Dagur - 11.08.1965, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Önnur viðhorf
í NÓVEMBERMÁNUÐI 1964
sagði stóriðjunefnd í skýrslu til
ríkisstjómarinnar, að verðmunur sá,
sem verða kynni á raforku frá Detti-
fossi og Búrfelli skipti ekki megin-
máli fyrir staðsetningu aluminíum-
iðjuvers. I'að sem meginmáli skipti,
væri, að verksmiðjan myndi ekki
framleiða nema 30 þús. tonn og að
þá vantaði markað fyrir orku frá
Dettifossi. Nú er talið ákveðið, að
byggð verði 60 þús. tonna verk-
smiðja, ef til kemur, þ. e. a. s.diæfi-
Ieg fyrir staðhætti við Dettifoss, þeg-
ar við bætist almenn notkun norð-
anlands og austan. Aðalröksemdin
gegn Dettifossvirkjun er þar með úr
sögunni. Eða hafa menn gleymt því
scm þeir sögðu fyrir 9 mánuðum?
Þegar hefur verið samþykkt laga-
heimild til að virkja Þjórsá við Búr-
fell í allt að 210 þús. kw. orkuveri.
Meira afl er ekki talið hagkvæmt að
virkja á þeim stað. Model-tilraunir
með ísrek í -Þjórsá standa enn vfir í
Noregi og niðurstaða ófengin. En
telja má sennilegt, að rétt sé að
virkja Þjórsá eigi að síður, hvenær
sem það verður gert.
Sextíu þús. tonna aluminíumverk-
smiðja við Straumsvík myndi taka
til sín nokkru meira en hehning af
orkunni frá Búrfelli. Sumir kunn-
ugir segja, að hin mjög ört vaxandi
raforkuþörf á Suðvesturlandi mvndi
taka til sín afganginn á næsta ára-
tug eða jafnvel skemmri tíma. Næsta
skrefið yrði þá sennilega að virkja
Dettifoss eða Laxá til að fullnægja
almennri neyzluþörf FYRIR SUNN-
AN og leggja háspennulínu suður á
milli jökla. Er þá ekki nær að stað-
setja iðjuverið fyrir norðan?
Trúlegt er, að rétt sé að koma upp
einhvers konar stóriðju hér á landi
fyrr eða síðar og hníga að því ýms
rök. En af hálfu Norðlendinga hef-
ur aldrei verið rekið á eftir fram-
kvæmdum á því sviði, sízt að hrap-
að sé að óhagstæðum samningum
við útlendinga eða setja íslenzkt at-
vinnulíf og byggðajafnvægi í hættu.
Hið norðlenzka viðhorf, sem Aust-
firðingar einnig gerðu að sínu á Ak-
ureyrarfundinum 1962, var í því
fólgið, að fyrsta stórvirkjunin með
iðjuver fyrir augum ætti að byggja
norðanlands, hvernig sem að þeirri
framkvæmd yrði staðið. Sá var líka
mergurinn málsins í ályktun bæjar-
stjórnar Akureyrar sl. vetur. Menn
geta kallað þetta hreppapólitík eins
og Morgunblaðið gerði nýlega. En
það er J>á líka hreppapólitík hjá
Norðmönnum, að setja Svisslending-
um það skilyrði, að slíkar fram-
kvæmdir þar í landi Jjjónuðu
norsku byggðastefnunni.
~~~~~~~~~~~ ARNI G. EYLANDS: ~~~~~~~~~~~
KAL OG KENNINGAR
i.
MARGT og mikið er rætt um
kalið á Austurlandi, er það að
vonum. Hins vegar er kal í tún
um engin ný bóla hér á landi.
Oft hefir það valdið bændum
þungum búsifjum. Nægir að
minna á hvert afhroð bændur
biðu eftir frostaveturinn 1918 af
þeim sökum. Samkvæmt búnað
arskýrslum var töðufengur um
land allt sumarið 1917 706 þús
hestar, en sumarið 1918 ekki
nema 3S5 þús, hestar. Þannig
minnkaði töðufallið um 46%,
váfalaust mest af völdum kals í
túnum. Sem dæmi má einnig
r.efna, að af túninu á Hólum í
Hjaltadal fengust ekki nema um
.300 hestar sumarið 1918, en á
þeim árum var Hólatún talið
vera um 2000 hesta tún. Þannig
mætti lengi telja.
