Dagur


Dagur - 05.06.1965, Qupperneq 5

Dagur - 05.06.1965, Qupperneq 5
4 9 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Gifíuríkt áhugamannaslarf í GÆR voru í sjóði söfnunarnefnd- J ar Davíðshúss á Akureyri 840 þús- und krónur en ókominn árangur 20 —30 söfnunarlista, sem væntanlega I berst innan skamms. Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir, að nefndina vanti um 100 þús krónur til að leggja á borðið fullt kaupverð Davíðs húss og ljúka greiðslu. Samningar um húsakaupin verða án efa gerðir einhverja næstu daga. Eigendurinr höfðu gefið frest meðan söfnun fór fram. Hvort sem söfnunarnefnd Davíðs- htiss á Akureyri með skólameistara í broddi fylkingar semur sjálf við erf ingja skáldsins frá Fagraskógi um hús kaupin eða hún leggur upphæð, sem nemur nálægt andvirði hússins, á borðið hjá bæjarstjórn til húskaup- anna, er nú ljóst orðið, að starf á- hugamanna hér í bæ, um að varð- veitt væri á einum stað hús Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, bækur hans, húsmunir og listaverk — og allt eins og skáldið síðast skildi við [>að — hefur borið tilætlaðan árang- ur og málið komið í höfn. Og von- andi verður hús Davíðs Stefánssonar, sem margir óska að sjá, opnað almenningi til sýnis síðar í þessum mánuði. MEÐ varðveizlu á húsi og eigum þjóðskáldsins frá Fagraskógi eiga Ak ureyringar nú einskonar musteri þriggja stórskákla. Nonnahús, Sig- urhæðir og Davíðshús. Pater Jón Sveinsson, séra Matthías Jochum- son og Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi, hafa helgað þessa staði, og af þeim er Akureyri stærri staður og menningarlegri en ella væri, svo og Norðurland allt. Gestir leggja leið sína í liús skáldanna, koma þangað hálfgerðar pílagrímsferðir og marg- ir verða snortnir. Það er mikilsvert að hafa siík liús opin almenningi, en sumir gera meira. Og það getum við líka gert, t.d. með því að halda hér árlega skáldahátíð eða skálda- viku, þar sem snjöllustu menn væru til fengnir að ausa af andlegum hrunnum hinna [n iggja stórskálda og bera fram fyrir hátíðagesti. Þetta yrði einskonar Edinborgarvika, smærri í sniðum að vísu, en gæti þó eflaust haft margþætta þýðingu í menning- arátt. EINAR Ö. BJÖRNSSON, MÝNESI: íliigleiðingar um landmálabaráttu og hlutverk Ragnars Arnalds aljiingismanns ÉG vil hugga Ragnar Arnalds með því, að það er ekki bræðing ur kommúnista eða fylgifiska þeirra, sem koma skal, ef að ná á landsmálabaráttunni úr hönd um skrifstofukommanna í Reykjavík og hefja hann til vegs þvert og endilangt ísland. Það verður að vera barátta, sem helgast af þörf landsfólks- ins, vegna þeirrar slökunar, sem orðin er í andlegum og verald- legum efnum, sem verður að nærast og þróast við þá sókn, sem þarf að heyja til að lands- byggðin nái aftur rétti sínum, Réttinn missti hún bæði vilj- andi og óviljandi með hinum miklu fólksfiutningum og sam- þjappaða valdi í Reykjavík. Það þarf að vinna hreint björgunar starf í þessu máli enda er það eitt mesta sjálfstæðismálið í nú tíð og framtíð. Utanríkismál ís- lendinga eru örlagarík fyrir alla þjóðina. Það veltur því á miklu, að þeim sé vel stjórnað. Ekki er hægt að segja að svo sé, því að oft fæst ekkert samstarf um þau mál, sem miðast við