Dagur - 21.08.1965, Síða 5
4
5
----------—V
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Vanþekkingin er
móðir fátæktarinnar
AÐ ÞVÍ var vikið í síðasta leiðara,
hve bændur hefðu lyft þjóðfélaginu
bæði andlega og efnalega. í andleg-
um efnum vegna forystu sinnar í þýð
ingarmestu þjóðmálum og í verald-
legum efnum með því að fæða lands
fólkið allt að verulegu leyti og leggja
því til æskufólk í flestar eða allar
starfsgreinar. Dr Halldór Pólssosi
búnaðarmálastjóri ræddi þessi mál
viturlega á eyfirska bændadeginum
fyrir skömmu. Hann sagðist ekki ótt
ast það mjög, að svo yrði kreppt að
bændum efnalega, að þeir fengju
ekki undir risið. Annað væri meira
áhyggjuefni í sínum augum. — Eitt
mesta vandamál landbúnaðarins,
sagði ræðumaður, eru erfiðleikarnir
í menntun æskufólksins í fjölmörg-
um sveitum landsins. Bændastéttin
verður að gæta Jjess að dragast ekki
aftur úr í þeim efnum. Hver maður
þjóðfélagsins á rétt á menntunarað-
stöðu, en aðstaðan er víða erfið fyrir
þá, sem í sveitum búa.
Bændasynir og bændadætur geta
lært af foreldrum sínum og tekið við
af þeim. En ef við það eitt er miðað,
stöðvast framfarir og eðlileg þróun
þessarar atvinnugreinar. Og sveita-
fólkið, sem í þéltbýlið flytur, unir
því ekki að vera verr menntað en
annað fólk. Á þetta er bent vegna
þess, að þrátt fyrir skóla og fræðslu
löggjöf, verður fjölmargt ungt sveita
íólk að vera án skólamenntunar
vegna þess að skóla vantar. Þetta er
jafnvel svo hér í Eyjafirði, sagði ræðu
maður. En dr. Halldór Pálsson hefur
áður gert grein fyrir þeirri skoðun
sinni opinberlega, að þjóðfélaginu
bæri siðferðileg skylda til þess að
styrkja þau ungmenni sérstakfega,
sem erfiðasta menntunaraðstöðu
hafa, til að jafna aðstöðumuninn. —
í ræðu sinni á bændadeginum minnti
búnaðarmálastjórinn á, að vanþekk-
ingin væri móðir fátæktarinnar, svo
sem sýndi sig um allan heim. Það
mætti ekki koma fyrir íslenzka
bændastétt, að menntunarskortur
yrði henni fjötur um fót, og ætti
hann þar bæði við hina almennu
skólamenntun og verkmenntun.
Eyfirðingar og aðrir ætlu að hug-
leiða vel þessi orð búnaðarmálastjóra
og gera sér jafnframt ljóst, að þjóð-
félagið færir okkur ekki skóla nema
kappsamlega sé að unnið heima fyrir.
En það er ástæðulaust að una þeim
hlut, að einnig jafnréttisaðstaða til
menntunar skuli af bændastéttinni
tekin. Slíkt má bændastéttin ekki
láta bjóða sér.
ÓLAFUR GUNNARSSON, SÁLERÆÐINGUR:
HÆFSLEiKAR 06 SKAP6ERÐ
TVENNT þurfa allir, sem velja
sér ævistarf öðru fremur að
hafa í huga. Annarsvegar um
hvað er hægt að velja í þjóð-
félaginu. Hinsvegar hvernig
hæfileikar einstaklingsins sam-
ræmast hinum ýmsu störfum.
Mikilvægt er, að hæfileikar
og starf séu í sem nánustu sam-
ræmi hvort við annað.
Starf, sem ekki gerir nógu
miklar kröfur til hæfileika
mannsins verður fljótlega leiði
gjarnt og skapar ekki þá vinnu
gleði, sem hverjum heilbrigðum
manni er eðlileg.
Starf sem er vandasamarg en
svo 'að hæfileikar einstaklings-
ins séu í samræmi við það er
jafn óheillavænlegt. Maðurinn
verður þá sí og æ að leitast við
að gera meira en hann getur, en
það leiðir óumflýjanlega til
margskonar ósigra. Osigrar hins
getulitla manns skapa oft þegar
tímar líða vanmetakennd, sem
einatt grefur undan lífsham-
ingju manna og getur jafnvel
orðið hættuleg geðheilsu þeirra.