Á meðan því fór fram, að alda
gömlum hætti, að taðan var ekki
nema hálfur heyskapur bænda
og jafnvel ekki það, voru það
útheysslægjurnar sem fleyttu-
búunum yfir kalárin, þótt oft
kæmu þau hart við. Fyrir kom
þó einnig að harðvellisengjar og
úthagi var skemmt af kali. Vot
lendisengjar var það eina slægju
land sem aldrei kól.
II.
Nú er öldin önnur. Utheysskap-
ur að mestu aflagður. Af túnun-
um er mjög mikill og vaxandi
hiuti nýræktir. Þykir við
brenna að þeim sé kalhættara
en gömlu túnunum. Ber margt
til og er ýmsu um kennt, svo
sem grasfræi og lítt þolnum
gróðri er upp af því vex, jarð-
vinnslu og áburði.
Á landið sjálft sem ræktað
er virðist sjaldnar og minna
minnst, í þessu sambandi. Væri
þó full ástæða til þess. Gömlu
túnin voru sjaldan mjög flöt og
hallalaus, vatni veitti af þeim
víðast hvar, en segja má, að ör-
ugg reynsla sé fyrir hendi um
það, allt frá fornu fari, að mar-
flöt tún og lægðir og slakka í
túnum kelur fremur en ann'að
land. (Þótt jafnvel harða hóla
geti kalið, með sérstökum hætti
er rætur slitna á milli tveggja
klakalaga í jörð). Má þar til
nefna það, sem alkunnugt er,
hversu hætt ér við kali í lægð-
um og við brekkurætur þar sem
hjarn og svell liggja á jörð fram
á vor. Hafa bændur í raun og
veru aldrei undrast slíkt, frem
ur talið það eðlileg áföll, bund-
in við snjólög og veðurfar. Að
þessu athuguðu sé sízt að undr-
ast þótt kalhætta í túnum sé nú
yfirleitt töluvert meiri og al-
mennari heldur en áður var,
Við sambærilegt vetrarríki og
veðurfar. Eftir að framræslu-
tæknin gerði ræktun mýrlendis
tiltækilega og algenga, og það
í miklum mæli, eru víða rækt-
aðar marflatar mýrar sem vatni
veitir lítt og illa af. Það er því
alls ekki „að kynja þótt keraldið
leki“ við og við, og bændur fái
að kenna á kali annað veifið,
þegar kalhættulega árar um veð
urfar að vetri og vori til. Ef við
þetta bætist: óheppileg jarð-
vinnsla, „lélegt“ grasfræ og mið
ur skynsamleg notkun áburðar
við ræktunina og á eftir, þá er
varla við góðu að búast. En um
þetta allt er nú rætt, manna á
meðal og í dagblöðunum, og til
efnið er hið mikla kal í túnum,
sérstaklega á nýræktartúnum
nú í vor, á Austurlandi og víð-
ar.
Við þessar umræður ber mest
á ágiskunum og ályktunum, oft
lítið rökföstum, svo og kröfum
um „rannsóknir á orsökum kals
ins“ cg um „tilraunir“ til þess
að leiða sannleikann í ljós, og
afla þekkingar og kunnáttu til
þess að fyrirbyggja slík áföll
framvegis. En sem betur fer er
líka um meira en kröfur að
ræða, búnaðaryfirvöldin hafa
þegar gert hinar fyrstu ráðstaf
anir til tilrauna og rannsókna á
þessu sviði. Vel er það, þótt þess
se um leið að minnast að verk-
efnið er stórt og því þannig far
ið, að það verður ekki auðsótt
né skjótfenginn árangur. Bænd-
ur þurfa ekki að gera sér gylli-
vonir um hið gagnstæða.
Fátt mun hafa verið ritað um
kal á íslenzku, og um innlendar
rannsóknir á kali er ekki að
ræða. Hið merkasta sem ég man
eftir er grein í 34. árgangi Árs-
rits Ræktunarfélags Norður
lands 1937 eftir Ólaf Jónsson þá
verandi tilraunastjóra. Er grein
sú gagnmerk um það, hvernig
| FYRSTA GREIN [
Ólafur skilgreinir orsakir kals-
ins og gerðir þess. En nú er þar
við bætt, í blaðaviðtölum, og
greinum. Ekki rýrir það samt
grein Ólafs, því að nú er tvennt
tilnefnt sem líklegar orsakir
kalsins (á Austurlandi) sem
hvorugt var fyrir hendi er hann
reit grein sína 1937. Þetta tvennt
er Skerpiplógurinn og Kjarn-
inn'.
