Dagur - 06.11.1965, Blaðsíða 1

Dagur - 06.11.1965, Blaðsíða 1
Dagur SiiVlAR: 11166 (ritstjóri) 11167 (afgreiðsla) XLVIII. árg. — Akureyri, laugardaginn 6. nóv. 1985 — 82. tbl. Dagur kemur út tvisvar í viku og kostar kr. 25,00 á mán. í lausasölu kr. 4,00 RAUSNARLEGT FRAMLAG HERFERÐ GECN HUNGRI í DAG I DAG er aðalfjársöfnunardag- «r „Herferðar gegn hungri“. Eftir hádegið í dag verður geng ið i öll hús á Akureyri og á flesta bæi í héraðinu og leitað aðstoðar fólks. Er þess vænst að sem flestir láti einhverja fjár upphæð til þessarar söfnunar. Nefndinni sem starfar að fjár- söfnuninni hér á Akureyri og . í nógrenni hafa borizt rausnar- legar fjárupphæðir, t. d. kom Snorri Þórðarson frá Bægisá með kr. 5000.00 til eins nefndar- mannsins í gær, sem sitt fram- Iag til þessa mannúðarmáls. o Fékk 130 rjúpur á einum degi Blönduósi 4. nóv. Hér var föl í nokkra daga og hálka á vegum, en engin slys urðu. Menn gripu TOGARAVERKFALL A ÞRIÐJUDAGINN lauk at- kvæðagreiðslu um samnings- uppkast milli samninganefndar yfirmanna á togurum og útgerð armanna. Samkomulagið var fellt með 109 atkvæðiun gegn 43 en 30 seðlar voru auðir. Fyrsíi Akureyrartogarinn er hefur stöðvast vegna verkfalls ins, er Svalbakur, sem kom úr söluferð 4. þ. m. Kaldbakur er á heimleið úr söluferð og Harð- bakur einnig. Sléttbakur fór í gær áleiðis til Englands með afla sinn. □ tækifærið og fóru til rjúpna. Mikið er af þeirri hvítu, en mis- jöfn var veiðin, eins og gengur. Sá hæsti fékk 130 yfir daginn og var það Einar Guðlaugsson á Blönduósi, kunnur veiðimað- ur. Hér var lógað 38 þús. fjár og meðalvigt dilka varð 14 kg. Nú stendur yfir slátrun folalda og verða um eða yfir eitt þúsund folöld felld að þessu sinni. Hrossum mun fara heldur fækkandi þessi árin, en eftir- spurn eftir hrossakjöti vaxandi, og er verðið manna í milli mun hærra en áður og langt ofan við auglýst heildsöluverð á þessari vöru. Lítilsháttar var flutt út af (Framhald af blaðsíðu 2). f hinni miklu sláturtíð haustsins sjá sumir kjötþunga í hverju hrossi, en aðrir gæðinginn. Alþýðusamband Norðurlands vill hefja byggingu orlofsheimilis hér nyrðra Margar ályktanir gerðar á 9. þingi A.S.N. ALÞÝÐUSAMBAND Norður- lands liélt 9. þing sitt á Akur- eyri dagana 30. og 31. október sl. Þmgið sátu 33 fulltrúar frá sambandsfélögunum, en þau eru 22 með rúmlega 4000 félags- menn. Geisilegir vafnavexfir á Veslfjörðunum Milljóna króna tjón varð á vegum og brúm A MIÐVIKUDAGINN urðu víða miklar vega- og brúar- skemmdir ó Vestfjörðum, eftir óhemjumiklar rigningar. Þótt SKÁKMÓT U.M.S.E. S K Á K M Ó T Ungmennasam- hands Eyjafjarðar, fjögurra manna sveitakeppnin, hófst í sl. viku. Fjórar sveitir frá þremur félögum taka þátt í mótinu að þessu sinni og urðu úrslit í fyrstu umferð þessi: A-sveit umf. Skriðuhrepps vann sveit umf. Möðruvallasóknar með 2(4 vinning gegn 1(4 og sveit umf. Svarfdæla vann B-sveit umf. Skriðuhrepps með 2(4 vinning gegn 1(4. Þetta er 10. árið í röð, sem U.M.S.E. gengst fyrir skákmóti með þessu sniði. Hefir oftast verið mikil þátttaka í þeim, mest 10 sveitir en fæstar fjórar. Á undangengnum mótum hafa sveitir frá umf. Skriðuhrepps oftast farið með sigur af hólmi eða 8 sinnum alls, en í eitt skipti sigraði umf. Svarfdæla. Á sl. ári sigraði B-sveit umf. Skriðuhrepps. Q tjónin séu að litlu Ieyti rann- sökuð, eru þau talin gífurlég og skipta milljónum króna. Bægði aurskriðu frá húsi með jarðýtu. Skriður féllu t. d. í tugatali á vegi við ísafjorð. Á Seljalands- vegi á ísafirði, var jarðýta höfð til taks að ýta aurskriðu fram af veginum og bjarga með því húsum. Oddur Pétursson bæjar- verkstjóri var ú leið heim til sín, og sá þá hvar aurskriða stefndi á hús eitt. Stökk