Munur á almennri greind
manna er mjög mikill. í greind
arstigum fræðilega séð allt frá
0—200, en meðalgreind er mið-
uð við töluna 100. Meira en
helmingur mannkynsins hefur
því sem næst meðalgreind. Ör-
fáir svo litla hæfileika, að þeir
verða ekki mældir. Fólk á svo
lágu greindarstigi nefnist örvit
ar og er alla ævi ósjálfbjarga
með öllu. Jafnfáir skara langt
fram úr öðrum hvað hæfileika
snertir. Þeir verða oftast, af
skapgerðarþroski er í hlutfalli
við greindina, afburðamenn á
einhverjum sviðum.
Til þess að ganga úr skugga
um hvar þú ert í greindarstig-
anum verðurðu að ganga undir
gáfnapróf, en þau hafa aðeins
sálfræðingar tæki og kunnáttu
til að framkvæma. Hér á landi
eru svo fáir sálfræðingar, að
mjög fáir eiga þess kost að láta
mæla greind sína hjá þeim, —
Flestir verSa því að leita ann-
arra ráða til þess að gera sér
grein fyrir hæfileikum sínum.
Beztu ráðin til þess að komast
nærri réttu mati á náms- og
starfshæfileikum er að athuga
námsárangurinn í hlutfalli við
námsástundun, og starfsárang-
ur í hlutfalli við áhugasvið.
Kennarar þínir og skólastjór-
ar eru yfirleitt beztu og hlut-
lausustu ráðgjafarnir, sem þú
getur ráðfært þig við með tilliti
til náms- og starfsvals, en auk
þeirra er eðlilegt að þú leitir
ráða fagmanna á ýmsum svið-
um og að sjálfsögðu foreldra
þinna.
Því miður kemur það stund-
um fyrir, að ástríkir foreldrar,
sem allt vilja fyrir börnin sín
gera, telja þau á að velja sér
námsbraut, sem ekki- samræm
ist hæfileikum þeirra. — Slíku
námsvali fylgir oft mikil óham
ingja. Þegar verst gegnir eyða
unglingar fleiri árum í að stunda
nám, sem þeir ráða ekki við og
hafa engan eðlilegan áhuga á.
Stundum liggur ósigurinn fyrir
fram í augum uppi öllum nema
unglingnum sjálfum og hans
nánustu. Betri og einlægari sam
vinna heimila og skóla hefði oft
getað komið í veg fyrir ósigr-
ana. Þess vegna skaltu í fullri
einlægni ræða við þá kennara,
sem þú þekkir bezt og treystir
fullkomlega.
Þótt einkunnir á prófum skól
anna séu mikilvægur leiðarvís
ir hvað val framhaldsnáms og
ævistarfs snertir, er þeim ekki
alltaf treystandi. Ovenjumikil
iðni eða vanræksla í námi geta
■haft þau áhrif á prófeinkunnir,
að þær gefi ékki rétta hugmynd
um hina raunverulegu getu
nemenda.
Ekki má heldur gleyma því,
að áhugi manna og hæfileikar
beinast að mjög mismunandi
efnum. Sami maðurinn getur
skarað fram úr á einu sviði en
verið skussi á öðru.
Greindarstig mannsins og
ekki síður sérhæfileikar hans
ráða miklu um velgengni hans
í lífinu. Samt sker greindin ein
aldrei úr um það hversu nýtur
hver og einn verður í starfi. í
því efni ræður skapgerðin miklu
og oft og einatt meiru en gáf-
urnar.
Allir sem náð hafa fullorðins
aldri þekkja menn, sem þrátt
fyrir góða greind komast ekk-
ert áfram í lífinu. Brotalamir í
skapgerð þeirra verða þeim
fjötrar um fót þannig að þeir
verða sjálfum sér verstir og sjálf
skaparvítin eru verst.
