Dagur - 26.01.1966, Qupperneq 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Dalvík.
(Ljósm.: J. H.)
Dalvíkingar ætla að reisa síldarbræðslu
Hlutafjársöfnun er þegar hafin á staðnum
Dalvík 24. janúar. Fyrir nokkr-
um dögum var haldinn hér
borgarafundur og rætt um
byggingu síldarverksmiðju á
MARGIR FÓRU
SUÐUR
Ólafsfirði 24. jan. í gær og nótt
var vont veður, og skólabörn
urðu veðurteppt.
Síðustu fjóra daga vikunnar
var róið en afli var heldur lé-
legri en vikuna áður, enda ekki
sótt eins langt vegna verra
veðurs, fengu þó upp í 5 tonn.
Ovenju margt fólk fór á ver-
tíð. B. S.
Ný humarflokkunarvél
Á FÖSTUDAGINN var kynnt
ný vél, smíðuð eftir teikningu
cg forsögn Sigmunds Jóhanns-
sonar vélaeftirlitsmanns í Vest-
mannaeyjum í vélsmiðjunni
Þór í Eyjum. Vél þessi flokkar
humar í sex stærðarflokka og
sparar vinnuafl. Vél þessi kost-
ar 87 þús. kr. og seldust 11 vél-
ar um leið.
Humarvertíðin hefst í maí ár
hvert og munu hinar nýju vél-
ar þá koma í góðar þarfir. □
„KLERKAR f KLÍPU“
AÐ FREYVANGI
LEIKFÉLAG Öngulsstaða-
hrepps frumsýndi í gærkvöldi
gamanleikinn ,Klerkar í klípu*.
Leikstjóri er Jóhann Ögmunds-
son, Akureyri, en aðalhlutverk
leika: Fanney Theodórsdóttir,
Tjamalandi og Vignir Guðna-
son, Bringu.
Hálka á vegum
VARAÐ ER við hættulegri
hálku víða á vegum, bæði á
fjallvegiun, í byggð og á götum
bæjanna. □
Dalvík. Málið hlaut hinar beztu
undirtektir og er hlutafjársöfn-
un þegar hafin. Lítur út fyrir,
að hún ætli að ganga mjög vel.
Unnið er nú að víðtækum at-
hugunum á þesu máli.
Óðru hverju er unnið við ný-
byggingu við Húsabakkaskól-
anh í Svarfaðardal og lítur bet-
ur út en áður að hægt verði að
taka hana í notkun næsta
haust, þótt of snemmt sé að full
ýrða nokkuð í því efni. Þá er
lika unnið að íþróttahússbygg-
ingu hér á Dalvík, og er í það
komið' liítakerf i.
Sjö ungir menn fóru héðan á
vetrarvertíð til Ólafsvíkur.
Sundskáli Svarfdæla, elzta
yfirbyggða sundlaug landsins,
hálffertugúr að aldrþ hefur í
vetur verið notaður fjóra daga
í viku hverri, til sundkennslu
fyrir skólána á Húsabakka og
Dalvík. En þessi gamli og frægi
sundstaður hefur ekki þjónað
því hlutverki að undanförnu
sÖk'um skorts á hita. Nú í haust
rættist hins vegar úr því, er
borað var þar nærri. En þá feng
ust 4 sekúndulítrar af 34 gráðu
heitu vatni, sem nú gera Sund-
skálann að hinu ágætasta vetr-
arsundstað. Búningsklefar o. fl.
þarf að vísu að lagfæra, og verð
ur sjálfsagt gert eins fljótt og
tök eru á.
Starfsfólk kaupfélagsins hér
úndirbýr nú þorrablót, seríi
m.argir hlakka til. Um 50 fast-
ráðnir menn og konur starfa
hjá kaupfélaginu. J. H.
MARGIR UM BOÐIÐ
Á sama tíma og sjávarútvegur-
inn kvartar yfir skorti á vinnu-
afli, er gengið milli manna í
sunnlenzkum verstöðvum, og
þeim boðin ýms fríðindi við
framkvæmdir í Hvalfirði. Ilval-
fjarðarframkvæmdimar eru
hálfgerð feinmismál. Afneitun
stjómarvalda á, að þar sé um
liemaðarmannvirki að ræða,
trúa menn misjafnlega. En livað
sem því líður eru margir um
boðið þar sem vinnuaflið er
annars vegar. Eða svo er það
sunnanlands. Hin mikla eftir-
spum eftir vinnuaflinu skapar
að ýmsu leyti óheilbrigt ástand,
einnig í öðmm landshJutum.
SOGAR TIL SÍN FÓLK
Hinn yfirspennti vinnumarkað-
ur er þó aðeins á suðvestur-
landi, enda sogar hann til sín
fólk úr öðrum landshlutum, auk
útlendinga. En landsíeðurnir
láta sér vel Iíka og ætla enn að
auka á sunnlenzka sogkraftinn
með byggingu stóriðju við
Straumsvík. Þeir hafa lands-
byggðarstefnu á vörunum, en
virðast orðnir þjónar erlendrar
auðhyggju og uppgefnir á því
að veita þjóðmálum viðhlítandi
forystu.