Heldur finnst mér snöggsoðið
sumt það, er fram hefir verið
varpað um þessa hluti nú í vor
og sumar. Er það tilefni þess að
ég skrifa greinar þessar. En
Ijóst er mér að ég veit fátt eitt
um þetta mál, og að aðstaða
mín til þess að álykta rétt um
einstök atriði málsins er engu
betri en annarra, síður en svo.
Má því svo fara, að mínar „vill-
ur“ verði eigi betri en hinar
fyrri — sem fram eru komnar.
Vil ég nú víkja að fjórum at-
riðum kal-málsins: Ræktunar-
landinu, jarðvinnslunni, grasfræ
inu o'g áburðinum. Fer með vilja
öfugt að, ræði fyrst um grasfræ
ið og áburðinn, og fer þar frem
ur stutt yfir en síðast um jarð-
vinnsluna. Mun mér verða skraf
drýgst um hana sökum þess, að
þar kem ég inn á mál sem ég
hefi lengi haft mikinn áhuga á
og tel að eigi hafi verið athug-
að sem skyldi, jafnvel fremur
afflutt heldur en hitt. Mál það
er djúpplægirig mýrlendis við
frumræktun landsins.
III.
Grasfræ það, sem notað er til
nýræktar túna á landi hér, er
allt erlent að uppruna, ræktað
erlendis og flutt til landsins.
Langt er síðan farið var að
tala um, að á þessu þyrfti að
verða breyting, við þyrftum að
koma fótum undir ræktun gras
fræs af innlendum stofnum. En
erfiðlega hefir gengið til þéssa
að gera þær óskir að veruleika.
Þegar tilraunabúið á Sámsstöð
um var stofnað — var einn
megintilgangurinn með stofnun
þess, að þar yrðu gerðar tilraun
ir með ræktun grasfræs. ásamt
kornræktartilraunum. Þótt
þessu verkefni hafi verið sinnt
nokkuð á Sámsstöðum, hefir það
svo sem kunnugt er ekki enzt
til þess að koma fótum undir
innlenda grasfrærækt. Að sönnu
hefir verið ræktað dálítið af gras
fræi á tilraunabúinu, en um
framleiðslu sem neinu nemi hef
ir ekki verið að ræða. í því sam
bandi er þó skylt að taka það
fram, að það er alger misskiln-
ingur sem oft hefir orðið vart
við, að á einu tilraun&búi sé
hægt að halda uppi Hramleiðslu
er fullnægi að ve.rulegu leyti
vöruþörf þjóðarlnnar, jafnvel
þótt ekki sé um meira magn að
ræða en grasfræ það, sem vax-
andi nýrækt á búum bænda
krefst.
Framleiðsla á verulegu magni
af einu eða öðru, er ekki verk-
efni tilraunabúa. Þótt betur
hefði til tekist en raun er á
orðin um fræræktun á Sáms-
stöðum, var aldrei réttmætt að
vænta annars meira þaðan en
stofna af grasfræi — takmark-
aðs magns — sem svo þurfti að
fjölrækta annars staðar, svo að
af yrði magn til almennrar sölu
og nota. Þessi hlið fræræktar-
málsins hefur fallið algerlega
dauð niður. Fer saman, að eng-
um bónda hefir til hugar kom-
ið, það er ég veit til, að kaupa
stofn af grasfræi frá Sámsstöð-
um til fjölræktunar með fram-
leiðslu fræs til sölu fyrir aug-
um og hitt, að engra tilburða
hefir orðið vart, frá leiðandi
búnaðaraðilum, til þess að
koma slíkri fjölræktun á lagg-
irnar.
Rúmlega tugur ára mun vera
síðan SÍS hafði uppi ráðagerð
um grasfrærækt eigi alllitla.