í skólum þar sem starfs-
fræðsla er orðin námsgrein get-
ur það orðið efni í miklar og
gagnlegar samræður innan
bekkjanna, hvaða skapgerðar-
brestir standa lífshamingju
manna mest fyrir þrifum. Er
það hyskni, leti, sérhlífni, þol-
leysi, hringlandaháttur, bráð-
lyndi, kæruleysi, tillitsleysi
gagnvart öðrum eða óáreiðan-
leiki í orði eða verki svo aðeins
nokkuð sé nefnt, sem fyrr eða
síðar leiðir til ófarnaðar í lif-
inu.
En jafnframt er sjálfsagt að
gera sár grein fyrir hvaða eig-
inleikar eru veigamiklir þættir
í heilsteyptri skapgerð.
Þar má nefna góðlyndi og
glaðlyndi, jafnaðargeð, stefnu-
festu, iðni, samvizkusemi, áreið
anleika og fleira.
í stuttu máli má segja, að sá
sem ber virðingu fyrir sjálfum
sér verði oftast farsæll maður,
því sjálfsvirðingin forðar honum
frá óhappaverkum og skapar
virðingu hjá öðrum.
Þetta geturðu athugað betur
með því að lesa ævisögur nokk
urra beztu manna sögunnar.
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
lagsins Hlífar. Öilum ágóða
varið til fegrunar við barna-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í bókabúð Jóhanns Valde
marssonar og hjá Laufeyju
Sigurðardóttur Hlíðargötu 3.
Gitendur Ásmundsson hrl.
MINNING
i
GUÐMUNDUR Ásmundsson
hæstaréttarlögmaður verður
jarðsunginn í Reykjavík í dag.
Hann lézt af slysförum að
kveldi sunnudagsins 15. ágúst,
41 árs að aldri.
Guðmundur var sonur próf.
Ásmundar Guðmundssonar bisk
ups og frú Steinunnar konu
hans. Hann lauk stúdentsprófi
við Menntaskólann í Reykjavík
1942 og lögfræðiprófi frá Há-
skóia íslands fjórum árum síð-
ar. Meðan hann enn var í skóla
voru honum falin félagsleg trún
aðarstörf, svo sem formennska
stúdentaráðs. Á þeim árum starf
aði hann einnig sem blaðamað-
ur við góðan orðstír.
Að námi loknu varð hann lög
fræðingur Sambands íslenzkra
samvinnumanna og fram-
kvæmdastjóri Vinnumálasam-
bands samvinnufélaga frá stofn
un til dauðadags, samtals 14 ár.
Meðal starfa hans voru samn
ingagerðir af ýmsum toga, t.d.
í kjaradeilum. Þar ávann hann
sér fágæts trausts og vinsælda,
enda nutu hæfileikar hans sín
vel þar.
Guðmundur Ásmundsson var
skarpgáfaður maður, fljótur að
átta sig á kjarna hvers máls, tal
inn með lögfróðustu mönnum
landsins þótt ungur væri. og var
orðinn hæstar’éttarlögmaður að
eins 31 árs gamall. Hann var
glæsimenni í sjón, hið mesta
prúðmenni í allri framgöngu og
hvers manns hugljúfi. Hans er
því sárt saknað, ekki aðeins af
hinum nánustu, heldur af öll-
um, sem þekktu hann. Alveg
sérstaklega munu samvinnu-
menn um land allt minnast Guð
mundar Ásmundssonar og giftu
ríkra starfa hans, með virðingu
og þökk.
Guðmundur var kvæntur
Hrefnu Magnúsdóttur Kjærne-
sted og áttu þau þrjú börn, tvo
syni og eina dóttur, sem braut
skráðist í vor frá Menntaskól-
anum á Akureyri. Þeim og öðr
um ástvinum hins látna sendir
blaðið innilegar samúðarkveðj-
ur. E.--D.
SÍNAR 21. kappreiðar hélt
hestamannafélagið Stígandi í
Skagafirði, á Vallarbökkum,
sunnudaginn 18. júlí s.l., í mik-
illi veðurblíðu og við fjölmenni
meira en oftast áður og þarf þó
sízt yfir því að kvarta, að kapp-
reiðar félagsins hafi ekki ætíð
áður verið ágæta vel sóttar.
Dagskráin á skeiðvellinum
hófst með því, að allmargir
menn riðu hópreið, 2—3 ferðir,
eftir vellinum. Tuttugu og átta
hestar voru skráðir til keppni
í stökki, en af þeim forfölluð-
ust 5, svo að alls hlupu 23 hest-
ar.
