Dagur - 03.11.1965, Qupperneq 8
8
SMÁTT ÖG STÓRT
Frá námskeiði Birgðastöðvar SÍS á Akureyri.
(Ljósm: G. P. K.)
Birgðasföð SÍS hélf námskeið á Akureyri
fyrir starfsfólk matvörubúða og var það vel sótt
BIRGÐASTÖÐ SÍS hélt nám-
skeið á Akureyri um síðustu
helgi fyrir starfsfólk matvöru-
búða og sóttu 90 manns, starfs-
fólk kaupfélaganna, allt austan
írá Vopnafirði til Blönduóss.
En flestir voru þátttakendurn
ir frá KEA á Akureyri. Nám-
skeiði þessu stjórnaði Jón Þór
Jóhannsson, forstöðumaður
Birgðastöðvar SÍS í Reykjavík.
Veitt var munnleg og verkleg
fræðsla. Á laugardaginn voru
erindi flutt en á sunnudaginn
var verkleg kennsla í einni af
kjörbúðum KEA.
Hús Guðmundar í. og
hús Ólafs Thors
GUÐMUNDUR í. fyrrverandi
ráðherra fær álitlega fúlgu fyr-
ir hús sitt, sem frægt er. Ríkis-
sjóður keypti. Nú er í athugun
að Vinnuveitendasamband ís-
lands kaupi hús af ekkju Olafs
Thors fyrrverandi forsætisráð-
herra á 5,1 millj. kr. Má því
segja, að ráðherrahúsin komist
í allgott verð. □
Þeir, sem erindi fluttu á nám-
skeiði þessu voru: Páll H. Jóns-
son, Jón R. Magnússon, Krist-
inn Ketilsson, Guðmundur Ingi-
mundarsón og Kristinn Þor-
steinsson.
Þátttakendur sátu kaffiboð
ICEA í lok námskeiðsins.
Kröfur um aukið sjáifsforræði
Kjördæmisþingi Framsóknarmanna nýlokið á
Iðavöllum í Vallahreppi á Austurlandi
Egilsstöðum 1. nóv. Oddsskarð
og Fjarðarheiði lokuðust vegna
snjóa og nú er jörð orðin hvít
og norðangarri. Það eru mikil
umskipti frá veðurblíðunni, sem
áður var.
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna á Austurlandi var hald-
ið á Iðavöllum í Vallahreppi sl.
laugardag og sunnudag. Þar
voru mættir 40 fulltrúar víðs-
vegar úr kjördæminu, ásamt
þingmönnum flokksins.
Fundarstjórar voru Hrólfur
Ingólfsson bæjarstjóri á Seyðis-
firði og Snæþór Sigurbjömsson
bóndi í Gilsárteigi. Þetta þing
var hið ánægjulegasta, og voru
mestar umræður um fjórðungs
málin, þar á meðal væntanlega
Hættir með dragnót
SAMKVÆMT fregnum frá ver-
stöðvum við Eyjafjörð, er drag-
nótaveiðum lokið. Guðbjörg frá
Ólafsfirði fór sinn fyrsta róður
með línu í morgun og fleiri
HELGAFELL BÍÐUR
Vopnafirði 2. nóv. Hér hefur
verið stórviðri og haugasjór.
Helgafellið hefur beðið hér úti-
fyrir í þrjá sólarhringa og ekki
komizt inn vegna brimsins. Nú
erum við búnir að fá nýjan
lækni, Magnús Stefánsson frá
Akureyri.
Nýi barnaskólinn, sem komin
er miðstöð í og einangrun og
múrverki að mestu lokið, verð-
ur væntanlega tilbúinn næsta
haust og tekinn í notkun. Enn
er kennt í gamla barnaskólan-
um, sem er ein af fáum skóla-
byggingum, sem ekkert fé hef-
ur runnið til úr ríkissjóði. K. V.
munu á eftir koma. Aflinn var
orðinn. sáralítill.
Hríseyingar eru nú, þónokkr-
ir, að ráða Sig á togara, vegna
fiskileysis á heimamiðum. Aðr-
ir halda að sér höndum í bráð
og eru að ráða það við sig, hvort
þeir eigi að taka línuna.