Þótti málið til að byrja með
einfalt og álitlegt, enda stóð
Jurtaræktunardeild Búnaðar-
deildar Atvinnudeildar Háskól-
ans að baki þessum fyrirætlun-
um með áætlanir og fræðilegan
stuðning. Er til kom, var málið
þó lagt á hilluna og hefir ekki
til þessa verið tekið upp aftur
á þeim vettvangi. Væri þó
sennilega nokkur ástæða til
þess, að aðstaða í sambandi við
hina stórmyndarlegu ræktun
og grasmjölsframleiðslu SÍS á
Hvolsvelli.
Um nokkurt árabil hefir í
fjárveitingum til Sandgræðslu
íslands verið fastur liður og
ákveðin upphæð: til fræræktar.
Að sönnu eigi mikil upphæð.
Um þá frærækt heyrist mér vit-
anlega ekkert, ekkert á hana
minnst þegar rætt er um fram-
kvæmdir Sandgræðslunnar í
blöðum og útvarpi, svo sem ár-
lega skeður.
Loks er þess að minnast að
Jurtaræktunardeild Búnaðar-
deildar Atvinnudeildar Háskól-
ans hefir nokkur hin síðustu
ár unnið að því að safna stofn-
um af íslenzkum fóðurgrösum
með ræktun grasfræs fyrir aug-
um. Er frásögn af þeim fram-
kvæmdum, vænlegum, orðinn
svo að segja árlegur fastur lið-
ur á dagskrá Ríkisútvarpsins,
og einnig frásagnarefni í dag-
blöðunum. Hér er vafalaust og
því miður um langa og erfiða
sókn að ræða, og ekki sopið kál-
ið þótt í ausuna sé komið. Hug-
myndin mun vera, enda hið eina
ráðlega og fi-amkvæmanlega,
að fá góða stofna frumræktaða
og fjölræktaða erleijdis, þegar
björninn er unninn, stofnarnir
fundnir og frumræktaðir á til-
raunabúi Búnaðardeildar í jarð-
rækt. Enn mun engu skoti hafa
verið komið á björninn svo að
ráðlegt sé að bjóða feldinn til
sölu. Ég endurtek að hér er því
miður ekki um neitt áhlaupa-
verk að ræða, og varla von um
skjótan árangur.
Hvað sem þessu öllu líður
mun sannast sagna að bændur
taka nú að gerast dálítið lang-
eygðir eftir íslenzku fræi góðra
góðurgrasa — grasafræi sem
þeir megi treysta betur heldur
en hinu aðkeypta erlenda fræi
sem hefir þótt reynast misjafn-
ÁRNI G. EYLANDS.
lega, og margt er misjafnt um
sagt, sérstaklega þegar kalárin
koma. Hitt er svo annað mál
hvort allt er af sanngirni mælt
um hið erlenda grasfræ. Hvað
sem því líður er það enn og
verður vafalaust um alllangt
árabil hið eina, sem til er að
tjalda.
Val á hinu erlenda grasfræi
sem inn er flutt mun nú vera
með ráðgjafahætti í höndum
færustu lærdómsmanna. Veit
ég fátt þar um að segja. Til
framfara og sigurs má telja að
nú fæst til landsins hið norska
Tímóteifræ af Engmóstofni
(Vallarfoxgras), sem bezt
reynist í Norður-Noregi. Til
skamms tíma var nægilegt
magn af því torfengið.
En annað vekur ur.drun mína
— mikla. I tilefni af kalinu
eystra fæ ég upplýsingar hjá
SÍS, að hætt sé með öllu að hafa
Háliðagras — Alopecurus — í
fræblöndu þeirri, sem SÍS sel-
ur og ætlað er til sáningar
í nýræktir og á mýrlendi (mýr-
arjarðveg). Hinsvegar sé enn
notað dálítið af Háliðagrasi í
fræblöndu þá sem ætluð er til
notjfcunar í vallendis — þurr-
lendis — jörð. (Hinsvegar mun
Mjólkurfélag Reykjavíkur haga
þessu öfugt).
