Dagur - 11.08.1965, Síða 1
HRYGGILEG SLYS
VARÐ UNDIR DRÁTTARVÉL
OG BEIÐ BANA
ÞAD hryggilega slys varð að
Hvammi í Amameshreppi, að
þriggja ára færeyskur drengur,
sem var gestkomandi þar með
móður sinni, varð undir dráttar
vél og beið bana af. Litli dreng-
urinn hafði klifrað upp á vélina
|»ar sem hún stóð við húsið og
rann hún af stað afturábak nið-
ur örlítinn halla frá húsinu og
austur yfir þjóðveginn. Fór vél-
in þar fram af kantinum og valt
ofan á drenginn. Laeknir kom
strax á staðinn með sjúkrabíln
nm en drengurinn lézt á Ieið-
inni til Akureyrar.
TELPUR FYRIR VÖRUBÍL
Á sunnudaginn urðu tvær 10—
11 ára telpur fyrir vörubíl norð
an Glerárhverfis. — Sjúkrabíll
kom á staðinn og voru telpurn
ar fluttar í sjúkrahús þar sem
þær liggja enn. Önnur þeirra
hlaut nokkra skurði á fótum en
hin mun vera meira slösuð, jafn
vel höfuðkúpubrotin.
(Frá lögreglunni).
DRUKKNAÐI í ÓLAFS-
FJARÐARVATNI
Hinn 9. þ. m. varð það hörmu-
lega slys í Ólafsfirði, að 8 ára
gamall drengur frá Siglufirði,
Brynjar Júlíusson, drukknaði.
Það bar til með þeim hætti, að
bát hvolfdi á vatninu fram und
an Auðnum, en í honum var
Brynjar, eldri bróðir hans og
afi þeirra og voru þeir að vitja
um silunganet. Eldri bróðirinn
synti í Iand og afinn var hætt
kominn enda heilsuveill.
ELDSVOÐAR
MIÐVIKUDAGINN 4. ágúst
kviknaði í þurrkara í síldarverk
smiðjunni á Krossanesi. Eldur
hafði leynzt þar og er slökkvi-
liðið kom á vetvang, lagði þykk
an reykjarmökk upp af verk-
smiðjuhúsinu. Skemmdir urðu
ekki teljandi.
Á föstudaginn var slökkvilið
ið kvatt að Gránufélagsgötu 27.
Reyndist ekki vera neinn eldur
heldur reykur frá miðstöðvar-
katli. (Framhald á blaðsíðu 7)
••
VERID er að koma fyrir hinum nýju malbikun irvélum upp með Glerá.
(Ljósm.: E. D.)
Ný tækni gegn nætufrostum
Vatnsúði og reykur hafa gefið góða raun
ByrjðS aS byggja flugskýli
a Akureyrarflugvelli
HAFINN er undirbúningur að
hyggingu flugskýlis á flugvell-
inum við Akureyri, en það mál
hefur verið í undirbúningi und-
anfarin misseri. Flugskýli þetta
•verður stálgrindahús, — þessi
áfangi 37x25 metrar að flatar-
máli.
Slippstöðin, KEA og Möl og
sandur tóku að sér bygginguna
fyrir hönd flugmálastjórnarinn-
ar.
Með flugskýli á Akureyrar-
flugvelli batnar enn aðstaða til
ýmiss konar starfsemi varðandi
jnnanlandsflugið, einkum Norð-
urflugs. En Norðurflug er eina
flugfélag landsins, sem ekki á
raunverulega heima í Reykja-
vík. Munu menn fagna því, að
gata þess félags sé greidd af
sanngirni.
Tvíliandleggsbrotinn
FYRIR fáum dögum bar það við
í hópi ferðamanna austur á ör-
æfum að maður einn reykvísk-
ur tví-handleggsbrotnaði. Félag
ar hans voru í 6 klst. að flytja
hann á fjallabíl að Þorsteins-
skála í Herðubreiðarlindum. —
Þaðan náðist, með hjálp talstöðv
ar í öðrum ferðabíl til Gufuness
og var Tryggvi Helgason beðinn
að sækja sjúklinginn. Flugvöll-
ur er skammt frá Þorsteinsskála
og gekk sjúkraflugið vel.