Bátar af Árskógsströnd öfl-
uðú dag og dag dável í drag-
nótina í síðústu viku. □
Skarðsannáll seldur
SAGT hefur verið frá því í frétt
um, að innan skamms verði
Skarðsannáll, þ. e. handritið,
selt á opinberu uppboði í Lon-
don. Er hér um að ræða helgra
manna sögur, skráðar á Skarði
á 14. öld. Þetta er talið eina
fornhandrit, íslenzkt, sem er í
einkaeign erlendis og talið
milljóna króna virði. Q
Austurlandsráðstefnu og undir-
búning hennar. Ætlunin er, að
hún fjalli um atvinnumál Aust-
urlands og hugmyndir og kröf-
ur um aukið sjálfsforræði fjórð-
ungsins.
Menn una því illa, að þurfa
að sækja alla forsjón suður til
Reykjavíkur, bæði andlega og
veraldlega, allt niður í nagla og
títuprjóna. Margar ályktanir
voru gerðar um almenn mál,
bæði landsmál og þau mál, sem
snerta Austurland sérstaklega,
ennfremur um flokksmál.
Stjórn kjördæmissambands
Austurlands skipa: Vilhjálmur
Hjálmarsson Brekku formaður,
Vilhjálmur Sigurbjörnsson Egils
stöðum varaformaður. Með-
stjórnendur: Kristján Ingólfs-
son Eskifirði, Marínó Sigur-
björnsson Reyðarfirði, Magnús
Einarsson Egilsstöðum, Sveinn
(Framhald á blaðsíðu 5).
HLUTDRÆGNI
Áhugasamur útvarpshlustandi
hað Dag nýlega að flytja þau
boð til þingnianna í stjórnar-
andstöðunni, að þeir fiyttu ýtar-
legri framsöguræður fyrir mál-
um þeim, er þeir bera fram á
Alþingi. Mættu þeir í því sam-
bandi taka ráðherrana til fyrir-
myndar, því framsaga þeirra fyr
ir stjórnarfrumvörpum væri að
jafnaði mun ýtarlegri. Aðspurð-
ur hvemig hann vissi svo vel
um þetta, svaraði hann því, að
hann fylgdist af athygli með
þingfréttum í fréttatíma útvarps
ins, þar sem sagt er frá þing-
ræðum. Blaðið færði þetta í tal
við mann, sem oft situr á þing-
pöllum. Hann glotti og svaraði:
Það vantar víst ekki, að ræður
þingmanna séu nógu ýtarlegar,
og það geturðu séð í Þingtíð-
indum eftir 4—5 ár. En hið hlut
lausa og stjómholla ríkisútvarp,
endursegir það, sem því sjálfu
sýnist. Og því er einstaklega
sýnt um, að endurtaka Ijót orð
um stjórnarandstöðuna, bætti
hann við.
VEGATOLLURINN NÝI
Fyrir sunnan er megn óánægja
með hið nýja umferðargjald á
Keflavíkurvegi. Búið er að taka
stórt ríkislán í þennan veg, hátt
á þriðja hundrað milljónir, og
gera á hann slitlag úr stein-
steypu á sama tíma sem vegir
annarsstaðar á landinu eru eins
og þeir eru.
Þeir sem eru á móti svona
skattheimtu og vilja fá liana
niður fellda, verða þá að fallast
á, að ríkislán verði tekin til
vegagerðar almennt, þar seni
ekki er hægt að framkvæma
hana fyrir fé úr vegasjóði á
liæfilegum tíma, og að þau lán
verði síðan greidd smám saman
af almennum ríkistekjum. Og
vera má, að ekki sé önnur leið
fær, því ekki er liægt að bíða í
30—40 ár eftir bráðnauðsynleg-
um vegabótum t. d. hér á Norð-
urlandi.
