Dagur - 11.09.1965, Side 2
2
ÍBA og UMSK skíldu jöfn að stigum í
keppni fjögurra handalðga í Reykjavík
HIN ÁRLEGA fjögurra banda-
laga keppni fór fram sunnudag-
inn 5. þ. m. á Ármannsvellinum
í Reykjavík. Háðu þar keppni í
frjálsum íþróttum, Ungmenna-
samband Kjalarnesþings, íþrótta
bandalag Akureyrar og Ung-
mennasamband Eyjafjarðar.
Fjórði aðilinn, íþróttabandalag
Keflavíkur gat ekki mætt til
leiks að þessu sinni. Ungmenna
samband Kjalarnesþings sá um
framkvæmd keppninnar og
voru móttökur sambandsins
með miklum ágætum. Þegar
norðanmenn komu á flugvöll-
inn biðu Kjalnesingar þar og
óku þeim að leikvelli og sáu
einnig um þá á flugvöllinn að
móti loknu, og héldu þeim góða
veizlu í félagsheimilinu í Kópa-
vogi. Þar fór einnig fram verð-
launaafhending. Við það tæki-
færi voru ávörp flutt og Ulfar
Ármannsson formaður Ung-
mennasambands Kjalarnesþings
afhenti ÍBA og UMSE vandaða
borðfána á stöng með merki
UMSK.
Heildarúrslit í keppninni
urðu þau að UMSK og ÍBA
urðu jöfn að stigum hlutu 74
stig hvort en UMSE fékk 65.
Keppni var þannig hagað, að
hvor aðili sendi tvo keppendur
í hverja grein. Svæði það, sem
keppt var á, er ekki gott, t. d.
er hringbrautin, sem hlaupið
var á, ekki nema um 350 m. og
brautimar misjafnar að gæð-
um. Þrátt fyrir það náðist at-
hyglisverður árangur í sumum
greinum, enda áttust þarna við
nokkrir landskunnir frjáls-
íþróttamenn, s. s. Reynir Hjartar
son, Donald Rader, Þórður Guð
Ljósakross í Hóla-
neskirkju
HERAÐSFUNDUR Húnaþings-
prófastsdæmis hófst með messu
í Höfðakaupstað sunnudaginn
5. september og hófst kl. 2 síð-
degis. Séra Gísli Kolbeins pre-
dikaði. Sóknarpresturinn, séra
Pétur Ingjaldsson þjónaði fyrir
altari. Kirkjukór Hólaneskirkju
söng undir stjórn Kristjáns
Hjaltasonar.
í messulok minntist sóknar-
presturinn þess, að nýr Ijós-
kross hefði verið gefinn Hóla-
neskirkju og yrði kveikt á hon-
um þennan dag.
Eftir messu setti prófasturinn,
séra Þorsteinn Gíslason í Stein-
nesi fundinn og flutti ýtarlega
yfirlitsræðu um kirkjulega við-
burði. Fundurinn var vel sótt-
ur. Aðalefni fundarins var um
kirkjugarða og voru samþykkt-
ar tillögur þar að lútandi.
(Frá fréttaritara)
mundsson og Þorsteinn Alfreðs-
son: Fleiri náðu-athyglisverðum
árangri, en einna mest mun þó
hafa komið á óvart frammistaða
Sveins Kristdórssonar ÍBA, að
stökkva 1.70 m. í hástökki nær
æfingalaus.
Árið 1958. gaf ÍBA verðlauna-
bikar og hlýtur það bandalag
hann, sem stigahæst verður
hverju sinni. Nú kemur það í
hlut ÍBA og UMSK að varð-
veita hann til skiptis til næsta
árs.
Ráðgert er að næsta keppni
þessara aðila fari fram á Akur-
eyri næsta sumar, og standa
vonir til að Keflvíkingar verði
þá með á ný.
Úrslit í einstökum greinum
urðu sem hér segir:
100 metra hlaup. sek.
Reynir Hjartarson ÍBA 11.1
Þóroddur Jóhannss. UMSE 11.4
Sig. Sigmundsson UMSE 11.5
Hörður Ingólfsson UMSK 11.5
Kúluvarp. m.
Ármann J. Láruss. UMSK 13.40
Þóroddur Jóhannss. UMSE 13.26
Ingi Árnason ÍBA 12.99
Gunnar Ármannss. UMSK 12.39
Langstökk. m.
Donald Rader UMSK 6.64
Reýnir Hjartarson ÍBA 6.08
Friðrik Friðbjörnss. UMSE 6.07
Sig. Sigmundsson UMSE 5.94
400 metra hlaup. • . sek.
Þórður Guðmundss. UMSK 53.6
Reynir Hjartarson ÍBA 54.1
Baldvin Þóroddsson ÍBA 55.2
Sig. Sigmundsson UMSE 55.5
Hástökk. m.
Reynir Hjartarson ÍBA 1.75
Donald Rader UMSK 1.70
Jóhann Jónsson UMSE 1.70
Sveinn Kristdórsson ÍBA 1.70
Kringlukast. m.