Fara hér á eftir úrslit í ein-
stökum hlaupum.
Folahlaup, 250 m:
1. Gola, jörp, 5 vetra, eig. Pét
ur Steindórsson, knapi Sverrir
Sverrisson, 19,6 sek.
2. Skjóni, rauðskjóttur, 6
vetra, eigandi Stefán Hrólfsson,
knapi Sæmundur Sigurbjörns-
son, hljóp á sama tíma og Gola
en sjónarmunur réði úrslitum.
3. Tvistur, rauður, 6 vetra,
eig. Eysteinn Jóhannsson, knapi
Hjalti Jóhannsson, 20,0 sek.
300 m hlaup:
1. Snekkja, 9 vetra, eigandi
Sverrir Sverrisson, knapi eig.,
23,4 sek.
2. Máni, rauður, 7 vetra, eig-
andi Friðrik Gissurarson, knapi
Eiríkur Hjaltason, 23,9 sek.
3. Sporður, brúnskjóttur, 7
vetra, eigandi Þorvaldur Ágústs
son, knapi eig., 24,2 sek.
Rannsóknaráð rikisins Iiið nýja
NÝSKIPAÐ rannsóknaráð rík-
isins kom saman til síns fyrsta
fundar í fundarsal Hótel Sögu
12. ágúst.
Eins og kunnugt er samþykkti
síðasta Alþingi lög um rannsókn
ir í þágu atvinnuveganna. Með
lögum þessum var gerð veruleg
breyting á skipan og verkefn-
um Rannsóknarráðs ríkisins. —
Samkvæmt nýju lögunum á 21
maður sæti í Rannsóknaráði.
Sjö alþingismenn, kjörnir í sam
einuðu þingi, eiga sæti í ráðinu,
og einn fulltrúi frá hverri eftir
greindra stofnana: Búnaðarfé-
lagi íslands, Fiskifélagi íslands,
Iðnaðarmálastofnun íslands,
Efnahagsstofnuninni og Raforku
ráði og raforkumálastjóra. Há-
skólaráð tilnefnir 3 fulltrúa og
forstjórar eftirgreindra stofnana
eiga sæti í ráðinu samkvæmt
stöðu sinni: Rannsóknarstofnun
ar byggingariðnaðarins, Rann-
sóknarstofnunar iðnaðarins,
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins, Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins og Hafrannsókn-
arstofnunarinnar.
Samkvæmt lögum er mennta
málaráðherra formaður Rann-
sóknaráðs og hann skipar vara
formann úr hópi ráðsmanna.
Verkefni hins nýja Rannsókna
ráðs eru:
1. Efling og samræming hag-
nýtra rannsókna og undirstöðu
rannsókna í landinu. Ráðið skal
hafa náið samstarf við hinar
ýmsu rannsóknastofnanir. Það
skal hafa sem gleggsta yfirsýn
yfir alla rannsóknarstarfsemi í
landinu og gera tillögur til úr-
bóta, ef það telur rannsókna-
starfsemina ófullnægjandi, rann
sóknarskilyrði ófullkomin eða
markverð rannsóknarefni van-
rækt.
2. Athuganir á nýtingu nátt-
úruauðæfa landsins til nýrra at-
vinnuvega ' og atvinnugreina,
enda skulu allar tillögur um nýj
ungar á sviði atvinnuvega og at
vinnugreina, sem berast ríkis-
valdinu, sendar ráðinu, og skal
það beita sér fyrir því, að fram
fari tæknileg og þjóðhagsleg at-
hugun þeirra, ef það telur þess
þörf.
3. Gera tillögur um framlög
ríkisins til rannsóknarmála og
fylgjast með ráðstöfun opin-
berra fjárframlaga til þeirra
rannsóknastofnana, sem lög
þessi ná til.
4. Öflun fjármagns til rann-
sóknastarfseminnar til viðbótar
framlagi ríkisins og tillögugerð
um skiptingu þess á milli rann-
sóknastofnana og rannsókna-
verkefna.
