Dagur - 29.05.1965, Page 8
8
• 4 a m
SMÁSÍLDIN veidd á Pollinum til niðurlagningar og beitu.
(Ljósm.: E. D.)
rww'/^www wwn/w
Satnvinnufryggingar gáfu 100 þúsund krónur til
handrifasfofnunarinnar
SMÁTT OG STÓRT
AÐALFUNDUR Samvinnu
trygginga og Líftryggingafélags
ins Andvöku voru haldnir í
Keflavík 21. þ.m. Fundinn sátu
14 fulltrúar víðsvegar að af land
inu, auk stjórnar og nokkurra
starfsmanna félaganna.
í upphafi fundarins minntist
íormaður stjórnarinnar, Erlend
ur Einarsson, forstjóri, Karls
Hjálmarssonar, fyrv. kaupfélags
stjóra.
Fundarstjóri var kjörinn Svav
ar Árnason, oddviti, Grindavík.
Stjórnarformaður, Erlendur Ein
arsson, forstjóri, flutti skýrslu
stjórna félaganna, og fram-
kvæmdastjórinn, Ásgeir Magnús
son, skýrði reikninga þeirra.
Félögin fluttu aðalskrifstofur
sínar á árinu 1964 í nýtt eigið
húsnæði að Ármúla 3 í Reykja-
vík. Jafnframt var gerð róttæk
breyting á skipulagi félaganna.
Hin gamla deildarskipting var
lögð niður og ný tekin upp, en
ýtarlega var skýrt frá hinu nýja
fyrirkomulagi í blöðum og út-
varpi á sínum tíma.
Á árinu opnuðu félögin nýja
umboðsskrifstofu með Sam-
vinnubankanum í Hafnarfirði,
á Akranesi og á Patreksfirði og
Kaupfélag ísfirðinga opnaði sér
staka vátryggingadeild, sem
SKOLASLIT í SAUR-
BÆJARHREPPI
SKÓLANUM í Sólgarði var slit
ið í byrjun maí. Skólastjóri er
Angantýr H. Hjálmarsson. Frú
Edda Eiríksdóttir kenndi þar
einnig s.l. vetur. Stundakennar-
ar voru Daníel Pálmason Gnúpu
felli, sem kenndi 7—8 ára börn-
um, og frú Sigríður Sshiöth,
sem kenndi söng. í skólanum
voru alls 60 nemendur, þar af
10 í unglingadeild. Luku þeir
allir unglingaprófi. Hæstu ein-
kunn hlaut Gunnar Jónsson í
Villingadal 9,12. Hæstu einkunn
á fullnaðarprófi hlaut Elinborg
Angantýsdóttir 9,53. □
annast umboðsstörf fyrir félög
in á ísafirði.
Heildariðgjaldatekjur Sam-
vinnutrygginga námu á árinu
kr. 154.969.240 og höfðu aukizt
um kr. 24 900.541 eða um 19.14%
frá árinu 1963. Er um að ræða
iðgjaldaaukningu í flestum
tryggingagreinum, en nokkuð
mismunandi eftir tegundum.
í sambandi við 70 ára afmæli
Hjálpræðishersins á íslandi var
skólaheimiiið Bjarg á Seltjarnar
nesi vígt laugardaginn 22. maí,
að viðstöddum mörgum gestum
þeirra á meðal menntamálaráð
herra, borgarstjóra og forseta
borgarstjórnar.
Yfirforingi Hjálpræðishersins
á íslandi, brigader Henny E.
Driveklepp, skýrði frá því
hvernig hugmyndirnar um skóla
heimilið hefðu orðið að veru-
leika. Af kynnum við kvenlög-
regluna hafði Hjálpræðisherinn
fengið vitneskju um þörfina fyr
ir slíkt skólaheimili og þar sem
Hjálpræðisherinn hefur mikla
reynslu á þessu sviði töldu leið
togar hans, að hér gæti Hjálp-
ræðisherinn e. t. v. komið til
hjálpar. Sagði brigader Drive-
klepp, að mikið hefði verið
reynt til að finna hús ,sem hæíði
þessu starfi, og lán úr ríkissjóði
að upphæð 1.800.000.00 kr. hefðu
gert húskaup möguleg. Án þess
að nefna ákveðna upphæð taldi
brigaderinn að útgjöldin vegna
innréttingar, breytinga og inn-
bús væri nú orðin tvöföld sú upp
hæð.