það, að íslenzki sjónarhóllinn stýri förinni. Það er ekki sízt vegna þess, að kommúnistar og fylgisveinar þeirra eru iðnir við að halda uppi neikvæðri togstreitu, sem auðveldar öðrum öflum að koma áförmum sínum fram, sem hagræða og verzla að eigin vild með möguleika þjóðarinn- ar í gegnum inn- og útflutnings- verzlun hennar, sem síðar bitn- ar á atvinnustéttunum, sem ekki hafa við að framleiða í þá hít og ná ekki framleiðsluaukn- ingunni í sinn hlut nema að litlu leyti. Það vantar ekki peninga, þeg- ar stóriðj uhugsj ónir Reykjavík- urherranna koma fram á svið- ið, sem hugsa sér að láta útlend inga hafa rafmagn á nýlendu- verði, en selja landsmönnum það á margföldu verði miðað við það. En þá vantar, þegar á að auka ræktun landsins og efla búnað almennt í landinu og sjá því fólki fyrir rafmagni, sem enn situr í myrkrinu án þeirra lífsnauðsynlegu og sjálfsögðu þæginda. Fjárframlög vantar til að gera samgöngur greiðar í lands hlutunum og til að vinna úr þeim hráefnum, sem við öflum til lands og sjávar, sem væri sú bezta fjárfesting, sem völ er á. Við verðum í framtíðinni að nota framleiðslumátt lands- byggðarinnar sem tryggingu til að afla okkur fjár bæði utan lands og innan til að byggja upp atvinnuvegina til sjós og lands og koma verzluninni í eðlilegt samband við landsfjórðungana, en taka ekki lengur í mál, að slíku verði hrúgað á einn stað í Reykjavík. SHkt er aðeins til að leiða yfir allá þjóðina erfið- leika og misræmí, sem smám saman þokar fólkinu frá fram- leiðslustarfi, en stuðlar áð borg- ríki við Faxaflóa, sem ferst í sjálfu sér efnalega og andlega, ef ekki verður stungið við fót- um. Ef þær vinaþjóðir, sem við höfum skifti við og alþjóðlegar peningastofnanir vilja ekki lána okkur fjármagn til alhliða starf- semi fyrir fólkið, sem byggir þetta land, þá er sú vinátta fals vinátta. Atvinnustéttir þjóðarinnar og allir, sem vilja, að við búum í þessu landi sem menn, verða að leggjast á eitt með að gera það skynsamlegasta, en það er að dreifa valdinu og fjármagninu og stuðla þannig að því að jafn- vægi í byggð landsins. Það verð ur ekki gert, nema fulltrúar landsbyggðarinnar hafi um það ströng fyrirmæli úr kjördæm- unum og kosning þeirra sé bundin við að slík þróun verði. Það er ráðið til að draga úr því rötleysi, sem við blasir og koma þjóðmálabaráttu ís- lendinga niður á jörðina og gera hana að þjónustutæki lands fólksins, sem það hrærist í og eykur gleði þess og lífsham- ingju, en verði ekki að ótta- blandinni „businessmennsku11 flokksráðsmanna í Reykjavík, sem eru langt komnir með að gera flokkana að hlutfélögum í Reykjavík ef áfram heldur sem horfir. Á Alþingi er ráðið úr mörgum örlagaríkum málum, sem miklu skiftir að vel takist til um og varða framvindu þjóðarinnar. Ríkisreikningurinn nálgast nú 4 milljarða. Það er ekki sama í hvaða farvegi þessir fjármunir renna, eða hvernig ríkisvaldinu er beitt að öðru leyti. Landsbyggðin verður að taka þessi mál föstum tökum. Henni tilheyra meirihluti þingmanna það eru flokkssjónarmiðin, sem hefta þá, þegar suður í Reykja- vík kemur. Þessu verður að breyta, ef vel á að fara. Verði það ekki gert, er eðlileg þjöð- málabarátta úr sögunni. Á Austurlandi er sterk alda í átt til