VANTRÚ Á ÍSL. ATVINNU-
VEGUM
Þjóðarleiðtogar okkar hafa
misst trúna á íslenzka atvinnu-
vegi. Allir vita hvaða hug þeir
Vatnsskortur í Kinn
Ófeigsstöðum 24. jan. Hér er
fremur snjólítið og fært um allt.
En skaparinn setti á okkur 15
stiga frost í dag og 20 stig í gær
og fer þá að verða svalt í veðri
þegar hvessir.
Hér í sveit eru milli 10 og 20
heimilisrafstöðvar og vantar nú
víða vatn til að þær skili full-
um afköstum. Bæði var jörð
vatnslítil í haust og svo gera
frostin sitt til núna. En þrátt fýr
ir kuldana og að mannfundir
liggja að mestu niðri, er eitt-
hvað. hugsað um pólitíkina.
Þingeyingar hafa nýverið látið
frá sér heyra um eitt stórmál-
anna. Þessi vísa varð til austan
heiðar í dag:
„Siglt er hátt en lágt er lotið
lífið eins og kveikur brennur.
Nú er ísland niður brotið,
nægtafullt svo út af rennur.“
B. B.
„Klerkar í klípu“. Frá vinsíri: Ilólmfríður Guðmundsdóttir, Vignir Gunnarsson, Fanney Theo-
dórsdóttir og Gunnvör Bjömsdóttir. (Ljósm.: Níels Hansscn.)
bera til Iandbúnaðarins — telja
hann dragbít á liagvexti þjóð-
arimiar, og ódýrara að neyta er-
lendrar búvöru. Iðnaðinn eru
þeir að sliga ineð óeðlilegri
tolla- og vaxtapólitík. Togaraút-
gerð á fslandi er að líða undir
lok á sama tíma og nýtízku tog-
arar nágrannaþjóða veiða hér
við Iand með góðum hagnaði.
Vantrú og bein óvirðing stjóm-
arvalda á íslenzkum atvinnu-
vegum er meinsemd, sem þyrfti
að fjarlægja.
------ —
SJÓRNIN HEFUR AÐRA
En þótt stjómin sé trúlítil á ís-
lenzkt athafnalíf og liafi gefizt
upp við ýmis verkefni sín fyrir
augum alþjóðar, er hún ekki
trúlaus ineð öllu. Hennar nýju
guðir eru erlent fjármagn, er-
lendir auðhringir og jafnvel er-
lent vinnuafl. Landhelgismálið,
dátasjónvarpið, hernaðarfram-
kvæmdir í Hvalfirði og alumin-
bræðsla við Siraumsvik eru
nokkrir merkjasteinar á veg-
ferð núverandi stjórnar.
ÞING V ALL AIMÁLIÐ
Sigurður Mkgnússon hélt ný-
lega umræðufund í úívarpi um
endurreisn Alþingis á Þingvöll-
um. Frummælandi var Ágúst
Þorvaldsson bóndi og alþingis-
maður á Brúnastöðum í Ámes-
sýslu. Én Ágúst er aðalflutn-
ingsmaður að tillögu til þings-
ályktunar um þjóðaratkvæði í
þessu máli.
Það kom í Ijós, að forseti
Ungmennafélags fslands, séra
Eiríkur Eiríksson þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum, vildi fá
Alþingi á Þingvöll og mælti
hann fyrir því. Hér sem oftar
endurtekur sagan sig, því að
fyrir 39 árum börðust ung-
mennafélögin fyrir því, að Al-
þingi yrði fiutt heim á sínar
slóðir, og sendu Alþingi áskor-
anir um það efni.
Tíminn skýrði frá því, að
bændur í Þingvallasveit hefðu
oft rætt þingflutninginn og
væm honum fylgjandL
AÐSTÖÐUMUNUR
f sambandi við fiskveiðar og
fiski innslu er það emi ekki rætt
sem skyldi, hve mikill munur
er á aðstöðu fiskvinnslustöðva
norðanlands og sunnan. Syðra
á vertíð, sem þar er aðalvertíð-
in, er hráefni nóg og stórfiskur-
inn þar ódýrari í vimislu en
lihin smærri fiskur, sem hér
veiðist.
í tíð vinstri stjómarinnar var
frystihúsum greidd sérstök
vinnsluuppbót á þann fisk, sem
dýrastur var í vhmslu. Ein af
(Framhald á blaðsíðu 7).
Togarinn náðist út
TOGARI sá frá Fleetwood, sem
strandaði á Höfðabrekkufjörum
og áður er hér frá sagt, náðist
út á laugardaginn lítt eða ekki
skemmdur og var honum siglt
samdægurs til Reykjavíkur.
Varðskipið Óðinn náði togar-
anum út á flóðinu sl. laugar-
dagsmorgun. Q