Dagur - 12.05.1965, Page 8
8
SMÁTT OG STÓRT
FIMM nýir sveinar í múraraiðn bættust í hóp iðnaðannanna á Akureyri um helgina. Frétta-
maður skoðaði sveinsstykki þeirra í Amtsbókasafnshúsinu nýja á mánudaginn, myndarlega
hluti og vel gerða. Síðan 1950 hafa 30 múrarar útskrifast á Akureyri, en á sama tíma hafa 17
múrarar flutt burtu og starfa flestir þeirra í Reykjavík. Hið verklega próf er miðað við það ■
að nemandinn geti sýnt hæfni sína á sem f'estum sviðum múrverks, ásamt munnlegu prófi
og teikningum. I heild má prófið teljast erfitt, segja prófdómendur og leysa það ekki vel af
hendi aðrir en þeir, sem eru orðnir góðir fagmenn. — í prófnefnd þessa verklega prófs eiga
sæti: Hreinn Óskarsson formaður, Pétur Gunnlaugsson, sem hefur átt sæti í prófnefnd í 15
ár og Jakob R. Bjarnason. — Myndin er tekin við eitt sveinsstykkið, sem er handriðsstólpi
og flísalagður veggur. Sveinamir eru (frá vinsíri): Guðni Jónsson, Þórarinn Hrólfsson, Júlíus
Araórsson, Snorri Árnason og Jón Friðriksson. (Ljósmynd: E. D.)
EKKI GÁTU ALLIR SETIÐ
f Skólaslitaræðu sinni sagði
Jón Sigurgeirsson skólastjóri
Iðnskólans á Akureyri m. a.:
„f þriðja bekk stunduðu nám
alls 78. Ellefu þeirra lásu bók-
legar greinar utanskóla, að eig-
in ósk 6, en 5 beðnir að gera
það sökum rúmleysis. Samt var
setið svö þröngt, að í annarri
stofunni þurfti kennarinn að
standa upp fyrir 34. nemandan-
um, þegar heilsufar var svo gott
að allir nemendur mættu.“
ÞÁ STEIG HER Á LAND
Fyrir rúmum 25 árum steig
brezkur her á land í Reykjavík,
og hemámu landið, þrátt fyrir
mótmæli Hermanns Jónassonar
forsætisráðherra og stjómar
hans. Þá sló óhug á þjóðina alla,
því hún sá og fann að ísland lá
ekki uían við heiminn og gat
orðið orrustuvöllur hinnar
mestu styrjaldar er þá geysaði.
OG HERINN ER HÉR ENN
Og Iiílu síðar settust liðssveit-
ir niður á öðrum stöðum, seinna
hermenn frá Bandaríkjunum,
sem sitja hér ennþá á einu
homi landsins og er á þeim
ekkert fararsnið. Síðan landið
var hernumið fyrir aldarfjórð-
ungi, hefur margt breytt um
svip í þjóðlífinu. Verkmenn-
Kyimingar- og fræðslufundur F. í. í gær
í GÆR bauð Flugfélag íslands
fréttamönnum tU kynningar- og
íræðslufundar að Hótel KEA,
samkvæmt þeirri nýskipan fé-
lagsmála, sem Fí tók upp í fyrra
og þá var frá sagt í fréttum,
ásamt fyrsta slíkum fundi höldn
um á Akureyri.
Kristinn Jónsson, sem er um-
dæmisstjóri í Norðlendinga-
fjórðungi, eða frá Hvammstanga
að Vopnafirði, bauð gesti vel-
komna en Einar Helgason sagði
frá nýjungum í starfi og óskaði
fyrirspurna og ábendinga í
starfi Flugfélagsins. Hann gat
þess m. a. að nú væri ákveðið
að skipuleggja á ýmsum stöðum
landsins áætlunarferðir bifreiða
í sambandi við flugið til hinna
ýmsu staða, til þess að auðvelda
mönnum ferðalögin. Vopnfirð-
ingum á að auðvelda leið með
áætlunarferðum bifreiða til
Þórshafnar, Raufarhöfn og
Kópasker verða í öðru númeri,
Dalvík og Akureyri, síðar Ól-
afsfjörður, þegar vegasamband
kemst á. Á sama hátt verða
skipulagðar ferðir til og frá
Austfjörðum í sambandi við
flug til Egilsstaða o. s. frv.