samstöðu fólksins um málefni sín, svo er og í öllum landshlutum. Eftir er að sam- hæfa kraftana og það verður gert, en þarf sinn tíma til að þróast eðlilega. Þetta eru stað- reyndir, sem við blasa. Stjórn- arskrá lýðveldisins hefur aldrei verið samin nema nokkrar slitrur, sem flaustrað var sam- an í hasti. Hún á þó að vera leiðarljós og skipa landsfólkinu leikreglur og tryggja réttindi og skyldur þegnanna við lýð- veldið. í staðinn fyrir stjórnarskrá höfum við verzlunarpólitík nokkurra valdamanna, sem hika ekki við að verzla með hvað eina, sem þjónar þeirra lund og hagsmunum. Einnig geta þeir verzlað með forsetaembætti landsins og eru þegar byrjaðir á því, með. því að senda stjórnmálamenn, sem ekki eru vel séðir, í pólitíska af- vötnun í sendiherraembætti, sem eiga svo að afplána þeirra (Framhald á bls. 7). RODD AÐ SUNNAN HEILL og sæll Dagur: Nú er orfðið langt síðan að þú hefur fengiðfengið línu frá mér, en loforð verð ég að valda, og ekki láta bregðast að halda sam- bandinu við þig. Eg þakka marg ar góðar greinar og nú ekki síst grein Jónasar frá Brekknakoti, sem hefur yfirskriftina „Um daginn og veginn“ í Fokdreifum sem birtist í 38 tbl. 15 maí. Jón as er óhræddur að stinga á fúa kýlunum, þökk sé honum fyrir það. í þessari grein gerir hann að umtalsefni drykkjudansleiki, sem auglýstir eru og haldnir oft á þeim stundum, þegar krist in þjóð ætti fremur að hvetja æskulýðinn til þess að gefa gaum að því sem stuðlar að hinni sönnu varanlegu hamingju og gleði. íslenzka þjóðin hefur mikið að þakka fyrir, að hafa mátt hagnýta sér menningu og siðgæði, — sem kristnin ein get ur leitt af sér — um mörg hundr uð ára skeið, og ætti því ekki að stuðla að því að ögra hinum ungu til þátttöku í heiðnum hugsunarhætti og siðum. Sann- kristið fólk undrast tillitsleysið, þótt ekki sé meira sagt, að efna til dansleikja þau kvöld, sem heimilisfólk ætti að koma sam an til þess að mynnast þjáninga Guðssonar, sem kom í þennan heim til þess að veita öllum mönnum varanlega hamingju og frelsi. Það eru margir sem segja: „Eg skil þetta ekki, eða hvað kemur okkur það við sem gerðist fyrir nær 20 öldum? Vin ir, hvernig eigum við að skilja Guð, og hans ráðstafanir okkar til hjálpræðis. Það sem gerðist í Getsame, á Golgata og á páska dagsmorguninn við gröf Jesú, kemur okkur jafnmikið við í dag eins og þá er það gerðist. Tíminn er hraðfleygur, og mannsæfin stutt. Líf liggur við að stefnt sé að því að þjóðin taki höndum saman, og taki kristindóminn alvarlega. Hálf- velgja og sinnuleysi leiðir til af kristnunar. Ekki vanta dómana hjá náunganum þegar ungmenn ið lendir á villigötum, og ótalin eru tár foreldranna og ókönnuð hjartasárin, þegar nöfnin eru birt í blöðunum, eins og oft var gert, eða fyrir fáum árum, nú virðist vera farið að draga úr nafnbirtingum unglinganna. Með þessu er ég ekki að afsaka glæpastarfsemina, en ég er að leitast við að benda fullorðna fólkinu, þeim er ráða yfir skemmtistöðunum, hve hlutur þeirra er oft þungur á metunum í ógæfu ungmennanna. Heimilin standa ráðþrota, og geta lítið viðnám veitt. Vinirnir toga, og auglýsingarnar freista. Það er hlaupið eða ekið á milli skemmtistaðanna í leit að ennþá meiri fullnægju. Hver verða svo