Brigaderinn nefndi að mennta
málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gísla
son, hefði sýnt máli þessu mik-
inn áhuga og hjálp. Einnig sagði
hún að barnaverndaryfirvöld
og lögreglustjórinn í Reykjavík
Heildartjón Samvinnutrygg-
inga á árinu námu kr. 144.508,-
082, og höfðu aukizt um kr. 53,-
948,016 eða um 59.57% frá árinu
1963. Er þetta mest aukning
tjónabóta á einu ári í sögu fé-
lagsins og tjónaprósentan er nú
93.25% af iðgjöldum á móti 69.6
% árið áður.
Mjög mikið tap varð á ábyrgð
artryggingum bifreiða og reynd
ist því óhjákvæmilegt að hækka
(Framhald á blaðsíðu 2).
og aðrir aðilar, sem leitað hafi
verið til, hefðu sýnt málinu mik
inn skilning.
Umdæmisstjóri Hjálpræðis-
hersins á íslandi, Noregi og Fær
eyjum, kommandör Kaare West
ergaard, lýsti því yfir, að skóla
heimilið væri vígt.
Kommandör Westergaard
sagði að Hjálpræðisherinn starf
rækti 2047 mismunandi þjóðfé-
lagsstofnanir í 70 löndum, og í
Noregi einum væri 80 slíkar
stofnanir og annaðist Hjálpræð-
isherinn rekstur margra þeirra
fyrir hönd ríkis eða bæja.
Eftir vígsluna skoðuðu hinir
(Framhald á blaðsíðu 7).
SIGUR HINNA SEXTÍU
Öllum er í minni hve stjórnar-
flokkamir vörðu af miklu kappi
það umdeilda Ieyfi utanríkis-
ráðherra að leyfa stækkun sjón
varpsstöðvarinnar í Keflavík
svo að hún náði til Reykjavík-
ur og nágrennis. Og allir muna
aðkastið, sem hinir svokölluðu
sextíumenningar úr öllum
stjórnmálaflokkum urðu fyrir,
eftir að þeir birtu opinberlega
mótmæli sín gegn hermanna-
sjónvarpinu. Nú er komið ann-
að liljóð í strokkinn hjá stjóm-
arliðinu og í aðalmálgögnunum
er búið að slá undan. Hinir 60
og skoðanabræður þeirra hafa
sigrað í þessu stórmáli. Stjóm-
arflokkamir em á hröðu und-
anhaldi og sumir ráðamenn, svo
sem menntamálaráðherrann hef
ur afdráttarlaust lýst hryggð
sinni yfir mistökunum og geng-
ið þar lireint til verks eins og
Misica Nova eftir hið „ófyrir-
sjáanlega slys“ í hljómleika-
haldi syðra, sem minnst er á
annars staðar í þessum þætíi.
GJAFIR OG ARNAÐAR-
ÓSKIR TIL UNGRA HESTA-
MANNA
Það hefur víða vakið eftirtekt,
að ungir menn á Akureyri stofn
uðu hestamannafélag og hafa
algert vínbindindi. Mun það
einsdæmi á íslandi. Gamall Ak-
ureyringur, nú búsettur í
Reykjavík, Ieit inn á skrifstof-
ur blaðsins fyrir nokkmm dög-
um. Hann bað blaðið að færa
hinum ungu hestamönnum pen-
ingagjöf, sem viðurkenningar-
vott fyrir framtak sitt og lét
þau ummæli fvlgja, að hann
óskaði þeim velfamaðar í þeim
ásetningi, að halda fast við
áform sín um bindindi, og þess
einnig, að þeir mættu sem flest-
ar ánægjustundir eiga á hest-
baki.
