Dagur - 15.05.1965, Blaðsíða 2
2
- SEÐLABANKINN HEIMTAR SPARIFÉÐ
KarSakór Ák. í góðri þ|á
KARLAKÓR AKUREYRAR,
undir stjórn Áskels Jónssonar,
efndi til tveggja samsöngva í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri á
þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld. Aðsókn var mjög góð og
þó voru bæjarbúar búnir að
hlýða á söng Karlakórs Reykja-
víkur fáum dögum fyrr. Sýnir
þetta enn hinn mikla áhuga
fólks á karlakórssöng.
Karlakór Akureyrar kom að
þessu sinni með nokkra ný-
breytni á skemmtun sinni, því
Lúðrasveit Akureyrar kom
fyrst inn á sviðið í hinum fögru
einkennisklæðum sínum og blés
í sönglúðra óperuforleik eftir
Boieldin um kalífinn í Bagdad,
ennfremur ,Lífvörð konungsins1
eftir Raymond. Það mun þykja
allhressandi að hlusta á lúðra-
sveit innanhúss, en þá á ég mér '
óskastund úti á víðum völlum,
þar sem þak og veggir eru víðs
fjarri.
Næsta viðfangsefni var hið
magnþrungna lag Björgvins
Guðmundssonar, Á Finnafjalls-
ins auðn. Það lag söng kórinn
með aðstoð Lúðrasveitarinnar.
Síðan rak hvert lagið annað,
sum erlend en fleiri innlend og
eftir marga höfunda og var
söngnum ágætlega fagnað af
áheyrendum. Undirleik á píanó
annaðist Dýrleif Bjamadóttir,
Einsöngvarar voru Eiríkur Stef-
ánsson, Hreiðar Pálmason og
Jóhann Konráðsson. Stjórnandi
kórsins, eins og áður segir, Ás-
kell Jónsson, stjórnaði einnig
Lúðrasveitinni í forföllum E.
Dunipace.
Margir eldri kórfélagar sungu
með, síðasta hluta efnisskrár-
innar og efldist kórinn mjög við
það.
Karlakór Akureyrar er í góðri
þjálfun um þessar mundir, svo
sem söngur hans bar gleggst
vitni um. Hann er blæfagur en
e. t. v. ekki eins þróttmikill og
ætla mætti af jafn stórum hópi
norðlenzkra söngmanna. Um
efnisval má endalaust deila, en
að þessu sinni var hvorki um
smekkleysur að ræða eða þau
viðfangsefni, sem fjarri eru
getu kórsins. Að samanlögðu
var söngurinn góður og næst
slíkur árangur ekki nema með
mikilli þjálfun og þolgæði und-
ir stjórn hæfra manna.
Bæjarbúar kunna vel að
meta hina góðkunnu kóra sína,
Karlakór Akureyrar og Geysi.
Þeir eru hluti af menningarlífi
bæjarins, sem sízt er of fjöl-
skrúðugt. Hafi kórinn þökk fyr-
ir sönginn. E. D.
Sýslufimdur S.-Þing.
(Framhald af blaðsíðu 8).
" Gerðar voru samþykktir um
sameign sýslunnar og Húsavík-
urkaupstaðar að Héraðsskjala-
safni og náttúrugripasafni.
Framhaldið verður útgáfu Ár
bókar héfáðsins og ákveðið hef-
ir verið að sýslan gefi út afmæl-
isrit um Jónas Jónsson frá
Hriflu í tilefni áttræðisafmælis
hans. Verður það gefið út í um
það bil 500 tölusettum eintökum
og aðeins selt til áskrifenda.
Verða áskriftarlistar hjá sýslu-
nefndarmönnum í öllum hrepp-
um sýslunnar, á sýsluskrifstof-
unni og hjá væntanlegum um-
boðsmönnúm á Akureyri og í
Reykjavík.
Ritstjórn annast magister Jón
as Kristjánsson frá Fremstafelli,
Stigahlíð 2, Reykjavík.
Efni ritsins verður:
Fræðilégar ritgerðir um Jón-
as Jónsson, úrval úr eldri rit-
gerðum hans og skrá um rit
hans. □
ir Eðnnemar
Bifvélavirkjar:
Ari J. Baldurson, Eymundur
Kristjánsson, Jón Höskuldsson,
Magni Hjálmarsson, Olafur A.