eftirköstin? Heimilisófriður tóm pyngja. Heimtufrekja um meiri peninga, sljóleiki, illa rækt nám. Skróp í vinnu, o.s.frv Það er ekki nema eðlilegt að æskan þurfi að skemmta sér, en það er grátlegt að þurfa að horfa uppá það að alltaf skuli þurfa að hafa vín á boðstólum þann mesta bölvald sem til er. Vínlausar skemmtanir eru menn jngaratriði. íslenzk æska, ég skora á ykkur að sýna mann- dóm og afsegja vín á þeim skemmtunum sem þið sækið. Gángið á undan þeim er þykj- ast þroskaðri og eldri að árum. Bannfærið brennivínið. Þá verða færri blóðpeningarnir er renna í ríkiskassann. Þá fækkar tárunum, og grær að sárunum. Heill ykkur bifreiðarstjórar, sem hafið gert með ykkur sam- tök um algjört bindindi, þið hin ir er seljið unglingum vín í b.if- reiðum ykkar ættuð að endur- skoða hugarfarið. Gleðilegt sumar. F. K. BRÉ TIL RITSTJÓRA „DAGS“ Askov, Vejen 22. maí 1965. Kæri ritstjóri! Jæja, þá er hlaupinu lokið í Þjóðþinginu! Og þar með mínu starfi lokið. — Hættuleg var til- raunin að reyna að slíta Codex Regius og Flateyjarbók út úr lagafrumvarpinu. — En and- stæðingarnir halda áfram. Mál- sókn. Þjóðaratkvæði. Hið síðar- nefnda gæti orðið hættulegt, þar eð æsingamaðurinn Möller og Bröndum-liðið eru afar fjár- sterkir og hafa vakið æsitryllt- an áróður um allt landið og hafa auk þess meginþorra blað- anna á sínu bandi. E.nn skortir þó 3 þingmenn á vettvang þjóð- aratkvæða. — Sjáum hvað set- ur! Ég hefi skrifað nokkur kveðju bréf til íslands og þar á meðal þetta til Akureyrar og Dags með þökk og kveðju. Ógleyman legir eru dagarnir mínir tveir á Akureyri, bæ séra Matthíasar Húsavík 1. júní. Benedikt Jóns- son listmálari hafði málverka- sýningu á Húsavík dagana 22. til 26. maí, að báðum dögum meðtöldum. Á sýningunni voru alls 65 myndir, flestar voru olíumynd- ir, en einnig nokkrar vatnslita- myndii' og svartkrítarteikning- ar. Aðsókn að sýningunni var mjög góð og yfir 40 myndir seld ust. Húsavíkurbær keypti stórt olíumálverk af listamanninum, en hann færði bænum að gjöf aðra olíumynd. Báðar eru mynd irnar af öræíum íslands og þeim og Bólu-Hjálmars* og einnig samvinnubærinn. Einnig Dav- íðs, sem ég hitti ekki, og hins ti'ygga norræna Helga. Ég minnist sögufrægrar Grund ar og Möðruvalla, þar sem saga og nútíminn taka höndum sam- an, og flugvélin lenti á Mel- gerðismelum. Síðasta endurminning mín frá íslandi er þó dómkirkjan í Skálholti. Ég skrapp þangað nokkrum dögum eftir vígsluna, lygnan sólskinsdag í ágúst. Þar var algerlega mannautt. Nokri-- ar kýr voru á beit á Hvítár- bökkum. — Þá minntist ég gamals Maríu-verss, sem enn liggur á gulnuðu blaði í safni Árna Magnússonar í Kaup- mannahöfn. Því lýkur þannig: Guð láti sólina skína yfir fagra fjallinu því sem hún María mjólkaði kúna sína! Að svo mæltu með beztu kveðju og þökk frá Jörgen Bukdahl. *) Hér vísar Bukdahl eflaust til þess, að Hallandi, fæðingai-- staður Bólu-Hjálmars, blasir við frá Akureyri hinumegin fjarðarins! hefur verið komið fyrir í fox'sal skólahúss Húsavíkur. Benedikt hafði myndlistarsýn ingu í Reykjavík í fyrra og hef- ur einu sinni sýnt áður hér heima á Húsavík. Þ. Tólf m. fall óbrotinn ÞAÐ slys varð við Norðurlands borinn í Glerárgili klukkan hálf fimm í