5. Að hafa í sínum vörzlum
skýrslur um rannsóknir á sviði
raunvísinda, sem kostaðar eru
af opinberu fé, og hlutast til um
að niðurstöður séu kynntar. —
Rannsóknaráð semur árlega
skýrslu um rannsóknastarfsem-
ina í landinu.
6. Að stuðla að söfnun er-
lendra rita og annarra upplýs-
inga um vísindastörf, rannsókna
störf og tækni og úrvinnslu
þeirra til hagnýtingar fyrir at-
vinnuvegi landsins. Upplýsing-
um þessum skal komið á fram-
færi við rannsóknastofnanir.
7. Að beita sér fyrir skjótri
hagnýtingu tæknilegra nýjunga
hjá atvinnuvegunum með kynn
ingarstarfsemi og upplýsinga
þjónustu.
8. Samstarf við hliðstæðar er
lendar stofnanir og að stuðla að
þátttöku íslands í alþjóðlegu
samstarfi á sviði rannsóknar-
mála.
9. Önnur þau verkefni, sem
æskilegt reynist að sameina fyr
ir rannsóknarstarfsemina.
Fyrsti fundur hins nýja Rann
sóknaráðs hófst að Hótel Sögu
í Reykjavík í dag 12. ágúst.
Jarðarbúar 3.160 millj.
JARÐARBÚAR voru á miðju
ári 1963 samtals 3.160 milljónir,
en 2.990 milljónir 1960 og 2.895
milljónir 1958. Yfir'helmingur
jarðarbúa býr í Asíu (Sovétrík-
in ekki meðtalin). Evrópa er
enn þéttbýlasta álfan með 89
menn á hvern ferkílómetra, en
sé heimurinn tekinn í heild eru
að jafnaði 23 menn á ferkílóm.
Góðar móffökur á Siglufirði
350 m hlaup:
1. Haukur, 14. vetra, eig. Pét-
ur Steindórsson, knapi Sverrir
Sverrisson, 28,0 sek.
2. Hörður, brúnskjóttur, 9
vetra, eig. Benedikt Benedikts-
son, knapi Ólafur Pétursson,
28,0 sek.
3. Léttfeti, bleikskjóttur, 13
vetra, eig. Jón Gíslason, knapi
Skarphéðinn Eiríksson, 28,7 sek.
Að kappreiðum loknum fór
fram góðhestakeppni og var
keppt í tveimur flokkum, í
fyrsta lagi alhliða góðhestar og
í annan stað klárhestar með
tölti. Af alhliða góðhestum
fengu bezta dóma og í þessari
röð: Gáski Herdísar Pétursdótt
ur í Álftagerði, 9 vetra gamall,
Léttir Þorgríms Stefánssonar á
Tyrfingsstöðum, 10 vetra og
Glampi Péturs Sigurðssonar á
Hjaltastöðum, 8 vetra.
Af klárhestum með tölti voru
taldir standa fremstir: Faxi Ás-
dísar Sigurjónsdóttur, Syðra-
Skörðugili, 7 vetra. Vinur Hauks
Ingvarssonar, Vatnshlíð, 21 árs
og Snarfari Jósafats Felixsonar,
Húsey, 22 vetra.
Að lokum fór svo fram á skeið
vellinum hópreið um 30 krakka
og vakti það atriði ekki lyvað
minnsta athygli.
Starfsmenn kappreiðanna
voru þessir, auk skemmtinefnd
ar, sem hafði veg og vanda af
samkomunni að öðru leyti: —
Skeiðvallarnefnd: Ottó Þorvalds
son, Sigmundur Magnússon,
Frosti Gíslason, Jósafat Felix-
son, Steingrímur Egilsson. Dóm
nefnd kappreiða: — sr. Gunnar
Gislason, Sigurður Óskarsson,
Jóhann Jóhannesson. Dómnefnd
góðhesta: Guðmundur Sigfús-
son, Broddi Björnsson og Ottó
Þorvaldsson. Yfirtímavörður: —
Guðjón Ingimundarson. Ræsir:
Þorvaldur Árnason. Vallarstjóri
Magnús H. Gíslason. mhg.
VINNSLA á gulli úthafanna var
lengi vel einn af óskadraumum
mannanna. Eftir heimsstyrjöld
ina fyrri ætlaði þýzki efnafræð
ingurinn og Nóbelsverðlaunahaf
inn, Frits Haber, að borga stríðs
skaðabæturnar á þennan hátt,
en tilraunir hans misheppnuð-
ust.