Þetta tel ég vera alveg með
ólíkindum og fæ ekki áttað mig
á hverju slíkt sætir með fræ-
blöndur SÍS. Háliðagras hefir
alltaf verið talið til þeirra fóð-
urgrasa, sem þrýfast bezt í mýr
arjarðvegi og harðgert með af-
brigðum, þótt það geti að sönnu
þrifist vel einnig við aðrar að-
stæður. Hins vegar er því ekki
að leyna, að sumir búfróðir
menn telja Háliðagrasið hálf-
gerðan gallagrip, og litla sam-
leið eiga með öðrum grösum í
sáðsléttum. Það er miklu snemm
sprottnara en flest eða öll önn
ur grös, (en er það nú galli þeg-
ar bændur eru yfirleitt farnir
að hefja slátt miklu fyrr en áð-
ur var venja?). — Annar galli
Háliðagrasinu er sá, að frjó-
magn fræsins (spírunarprós-
enta) er lítið og framleiðsla þess
einnig af nokkuð skornum
skammti. Er fræið því dýrt í inn
kaupi. Áður var fræ af Háliða-
grasi keypt frá Finnlandi, en nú
mun framleiðsla þess þar vera
orðin lítil og kaup á því þaðan
einnig í Oregon í Bandaríkjun-
um. Varð ég eigi lítið hissa er
ég á ferðalagi þar fyrir nokkr-
um arum sá að Háliðagras var
ein aðalgrastegundin á beitar-
túnum á einu merkasta tilrauna
búinu þar í ríkinu. Kom í ljós
að tilraunastjórinn taldi það hið
ágætasta gras til ræktunar.
Sökum galla þeirra sem hér
hafa þótt loða við Háliðagrasið
hefði ég eigi orðið neitt hissa
þótt fræðimenn þeir sem vita
svo langtum betur en ég vissi,
þegar ég var að gutla við útveg
un og sölu grasfræs hjá S.Í.S.,
hefðu strikað Háliðagrasið alv-
eg út í fræblöndum S.Í.S. En
hitt er mér með öllu óskiljan-
legt að nú skuli það vera notað
í valllendis-fræblöndu en alls
ekki til sáningar í mýrlendis-
flög. Hér held ég að þurfi að
stokka um spilin. Oft hefi ég
hugleitt hvort ekki gæti verið
ráðlegt að sá eingöngu Háliða-
grasi í sum marflötu mýrlendis-
flögin sem verið er að rækta
illri hraðræktun? Mér er spurn,
er völ á nokkurri annarri fóður-
jurt, sem fræ er keypt af frá út
löndum, sem líklegri er til að
standast kalhættuna, og er jafn
harðdugleg við að ná sér aftur
á strik þótt hún verði fyrir á-
föllum. — Já ég held að þeir
lærðu menn sem hafa dæmt Há
liðagrasið úr leik í fræsölu SÍS
og við ræktun mýranna okkar
ættu að endurskoða úrskurð
sinn, það gæti forðað mörgum
bóndanum frá illum bússifjum
— dregið úr kalhættunni.
Þetta rabb mitt um grasfræ
upplýsir held ég nægilega, að
því miður á það enn langt í
land að bændum verði forðað
frá kalhættunni með þeim hætti
að þeir eigi völ á grasfræi af inn
lendum uppruna, af svo harð-
gerðum stofnum, að gras sem
upp af því sprettur standist „fár
og fellivetur“. Enn um sinn er
eigi um aðra kosti að velja en
að vanda val á hinu innflutta
grasfræi eftir því sem reynsla og
fræði frekast leyfa. Efast víst
enginn um að svo sé gert, en
nýtt kemur stöðugt til og þarf
því að hafa auga á hverjum
fingri, nálgast hið nýja og reyna
það.
Andúð á erlendu grasfræi er,
eins og nú standa sakir, ekkert
annað en að berja höfðinu við
steininn á hinn heimskulegasta
hátt. Samanber þegar orð eru
látin liggja að því í víðlesnu
blaði nýlega að máske væri á-
stæða til þess „að banna inn-
flutning á erlendu grasfræi“ —
„nú, þegar sáðsléttur eru hvítar
af kali, en bithaginn í kring
fagurgrænn.“
Nýræktarbændum mun hollt
að minnast þess að „ekki eru
allar syndir Guði að kenna“. —
Grasfræið erlenda er oft ekki
eitt um sökina þegar illa fer.