fyrradag,, að maður, sem var við vinnu uppi í turninum, féll tólf metra og niður á jörð. Lenti hann ofan í leðjubing, er tók af honum fallið. Var hann fíuttur í skyndi í sjúkrahús og er meiðsl hans voru könnuð kom í ljós, að hann var óbrotinn. WKHSíSÍHSWHKHStSeettÖiSíSiSrSÍKHSíSíStSíSÍHSÍBSiSíSÍHSÍHSÍKHSÍHSSHSÍHS RONALD FANGEN EIRÍKUR HAMAR Skáldsaga ÍKHSSKKKKHStHKKHK 44 CHSÖkKHStHStHSÍHSÍHSXS að þér hafið verið fjölfær og duglegur. En ég öfunda yður ekki. Þér getið ekki ímyndað yður, hvílíkri hamingju það veldur mér að vita, að nú skal ég losa mig við þetta allt saman og hverfa héðan úr skrifstofunni, sem vissulega er yðar. Mín hefir hún aldrei verið. Eins og ég segi: Ég dáist að yður, en er samtímis ákaflega andstæður yður, þó ekki persónulega nú framar, — það var ég áður, þegar mér sár- gramdist daglega útlit yðar, fas og framkoma. Nú hefi ég bara andstyggð á yður eins og einhverju því, sem er svo gagn-andstætt öllu rnínu eðli og lífsviðhorfi, að það hrífur mig blátt áfram eins og ógnun. En þér hafið rétt að mæla í öllu því er þér hafið sagt, — og leyfist mér að spauga, þá segi ég það þannig, að það sem nú er kallað nýtízku við- skipta-helvíti, það hefir auðvitað þörf fyrir sína erkidjöfla. Fylkir gekk hægt inn aftur í skrifstofuna. Hann var alvar- legur og hlustaði á Eirík með athygli, sem að þessu sinni virtist ekki aðeins eintóm umgengnisleikni: — Segið þér viðskipta-helvíti, og segið þér erkidjöfull. Já, ég spyr ekki þessvegna, að ég sé ekki upp með méf, en hugsið nú til þess, að viðskipti hafa verið rekin frá upphafi alda, og klaufar og amlóðar hafa verið og eru alltof margir í því starfi, og ætti þá að vera rangt og ótilhlýðilegt, þótt einhver sá kæmi til skjalanna sem einu sinni tæki föstum tökum, alvarlega og skipulega, bæri skynbragð á allt starf- ið og lyti lögum þess. Ég skal segja yður, að þér berið falska virðingu fyrir mannskepnunni. Almenningur á ekki betra skilið en að reka sig á að til sé það, sem stendur fast og traust og ekki verður leikið með, svo að það er algerlega tilgangslaust að reyna að snúa á það. Og þar á enginn öðr- um betra skilið. Haldið þér að ég muni taka mér það nokk- uð nær að láta Gemla sökkva á sextugu að ári heldur en að fást við fjárglópsku Bjarts unga? Því fer fjarri. Sverði er brugðið yfir oss öllum. Haldið þér að ég viti ekki, að þann dag senr ég hrapa, er ég glataður. Hefi ég ekki sagt yður einu sinni áður, að einmitt þessvegna er framar öllu um að gera að Iirapa ekki? — Jú, sagði Eiríkur, og ég segi að þetta sé allt djöfullegt. Hér er allt harðlæst. Og þótt það sé rétt fyrir yður að lifa og hrærast í öllu þessu, þá væri það þveröfugt og rammfalskt fyrir mig, það er allt annað sem ég þarfnast. Og jafnglaður sem Jrér sitjið hér um kyrrt, held ég burt héðan. Fylkir var á ný elskulegur og skrafhreifinn. Þér segið að það sé „harðlæst“. Með því eigið þér sennilega við, að það sé sýnilega tilgangslaust. En segið mér hvað það er, sem hef- ir tilgang! Ég veit aðeins eitt, sem ég er alveg viss um, og það er að það er alls engin tilviljun, að peningarnir hafa hlotið mátt sinn og megin. Þegar maður fæst við þá, þá fæst maður við raunverulegt verðmæti. Það er allt svo veru- legt og voldugt