Nýja flugskýlið á að byggja
spölkorn sunnan við Flugstöð-
ina og verður það jafn langt frá
flugbrautinni og hún. Hvernig
á því stendur, að flugskýlið er
ekki byggt nær flugstöðvarhús-
inu, á lóð, sem búið er að sand-
fylla, heldur nokkru sunnar, er
torskilið. □
UM síðustu helgi voru hér á
ferðinni forstjóri Grænmetis-
verzlunar landbúnaðarins, Jó-
hann Jónasson og jurtasjúk-
dómafræðingurinn Ingólfur
Davíðsson. Voru þeir á eftir-
litsferð . vegna stofnræktunar
kartaflna, sem margir bændur
við Eyjafjörð hafa með hönd-
um.
Þeir telja uppskeruhorfur á
kartöflum yfirleitt góðar, eink-
um sunnanlands, og voru nýjar
íslenzkar kartöfiur komnar á
markaðinn um síðustu mánaða-
mót. Þær voru úr Þykkvabæ
og Hrunamannahreppi. Á yfir-
standandi ári, sagði forstjórinn,
hefur verið flutt inn meira af
kartöflum en nokkru sinni áð-
ur og komu þær á markað fljótt
upp úr s.l. áramótum, þótt inn-
lenda framleiðslan væri þá ekki
til þurrðar gengin.
í stofnræktun þeirri, er áður
var nefnd, eru gullauga, rauðar
islenzkar og bintjé. Auk þess
eru á Eyrarlandi ræktun tvö
tékknesk kartöfluafbrigði, til
reynslu og með það fyrir aug-
um að rækta þær kartöflur hér
í stórum stíl til útsæðisnota í
heimalandinu. En það færist
■hvarvetna í vöxt, að rækta út-
sæðiskartöflur í eins svölu
loftslagi og unnt er og losna á
þann hátt við kartöflukvilla að
nokkru leyti.
Hér á landi eru talin þrjú að-
alframleiðslusvæði kartaflna og
er Þykkvibær talinn þeirra
mest, þá sveitirnar við Eyja-
fjörð, einkum Svalbarðsströnd,
og Hornafjörður.
Eins og jafnan áður ógna
næturfrostin allri kartöfluupp-
(Framhald á blaðsíðu 6).
Löndun og söStun á Raufarhöfn
Raufarhöfn 10. ágúst. Hér hef-
ur verið landað og saltað síðan
á laugardag. Allgóð síldveiði hef
ur verið 140—180 mílur norð-
55S5S555555355555S555S55555SS555555555SS555S55555S555SS5555S5S5S555555SS555S5Í555S5S555555555S55S55S55555S*;
VINNA er hafin við jarðgöngin í Strákum við Sigluf,örð. Myndin sýnir staðinn Sigiufjarðar-
megin, þar sem jarðgöngin liggja inn í fjallið. (Ljósm.: E .Ð.)
austur af Langanesi og er
skemmst hingað með aflann.
í dag er saltað á öllum plön-
um og bezta síldin er að koma
í dag. En því miður eru marg-
ar stúlkur farnar og einnig
verkamenn. Búið var í morgun
að salta í 15.000 tunnur, en á
sama tíma í fyrra í 50.000 tunn-.
ur. Nú eru komin — eða verða
í kvöld — 100.000 mál í
(Framhald á bls. 7).
Akureyrartogarar
STÖÐUG vinna er hjá Hrað-
frystihúsi U. A. Frystihúsið tek
ur, auk togarafiskjarins, afla frá
dragnótabátum og ufsa af herpi
nótarbátum ef rúm er. í fyrra-
dag lestaði Selfoss urn 10.000
kassa af freðfiski.
Sléttbakur landaði 28. júlí 210
tonnum.
Harðbakur kom annan ágúst
með 122 tonn.
Kaldbakur landaði 4. ágúst
159 tonnum.
Svalbakur kom í fyrradag
með um 115 tonn.
Veiðisvæðin eru út af norður
landi og fiskurinn er blandaður;
þorskur og karfi.