-
lenzka þjóðríkis, af fólkið safn
ast saman á einn stað og hættir
að byggja land sitt og nýta gæði
þess. Þetta sjá margir og gera
sér það Ijóst en fleiri þyrftu þeir
menn að vera. Aluminiumverk-
smiðja suður í Straumsvík er
ekki til þess fallin að forða þeirri
hættu. Þvert á móti eykur hún
þá lífsliættu, sem þjóðin er í nú
þegar vegna himia ískyggilegu
fólksfluíninga. Hennar vegna er
ekki ástæða til að gera undan-
tekningu frá heilbrigðum og
sjálfsögðum reglum, sem gilt
hafa og eiga að gilda hér á
landi.
HINN REYKVÍSKI
BÚRFELLSGALDUR
Hitt er svo annað mál, að þeir
sem áliuga hafa haft á virkjun
Dettifoss, hafa aldrei gengið út
frá því sem gefnu, að sú virkj-
un væri því aðeins möguleg, að
til kæmi alumíniumverksmiðja
í eigu útlendinga. Þeir vildu fá
alla orkunotkunarmöguleika
rannsakaða og að sú rannsókn
væri miðuð við virkjun Detti-
foss. Rétt er að skjóta því
hér inn, að sjálfur Dettifoss
glataði ekki sinni fegurð og
tign, þótt virkjuð sé Jökulsá
þar skammt frá og nefnt sé Detti
fossvirkjun. En því miður var
aldrei nein alúð lögð við rann
sókn af því tagi. Því olli hinn
reykvíski Búrfellsgaldur. Allir
vissu, að til Dettifossvirkjunar
þurfti útlent lánsfé. Og vel mátti
gera sér í hugarlund, að eins
væri liægt að fá lánsfé til að
koma upp framleiðslufyrirtækj
um einu eða fleiri á vegum ís-
lendinga. Talsverðir möguleikar
eru á notkun ódýrrar raforku til
húsaliitunar bæði í þéttbýli og
dreifbýli. En eini möguleikinn,
sem stjórnarvöldin liafa athug
að til hlýtar, er aluminíumfram
leiðsla. Þessvegna hefur hún
einkum verið rædd, þótt hún
hafi hann ókost, að hæpið sé að
koma henni á fót nema í eigu út
lendinga fyrst um sinn. Markað
urinn veldur þar mestu um.
Þannig er þróun þessa máls.
SENN hefst annatími skógræktarmanna.
göinlum trjám í Kjarnalandi.
Hér er skógarvörðurinn á Akureyri lijá 15 ára
(Ljósmynd: E. D.)
Davíðskvöld á Húsavik
Mývetningar sýndu þar Ævintýri á gönguför
SJÓR FÓR í VÉLAR
SÚSÖNNU REITH
Raufarhöfn 27. apríl. Af ein-
hverjum ástæðum fyllti sjór
vélarrúm Súsönnu Reith um
daginn, en fram að þeim tíma
hafði tekizt að varðveita aðal-
vélar skipsins. Súsanna liggur
hér í fjörunni í tveim pörtum,
og ráðgera eigendur, Björgun
h.f., að setja hana saman á
strandstað, því hún er nýlegt
skip og til mikils að vinna.
FÉLAG íslenzkra bifreiðaeig-
enda hefur haft forgöngu um
stofnun nýs tryggingafélags, er
Hagtrygging hf. heitir. Stofnend
ur eru 500 og framlagt hlutafé
íslirafl í Skoruvík
í GÆR var íshrafl í Skoruvík
á Langanesi og í raun og veru
er nær engin breyting á ísnum.
ísinn kemur einn daginn og fer
næsta dag. Nú er þar frostúði
og þokurek, sagði húsfreyjan í
Skoruvík, blaðinu í gær. □
Húsavík 27. apríl. Hinn 21. þ.
m. efndi Rotary-klúbbur Húsa-
víkur til Davíðskvölds í sam-
komuhúsinu á Húsavík. Kári
Arnórsson skólastjóri setti sam-
komuna með stuttu ávarpi, en
erindi um Davíð Stefánsson
flutti Sigurður Guðmundsson
prófastur á Grenjaðarstað. Sig-
5 millj. króna. Aðsetur hins nýja
félags verður að Bolholti 4
Reykjavík.
Hagtrygging hf. byrjar á bif-
reiðatrvggingu, fyrst cg fremst
fyrir félag FÍB en einnig aðra.
Iðgjöldum verður skipt í
marga flokka og lenda menn
með skamma ökureynzlu í hærri
flokkunum. Bónuskerfi á ekki
að taka upp eins og hér hefur
tíðkast, en þessi flokkaskipting
er byggð á erlendri reynzlu.
Gerður hefur verið samning-
ur við erlenda aðila um endur-
tryggingu.
urjón Jóhannesson skólastjóri,
Njáll Bjarnason kennari og
Sigurður Hallmarsson kennari
lásu upp úr verkum Davíðs, og
Guðmundur Gunnlaugson söng
nokkur lög við Ijóð skáldsins,
með aðstoð Reynis Jónassonar.
Ágóðinn af samkomu þessari
rennur til Davíðshúss á Akur-
eyri.
Ungmennafélagið Mývetning-
ur, Mývatnssveit, sýndi sjónleik
inn Ævintýri á gönguför alls 5
sinnum á Húsavík um síðustu
helgi, við góða aosókn og und-
irtektir. Þ. J.
AFLA- OG ATVINNU-
LEYSI í ÓLAFSFIRÐI
Ólafsfirði 27. apríl. Bátarnir
komust út í morgun, en fjörður-
inn má þó heita fullur af ís, og
heíur lokast öðru hverju.
Hér er sama aflaleysið og því
er einnig lítið um atvinnu. Við
eigum allt undir þorskinum, og
hann hefur brugðizt. B. S.
Tryggingafélag bilreiðaeigenda
SMÁTT OG STÓRT