að magni og mætti, að við liggur að dular- fullt sé. Og allan hinn lausaleik heims læt ég yður gjarnan í té. Það er hörmung að þér skulið hafa kosið svo fávíslega, en fyrst þér hafið nú gert það, gleður það mig að þér hverf- ið héðan sjálfviljugur, því þegar öllu er á botninn hvolft unni ég yður talsvert góðs, þótt hin ströngu lög hefðu ákveðið að yður skyldi algerlega tortrýmt. Eiríkur sagði: — Mér var annars vel kunnugt, að þér höfðuð ákveðið að skáka mér út úr firmanu. Sonur yðar sagði mér það eitt kvöld á Stúdentafélagsfundi fyrir skömmu. Fylki var greinilega illa við þessa frétt. — Algerlega stál- sleginn er hann að minnsta kosti ekki, hugsaði Eiríkur. — Jæja, það er honum líkt, sagði Eylkir. Ég hefi ekki verið heppinn með syni rnína. Þeir telja sig báða vera húmanista, og ég get ekki einu einni ímyndað mér hvað það þýðir. En það gildir nú einu. Synir eiga víst alltaf að vera andstæðingar feðra sinna, og þekki ég þá rétt, býst ég við að það verði ég, sem á verður að treysta, þegar húman- isminn getur ekki veitt smávægilegasta bita daglegs brauðs. — En nú, minn góði Hamar, hugsa ég sé bezt að við slítum þessu þægilega samtali. Ég vil aðeins undirstrika við yður eitt atriði: — Það er ekkert í minni fortíð, sem ég þarf að blygðast mín fyrir, og ekkert sem þér getið beitt gegn mér, og verði ég þess nokkru sinni var, að þér reynið að dylgja um mig persónulega, megið þér reiða yður á, að ég svífst einskis til að ná höggstað á yður. Haldið yður utan míns vettvangs, verðið dómari og roskinn, virtur embættismaður, og áræðið ekki að leggja stein í götu vora, sem störfum á vettvangi raunverulegra verðinæta. Eiríki virtust broslegar þessar hótanir Fylkis. — Það hefir verið fróðlegt og skennntilegt að spjalla við yður, sagði hann, því að mig langaði til að skilja dálítið í yður, en þér megið alls ekki halda, að hótanatónn yðar hríni vitund á mig. Vonandi ímyndið þér yður ekki, að þér getið skuldbundið mig til nokkurs skapaðs hlutar framveg- is á ævinni. Minnist þess að ég rakst á yður í mjög vansæm- andi kringumstæðum. Hve auðugur sem þér kunnið að verða, og hve voldugur, munuð þér aldrei geta útmáð þau áhrif á mig, að þér séuð auinur og lítilfjörlegur náungi, því það sem þér þá voruð að aðhafast köllum við í spilamennsku falsspilara. — ..Jæja, þér þurfið ekki að taka þetta sem sér- stakt siðgæðislegt stærilæti af minni hálfu. Ég hefi ekkert að skruma af og hæla mér. Ég hefi sjálfur klastrað og kákað allan tímann sem ég hefi verið hjá yður. En ég skal líka vanda mig á því að gera það ekki framar. Hann stóð upp. — En nú verðið þér að afsaka að ég þarf sjálfur að nota skjölin mín dálítið í kvöld. Ég þarf sem sé að útkljá allt mitt. J.., - , 4 •- < Fylkir varð forvitinn: — Hve mikið hyggið þér að útkljá, Hamar? Hyggið þér að fitja upp á ný fyrir sjálfan yður? — Nei, ég ætla að útkljá allt að fullu. Ég fer utan og hefi enga hugmynd um, hve lengi ég kann að verða. Og heldur ekki veit ég, hvað ég eigi að taka mér fyrir hendur, þegar ég kem aftur. Það verður að gerast eitthvað furðulegt við mig eða í mér, áður en mig langi til að hefjast handa um einhverja vinnu hérna heima. — Svo þér ætlið að útkljá allt og vera laus og liðugur? spurði