Sumt getur verið óviðráðanlegt
það sannar kal í gömlum túnum
þegar verst fer. Ágallar á rækt-
uninni geta átt sinn mikla þátt
í að auka kalhættuna. Siíkt á
að vera hægt að fyrirbyggja með
aukinni kunnáttu og.verkmenn-
ingu við ræktunarstörfin.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
hátíða um þessar mundir, og er
margt um þær að segja. En
einna eftirtektarverðast mun
það vera, að almenningur skuli
fremur kjósa að hlusta á þá,
sem herma eftir stjómmála-
görpunum, en að heyra þá
sjálfa flytja boðskap sinn. Að
vísu er þetta ekki án undan-
tekninga, en auglýsingar Sjálf-
stæðismanna, sem upp voru
hengdar hér á Akureyri og víð-
ar í sambandi við héraðshátíð-
ir flokksins nýlega ,undirstrik-
uðu betur en mörg orð, hve
„fagnaðarboðskapur íhaldsins"
er lítils metinn í þeim herbúð-
um. Á auglýsingunum vom
myndir af þeim, sem léku fyrir
dansi, en ræðumenn voru ekki
einu sinni nafngreindir. Þetta
dæmi er ekki einstakt og gefur
til kynna, hvar stjómmálaflokk
arnir, með allan sinn áróður,
eru á vegi staddir. □
0»<HKHKHKH5ÍHKBKBKHKHKHK8KHKHKHKHJIKBJ<H>««Í«HK«HKH5
I RONALD FANGEN 1
| EIRÍKUR HAMAR |
| Skáldsaga g
<HJ<HJSHSÍHKHJ<HJ<HK 57 KHSÍHJÍHJÍHSÍBJÍHJÍHJ
— Þú veizt ekkert um mig, Eiríkur.
— Hvað sem ég vissi, þá breytir það engu. F.g hefi þekkt
þig síðan þú varst smátelpa. Ég get gagnskoðað eðli þitt.
Ég man þig svo vel er þú sazt í herberginu mínu og sagðir
að þú skyldir ráðstafa öllu fyrir Níels, og þú hafðir svo
hugrakka angist í röddinni, — ó hve þú varst þá lítil stúlka,
Astríður, og stolt mannvera. — Ég sá þig grátandi við gröf
Níelsar. Það var svo sárt, svo sárt að upp frá þeim degi lok-
aði ég allt úti. Ég stóðst það ekki að raunverulegt lífið gæti
verið svo örvæntingarþrungið. Og ég neyddi mig til að
gleyma þér, og öllu sæmilegu í lífinu, og hefi því verið
heyrnarsljór og blindur þorpari og þrælmenni alltaf síðan
í mörg ár. En sarnt veit ég allt um þig. Og mér er Ijóst að
þú ert verra særð og þjáð en nokkur annar.
— Þú veizt ekki að ég hef haft samfarir við brezkan pilt.
— Nei, hann vissi það ekki, en hann hefði hugsað sér
það, eða var ekki svo? Hann sagði:
— Jú, ég hef víst vitað það, nokkurnveginn.
— Nei, þtt veizt það ekki. Og að ég elskaði hann og var
svo ástfangin, að ég varð alveg blind, þegar ég sá hann.
Eiríkur dáðist óvænt að sjálfum sér: rödd hans var alveg
eðlileg:
~ Hvernig fór þetta svo út um jrúfur, Ástríður?
— Hvernig ætti ég að vita það, Hann fór víðs vegar um
borgina og flakkaði með öðrum stúlkum. — Hversvegna
ætti ég að liafa nokkrar skyldur við þig, heimska norska
stúlka, sagði hann, þegar ég varð alveg frá mér af örvænt-
ingu. — Ekki get ég gert að því, að þú elskar mig!
Það fór sterkur skjálfti um Eirík allan, en hann varð að
minnsta kosti að fresta að hugsa um þetta.
— Aumingja Ástríður, tautaði hann, æ blessuð. En þú átt
að lifa fyrir því, Jrótt hann ætti skilið að vera skotinn! Þú
ert söm og áður. Þú ert jafn indæl manneskja. Og þú skalt
verða hamingjusöm.
— Nei, ég er ekki söm og áður. Það er engin ást til í mér
framar. Engin trú. Ég veit alltof mikið.
— Þú mátt trúa því, að ég skil þetta, sagði Eiríkur. En
þú sem ert svo skynsöm verður að skilja —. Æ nei, ég skal
ekki Jrjá þig og Jrreyta.
— Segðu Jxað bara, Eiríkur.