Á hinum ýmsu leiðum til
flugvallanna- eiga farþegarnir
að koma beint á flugvöllinn. Þá
verða fjölskyldufargjöldin látin
gilda í sumar. Felst í því mjög
mikill afsláttur.
Þá sagðí ræðumaður frá, að
á hverju athafnasvæði Fí yrði
væntanlega komið á laggirnar
ráðgefandi nefnd, sem höfð yrði
með í ráðum um samningu flug
áætlana til viðkomandi staða og
kæmi hún óskum og ábending-
um á framfæri.
Um vöruflutninga til Reykja-
víkur hefur verið tekinn upp
sá háttur að sendandi getur
greitt fyrir flutninginn heim-
sendann til viðtakenda. Kemur
það sér vel þegar um áríðandi
flutning er að ræða.
Þá gat ræðumaður þess, að
nú gætu Akureyringar í fyrsta
sinn flogið samdægurs til Norð-
urlandanna.
Trúnaðarmenn Flugfélagsins
á Norðurlandi eru nú 11 talsins
og hafa þessir bætzt í hópinn
frá því í fyrra: Gunnai' Jónsson
Dalvík, Þorsteinn Hjálmarsson
Hofsósi, Gunnar Sigvaldason
Ólafsfirði, Þorsteinn Sigurjóns-
son Blönduósi og Friðgeir Stein
grímsson Raufarhöfn.
Á öðrum stað í blaðinu segir
frá væntanlegri komu hinnar
nýju flugvélar Fí til Akureyr-
ar á sunnudaginn kemur. □
Feikna grásleppuveiði fyrir austan
Forsjálni kaupfél.stj. á Þórshöfn
Gunnarsstöðum, Þistilfirði 11.
maí. — Hér stunda menn grá-
sleppuveiði með sæmilegum ár
angri og eitthvað hefur aflast á
íæri, enkum út við ísinn. Hér
er annars allur ís farinn frá
landi, en austanáttin hefur þó
ísfyllt nokkrar víkur svo sem
Viðarvík. Nú er snjólaust að
heita má og sauðburður fer að
hefjast.
Við erum argir út í Skipaút-
gerð ríkissins vegna flutning-
anna. Við eigum vörur hér og
hvar á Austfjörðum og hending
virðist ráða hvenær við fáum
þær. Árvakur flutti vörur til
„verndaranna á Heiðarfjalli",
enda verða þeir að sitja fyrir.
Hinsvegar eru útsæðiskartöfl
urnar okkar suður á Norðfirði
og eru ekki væntanlegar á næst
unni.
Ein geta ber þess sem vel er
gert. Kaupfélagsstjórinn okkar,
Gísli Pétursson gekk í það með
dugnaði og fyrirhyggju að safna
upplýsingum um neysluþörf
ýmiskonar þungavara og fá þær
vörur fluttar til Þórshafnar áð-
,ur en ísar lokuðu leiðum. Að
því höfum við búið til þessa.
Hefur hvorki skort kjarnfóður
eða olíur. Q
Raufarhöfn 11. maí. Við erum
ennþá alveg innilokaðir, því hér
er samfeld íshella alveg upp
að höfninni og svo langt út sem
sézt. Þó grillir í auðan sjó lengst
út. Vír er strengdur fyrir hafn
armynnið. Hér liggur Bakkafoss
fastur. Hann kom hingað með
þurrkara og ýmislegt fleira í
síldarverksmiðuna 4. maí. Tvö
lýsisskip komu hingað fyrstu
dagana í maí og tóku samtals
1500 tonn af lýsi. Öðru skipinu
gekk mjög treglega að komast
út en hinu betur. Það voru
BILVELTA
FÓLKSBIFREIÐ valt út af veg
inum skammt norðan við Akur
eyri s.l. laugardagskvöld. Hún
eyðilagðist en farþegar sluppu
ómeiddir að heita mátti.
Um helgina var einn ökumað
ur tekinn fastur fyrir meinta
ölvun við akstur. ,Q
fyrstu skipin, sem hingað komu
síðan 20. marz.