Nú hefur starfsbróðir lrans,
prófessor Ernst Bayer í Tiibing
en, framleitt efni, sem bindur
hin uppleystu málmsölt hafsins.
ÞANN 19. júlí sl. fór Kvenfélag
Sauðárkróks í sína árlegu
skemmtferð með aldrað fólk úr
bænum. Farið var að þessu
sinni til Siglufjarðar ;og ekið,
sem leið liggur þangaðj í mikíu
blíðskaparveðri, — með þeim
eina útúrkrók, að skroppið var
fram í Austur-Fljót, alla leið
inn fyrir Stífluhóla.
Til Siglufjarðar var komið kl.
3 síðdegis. Þar tók Skagfirðinga
félag Siglufjarðar á móti öllum
hópnum, yfir 40 manns, af mik-
illi rausn. Var staðnæmst Við
Hótel Höfn og setzt þar að
Við prófun í haflíffræðirannsókn
arstofunni í Neapel gat hann
„veitt“ 450 míkrógrömm (míkró
gramm er milljónasti hluti úr
grammi) af kopar og 1,4 míkró
gram af gulli úr 100 1 af sjó, sem
er 100% nýting. Þetta áhrifa-
mikla efnasamband er að mestu
byggt upp af hæmocyanin. Það
finnst í blóði kolkrabbans og
skilur það einkum kopar frá
sjónum.
(Úr Teknik for alle).
hlöðnu veizluborði. Eftir vel
þegnar veitingar og stutt spjall
við gamla og góða Skagfirðinga,
dreifðist fólkið og hvarf til vina
og vandamanna víðsvegar um
bæinn því sökum rigningar
síðari hluta dagsins, var lítið
hægt fyrir aldrað fólk að skoða
sig um. Þeir, sem ekki áttu til
kunningja að leita nutu húsa-
skjóls og frábærrar gestrisni á
hinu myndarlega heimili for-
manns Skagfirðingafélags Siglu
fjarðar, frú Halldóru Jónsdótt-
ur frá Sauðárkróki og manns
hennar, Jóhannesar Þórðarson-
ar, yfirlögregluþjóns.
Um kvöldið sat svo ferðafólk
ið kvöldverðarboð að Hótel
Höfn, í boði Skagfirðingafélags-
ins. Þar voru mættir fjölmargir
Skagfirðingar, sem búsettir eru
í Siglufirði og leið kvöldið í á-
gætum fagnaði með hinum góðu
gestgjöfum.
Vér viljum, fyrir hönd kven-
félags Sauðárkróks og gesta
þess, færa Skagfirðingafélagi
Siglufjarðar innilegustu kveðj-
ur og þakkir fyrir móttökurn-
ar.
FerSanefnd.
ÓSKADRAUMUR, SEM RÆTIST
JKH^SHKHKBKHKBKHKHKHKHKBKBKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKBJ
I RONALD FANGEN 1
EIRÍKUR HAMAR
| Skáldsaga |
&KHKHKHKHKHKHK 60 KHKHKhKHKBKBKB*
— Já, það segi ég. Og þú ert svo góður við mig.
— Hvaða vitleysa.
— Og ég elska þig.
Eiríkur hlustaði lengi á setninguna, áður en hann sagði
nokkuð:
— Gerirðu það?
— Já, núna smásaman, þegar mér finnst ég ekki vera
ræfill lengur, elska ég þig meir og meir. Flak-ræfill getur
ekki siglt, eins og þú veizt. En nú er ég senn orðin eins
sterk og þú.
— Þá mun ég segja, að þú verðir reglulega sterk.
— Það ætla ég líka að vera. Ég er fædd til þess. Veiztu
eitt sem mér finnst svo indælt?
— Nei?
— Að eiginlega sért þú það, sem ég hef alltaf elskað.
— Það skil ég ekki.
— Þér verður ekki illt í augunum af að koma út í sól-
skinið á morgnana, svo að þú verðir sneyptur og viljir helzt
rölta inn aftur í híðið þitt og halla þér útaf.
— Æ-svei, ég held nú ekki!