Fylkir. Ganga alveg úr leik. Já, þér hafið sennilega nægilegt til að spjara yður nokkur ár. — Vissulega ekki með yðar góða vilja. En þótt ég verði ekki milljónamæringur eins og Fylkir lögmaður, þá megið þér reiða yður á og treysta því, að ég mun ætíð afla yfir- dómslögmanni Hamar hans daglega brauðs. En eina við- skiptalega ánægju ætla ég að veita yður, áður en ég fer: það er að_skila yður öllu verkefni sem ég hefi frá yður, í röð og reglu. Og ég mun skipuleggja öll hagfræðileg atriði okkar á milli á þann hátt, sem ég tel víst að þér munið ekki finna neitt að. Og þessu skal ég Ijiika eins fljótt og unnt er, senni- lega á fáeinum dögum, og þar með getur þetta óvænta sam- tal okkar talist kveðja. — Hitt allt berst svo síðan um skrif- stofuna. — Eg er yður alveg sammála Um það. Við ættum að svo stöddu ekki að eiga neitt frekar ótalað. En samt sem áður, Hamar: Þótt ég hafi verið alveg miskunnarlaus sárreiður við yður, þá vil ég samt enn á ný þakka yður fyrir fyrstu sam- starfs-árin okkar, og fyrir þær veslings krónurnar, sem þér þá settuð inn í starfið. Að vísu var það einnig til hagnaðar fyrir yður, og auðvitað hefði ég getað útvegað mér pening- ana á annan hátt, en rétt áður en þér kornuð í firmað, hafði ég orðið fyrir talsverðu tapi, heimskulegu tapi, sem ég læðri rnikið á, — og þér spöruðuð mér að leita til Barkar. Þetta get ég auðvitað þakkað yður núna, en annars er ég algerlega óviðkvæmur og veit enda að þér hafið fengið þetta margfalt aftur, svo að nokkura þakkarskuld tel ég mig ekki vera í við yður, og hefi heldur ekki fundið til þess síðan daginn þann sem ég bauð yður inn í skrifstofu mína og talfærði þetta stuttlega. — Nei, til þess hafið þér heldur ekki neina ástæðu, sagði Eiríkur. Jæja, verið þér sælir, lögmaður, en að lokum gott ráð: — Látið ekki koma að yður óvöium á ný, — jafnvel ekki í yðar eigin skrifstofu. Fylkir svaraði: — Nei, það var sorgiegt, — sérstaklega fyrst ég hefi nú enga þörf fyrir góða vitneskju rnína, því að nú hefði ég get- að skákað yður fallega og gert yður hornmát. — Sælir, Ham- ar. ■ Eiríkur fór iit. Hann minntist hreykni sinnar daginn þann er hann í fyrsta sinn steig fæti inn í þessa glæsilegu skrif- stofu, en þá komu þeir iir skuggalegu skrifstofunum á Stóra- torgi. Honum virtist hann hafa hækkað mjög í rásinni, allt tók miklurn framförum, og hann starfaði stórkostlega. Að hann þá skyldi hafa getað verið svo sljór og blindur að renna ekki minnsta grun í, að hann að nokkrum árurn liðnum myndi hverfa frá þessari glæsilegu skrifstofu með þá til- finningu í brjósti sem væri liann að losna úr fangelsi. Það var indælt að konra lit í hreint og svalt vorloftið. Nú var loks bjart kvöld og fagurt, og hann luigsaði um sjálfan sig, sem nú væri þarna á ferð, og um hann sem eftir sæti með sín köldu, ströngu lög eins og járngrindur fyrir rúðum, í banka og í íangelsi, og að eigin vild hefði hann kosið sér einmitt þessa tilveru í úa og grúa mannlífsins. Eiríki datt í hug nokkur orð úr ritningargrein, og allt í einu sagði hann þau upphátt, er hann gekk b«rt eftir mann tómri gangstétt miðbæjarins: En af þessu þrennu er kærleikurinn mestur. j

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.