í kjölfar áðurnefndra olíu-
skipa fór 18 tonna mótorbátur-
inn Þorsteinn héðan út með grá
sleppunet sín og hélt til Kópa-
skers. Þar hefur hann rifið upp
grásleppuna. Litlu síðar fóru aðr
ir með smáskekktur héðan á bíl
einnig til Kópaskers og mok-
veiða. Menn hafa fengið allt að
100 grásleppur í net. Sjá allir
hvers virði slík veiði er með því
verði, sem nú er á grásleppu-
hroggnunum. Fyrir nokkru síð
an, þegar ísinn lónaði ögn frá
landi hérna, var reynt við grá
sleppuna og var veiði ágæt, enn
fremur fékkst mikill þorskur í
net.
Sjómenn á Þórshöfn hafa feng
ið ágætan afla á handfæri út við
ísröndina. Okkur þykir hart að
vera svona innilokaðir og geta
ekki stundað veiðar, vitandi um
mikinn þorsk og grásleppu
hérna rétt fyrir utan. H.H.
ingu þokað á leið, liagsæld
manna aukizt og ruddir vegir
nýrra tækifæra. Sú framsókn
fylgdi í kjölfar lýðveldisstofn-
unarinnar 1944 en ber þó kebn
af nánum kyiinum við herveldi,
hemámi og erlendum áhrifum.
íslendingar stóðust ekki að
fullu það próf, þegar emangrun-
armúrinn féll og hafa ekki,
þrátt fyrir framfarir, náð sér
að fullu og verða e. t. v. aldrei
samir menn.
KOMMÚNISTAR OG
STÓRIÐJUNEFND
Iðnaðarmálaráðherra skýrði frá
því á Alþingi fyrir skömniu, að
liann liefði loks boðið kommum
að eiga tvo fultrúa í þing-
mannanefnd þeirri, se m íveíur
var sett á laggirnar til athugun-
ar á stóriðju- og stórvirkjunar-
málum. Þeir þágu boðið. Um
þetta urðu í vetur harðar deil-
ur og var því þá haldið fram af
Framsóknarmönnum, að ástæðu
laust væri að ganga framhjá
þingflokki í þessu cfnL Nefnd
þessi er ekki st’órnskipuð, held-
ur tilnefnd af þingflokkunum
og valdalaus.
UNDARLEG AUGLÝSING
í útvarpinu var í fyrradag aug
lýst, að aðeins þrjár sýningar á
operettunni Nitouche, sem LA
sýnir um þessar mundir, væra
eftir. Sýningar eru orðnar fast
að 20 talsins, sem er alveg ó-
venjulegt og jafnan fullt hús.
En hvers vegna að hætta sýn-
ingum meðan aðsókn er jafn
ágæt? Eru Ieikarar að yfirgefa
bæinn eða veikir? Nei, tveir að
alleikaramir sem blaðið talaði
við í gær höfðu ekki heyrt slíks
getið, eða að til stæði að hætta
sýningum, enda væri slíkt furðu
legt meðan fjöldi fólks á eftir að
komast að til að sjá operetíuna.
FORÐAGÆZLUMENN
Því miður er það staðreynd, að
nokkrir bændur í héraðinu
komust í heyþrot fyrir sumar-
mál, þeirra á meðal stórbændur
með marga tugi nautgripa. En
aðrir eru aflögufærir. í þessu
sambandi er vert að íliuga,
hvort forðagæzlumenn séu ekki
starfi sínu vaxnir, að áætla
fóðurþörfina, eða hvort forða-
gæzla hafi engin verið í sum-
um hreppum. q
Mikið skemmtanalíf
Ólafsfirði 11. maí. — Aflinn
glæðist ekkert ennþá en grá-
sleppuveiðin er sæniileg. Heim
eru komnir bátarnir, sem voru
á Suðurlandsvertíðinni.
Mikið er um skemmtanalíf
þessa dagana. Á fimmtudaginn
kom hingað Karlakór Reykja-
víkur og söng við ágætar undir
tektir. Frá Akureyri kom Leik-
félag Akureyrar með operett-
una Nitouche og skemmti mönn
um ágætlega. Og svo hélt Fram
sóknarfélagið árshátíð sína og
var þar fjölmenn og góð skemmt
un. Þá kepptu hér Akureyring
ar við heimamenn á skíðmn,
bæði í svigi, stórsvigi og stökki.
B.S.