— Ég man að Níels þoldi ekki sólskinið á vorin. — Það
er svo fjárans-ári sterkt, sagði hann. Og hann sat svo furðu-
lega einmana og utangátta við hliðina á mér, þegar við sát-
um einu sinni úti og hvíldum okkur einn slíkan vordag.
Ég kenndi svo í brjóst um hann og þótti svo vænt um hann.
— Já?
— Þú segir já, skilurðu þá ekki neitt, sagði Ástríður og
þrýsti sér fast og ákaft upp að honum. Skilurðu ekki að ég
vildi elska hann til að verða eins og þú. Svo hann gæti
elskað það, sem ég elskaði, verið jafn glaður og þakklátur
og ég var. Skilurðu ekki að það er það, sem hefir nærri
svipt mig lífi, að ég fann það ekki, fann það ekki, ekki
nokkurs staðar. Hvergi.
Hún fór að gráta og stamaði:
— Ég varð svo skömmustuleg! Ég liélt það væri öðruvísi.
Að það væri eitthvað annað. Nú verðurðu að skilja mig:
Alltaf eitthvað annað en ég sjálf. Og svo vildi ég verða
þannig, sem ég hélt það yrði að vera. Og svo varð ég svo
andstyggileg, svo viðbjóðsleg með sjálfri mér. — Svo and-
styggileg! — Eiríkur, hrópaði hún, ég elska þig. Ég er að-
eins þínb.
Og hún hvíslaði í eyra hans:
— Geturðu ekki fundið, að ég elska þig!
— Jú» ég á þig.
Við liggjum bara kyrr hérna, sagði hún. En segðu mér
annars, Eiríkur: Hve lengi verða Eiríkur og Ástríður í para-
dís?
— Við hugsum ekkert um það. Hér rekur enginn okk-
ur út.
— Já, þá verðum við hér kyrr. — En einhverntíma kem-
ur þó sá bitri dagur.
— Það gerir hann auðvitað.
— Og hvernig lízt þér svo á að verða þjóðfélags-þegn á
ný? Það getur ekki hafa verið neitt bráðskemmtilegt, eftir
því sem þú hefir sagt mér?
— Nei, en það var nú fyrst og fremst mér sjálfum að
kenna, af því ég var sjálfur svo óskemmtilegur.
— En ekki bara það?
— Nei. Og mér finnst ennþá ekki skemmtilegt að hugsa
til heimferðar.
— Skemmtilegt að hugsa um, nei, sagði Ástríður döpur.
En er það annars ekki brjálsemi næst, að þannig skuli horfa
við hér í heirni, að manni liggi við að finnast það ganga
glæpi næst að láta sér líða reglulega vel. Það er eins og
maður laumist burt frá einhverju. — Þegar ég loka augun-
um, sé ég allt sjúkrahúsið fyrir mér, alla þá sem þar komu
inn látlaust, þegar mest gekk á. Og þá er mér óskiljanlegt,
að það skuli vera hægt að láta sér líða eins vel og okkur
núna.
Nei, Eiríki var vissulega ljóst, hve ótrúlegt þetta hlyti enn
að vera henni. Hann heyrði hana oft kveinka sér og barma
í svefni á nóttunum. Og er hún stundum hálfsofandi flevgði
sér allt í einu í faðm hans, fann hann greinilega hve skelk-
uð hún var og skjálfandi af ægilegum ótta. Hann luigsaði
nú um þetta, og það myndi verða honum nægilegt viðfangs-
efni, unz hún einhverntíma væri orðin alveg örugg, svo
örugg urn að lífið á hennar vegum væri í fullu lagi, að ást
hans myndi ekki frá henni víkja, og að hún gæti leyft sér
að vera hamingjusöm og gæti hugsað um allt án angistar og
kvíða.
Þetta var fyrst og fremst allt það, sem hann að svo stöddu
ætlaði að sinna í „þjóðfélagslegu lífi“. Og er því væri lok-
ið, skyldi hann vissulega snúast rækilega við öðru því sem
biði hans.
— Þú átt heldur ekki að skilja þetta, sagði hann. Líttu
á hve sólin stráir geislaflæði sínu niður á milli greina
trjánna. Annað þarft þú ekki að sjá fyrst um sinn.
" i
(Sögulok.) j