Dagur - 29.05.1965, Síða 1
axminsfer
gólfteppi
annað ekki
M
EINIRH.F
HATNARSTKÆTI 81 . SÍMI I 15 3S
XLVIIL árg. — Akureyri, laugardaginn 29. maí 1965 — 42. tbl.
Hið opinbera kippir að sér hendi
Laugum 23. maí. Áður hefur
þess verið getið í fréttum héð-
an, að fyrirhuguð væri bygging
heimavistarhúss við Lauga-
skóla. Fjárveiting er komin á
fjárlög 1965, en nú eru allar
horfur á, að framkvæmd þessi
fari undir niðurskurðarhníf rík-
isstjórnarinnar og fjárveiting-
unni verði frestað. Sömu örlög
virtust bíða bygingar heima-
r
Næst keppa IBA og
Valur í Reykjavík
NÆSTI knatíspymukappleik
ur í fyrstudeildarkeppninni,
sem Akureyringar keppa í,
fer fram í Reykjavík milli
ÍBA og Vals á morgun. Verð-
ur fróðlegt að fylgjast með
þeim leik. Lið Vals er talið
fremur gott um þessar mund
ir, varð t.d. í öðru sæíi í
Reykjavíkurmótinu sem er
nýlega afstaðið.
I gærkveldi átti úrvalslið
valið af landsliðsnefnd, að
leika móti enska 2. deildar
liðinu Coventry City og voru
þeir Jón Stefánsson og Guðni
Jónsson frá Akureyri valdir
í það.
Þjóðmálaráðstefna
S.U.F. á Húsavík
SAMBAND ungra Framsóknar
manna gekkst fyrir þjóðmálaráð
stefnu á Húsavík dagana 27. og
28. þ. m.
Ráðstefnan hófst kl. 20,30 á
miðvikudagskvöld, með setning
arræðu Aðalsteins Karlssonar
formanns FUF á Húsavík, en
hann var jafnframt umræðustj.
ráðstefnunnar. Ritari var Hlöð-
ver Hlöðversson á Björgum.
Þrír málaflokkar voru teknir
til umræðu á ráðstefnunni, og
voru frummælendur sem hér
segir:
Efnahagsmál: Hjörtur E. Þór-
arinsson bóndi á Tjörn.
Landbúnaðarmál: Dr. Halldór
Pálsson búnaðarmálastjóri.
Byggðajafnvægi: Kristján Ing
ólfsson skólastjóri, Eskifirði.
Þátttakendur á ráðstefnunni
voru milli 50 og 60 víða að úr
kjördæminu og voru umræður
í sen fjörmiklar og gagnlegar.
Ráðstefnan stóð fram undir
kl. 6 á uppstigningardag og var
það mál manna að hún hefði
tekizt hið bezta.
Áætlað er, að SUF gangist
fyrir slíkum ráðstefnum víða
um land í sumar og haust.
Eyjólfur Eysteinsson erind-
reki SUF sér um undirbúning
ráðstefnanna í samvinnu við
heimamenn.
vistar- og íbúðarhúss við barna-
skóla hér í sveit, en því fékkst
breytt.
Ekki skal hér dregin í efa
nauðsyn þeirrar byggingar, en
þó virðist sparnaður þessi koma
allhart niður. Barnaskólann
sækja börn úr einum hreppi, en
Laugaskóla unglingar úr heilli
sýslu og meira til. Auk þess er
hluti af nemendaíbúðum hans
gjörsamlega óviðunandi um
rými, hollustuhætti og öryggi
gegn eldsvoða og skyldi hin
nýja bygging einmitt leysa hús-
næði þetta af hólmi.
Undanfarna daga hefur verið
hér bjart veður og sólríkt en
kalt, frost margar nætur í röð.
Gróðri hefur því ekkert farið
fram. Marga daga hefur reykj-
armekki af sinueldum lagt til
(Framhald á bls. 7).
T æknibúskapur og rómantík eiga samleið
segir dr. Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri
í samtali við blaðið í gær
ÞÓTT vorkuldar séu víða um
land og gróður skammt á veg
kominn, er vorið komið og sum
ar framundan. Á þessum árs-
tíma eru annir mestar í sveitum
landsins, enda stendur sauðburð
ur hvarvetna yfir, bera þarf á
tún taka flög til fullrar vinnslu
HALLDÓR PÁLSSON
búnaðarmálastjóri
og sáningar o. s. frv. Bóndinn
og skyldulið hans hefur langan
vinnudag um þessar mundir, en
hann vinnúr með gróandanum.
Flestir dagar, þótt lengi sé unn
ið, of stuttir. Bæjarmönnum,
einkum þeim, sem í sveit dvöldu
fyrrum, verður tíðhugsað til átt-
haganna og velja bömum sínum
þar sumardvöl ef kostur er á.