hann þá upp á jarðýtu, ók henni að hús- inu og lét tönn ýtunnar brjóta strauminn og veita frá. Sama dag lenti önnur skriða á stórum, steinsteyptum bílskúr og braut hann niður. Aur og grjót er víða á lóðum í kaupstaðnum. Á nokkrum stöðum lokuðust bílar inni milli farartálmanna. í Bolungarvík urðu einnig skemmdir, einkum í Óshlíðinni. Þar er 500 m vegarkafli kom- inn í kaf undir skriður eða runninn burtu. Hjá Þingeyri urðu einnig skemmdir af skrið- um, einnig í Dýrafirði, Súganda firði og Önundarfirði. Minnast menn vart slíkra vatnavaxta. í Austur-Barðastrandasýslu urðu cg miklar skemmdir á veg- um. □ Á þinginu voru ýtarlega rædd kjaramál verkalýðsins á sam- bandssvæðinu og samþykkt var ályktun þingsins um kjaramál. Einnig voru atvinnumál og að- gerðir til útrýmingar atvinnu- leysi á Norðurlandi rædd og gerð ályktun um það efni. Nokkur fleiri mál voru rædd á þinginu s. s. um orlofsheim- ilisbyggingu á Norðurlandi og gerð um það sérstök ályktun, þar sem talið er tímabært að nú þegar sé hafinn undirbúningur að stofnun og byggingu orlofs- heimilis verkalýðsfélaga á Norð urlandi og að framkvæmdir í því máli eigi að vera í höndum sambandsins og þeirra verka- lýðsfélaga á sambandssvæðinu, sem ákveða að taka fjárhags- legan þártt í byggingu heimilis- ins. Var miðstjórn sambandsins falið að leita eftir heppilegu landsvæði fyrir orlofsheimilið. Tekin voru fyrir vandamál iðnaðarins og samþykkt álykt- un þingsins um það efni. í miðstjórn Alþýðusambands Norðurlands til næstu tveggja úra voru kjörnir: Forseti: Tryggvi Helgason. Varaforseti: Björn Jónsson. Ritari: Jón Ingimarsson. Með- (Framhald á blaðsíðu 2). Nokkur óknyttafar- aldur á Akureyri Konurnar hafa kvöldvökur Hrísey 5. nóv. Hér var brúar- laust rok, þar til í morgun. Tveir bátar slógust saman hér á legunni og brotnaði annar lítils háttar. Að öðru leyti er allt óskaddað eftir rokið og allt í þessu fína, nema fiskleysi. Ferj- an komst ekki í land (upp á Litla-Árskógssand) í moi’gun, en Drangur gat lagzt að bryggju, enda farið að lægja þegar hann lcom. Hér er heldur viðburðalítið, engin böll, ekkert drukkið, stöku sinnum farið í kii-kju, en organista vantar. Konurnar eru búnar að koma á hjá sér einskonar kvöldvök- um, með upplesíri fx-amhalds- sögu og Ijóða. Það liggur vel á þeim þegar þær koma heim, og þá reynum við að taka vel á móti þeim. Þ. V. NÚ í VIKUNNI komu fram nokkrar falsaðar ávísanir hér í bæ. Unglingur vai'ð uppvís að verknaði þessum, og hafði hann áður stolið ávísanahefti hjá fyr- irtæki einu í miðbænum. Sarni piltur játaði sig valdan að hvax-fi 10—11 þús. króna úr húsi einu hér i bæ litlu fyrr. Fyrir skömmu var brotizt inn í Skódeild KEA og fimm pörum af skóm stolið þaðan. Skói'nir fundust síðar grafnir í jörð, utan eitt par, en hinn seki er óíundinn. Einnig var brotizt inn í Flóru, sprengdur upp pen- ingaskápur og smápeningum stolið. Á miðvikudagskvöldið var brotizt inn í útibú kaupfé- lags Verkamanna við Helga- magrastr. og þar stolið sælgæti. Mál þessi eru öll í rannsókn hjá lögi-eglunni. Þá hafa unglingar gert veitingamönnum lífið leitt með ólátum og smáskemmdum. Má af þessari upptalningu sjá, að dálítið er um óknytti í bæn- um urn þessar mundir og þörf á að leiða þá unglinga, sem hér eiga hlut að máli, á aðrar braut ir, og geta margir að því stutt. Tveir menn slösuðust Skagaströnd 5. nóvember. — H. Á MÁNUDAGINN slösuðust 2 menn héðan. Þeir voru á heim- leið frá Reykjavík, en lentu í árekstri á Andakílsárbrú. Gert var að sárum þeirra í Boi'gar- nesi. Bílarnir ónýttust. í gær komst Norðurleiðarútan ekki nema í Foi'nahvamm vegna roks og tafa af vatnavöxtum. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.