Dagur - 11.08.1965, Page 8
8
VEGURINN frá Ólafsfirði er kominn á sýslumörkin, Ófærugvá og sýnist glæfralegur af sjó. —
Háít uppi í Múíanum sést móta fyrir veginum. (Ljósm.: E. D.)
SMÁTT OG STÓRT
NÝTT HÚS Pósts og síma á Þórshöfn. (Ljósm.: D. E.)
TUGIR LAMBA VIÐ EITT GRENI
Mikið tjón hjá bændum af völdum tófunnar
Klausturseli 4. ágúst. — Vorið
var fremur þurrt og kalt fram
an af, en hlýnaði 22. maí og var
æði lengi hitablíða, en úrkomu
laust og þar af leiðandi fór
gróðri lítið fram. Sauðburður
gekk víða afburða vel, svo van-
höld hefðu engin orðið, hefði
tófa ekki verið, en hún hefur
víða höggvið skörð og skert tekj
ur sauðfjárbænda. Sem dæmi
má nefna, að á einu greni, sem
nú fannst í fyrsta sinn, voru á
mihi 30 og' 40 nýir lambaræflar
og má reikna það á 30 til 40 þús.
kr. og á bæjunum í Hrafnkells-
dal þ. e. Aðalbóli og Vaðbrekku
fundust 5 kindur fullorðnar
drepnar eftir tófu þegar smalað
var til sauðburðar.
Kalskemmdir eru víða tölu-
vert miklar í túnum og annað
hefur vaxið illa vegna ofþurrka,
svo heyskapur er víða nýlega
byrjaður. Uppgjöf virðist engin
hjó bændum, þótt hætt sé við að
Misjöfn spretta í SkagafirSi
Frostastöðum, 28. júlí. Þrátt fyr
ir fremur þurrt og kalt vor og
því síðbúna sprettu byrjaði slátt
ur þó víða vonum fyrr hér
frammi í héraðinu. Munu menn
almennt hafa byrjað að bera
niður um mánaðamótin júní-júlí
og þeir fyrstu þó um það bil
viku fyrr. Var þá þurrkur dag
hvem og þornaði hey eftir hend
inni þótt kalt væri raunar löng
tun, enda norðanátt ríkjandi.
Laugardaginn 10. júlí brá hins
vegar til sunnanáttar og fylgdi
úrkoma og hlýindi. Leið næsta
vika svo, að lítt eða ekki tókst
að þurrka hey, enda rigndi eitt
hvað flesta daga. Þó mun allflest
Með fjóra einkaritara
SÍMON SPIES, hinn frægi og
ríki ferðaskrifstofueigandi kom
hingað til lands fyrir nokkrum
dögum ásamt venjulegu föru-
neyti. Hann lagði m.a. leið sína
til Mývatnssveitar. Á Akureyr
arflugvelli lét hann færa sér
þykka, íslenzka prjónahúfu og
setti hana upp áður en hann
steig inn í áætlunarbílinn. Sím
on Spies hefur alltaf fjórar ung
ar og fríðar konur með sér,
hvert sem hann fer, og svo var
að þessu sinni. Það eru einkarit
arar hans. Þennan dag var mjög
hlýtt i veðri.
Sagt er, að ferðaskrifstofa Sím
onar flytji árlega um 75 þús.
Skandinava í sól og sumar Mið
j arðarhafslandanna.
um hafa þótt tilvinnandi að fá
þennan óþurrkakafla því að sam
fara úrfellinu voru hlýindi mik
il svo að sprettu fleygði fram,
en hún mátti víða ekki minni
yera áður.
Undanfarna hálfa aðra viku
hefur aftur á móti ekkert rignt
og síðustu daga verið drifa
þurrkur en hinsvegar kalt og
það jafnvel svo, að frost hefur
(Framhald á blaðsíðu 7).
fækka verði bústofni að ein-
hverju leyti. Margir hafa notað
tímann til að byggja meðan ekki
var hægt að fara að slá. Það er
verið að byggja hlöður, fjárhús,
Ijúka við að gera íbúðarhæft
hús á einum bæ og byrjað á íbúð
arhúsi á einu nýbýli og verið er
að byrja á íbúðarhúsi á öðrum
bæ. Nýbýli er byrjað að reisa á
sveitarmörkum Jökuldals og
Jökulsárhlíðar og eru það ung
hjón, sem hafa bæði unnið í
banka. Ræktun mun verða með
meira móti í sumar ef jarð-
vinnslutæki fást til að anna því
sem fyrirhugað er að gera.
A. m. k. 4 díeselrafstöðvar er
verið að setja upp, tvær af þeim
eru þegar komnar í notkun, önn
ur bæði til Ijósa og fyrir súg-
þurrkun.
Verst gengur að fá rafvirkja
til að vinna að uppsetningu
stöðvanna og leggja í húsin. —
Við erum bara svo heppin hér
í sveit að Björn Þorkelsson raf
virki hjá KEA er fæddur
Jökuldælingur og kemur hingað
í sumarfríinu sínu og þá misk-
unnar hann sig yfir gamla sveit
(Framhald á blaðsíðu 7).
KASTAÐI í SUNNLENZKAN
BÆJARLÆK
Norðlendingur einn var á ferð
um Suðurland og hafði veiði-
stöng „í skottinu“ eins og marg
ra veiðimanna er siður í sumar-
ferðum. Á einum stað kom hann
að stórum læk eða ársprænu.