Olgeirsson, Arnljótur Einars-
son.
Bílasmiður
Bergur Erlingsson.
Hárgreiðslumeyjar:
Helga Jóhannsdóttir, Kristín
Jóhannsdóttir.
Húsasmiðir.
Birgir Aspar, Guðmundur S.
Jóhannsson, Helgi Jónsson, Jón
Matthíasson, Magnús Tryggva-
son, Sigurjón Magnússon, Stef-
án Skagfjörð Óskarsson, Valur
Kristinsson, Örn Herbertsson.
Húsgagnasmiðir:
Hannes Arason, Jón Guðlaugs-
son, Lúðvík Magnússon, Ólaf-
ur H. Arnarson, Rögnvaldur B.
Ólafsson, Tryggvi Hjaltason.
Lj ósmyndasmiðu r
Páll A. Pálsson.
Múrarar:
Anton Sölvason, Sétur Sigurðs-
son, Júlíus Arnórsson, Viking
kondrup.
Prentarar:
Rafn Árnason, Reynir Hjartar-
son.
Rafvirkjar og rafvélavirkjar:
Adólf Ásgrímsson, Guðmundur
Páll Jóhannesson, Stefán F.
Valdimarsson, Steingrímur
Björnsson.
Vélvirkjar:
Árni G. Tómasson, Gunnar
Baldvinsson, Hákon Hákonar-
son.
Ketil- og plötusmiður
Þórður Jónasson.
Skipasmiðir:
Ingi V. Jónasson, Marínó Zoph-
oniasson, Þorsteinn Pótursson.
Sútari
Baldvin Þóroddsson.
(Framhald af blaðsíðu 8).
mótsögn við framkvæmd lag-
anna.
Fjármagnsskortur út á lands-
byggðinni var fullmikill fyrir,
þó að þetta bættist ekki við.
Réttlæti væri það, að heima-
menn fengju að ráða yfir sínu
fjármagni á sama tíma og kaup
héðnar og æfintýramenn leika
sér að peningum þjóðarinnar og
taka jafnvel lán erlendis með
ábyrgð íslenzkra banka, innflytj
endur byggja stórhýsi yfir starf
semi sína svo nemur hundruð-
um milljóna og skattsvikarar
vaða uppi. Nú er búið að binda
í Seðlabankanum fyrir spari-
sjóðum og bönkum frá 9—25%
af innstæðum þeirra.
í Kaldrananeshreppi á Strönd
um er sparisjóðurinn búinn að
afhenda 11.5% innstæðna sinna
suður.
Sumum finnst, að betur hefði
þeir peningar verið notaðír til
kaupa á vörum til að fyrra vand
ræðum heimafyrir. Á öðrum
stað þurfti lítið sveitarfélag að
kaupa alldýrt tæki til að tryggja
flutninga á mjólk og með því
afkomu bændanna í viðkomandi
sveit. Leita þarf eftir láni til
kaupanna er nemur svipaðri
upphæð og sparisjóður sveitar-
innar á í Seðlabankanum og
verður ekki hreyft.
Á apríllok var bundið fé í
Seðlabankanum 1190 milljónir
þar af frá innlánsdeildum kaup-
Minningarsj. Ragn-
Iieiðar Hjaltadóttur
STOFNAÐUR hefur verið á veg
um Sjálfsbjargar á Akureyri
sjóður til minningar um frú
Ragnheiði heitina Hjaltadóttur,
og hefur áður verið skýrt frá
honum í Akureyrarblöðunum.
En tilgangur sjóðsins er að
styrkja fólk til náms í föndur-
vinnu og efla þá starfsemi inn-
an félagsins.
Á sunnudaginn kemur, 16.
maí, verður kaffisala í Bjargi,
húsi Sj álfsbjargar, til fjáröflun
ar fyrir sjóðinn. Á sama tíma
verða seldir þar á bazar ýmsir
munir, er Sjálfsbjargarfélagar
hafa unnið á föndurkvöldum
félagsins.