Tveim dögum áður hringdi
íþróttafullfrúi ríkisins til blaðs-
ins og þakkaði ummæli þess um
liið nýja hestamannafélag bind-
indissinnaðra unglinga á Akur-
eyri og bað fyrir kveðjur til
þeirra og ámaðaróskir.
FEKÐAMANNAÞJÓNUSTA
Atvikm hafa hagað þvi svo,
að ísland og raunar fleiri lönd
norðursins hafa dregið til sín
ferðafólk í ríkara mæli en áður
var. Fyrrum voru gestastofur á
niyndarlegum sveitaheimilum,
ætlaðar til að þjóna liinni sjálf-
sögðu gestrisni. Nú er svo kom-
ið, að þjóðfélagið hefur gripið
í taumana og tekið ferðamálin
að nokkru leyti á sína arma á
viðskiptalegum grundvelli. fs-
lendingum mun að vísu fátt
verr gefið en veita gestum
þjónustu að nýjum sið og
kunna þar Iítt til verka. En
samkvæmt reynslu annarra
þjóða, eru ferðamenn víða hin
mesta tekjulind og því mjög at-
hugandi, hvort ekki beri að
nýta sem haganlegast hinn
mikla og vaxandi ferðainanna-
straum hingað til lands, á svip-
aðan hátt og nágrannaþjóðimar
gera.
MÖRG GISTIHÚS
Á ferðamálaráðstefnu, sem ný-
lega var haldin, upplýsti Lúð-
vík Hjálmtýsson, form. ferða-
mannaráðs, að hér á Iandi væru
2681 gistirúni. En þar af í skól-
um og öðrum sumargistihúsum
1261 gistirúm. Gistirúm úti á
landsbyggðinni, fyrir utan skól-
ana, eru um 900 en í Reykjavík
560.
ÍSLENZKUM RÁÐHERRA
VEL TEKIÐ í NOREGI
Forsætisráðherra, Bjami Bene-
diktsson og fjölskylda hans
þáði boð norsku stjómarinnar
um stutta heimsókn þar í Iandi.
Sumir hafa látið í veðri vaka,
að ráðherrann liefði annað
betra mcð tímann að gera en
„frílista sig“ í útlöndum. Hér
verður ekki undir það tekið,
heldur á það bent, að í slíkum
ferðum er mörgu að kynnast og
margt af nágrannaþjóðum að
Iæra. Sú kynning er liverjum
ráðamanni holl, Bjarna eins og
öðrum. Og þakkarvert er það,
hve mjög Norðmenn lögðu sig
fram um það, að kynna hinum
íslenzka forsætisráðherra land
sitt og þjóð, og þau viðfangsefni,
sem vegna skyldleika þjóðmála
meðal frændþjóða, er nauðsyn
að kynnast.
ÓFYRIRSJÁANLEGT SLYS
Musica Nova stóð fyrir óvenju-
legum hljónileikuni syðra nú
fyrir skönunu. Umsagnir blaða
Framhald á blaðsíðu 2.
Mikil síld en stygg
Á miðvikudagskvöldið voru um
20 síldarskip komin á miðin úti
fyrir Austurlandi. f gær munu
þau hafa verið yfir 40 og bætt-
ist við flotann svo að segja á
hverri klukkustund.
f gær voru þau helzt tíðindi
af þeim vettvangi, að síldin er
stygg. En flest skip, sem á mið-
in voru komin, höfðu fengið
einhvern afla. Þrjú Akureyrar-
skipin, Snæfell, Súlan og Ólaf-
ur Magnússon voru svo að segja
samferða austur og varð Snæfell
fyrst þeirra til að fá afla, 1500
mál.
Tekið er á móti síld í Neskaup
stað, Eskifirði og Fáskrúðsfirði.
Ríkisverksmiðjurnar eru marg-
ar ekki undir síldarmóttöku bún
ar enn sem komið er. Og þegar
blaðið síðast frétti, hafði síldar-
verðið ekki verið ákveðið.
Skólaheimilið Bjarg á Seltjarnarnesi. (Ljósmynd: Niels Hansson)
Hjálpræðisherinn stofnar heimili
fyrir ungar stíilkur og hefur það tekið til starfa