Datt lionum nú stöngin í hug.
Ekkert sást til bæja eða manna
ferða svo hægt væri ón fyrir
hafnar að fá leyfi til veiða. —
Manninum sýndist heldur ekki
lækur þessi þannig, að þar væri
um verulega veiði að ræða —
tók nú stöng sína og brá öngli í
vatn. — Það gerðist ekkert ann
að en það, að á næsta viðkomu-
stað ferðarinnar bíða mannsins
yfirheyrslur og síðan kæra og
sektir. Lækurinn góði, sem hann
sjálfur nefndi svo, var raunar
þekkt laxveiðiá!
FESTI BÍL Á FLÓTTANUM
Það bar nýlega við á Norður-
landi, við kunna veiðiá, að þar
kom óboðinn gestur og fór að
veiða, leyfislaust. Þegar veiði-
menn, er veiðirétt áttu þama
þennan dag, komu á vettvang,
tók hinn óboðni til fótanna að
bíl sínum og ók brott á mikl-
um hraða. En brátt sat bíllinn
fastur á hraunnibbu. í honum
sat maður að sunnan og ekki
upplitsdjarfur!
SIGURFRÉTTIR MOGGANS
Málgögn Sjálfstæðisflokksins
grobba nú eins og stríðsaðili,
sem er á undanhaldi á vígvíll-
unum. Sigurfregnimar eru birt-
ar í stað hinna sönnu fregna um
ófarir og afhroð. Slíkar fréttir
eru ætlaðar til „heimabrúks“
og eiga að hugga langþreytt
fólk, sem langar til að geta trú-
að sigurfréitum.
HIN MIKLA SÓKN!
„Sókn“ núverandi ríkissjórnar
er m. a. fólgin í 230 millj. kr.
greiðsluhalla á rikisbúskapnum
á árinu, sem leið, sífelldum
ófriði og skæruhemaði á vinnu-
markaðinum, vaxandi dýrtíð og
ógildingu bráðabirgðarlaga, er
stjórnin setur að Alþingi for-
spurðu og heykist svo á að
framkvæma þegar á reynir. —
„Sókn“ stjórnarinnar er líka
fólgin í því, að hafa orðið að
taka upp kauptryggingu gegn
vilja sínum og ganga til samn-
inga við stéttarfélögin um breyt
ingar á löggjöf landsins, sem
hún áður var búin að Iáta liðs-
menn sína fella á Alþingi.
UNDIR JARÐARMEN
Forsætisráðherra hefur í seinni
tíð orðið að ganga undir jarðar-
men svo mörg að furðu gegnir
á svo skömmum tíma. Fyrir
nokkrum árum kallaði hann
það hneyksli hjá vinstri stjórn-
inni að háfa samráð við atvinnu
stéttir um fyrirhuguð úrræði í
efnahagsmáluni, í því skyni að
skapa um þau samstöðu. Nú er
komið sem komið er, og forsæt-
isráðherrann reynslunni ríkari.
En sú reynsla hefur orðið þjóð-
inni dýr.
RÁÐUNAUTUR TÝNDIST
Það er táknrænt fyrir undan-
hald ríkisstjómarinnar og stefnu
leysi hennar, að ráðunautur
hennar í efnahagsmálum er fyr-
ir Iöngu farinn úr Iandi. Er ekki
með vissu vitað, hvort hann
hefur sjálfur sagt upp vistinni
eða þjónusta hans verið afbeð-
in. En ekki er ólíklegt, að hag-
fræðingur þessi, sem er maður
hreinskiftinn, hafi talið, að rík-
isstjóm, sem þannig er ástatt
um, ætti að gefa öðrum kost á
að reyna nýjar leiðir, og hann
hafi ekki kært sig um, að vera
vaktmaður á strandfjöm „við-
reisnarinnar“. Hitt er svo stað-
reynd, sem ekki verður um-
flúin, að ráðherrar en ekki hag-
fræðiráðunautar hafa vald til
að ákveða stjómarstefnu og
bera ábyrgð á henni, enda óvíst
að hve miklu leyti hefur verið
að „ráðum“ farið í einstökum
atriðum.
SUMIR AÐ HÆTTA —
AÐRIR AÐ BYRJA
Síðustu daga hafa einstöku
bændur frammi í Eyjafirði ver-
ið að hirða seinni sláttinn, jafn-
vel það síðasta af honum. En
þar mun vélakostur eins full-
kominn og völ er á. Á sama
tíma eru bændur á Langanesi
að hefja heyskapinn og sumir
mjög skammt á veg komnir. En
þar hefur löngum verið kalt í
veðri í sumar og sprottið mjög
seint.
HÉRAÐSHÁTÍÐIR STJÓRN-
MÁLAFLOKKA
Víða um land efna stjórnmála-
flokkar til svokallaðra héraðs-
(Framhald á blaðsíðu 5).
NORÐURLANDSMÓT
í f r jálsum íþróttum
NORÐURLANDSMÖT í frjáls-
um íþróttum fer fram á Laug-
um S-Þingeyjarsýslu 21. og 22.
ágúst n.k. og hefst kl. 4 e. h.
fyrri daginn. — Þátttökutil-
kynningar berist til Óskars
Ágústssonar Laugur fyrir 15.