Þegar hafa allmargar fjárgjaf
ir borizt sjóði þessum, og hefur
stjórn hans beðið blaðið að koma
á framfæri alúðarþökkum til
allra, er þar eiga hlut að.
En þeim, sem styrkja vilja
sjóðinn nú, gefst þess kostur
með því að koma og drekka síð
degiskaffið í Bjargi á sunnu-
daginn. Einnig verður þar tek-
ið á móti frjálsum framlögum
til sjóðsins. ,
félaganna 53,6 millj. og mun
hækka verulega á næstunni þar
sem sum kaupfélögin hafa ekki
enn lokið uppgjöri fyrir sl. ár.
Hér í kjördæminu eru 7 kaup
félög. Fryst fé þeirra er:
millj.
Kaupfél. Eyfirðinga 7,000
Kaupfél. Ólafsfj. 0.083
Kaupfél. Svalbarðseyrar 0,340
Kaupfél. Þingeyinga 2,700
Kaupfél. N.-Þing. 2,380
Kaupfél. Raufarhafnar 0,293
Kaupfél. Langnesinga 0,734
Samtals kr. 13.190
Kaupfélögin skortir stöðugt
rekstursfé. Þau eru þjónustu-
fyrirtæki almennings. Þeim er
nauðsynlegt "að binda háar fjár
hæðir í birgðum rekstrarvara
CHEVROLET 1952
VÖRUBÍLL til sölu
í góðu lagi.
Rafn Helgason,
Stokkalilöðum.
TIL SÖLU:
RENAULT, árg. 1946.
Ógangfær. Odýr.
Uppl. í síma 1-23-66
eftir kl. 7 e. h.
TIL SÖLU:
Fordvörubíll, árg. 1931.
Uppl. í Hafnarstræti 25,
sínii 1-13-13.
Sá hlýtur viðskiptin,
sem athygli vekur
á þeim.
ATVINNAI
Plötusmiði og verkamenn vantar oss nú þegar til
vinnu úti á landi.
VÉLSMIÐJAN ODDI H.F. - Sími 1-27-50.
VÉLSMIÐJAN ATLI H.F. - Sími 1 -26-80.
Málari
Gunnar Jónsson.
Pípulagningamaður
Gissur Jónasson.
landbúnaðar, sjávarútvegs og
iðnaðar, auk neyzluvöru.
Félagsmenn vildu gera kaup-
félögunum mögulegt að veita
umrædda þjónustu, með því að
leggja fé í innlánsdeildir. Af
þessum sjóðum er nú stöðugt
klipið og ekki smálega.
Konungar heimtuðu skatt af
landslýðnum í gamla daga. Fyr
ir hann byggðu þeir hallir og
lifðu óhófslífi.
Við eigum að vísu bundna féð
í Seðlabankanum, en höfum
ekki vald á því. Hvenær fáum
við það? Til hvers er það notað?
í kjördæminu eru 5 bankaúti
bú 15-20 sparisjóðir og sjö kaup
félög. Þessar stofnanir eiga orðið
milljónatugi bundna fyrir sunn
an.
Mikið væri hægt að gera fólk
inu til hagsbóta, fyrir þetta fé,
ef laust væri og því skynsam-
lega varið.
Valtýr Kristjánsson
'fömiimWí
GÆZLUKONUR
verða ráðnar við leikvelli
bæjarins frá 1. júní til 1.
september. — Umsóknir
sendist undirrituðum lyr-
ir 20. maí n.k.
Fyrir hönd Barnaverndar-
nefndar.
Páll Gunnarsson.
......N
(Gardisetje)
EINU GLUGGATJÖLDIN
SEM ERU
MEÐ TILBÚNUM FALDI,
SEM ER MYNDAÐUR AF
INNOFNUM BLÝÞRÆÐI
v_______ y
Þessa kosti færa Gardisette
gluggatjöldin yður: innofinn
blýþráð - tilbúinn fald - auð-
veld að sauma — auðveld að
þvo — halda laginu í þvotti —
rakna ekki — krypplast ekki —
þorna fljótt — óþarft að strauja
þau — þola vel birtu og sól -
eru sem ný árum saman.
GARDISETTE
þonn og þykk,
nýkomin.
VEFNAÐARVÖRUDEILD