í gær rakst ég af tilviljun á
búnaðarmálastjórann, dr. Hall-
dór Pálsson og félst hann á eins
konar hraðsamtal, sem hér fer
á.eftir og fjallar um suma þætti
landbúnaðarins.
Hvað viltu segja okkur um
sauðburðinn á þessu vcri, bún
aðarmálastjóri?
Sauðburðartíð hefur að vissu
leyti verið góð, hægviðri löng-
um og þurrt en fremur kalt norð
anlands og austan og gróður
með minna móti. Þetta er baga
legt fyrir þá, sem láta bera úti
á víðavangi og einnig fyrir þá,
sem ekki hafa nægilegt fóður.
Hjá þeim, sem vanir eru að láta
bera við hús og eiga nóg fóður
og kunna að fóðra lambfé, leik-
ur allt í lyndi þótt ekki séu
meiri hlýindi en raun ber vitni.
Þú hefur eitthvað ferðast um
Eyjafjarðarhérað?
Já, og það er ánægjulegt, að
sjá krökkt af lambfé á túnum
og börn og fullorðna gefa ánum
sílgræna töðu eða kraftfóður í
jötur úti, eins og víða sést þessa
dagana. Lömbin leika sér _og.
blása sundur, þar sem ærnar
eru nógu vel fóðraðar. Það er
ekki nóg að fóðra vel yfir vet-
urinn, ef ekki er fóðrað nógu
vel núna. Sérstaklega á þetta
við um tvílemburnar. Einlemb
um má sleppa á minna gróið
land og með þær er ekki -eins
vandfarið. Hinsvegar sé ég á
sumum bæjum þess glögg merki
að það vantar grindur í fjárhús
in. Ullin verður klepruð þegar
ærnar liggja á blautu taðinu.
Ánum líður verr og ullin verður
bæði minni og verri en þar sem
grindur eru.
Grindumar munu vera nokk-
uð dýrar?
Já, þær eru það, en eru nauð
synlegar þar sem lengi er fóðr
að á húsi, og sérstakl'ega þar
sem ær eru látnar bera inni. Eg
hefi rætt kostnaðarhliðina við
marga bændur. Svarið er glöggt:
Allir, sem einu sinni hafa kom-
ið upp hjó sér grindum í fjár-
húsin, eru ánægðir með þær og
hverfa ekki frá því aftur. Það
ætti að vera nægilegt svar um,
að þetta svarar kostnaði. Sama
máli gegnir um þá stefnu að
spara fóður við sauðfé. Takizt
mönnum að auka afurðir með
betri fóðrun, snúa þeir ekki til
fóðursparnaðarstefnunnar á ný.
Samkvæmt fréftum liefur fóð
ur víða verið í minna lagi?
Síðasta sumar var talið mikið
heyskaparár. Og í haust munu
bændur hafa átt meiri hey en
nokkru sinni fyrr. Eftir fremur
Iangan vetur er víða farið að
sneiðast um hey þótt óvíða sé
um heyskort að ræða á stórum
svæðum. Einn og einn bóndi
átti ekki nóg. Það þarf ekki að
vera neitt athugavert við það,
þótt bændur kaupi hey, tryggi
sér það t.d. á haustnóttum. En
þeir og ásetningsmennirnir eiga
að sjálfsögðu að vita um ásetn
inginn. En heyleysi er það alvar
legasta í landbúnaðinum, sem
fyrir getur komið, þegar á heild
ina er litið. Aukin ræktun og
Framhald á blaðsíðu 2.
Afmælisri!
um Jónas
frá Hriflu
SÝ SLUNEFND S.-Þingeyjar-
sýslu hefur ákveðið að gefa út
á þessu ári afmælisrit um Jónas
Jónsson frá Hriflu áttræðan.
Ritið mun verða um 200 bls. í
Skírnisbroti, prentað á vandað
an pappír með myndum. Jónas
Kristjánsson frá Fremstafelli
hefur tekið að sér að sjá um út
gáfu ritsins. Efni þess verður:
Fræðilegaar ritgerðir um Jón-
as Jónsson, úrval úr eldri rit-
gerðum um Jónas Jónsson og rit
skrá Jónasar Jónssonar. Rit
þetta verður gefið út í 500 ein
tökum, tölusettum, þar af verða
400 boðin til sölu.
Akureyringar og nærsveita-
menn sem óska að kaupa ritið,
eru beðnir að snúa sér til Gríms
Sigurðssonar Þórunnarstræti
121 Akureyri og skrifa nöfn sín
á áskriftarlista.
MYNDIN tekin frá smábátaliöfninni í innbæn um, norður yfir bæinn.
(Ljósm.: E. D.)