— Já, hugsaðu Jrér, að sökum alls ills og smánarlegs sem
Jui hefir orðið að reyna, Jrá er ekki nema eðlilegt að J>tT
teldir, að allt lífið væri klúrt og andstyggilegt, og allir karl-
menn dónalegir ruddar. Já, Jrú skilur: Slík veraldar-víða-
vangs bölsýni og' beiskleiki sem hvarvetna veður uppi, einn-
ig í bókmenntum, þar sem allt að því er velt sér í öllu þvi
sem illt er og andstyggilegast, J>ví meiri sem vonbrigði aðila
eru. Það tekur ekki langan tíma. Því Jregar manni virðist
að nú sé engin von framar, og þegar hann hefir beðið
ósigur hvað eftir annað á þeim vettvangi, þar sem hann
hafði sett að veði trú sína og beztu tilfinningar, — já, þá er
sem kveðji maður bæði von og trú og tilfinningar. Og Jrá er
aðeins eitt stórt og mikilvægt að treysta á: að vera sannur,
— eða viljir þti heldur: viðurkenning sannreynslunnar. —
Ég veit ekki hvort Jrú skilur við hvað ég á?
— Jú, ég skil Jrað vel.
— En þá hefir Jressi viðurkenning reynslunnar þegar öðl-
ast eitthvað til að fylgja fram á við. Sannleiksástin hefir
fengið hjól og teina. Þannig er það samkvæmt þessu að
maður telur, að Jrað sem maður hefir sjálfur kvatt og varp-
að frá sér, það sé ekki satt, Jrað hefði reynzt ónothæft. En
Jrá verður Jrað heldur ekki raunverulegt og ekki satt. Og
hvað svo sem maður hefir sjálfur misst, þá má ekki segja,
að Jrað sem ég hefi misst, Jaað sé ekki til.
— Já, en Jrað er heldur ekki Jxannig með mig, sagði Ást-
ríður stillilega, og Jress vegna er ég hjúkrunarkona.
~ Þú átt við að fyrst Jrað hafi gengið svo skrykkjótt með
Jrín eigin málefni, já, Níels líka og Jretta hitt. . . .
— Já, sagði Ástríður hægt og hljótt, — fyrst ég fékk ekki
að elska svo að segja úti í náttúrunni, — mér liggur við að
brjálast, þegar ég hugsa um vorið heima ~ og marga vegi
og stígi upp að Hólmakolli, — ég megna ekki að hugsa til
þess. En síðan varð ég að dragsa leifunum af sjálfri mér
hingað inn, því að hér má Jró telja sér trú um, að algerlega
vélrænt geri rnaður eitthvað gott. Auðvitað er maður ekki
fyllilega með í þessu, skilurðu, en Jró réttu megin. Og þess-
vegna er--svo örvilnandi, verði ég að hætta. Þá fellur allur
stuðningurinn utan af mér. Því ég alein mun bruna af stað
á hjólum og teinum, eins þú segir, — og verða reyk-sót-
löðrandi svört. ~ Fengi ég bara að rölta hérna, unz öllu
rnínu væri lokið, Jná hefði ég Jró staðið mig svona nokkurn
veginn.
— Góða bezta Ástríður. En þetta verður allt öðru vísi,
J^egar þrt kemst aftur til kraftanna.
— Nei, heyrirðu. Það. er ekki aðeins, að ég áræði ekki
framar. En ég trúi ekki, einmitt þegar ég er sönn, eins og
þú sagðir, þá trúi ég ekkí, annaðhvort er mannkindin of
veik, eða þá er þetta einhver eitruð ölvandi andstyggð allt
saman.
— Já, en Jrað er Jretta sem ég tel að ekki sé leyfilegt að
segja, þrátt fyrir sterka..persónulega reynslu. Því að til eru
þó. mannkosta mannverur og ást og heiður og hamingja.
Já, auðvitað er ef til vilk hægt að plokka þetta sundur og
finna marga galla í byggiögunni, allar svonefndar glapsýnir
og tálvonir og blekkingar og margt þess háttar, sem svo
mjög er fyrirlitið. Og hægt er að segja: Allar manneskjur
eru gerðar, eða gera' sig sjálfar úr sama efni, og efnið get-
um við greint óg allt Jress háttar. En látirðu tvo húsasmiði
byggja úr sama éfni, ]i>á byggir annar þeirra þrælgisinn
skúrhjall, sem fúnar inttan skamms, — en hinn. . . .
— Já, það er satt, greip Ástríður framí. En við höfum
ekkert annað en okkur sjálf að miða við. Lífið getur ekki
verið mér neitt annað en Jrað er, eða hvað?