Þorsteinn Alfreðss. UMSK 45.40
Ingi Árnason ÍBA 36.38
Ármann J. Láruss. UMSK 36.29
Þóroddur Jóhannss. UMSE 36.06
1500 metra hlaup. mín.
Þórður Guðm. UMSK 4.22.2
Baldvin Þóroddss. ÍBA 4.26.6
Vilhj. Björnsson UMSE 4.32.0
Bergur Höskuldss. UMSE 4.38.0
Spjótkast. m.
Ingi Árnason ÍBA 44.25
Björn Sveinsson ÍBA 42.64
Donald Rader UMSK 39.44
Jens Þórisson UMSK 38.21
Þrístökk. m.
Sig. Sigmundss. UMSE 13.23
Donald Rader. UMSK 13.02
Friðrik Friðbjörnss. UMSE 12.57
Reynir Hjartarson ÍBA 12.32
4x100 metra boðhlaup. sek.
1. Sveit UMSE 47Í0
(Friðrik Friðbjörnsson, Jóhann
Jónsson, Sigurður Sigmunds-
son og Þóroddur Jóhannsson.)
2. Sveit ÍBA 47.1
(Björn Sveinsson, Sveinn Krist-
dórsson, Ingi Árnason og Reyn-
ir Hjartarson.)
3. Sveit UMSK 47.5
(Hörður Ingólfsson, Ingólfur
Ingólfsson, Einar Sigurðsson og
Þórður Guðmundsson.) □
Náms og ferðastyrkir
til Bandaríkjanna
MENNTASTOFNUN Banda-
ríkjanna hér á landi, Fulbright-
stofnunin, tilkynnir, að hún
muni veita náms- og ferða-
styrki íslendingum, sem þegar
hafa lokið háskólaprófi og
hyggja á frekara nám við
bandaríska háskóla á skólaár-
inu 1966—1967.
Umsækjendur um styrki
þessa verða að vera íslenzkir
ríkisborgarar og hafa lokið há-
skólapi'ófi, annaðhvort hér á
landi eða annars staðar utan
Bandarikjanna. Þeir, sem eru
ekki eldri en 35 ára að aldri,
verða að öðru jöfnu látnir
ganga fyrir um styrkveitingar.
Nauðsynlegt er, að umsækjend-
ur hafi gott vald á enskri tungu.
Þeir, sem sjálfir kunna að
hafa aflað sér námsvistar við
bandarískan háskóla, geta sótt
um sérstaka ferðastyrki, sem
stofnunin mun auglýsa til um-
sóknar í aprílmánuði næsta ár.
Umsóknareyðublöð eru af-
hent á skrifstofu Menntastofn-
unarinnar, Kirkjutorgi 6, 3 hæð,
sem opin er frá 1—6 e. h. alla
virka daga, nema laugardaga.
Umsóknirnar skulu síðan send-
ar í Pósthólf Menntastofnunar
Bandaríkjanna nr. 1059, Reykja
vík, fyrir 8. október n. k.
(Fréttatilkynning frá Mennta-
stofnun Bandaríkjanna).
- Enn fjölpr í
(Framhald af blaðsíðu 8).
Gagnfræðaskólinn.
Umsóknum rignir nú yfir
Gagnfræðaskólann á Akureyri
hvaðanæva af landinu. Héraðs-
skólarnir og heimavistarskól-
arnir virðast allir vera orðnir
yfirfullir og geta þeir ekki leng
ur tekið við nemendum úr sín-
um eigin héruðum, hvað þá frá
öðrum stöðum. Skólaskorturinn
í landinu veldur miklum erfið-
leikum og fer vaxandi. Fjöldi
nemenda verður um 710.
Að Gagnfræðaskólanum á
Akureyri koma nú aftur þeir
Þórarinn Olafsson og Gestur
Olafsson, sem verið hafa í orlofi
og einnig mun frú Guðlaug
Þorsteinsdóttir kenna sem
stundakennari að einhverju
leyti. Bandarískur sendikenn-
ari frá Fulbright stofnuninni
mun einnig hafa aðsetur sitt í
Gagnfræðaskólanum og kenna
ensku með nýrri aðferð. Kenn-
ara fyrir eitt kennslufag vant-
ar.
Lagfæringar hafa verið gerð-
ar á skólanum nú í sumar. Skift
hefur verið um þak á elztu
skólabyggingunni og einnig
gólfdúka á göngum og stigum
sömu byggingar. Einnig er ver-
ið að breyta gömlu kennarastof-
unni í bókbandsvinnustofu og
svo er verið að lagfæra lóðina.
Ekkert hefur verið hreyft við
salnum nýja, en hann verður
væntanlega fullgerður á næsta
ári. — Skólastjóri er Sverrir
Pálsson.
Iðnskólinn.
í Iðnskóla Akureyrar verða
190 nemendur á vetri komanda.
Kennaraliðið verður næstum
það sama og áður. Skólinn er
enn á hrakhólum með húsnæði
og verður kennt á ýmsum stöð-
um í bænum eins og áður.
En Iðnskólabyggingin er haf-
in og verður væntanlega tekin
í notkun á næsta ári.