TILLAGA AÐ SUNNAN
Mörgum þykir það einkennilegt
ákvæði í bráðabirgðalögum
stjórnarinnar um búvöruverð-
ið, að kaup bóndans eigi að
hækka um sama hundraðshluta
og ellilaun og örorkubætur. Að
sunnan kemur sú saga, að þetta
ákvæði sé samið af sálfræðingi
stjórnarinnar og eigi að leiða
hugann að því, að Iandbúnaður-
inn sé Iítt starfhæf atvinnugrein
og á fallandi fæti, enda stakk
framkvæmdastjóri verzlunar-
ráðs upp á því nýlega á fundi,
að bændum væri greiddur líf-
eyrir fyrir að hætta að búa!
Eðlilegri væri sú aðferð, sem
áður hafði lagagildi, að miða
kaupliækkun bænda við kaup-
liækkanir annarra vinnandi
stétta.
BANKINN LÁNAR OG
BANKINN NEITAR
Menn eru að velta því fyrir sér
þessa dagana, hvernig á því geti
staðið, að verzlunarfyrirtæki
eins og Heba, sem nú er gjald-
þrota, skuli hafa liaft svo mikið
lánstraust, sem raun bar vitni
því gjaldþrotið er talið skipta
mörgum milljónum króna. Virð
ast útlán banka til hennar hafa
verið í litlu samræmi við hinn
daglega og leiða söng banka
gagnvart hinum mörgu smáu
og heiðarlegu mönnum sem
biðja um lán og fá það svar að
engir pcningar séu til. Hér er
um að ræða eitt af hinum lands-
þekktu afglöpum Útvegsbanka-
útibúsins á Akureyri, sem mest
an skellin fær við þetta gjald-
þrot. Það væri með ólíkindum,
að jafn kunnugur maður á Ak-
ureyri og útibússtjórinn, sem
þar að auki hafði Iögfræðilegan
ráðunaut sér við hlið, hafi verið
þar einn í ráðum.
Illf framferði unglinganna
í FYRRAKVOLD var beðið
um aðstoð lögreglunnar vegna
fíflslegrar framkomu ungs fólks
HERFERÐ GEGN HUNGRI
SVO SEM flestum mun kunnugt er nú á vegum Sameinuðu
þjóðanna, hafin herferð gegn hungri í heiminum. Svo sem
að líkum lætur er ísland þar meðal þátttakenda. Sárstök
framkvæmdanefnd hefur skipulagt þessa herferð hér á landi
og komið á svæðisnefndum víðsvegar. Fyrirhuguð er um
næstu helgi allsherjar söfnun sem víðast um landið, bæði með
al almennings og eins hjá fyrirtækjum. Hér á Akureyri fer
söfnunin fram n. k. laugardag og mun ungt fólk úr skólum
bæjarins þá heimsækja bæði fyrirtæki og heimili í bænum.
Nefndin er þess fullviss, að bæjarbúar almennt vilja vera
þátttakendur í þessari allsherjar herferð gegn hungri, hver
eftir sinni getu, og því skal öllum færðar þakkir fyrir drengi-
legan stuðning.
Pétur Sigurgeirsson.
Hermann Sigtryggsson.
ísak Guðmann.
Sigursveinn Jóhannesson.
Þóroddur Jóhannsson.
Jón Kristinsson.
á mat- og kaffistofu KEA við
Hafnarstræti. Lögreglan tók
þar marga óróaseggi og athug-
aði skemmdir, er framdar höfðu
verið. Olvun var ekki um kennt.
Á laugardagskvöldið tók lög-
reglan ölóða unglinga í miðbæn
um og hefur mál þeirra í rann-
sókn. í sambandi við það mál
er uppvíst orðið um fullorðinn
mann, sem gerði sig sekan um
að útvega unglingum áfengið,
en sektardómur í máli hans hef
ur enn ekki verið kveðinn upp.
Margir árekstrar ökutækja
hafa orðið, en flestir smávægi-
legir. Q
SLYSAHELGI
EFTIR síðustu helgi liggja 12
slasaðir menn og konur eftir
bifreiðaárekstra í Reykjavík,
sumir illa haldnir. Á rúmum
sólarhring urðu 9 bifreiða-
árekstrar á Akureyri en svo
giftusamlega vildi til að engan
mann sakaði. Q