— En hugsaðu Jrér bara, hve það er mismunandi fyrir Jrig
sjálfa! Hvað er til dæmis satt, — að lífið sé eins og mér
virtist það vera, þegar ég gekk heim og stritaði látlaust öll
árin sökum þess, að ég vildi ekki hugssa, — vildi ekki hugsa
vegna þess að ég var móðgaður, sár og gagntekinn út af því,
að það var ekki ég, sem þú elskaðir. Og sokum þess var allt
svo Jrröngt og lokað, að ég gat mig hvergi hrært. Eða })á
nú, Jregar ég héfi skilið allt Jretta og finnst ekkert annað
vera að um allt Jretta, en að Jrú ert veik.
Ástríður brosti:
— Jæja, hver veit nema Jrér hafi liðið jafnilla heima sem
mér hérna á sjúkrahúsinu.
~ Já, Jrað er alveg satt og víst. En mér fannst ekki vera
nein umgerð, sem héldi mér uppi, — heldur fannst mér
sem einhver liefð'i lokað mig inni og fleygt burt lyklinum.
~ Það stafar sennilega af Jrví, að Jrú Jrekktir ekki allt
Jretta. En það Jrekki ég og veit.
Hún lá kyrr og sneri höfði frá honum, hann sá aðeins
hár hennar og aðra kinnina og lítið eitt af bráhárum henn-
ar Jreim megin. Hjarta hans varð svo sárt og viðkvæmt
vegna þess, að hér lægi hún raunverulega veik og berðist
við þessar erfiðu hugsánir.
— Veiztu hvað, Ástríður, sagði hann, að Jregar þú ert
svona hárviss, kenni ég í brjóst um þig. Manstu þegar Jiú
komst upp til mín og talaðir um Níels? Þú varst svo hárviss,
— og hve ég kenndi í brjóst um Jrig! Þá sagðirðu nii annars
líka, að ég vissi ekki eða skildi ekki eða eitthvað Jress háttar.
Og J^á varð ég svo dapur og hnugginn. Fannst mér skákað
útfyrir, og ég verða utangátta. En nú finnst mér það alls
ekki. Þvf nú veit ég samt sem áður meira en þú og betur.
Ástríður sneri höfði og leit á hánn.
— Gerirðu það, góði Eiríkur? Þú ert meir en smáskrít-
inn náungi að sitja hér og spjalla heimspeki við mig. ~ En
nú held ég þú verðir að fara, ég er talsvert Jrreytt, enda hef
ég skælt svo mikið í dag, skal ég segja Jrér.
— Já, nú fer ég. Öfundarðu mig ekki, sem get farið út í
indæla hlýja vorloftið og horft á trén og blómin?
— Nei, það geri ég víst ekki. En fengi ég að sofa tólf
klukkustundir í einum dúr, Jrá myndi ég öfunda sjálfa mig.
— Þú skalt fá að sofa í.tólf stundir, ég skal sjá um Jiað.
— Þakka þér fyrir.
Eiríkur leit inn til foréldra Ástríðar nokkrum sinnutn
síðdegis. Móðirin var venjulega fremur skrafhreifin. Storm
var oftast þögull, en þögn-hans olli Eiríki ekki framar neins
hugarangurs né leiða.
Einn daginn stakk hann allt í einu upp á Jrví við Eirík,
að Jreir skyldu bregða sér ofan í Lilas og fá sér einn apéritíf,
frúin væri Jrreytt og hvíldi sig, og miðdegisverður yrði ekki
tilbúinn næstu tvo tímana.
Á leiðinni ofan eftir sagði Storm Eiríki, að eiginlega
drykki hann ekkert að ráði, en hann sagðist alltaf hafa ver-
ið gefinn fyrir ofurlítinn eiturdropa, svona síðdegis, sem
nefndur væri Arner Picon, — hvort Eiríkur hefði bragðað
Jrað?
Eiríkur sagðist yfirleitt vera mjög ókunnur slíkum eitur-
dropum.
Þá skyldu Jreir reyna það núna.
Storrn skemmti sér vel, er hann sat undir nýlaufguðum
trjánum og hafði fengið dropann sinn. Hann sagði Eiríki
frá öllum listamönnunum sem hér hefðu verið á ferli í
, (Framhald).