Skólastjóri Iðnskólans er Jón
Sigurgeirsson.
Bamaskóli Akureyrar.
í Barnaskóla Akureyrar verða
í vetur 780 börn. Enn vantar 3
kennara í full störf. Kennara-
skorturinn í ár er sýnu meiri
en í fyrra og til marks um það
má geta þess, að enginn nýút-
skrifaður kennari úr Kennara-
skóla íslands s.l. ár hefur ráð-
ið sig til starfa á Norðurlandi.
- Stofnun félaga um kísilgúrinn í Mývatni
(Framhald af blaðsíðu 1).
Mannvirkin við Helgavog og
þriggja km. leiðsla í Bjarnar-
flag er í raun og veru tvöföld
dælustöð, þ. e. botnleðjunni er
dælt úr prammanum upp í út-
jöfnunartankann, þaðan renn-
ur leirinn í dælustöðina, sem
spýtir honum alla leið að Bjarn-
arflagi. Þar verða svo væntan-
lega byggðar þrær fyrir leirinn.
Og þar efra eru tæki til að taka
úr leirnum sand og eldfjalla-
ösku og þar er einnig í haust
ein mikil skilvinda til að að-
skilja vatn og leir, vegna 50
tonna sýnishornsins, sem áður
var nefnt.
Ef allt gengur að óskum,
munu svo verksmiðjubyggingar
rísa í eða við Bjarnarflag á 7
ha. lands.
Ráðgert er, að við þær fram-
kvæmdir starfi 70—80 manns,
en 30—40 vinna síðan að stað-
aldri við verksmiðjuna.
(Upplýsingar frá Iðnaðarmála
ráðuneytinu og Pétri Stefáns-
. syni verkfræðingi.) .. ......
Þær breytingar hafa orðið á
kennsluháttum, að yngri deild-
um er nú kennt bæði fyrir og
eftir hádegi. Þannig verða hóp-
arnir minni og meiri tími gefst
til þess að sinna hverju barni.
Skólastjóri er Tryggvi Þorsteins
son.
Nokkrar endurbætur hafa
farið fram á skólahúsinu.
Oddeyrarskólinn.
1 Oddeyrarskólanum verða í
vetur 420 börn í 16 bekkjar-
deildum og er það nokkuð mik-
il fjölgun frá í fyrra. Eiríkur
Sigurðsson, skólastjóri, hefur
fengið árs leyfi frá störfum.
Hallgrímur Árnason, kennari,
og Rósa Árnadóttir, kennari,
hverfa frá skólanum. Skóla-
stjóri í vetur verður Indriði
Úlfsson, sem áður var kennari
við Barnaskóla Akureyrar. Ann
að nýtt starfsfólk við skólann
er Stella Thorarensen, kennari,
sem starfað hefur sem kennari
við ísaksskóla í Reykjavík. Þá
er fyrirhugað, að Signý Guð-
mundsdóttir, sem verið hefur
kennari í Haganesskólahverfi,
fái hálfa kennarastöðu við skól-
ann.
Flestum deildum haustskól-
ans hefur verið skift og er starf-
að bæði fyrir og eftir hádegi.
Söngkennsla er nú í fyrsta og
öðrum bekk og er það nýmæli.
Þá verður í haustskólanum
skipulögð kennsla í útileikjum,
undir stjórn Jóhanns Daníels-
sonar, keiinara. í athugun ér,
hvort hægt verður að koma til
móts við foreldra um skólabíl,
því mörg börn eiga langt að
sækja í skólann.
Breytingar hafa verið gerðar
á inngöngum þannig, að nú
ganga tvær bekkjardeildir inn
um austurdyr á austurálmu
skólans. Skólinn hefur nú að
fullu verið múrhúðaður að ut-
an og málningu að mestu lokið.
Indriði Úlfsson, sem verið hef-
ur umboðsmaður fræðslu-
myndasafns ríkisins, mun ann-
ast um lán á myndum og verða
þær staðsettar í Oddeyrarskól-
anum í vetur.
Glerárhverfisskóli.
Barnaskólann í Glerárhverfi
sækja nú um 100 börn, og eru
það ekki öll börn í hverfinu,
því vegna rúmleysis skólans
verða 7 ára börn austan Hörg-
árbrautar að sækja Oddeyrar-
skólann. Þau börn, sem búa
austan Hörgárbrautar og sóttu
Barnaskóla Glerárhverfis s.l.
vetur sækja áfram þann skóla.
Þetta er fyrsta árið, sem börn-
unum í Glerárhverfi er skift
milli skóla. Ein kennarastaða,
eða réttara sagt hálf, er laus
enn og hefur ekki tekizt að ráða
í hana. Vegna kennaraskorts
hefur skólinn tekið það ráð,
eins og fleiri skólar, að skifta
kennarastöðum í tvennt, til
þess að nýta þá starfskrafta,
sem fyrir hendi eru í nágrenn-
inu, t. d. húsmæður, sem ekki
geta unnið fullan starfsdag við
kennslu. Skólastjóri er Hjörtur
L. Jóngson.